klæðnaður by Angantýr Máni Gautason

Upphaf klæðnaðar
Þegar að guð skapaði hann heiminn þá skapaði hann Adam og Evu og samkvæmt biblíunni þá voru þau bæði nakinn en huldu kynfæri sín með laufum. Þar með mætti segja að upphaf klæðnaðar hafi byrjað strax í upphafi mannkynsins samkvæmt biblíunni allavega. Homo sapiens byrjaði að myndast fyrir um það bil 200.000 árum síðan og klæddust flestir laufblöðum og dýraskinni fyrir það en það er talið að homo sapiens hafi verið fyrsta manntegundin til þess að klæðast fötum. Það tók þá samt u.þ.b.30.000 ár að fara að klæðast seinna þegar að það var að byrja ísöld sem að fólk fór að klæðast meiri fatnaði þar sem að það var of kalt til að vera nakin eða með laufblöð. http://news.ufl.edu/archive/2011/01/uf-study-of-lice-dna-shows-humans-first-wore-clothes-170000-years-ago.html

Fornaldarklæðnaður
Fyrstu fötin sem að fólk klæddist var tóga fatnaður. Tóga fatnaður er mjög auðveldur og var notaður af rómverjum ásamt fleirum.
Hér fyrir neðan má sjá mynd af Tóga klæðnaði og sjá má þar að þetta er í rauninni bara lak sem fólk vafði utan um sig.

Miðaldarklæðnaður
Á miðöldum varð mikil breyting á tískunni frá fornöldum. Fólk klæddist mikið af ullarfötum þá oftast í sem skærustu litunum. Fólk á miðöldum var flokkað eftir fatnaði alveg eins og í dag þar sem að fólk er nánast sett í stéttarfélög eftir því hvernig merki eru á flíkunum sem að þau klæðast, á þessum tíma var því skipt þannig að því meiri pening sem fólk átti því skærari voru litirnir á fötununum sem að það gekk í ásamt því að ríka fólkið var oftast í mörgum flíkum í einu. http://www.learner.org/interactives/middleages/clothing.html

1800
Árið 1800 var stórt fyrir mannfólkið þó aðallega kvenmenn en það var á þessum tíma sem að konur byrjuðu að klæðast nærfötum. Á þessum tíma  var líka fundið upp pípuhatinn sem hefur síðan þá verið eitt mest notaða höfuðfatið sem til er.

1920
Árið 1920 var stórt ár í kvenréttindabaráttunni og notuðu konur klæðnað til að sýna það að þær mættu gera það sama og karlmenn og byrjuðu að sýna meira skinn bæði með því að klæðast magabolum og styttri kjólum. http://www.american-historama.org/1913-1928-ww1-prohibition-era/1920s-fashion.htm

Fram að þessu höfðu karlmenn oftast verið klæddir mjög formlega, flestir í jakkafötum eða í það minnsta skyrtu. Á þessum tíma varð hinsvegar mikil breyting á því og byrjuðu menn að klæðast peysum oftar en ekki. Þar með varð ekki einungis stór breyting á tísku kvenna þarna heldur einnig karla, þó mikill munur á breytingunum og geta flestir verið sammála um það að kvennabreytingin hafi verið mikilvægari fyrir framtíðina.

Klæðnaður sem stöðutákn
Klæðnaður hefur lengi verið táknrænn fyrir samfélög þeirra sem klæðast honum. Klæðnaður er eitt helsta tjáningarform margra þjóðfélagshópa, og hefur um árabil þróast og verið mótunaraðili fyrir stöður innan samfélaga um allan heim. Enn í dag má sjá efnað fólk klæða sig á annan hátt en fátækir innan vestræns samfélags, en klæðnaður getur einnig verið leið til að tjá skoðanir sínar og lífsviðhorf. Hugtök eins og hippi og töffari eru nýleg og hafa að miklu leyti orðið til vegna klæðaburðar sem einkennir tímabil eða stefnur.

