Kuggur og fleiri fyrirbæri by Hulda Maria

Sigrún Eldjárn
Sigrún Eldjárn er höfundur bókarinnar og myndskreytir. Hún myndskreytir allar sínar bækur sjálf enn hefur einnig myndskreytt bækur eftir aðra höfunda. Hún hefur mikið unnið með bróður sínum Þórarni Eldjárn.

Kuggur og fleiri fyrirbæri var gefin út árið 1987 af Forlaginu. Hún er fyrsta bók Sigrúnar um Kugg og ævintýrin hans. Síðan hefur hún gefið út fjölmargar bækur um ævintýri þeirra Kuggs og Málfríðar. Í seinni tíð hefur Sigrún endurútgefið nokkrar af þeim sögum sem eru í fyrstu bókum hennar um Kugg og þá inniheldur ein bók aðeins eina sögu. Bókin Kuggur 1 - Nýir vinir var gefin út af Sigrúnu árið 2004. Sú bók inniheldur fyrstu söguna í Kuggur og fleiri fyrirbæri.

Kuggur og fleiri fyrirbæri
Í bókinni er fjallað um Kugg og Málfríði, og þeim ýmsu ævintýrum sem þau lenda í. Bókinni er skipt í 5 sögur.

Nýir vinir
Kuggur er nýfluttur í nýtt hverfi, þar sem eru óskaplega fáir krakkar, og kynnist Málfríði. Mosi og mamma Málfríðar eru kynnt til leiks. Kuggur kemst að því að gamlar kerlingar geta verið ótrúlega skemmtilegar.

Í sveitinni
Kuggur, Málfríður, mamma Málfríðar og Mosi fara að heimsækja Geirólf á Grísatá. Þar þurfa þau að hjálpa honum að sinna bústörfum. Málfríður býr til landbúnaðarvél sem klárar öll verkin á stuttum tíma svo Geirólfur geti farið í fjallgöngur.

Í skólanum
Kuggur fer í skólann og mamma Málfríðar sendir Málfríði með honum þar sem hún gleymdi að senda hana í skóla sem barn. Þegar Kuggur ætlar að borða nestið sitt sprettur Mosi upp úr nestisboxinu. Það verður til þess að kennarinn kemur ekki upp orði því hann er svo hissa. Þá dugar ekkert minna en kennarahressitæki Málfríðar.

Prinsinn og drekinn
Málfríður finnur bréf sem hún hafði fengið frá bréfdúfu fyrir 60 árum en gleymdi að opna sem prinsinn í turninum hafði skrifað henni. Honum vantaði aðstoð við að losna úr turninum sem drekinn varði. Málfríður notaði langa fléttu prinsins við björgunaraðgerðina á meðan Mosi truflaði drekann ógurlega.

Snjór
Málfríður, Kuggur, Mosi og mamma Málfríðar fara út og búa til snjókerlingu. Allt í einu koma hrekkjusvín sem gera árás. Málfríður deyr ekki ráðalaus hún útbýr snjóboltahnoðunarvél. Vélin var notuð á móti hrekkjusvínunum sem gefast upp á endanum.

Lestur í heimakrók og umræður
Bókin er lesin af kennara í heimakrók. Þá geta nemendurnir séð myndirnar vel og öll einbeitingin fer í að hlusta og fylgjast með. Ef bókin er lesin með þessum hætti hefur kennarinn tækifæri til þess að ræða ákveðin málefni eða hugtök um leið og lesið er. Til dæmis þegar kennarinn les söguna Í sveitinni gæti hann spurt nemendur út í ákveðin hugtök/orð eins og dráttarvél, heyskapur og sveitarstörf. Hvað merkja þessi orð? Vita nemendur hvað dráttavél er? Kennari gæti einnig nýtt söguna sem grundvöll fyrir ákveðnar umræður til dæmis þegar hrekkjusvínin eru að stríða þeim væri hægt að taka umræður um stríðni og einelti.