Hippahreyfingin er einn af þeim atburðum sem urðu fyrir miklum áhrifum frá fatnaði. Fatnaður hippa var mjög einkennandi fyrir þá sem samfélagshóp, og að klæða sig eins og hippi var gríðarleg yfirlýsing. Þannig var hægt að senda kröftug skilaboð út í nærumhverfi sitt, um sjálfan sig og skoðanir sínar, með því einu að klæða sig á ákveðinn hátt. Hippahreyfingin snerist að miklu leyti um að brjóta hlekki samfélagsins, og því var engin furða að klæðnaður yrði notaður í þeirri hreyfingu þar sem fatnaður er einn helsti hlekkur ótalmargra samfélaga í heiminum. Í því samhengi er ekki úr vegi að nefna misskiptingu í vestrænu nútímasamfélagi. Misskipting er meiri en margan grunar, og þegar vel er að gáð má sjá að misskiptingin sýnir sig mjög bersýnilega í klæðnaði hinna ýmsu þjóðfélagshópa. Allt frá 12. Öld eftir Krist hefur fatnaður verið notaður til að sýna fram á stöðu, og var lengi vel öflugt vopn æðri stétta til að sýna fram á yfirburði sína yfir þeim sem minna máttu sín. Stéttaskipting eins og hún þekktist þá heyrir að miklu leyti sögunni til, en er þó enn til staðar að einhverju leyti, ekki síst í klæðnaði. Þeir sem hafa það síst í samfélaginu hafa ekki tök á að kaupa ýmsan fatnað vegna kostnaðar, og ríkir nota það sér í hag eins og mest þeir mega.

Merkjavörur tröllríða samfélagi þeirra sem hafa það best. Merki eins og Gucci, Ralph Lauren, Armani o.fl. eru einkennandi í fataskáp þeirra. Það er ljóst að þessi þjóðfélagshópur notar fatnað til að endurspegla stöðu þeirra í þjóðfélaginu, og má túlka sem skilaboð til annara. Aftur á móti eru aðrir hópar í samfélaginu sem nota merkjavörur, en það eru venjulega ekki sömu merkjavörur og þeir ríkustu nota. Þannig senda merkjavörur margvísleg skilaboð. Að vera í merkjavöru eru ákveðin skilaboð, en merkið sjálft sendir líka önnur skilaboð.

Fatnaður getur á þennan hátt verið eitt stærsta sjáanlega bil milli fátækra og ríkra í vestrænu samfélagi, þar sem að annar hópurinn notar hann mikið til að endurspegla stöðu sína, en hinn hópurinn fær minna eða engu um fatnað sinn ráðið.
https://fashion-history.lovetoknow.com/fashion-history-eras/social-class-clothing
https://en.wikipedia.org/wiki/Clothing

Trúarfatnaður
Klæðnaður hefur lengi verið stór hluti af trúarbrögðum mannkyns. Mörg trúarbrögð hafa sinn einkennisfatnað og hafa gjarnan sér fatnað fyrir karla og konur, auk fatnað sem undirstrikar stéttaskiptingu innan trúarinnar. Fatnaður tengdur trú hefur þó oftast nær takmörkuð áhrif í samfélaginu þar sem fólk klæðist honum alla jafna ekki nema við helgiathafnir eða önnur trúarleg tilefni. Undantekningar frá því eru ríki þar sem bókstafstrú er algeng og fólk klæðist trúarfatnaði allan ársins hring. Þar hefur fatnaðurinn margfalt hærri áhrif og skipar jafnvel hærri sess í samfélaginu.  Múslímskir menn klæðast til að mynda einföldum hvítum fatnaði og bera kollhúfu þegar helgiathafnir eiga sér stað. Þessi klæðnaður á að sýna hversu mjög tileinkaðir þeir eru trú sinni og athöfninni sem á sér stað á þeirri stundu. Mörg önnur trúarbrögð, til dæmis Íslam og Búddismi, leggja áherslu á að föt þeirra séu afar hrein en það er til þess að undirstrika hreinleika sálarinnar.
https://en.wikipedia.org/wiki/Clothing

Þjóðbúningar
Þjóðir hafa flestar sín einkenni sem aðskilur þau frá öðrum og er að jafnaði stolt þeirra. Margar þjóðir eiga sér sinn þjóðarbúning, og þótt að notkun þjóðbúninga sé misjafnlega algeng er þjóðbúningur oft mjög virðulegt fyrirbæri sem þjóðir státa sig af.

Þjóðbúningar eru oft á tíðum skrautlegir, og ef þeir eru ekki hluti af daglegum klæðnaði þjóðarinnar þá eru þeir oft notaðir við hátíðir sem tengjast þjóðinni, til dæmis þjóðhátíðardögum.
https://en.wikipedia.org/wiki/Clothing

Fatnaður og Femínismi
Fatnaður hefur frá upphafi verið hluti af réttindabaráttu kvenna. Þegar sú barátta hófst fengu konur ekki mikið að segja um klæðaburð sinn, samfélagið var þá löngu búið að ákvarða að konur skyldu hylja bæði skoðanir sínar, langanir og hold. Konur klæddust því venjulega fötum sem huldu allan líkamann, oft fötum sem voru mjög svo óþægileg og sköðuðu jafnvel líkamann vegna slæmrar líkamsbeitingar eða þrýstings.

Kvenréttindabaráttan hefur alla tíð snúist að miklu leyti um að brjóta ósýnilega múra. Allskyns reglur tengdar konum og körlum voru ef til vill ekki skrifaðar niður, en til þess að brjóta þær þurfti þó gríðarlegt átak sem margir þorðu ekki að reyna við. Þegar konur fóru að klæðast fötum sem sýndi ökkla eða jafnvel kálfa reyndist það því vera reiðarslag fyrir samfélagið, aldrei hafði annað eins sést í samfélaginu. Það vakti slíka umfjöllun og athygli að það verður að teljast til einna helstu atvika í sögu kvenréttindabaráttunnar.

Baráttan hélt áfram eftir þetta, og er ljóst að margar konur þurftu að beita öllum sínum kjarki til þess að fá að klæða sig eins og þær vildu. Það var ekki fyrr en á seinni hluta síðustu aldar að konur fóru að sýna meirihluta fótleggja sinna á opinberum stöðum, við mikla athygli heimspressunnar. Litir, snið og gerðir fatnaðar hafa líka verið baráttumál kvenna, og er greinilegt að klæðnaður hefur virkað vel sem vopn kvenna í baráttu sinni.
https://www.bustle.com/articles/191181-how-women-have-used-fashion-as-a-feminist-tool-throughout-history

Íþróttatreyjur
Íþróttir eru fyrirbæri sem geta verið mjög einkennandi fyrir þjóðfélagshópa. Í borgum og bæjum er eitt helsta sameiningartáknið oft á tíðum íþróttafélag, og er treyja íþróttafélagsins þá stór hluti af því. Sennilega er enginn klæðnaður sem hefur jafn mikil bein áhrif á svo marga einstaklinga og íþróttatreyja. Margir klæðast sömu treyjunni reglulega allt sitt líf, og berjast fyrir því að halda heiðri treyjunnar á lofti.

Ísland er áhugavert í þessu samhengi, en undanfarin ár hefur landsliðið í fótbolta átt hug og hjörtu Íslendinga. Afleiðingin af því hefur verið að treyjan er táknræn fyrir gervalla þjóðina. Íslendingar eru vissulega stoltir af þjóðbúningi sínum og nota hann við stórar hátíðir, en kjósa þó oftar að klæðast landsliðstreyjunni ef þeir vilja sýna þjóðarstoltið. Fá eru dæmi þess að flík hafi verið svo áhrifamikil á svo stóran hóp fólks og raun ber vitni í íslensku fótboltatreyjunni.
https://en.wikipedia.org/wiki/Costum