Þroskaþættir sem hægt er að vinna með í þessu verkefni eru: Skynjun: sjónskynjun, heyrnarskynjun, athygli/einbeiting. Málþroski: málskilningur.

Aldurshópur
Við teljum að bókin sé góð fyrir 2. bekk vegna þess að hún fjallar um mismunandi málefni sem við getum oftast tengt við. Þar má nefna eins og að flytja í nýtt hverfi, mæta í skólann og fara í sveitarferð. Bókin er þó með ævintýralegu ívafi, þá aðallega persónuleiki Málfríðar og Mosi, ásamt sögunni um prinsinn og drekann. Bókin er fjölbreytt og ætti því að vekja áhuga flestra.

Myndirnar í bókinni eru mjög skemmtilegar, litríkar og innihaldsmiklar. Texti og myndir styrkja hvort annað og er samspil þeirra mjög gott.

Lokaorð
Bækur Sigrúnar eru vandaðar og skemmtilegar barnabækur sem við teljum að gaman verði að vinna með í framtíðinni. Sögurnar um Kugg og hans ævintýri eru fjölmargar, Sigrún er enn að bæta við bókum í safnið. Það væri eflaust hægt að útbúa þemaverkefni í tengslum við Kugg. Þegar nemendur verða eldri gætu þeir lesið aðrar bækur eftir Sigrúnu Eldjárn, og þekkja þá hennar stíl af sögugerð og myndskreytingum.

Verkefnið er unnið af Guðrúnu Lilju Kristófersdóttur og Huldu Maríu Valgeirsdóttur.

Kennsluhugmynd 2
Sagan Í sveitinni getur verið kveikja fyrir áframhaldandi verkefni um sveitastörf, dýr og búskap. Þá getur kennari lesið söguna fyrir nemendur í heimakrók þegar því er lokið getru kennari lagt verkefnið fyrir nemendurna. Slíku verkefni væri hægt að útfæra á marga vegu. Til dæmis væri hægt að búa til sveitabæ upp á vegg í stofunni. Þá gætu nemendur klippt út útihús fyrir dýrin, dýrin sjálf, tækin og búnaðarhætti þeirra sem þar búa. Það væri líka hægt að vinna með nemendur í kaflanum Húsdýr og gæludýr í bókinni Halló heimur 1. Þá væri hægt að vinna í verkefnabókinni sem fylgir Halló heimur 1.

Þroskaþættir sem hægt er að vinna með í þessu verkefni eru t.d. umhverfið: náttúran og dýr. Hreyfing: fínhreyfingar og samhæfing augna og handa. Vitrænn þroski: kerfisbundin og greinandi hugsun og fleira.

Kennsluhugmynd 1
Í sögunum Í sveitinni, Í skólanum og Snjór býr Málfríður til ýmsar uppfinningar, vélar og tæki. Nemendur búa til vél í stíl Málfríðar sem gæti verið hentugt að eiga heima fyrir eða í skólanum. Vélin væri gerð úr rusli (endurunnum efnivið), t.d. pappa, plasti, laufblöðum og því sem safnast saman í skólanum eða í umhverfinu.

Þroskaþættir sem hægt er að vinna með í þessu verkefni eru: Skynjun: sköpun, snerting, athygli/einbeiting. Hreyfing: fínhreyfingar. Vitrænn þroski: skapandi hugsun

Kennsluhugmynd 3
Í tengslum við söguna Prinsinn og drekinn þurfa nemendur að semja ævintýri. Þeir búa til sögupersónur, söguþráð og þurfa að leysa eitthvað vandamál sem gerist í sögunni.
Hægt væri að myndskreyta söguna, gera leikrit, búa til sögubók, eða jafnvel nýta Ipad-a eða tölvur og nota ýmis forrit sem þar er hægt að finna.

Þroskaþættir sem hægt væri að vinna með í þessu verkefni eru t.d. Málþroski: málskilningur, málþroski, málið sem tjáningarmiðill, málfar og málfærni. Hreyfing: fínhreyfingar.