1945-1960
Það var ekki fyrr en árið 1946 sem að bikiní var fundið upp og var það franski fatahönnuðurinn Loius Réard sem að fann það upp. Það var því þarna sem að konur gátu loksins farið í sund til að tana almenninlega og get ég rétt svo ýmindað mér hversu glaðar þær hafa verið með það.
https://en.wikipedia.org/wiki/Louis_Réard

Í kringum 1960 var aftur komið að byltingu í kvenréttindabaráttunni og eins og árið 1920 þá notuðu kvenmenn klæðnað til að berjast fyrir réttindum sínum þarna. Það var fatahönnuðurinn Jackie Kennedy kona John Kennedy fyrrverandi Bandaríkjaforseta sem að veitti mikin innblástur til kvenna með fatalínunni sinni sem að kom út árið 1960. Ásamt þessari frábæru fatalínu sem að Jackie gaf út voru einnig leggins buxur kynntar til sögunar og vöktu þær upp mikla hamingja hjá konum.
https://www.liveabout.com/jackie-kennedys-iconic-1960s-style-3419883

Hér fyrir neðan má sjá Jackie Kennedy klæðast einum af kjólunum hennar.

Eighties
Árið 1980 er líklega þekktasta tísku tímabilið, það eru til óteljandi margar bíómyndir frá þessum árum ásamt því að eitt vinsælasta dansiballs þemað í dag er „eighties“ sem er einmitt þetta tímabil. Á þessum tíma gekk fólk einungis um í skærum litum og tóku mikið af áhættum í klæðnaði sínum. Konur fóru að klæðast axlarpúðum til að sýna að þær væru alveg eins og karlmenn og ættu skilið sömu réttindi.

Þar sem að fólk var í mjög mismunandi fatnaði á þessum tíma og mikið að taka áhættur þá var ekki bara einn stíll sem var vinsælastur á þessum tíma heldur margir. Þrír helstu stílarnir voru hip-hop sem var í rauninni bara að klæðast eins og allir frægu söngvarnir síðan var það að ganga í björtum litum líka mjög vinsælt en síðast en ekki síst var það pönk stíllinn þar klæddist fólk rifnum buxum og leðurjökkum, fólk sem fór þessa leið var líka oftast með litríkt hár
https://www.thetrendspotter.net/80s-fashion/

1990-2000
Það var á þessum tíma sem að gallabuxurnar urðu mjög vinsælar. Fólk klæddist fáu öðru en þeim eða síðum stuttbuxum og síðan vel síðum bol með, flest allir gengu um með hafnarbolta derhúfu. Ungt fólk á þessum tíma vildi bara vera nákvæmlega eins og frægustu söngvararnir sem að voru Madonna, Michael Jackson, Roxatte og fleiri. Þessi svokallaða „götutíska“ gekk yfir mjög lengi og mætti segja að hún sé eiginlega ennþá í dag þó ekki jafn mikil.
https://www.retrowaste.com/1990s/fashion-in-the-1990s/

2010-2018
Árið 2010 voru leðurjakkarnir og þröngu gallabuxurnar aðalmálið. Götutískan er enn vinsæl á þessum tíma en ásamt henni er svokallaða „merkjatískan“ komin líka þar sem að fólk í dag þá sértsaklega ungt fólk klæðist aðeins merkjavörur, til eru nokkrar ástæður fyrir því ein þeirra er nátturulega að dýru merkin búa til meiri gæðavöru en síðan er það líka bara vegna þess að fólk í dag dæmir mjög mikið út frá fötum annara en ekki t.d. persónuleika og vilja því flestir ganga í flottum eða dýrum fötum.
Vinsælustu merkin í dag eru íþróttamerkin Nike og Adidas en þessir tveir risar gjörsamlega eiga íþróttamarkaðinn. Einnig eru merki eins og Ralph Lauren Louis Vuitton, Supreme, Gucci og Hugo Boss mjög vinsæl og dýr merki.

Hér má sjá Jesse Lingard miðjumann Manchester United þar sem að hann er í öllu Gucci, sem er meðal frægustu merkjanna í dag.