Harry Potter og viskusteinninn by María Árelía

Útdráttur
Harry Potter er munaðarlaus og þarf að búa hjá frænku sinni og frænda, þar er sem illa er komið fram við hann. En dag einn birtist risinn Hagrid og tilkynnir Harry það að hann sé galdramaður. Hagrid segir einnnig að hann hafi fengið boð um að stunda nám í virtasta töfraskóla heims sem heitir Hogwarts. Þegar Harry fer í Hogwartsskóla finnur hann það sem að hann myndi kalla heimili. ,,Heimilið” hans er Gryffindor-turninn og fólkið þar fjölskyldan. Í skólanum kynnist Harry fullt af fólki og eignast nýja vini eins og Ron Weasley og Hermione Granger. Harry þarf að læra á galdraheiminn og á það að vera galdramaður. Harry vissi kannski ekki af galdraheiminum en galdraheimurinn vissi vel hver hann var. Hann fékk viðurnefnið strákurinn sem lifði af. Hann lærir fljótt að það eru ekki einungis góðir galdramenn eins og Dumbledore heldur líka vondir. Harry kemst að því að foreldrar hans dóu ekki slysi heldur voru myrt af Voldemort og að hann var ástæðan fyrir því að Voldemort hvarf fyrir 10 árum. Með hugrekki og kraft vináttu nær Harry að sigrast á Voldemort í annað skiptið í lífinu sínu en alls ekki í síðasta sinn.

Bókin um Harry Potter
Höfundur: J.K. Rowling
Útgefin erlendis: árið 1997 í Bretlandi
Þýdd á íslensku og útgefin:  árið 1999
Þýðandi: Helga Haraldsdóttir
Útgefandi á Íslandi: Bókaútgáfan Bjartur
- Öll bókasöfn eiga eintök af bókinni og margir skólar. Hægt er að nálgast hana sem hljóðbók sem og rafbók.
- Bókin er notuð víða í kennslu má þar nefna Akurskóla og Öldutúnsskóla.
- Einnig er hún notuð víða á þemadögum t.d. í Heiðarskóla og grunnskóla Bolungarvíkur

Ritdómar
,,Mjög fyndin, spennandi og frumleg saga - full af töfrum og gríni. Ég fékk gæsahúð af hrifningu. Þetta er bók sem enginn eldri en 9 ára ætti að láta framhjá sér fara...” - Sunday Times

,,dásamleg bók… frábær bók… nú get ég ekki beðið eftir næstu bók…” - Guðríður Haraldsdóttir, Morgunútvarp Rásar 2

Aldurshópur og aðstæður
Við teljum að efni bókarinnar henti vel til kennslu á elsta stigi í grunnskóla. Þá væri einnig bæði hægt að vinna með bókina á ensku fyrir enskutíma eða þýdda á íslensku fyrir íslenskutíma. Efnið hentar vel til kennslu fyrir stóran hóp af nemendum með mismunandi áhugasvið. Í bókaflokknum um Harry Potter takast persónur á við fjölbreytt vandamál sem margir ættu að geta tengt við. Inn í vandamálin blandast töfrar og dramatík sem veldur því að erfitt er að leggja bókina frá sér. Út frá efni bókarinnar er einnig hægt að ræða málefni eins og einelti, fordóma, ættleiðingar, fráfall ættingja o.fl. eftir því hvað nemendahópurinn kallar á.

Aðstæður:
Nemendur lesa bókina í tímum tvisvar í viku. Þá fá þeir einnig sem heimalærdóm að lesa nokkrar blaðsíður eða kafla eftir því hvernig gengur.

Ætlast er til að nemendur séu allir á sama stað eða í það minnsta fylgist að.

Kennsla fer að mestu leyti fram í kennslustofunni þó einnig sé möguleiki að færa kennslu í íþróttahúsið líkt og nefnt er í kveikju 3.

Fjölmiðlar fjalla um Harry Potter
Grein úr morgunblaðinu um Harry Potter síðan 17. nóvember 1999:
https://timarit.is/page/1951311?iabr=on#page/n59/mode/1up

Grein af Vísi síðan 26. júní 2017: ,,Harry Potter 20 ára Galdra­strákurinn sem lifði af og mótaði heila kyn­slóð"
https://www.visir.is/g/2017716329d

Grein frá Fréttablaðinu síðan 23. mars 2019:

,,Drengurinn sem lifði af – lifir enn"

https://www.frettabladid.is/lifid/drengurinn-sem-lifi-af-lifir-enn/

Dæmi um Harry Potter þemadaga:
1.Grunnskólinn á Hvolsvelli
https://www.hvolsvollur.is/is/ibuar/skipulagsmal/frettir-og-tilkynningar/harry-potter-themadagar-a-elsta-stigi-i-hvolsskola

2. Giljaskóli
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/650289/

3. Laugalandsskóli
https://www.laugalandsskoli.is/themadagur-eitt/

4. Grunnskólinn á Bolungarvík
https://gs.bolungarvik.is/frettir/themadagar-i-grunnskolanum

5. Akurskóli í Reykjanesbæ
http://www.akurskoli.is/frettir/themadagar-2

Töfraskinna
Þrátt fyrir að við miðum námsefnið út frá því að vera hentugt fyrir elsta stig þá er einnig rætt um Harry Potter bækurnar í samhengi við kennslu á miðstigi

Kveikjur
Kveikja 1: Nemendur mæta í tíma og fá stutta kynningu á því um hvað bókin Harry Potter er. Því næst lætur kennari þau leysa próf sem segir til um það í hvaða hús þau myndu vera sett í. Kennari fær síðan nemendur til sín einn í einu og setur hatt á koll þeirra. Það yrði þá nokkurs konar flokkunar athöfn líkt og gert er í bókinni.

Kveikja 2: Kvikmyndin byggð á fyrstu bókinni gæti einnig verið góð kveikja.

Kveikja 3: Fá íþróttakennara í samstarf og spila quidditch

Hugmyndir af verkefnum
Verkefni 1: Umræður í tíma. Umræður eiga sér stað í tíma þegar búið er að taka fyrir ákveðna kafla.

Verkefni 2: Nemendur eiga að lesa bókina með það að markmiði að komast að sem mestu um húsið sem þau fengu úthlutað (út frá kveikju 1). Nemendur eru settir í hópa með öðrum sem fengu sama hús. Verkefnið yrði að setja saman lýsingar á húsinu sínu, persónum sem eru í því húsi og fleira sem þeim dettur í hug.

Verkefni 3: Nemendur lesa bókina og horfa svo á myndina. Þeir eiga síðan að skrifa ritgerð um það hvað var öðruvísi og hverju þeir hefðu breytt við myndina.

Verkefni 4: Nemendur vinna í hópum og búa til nöfn á eigin seyði. Þeir teikna svo upp hugmyndir sínar um útlit þeirra og innihald.

Umræðupunktar
1. Ef við setjum okkur í spor Harry hvernig haldið þið að honum hafi liðið þegar hann var að alast upp?

2. Hvar í bókinni fannst ykkur að Harry eða önnur sögupersóna yrði fyrir einelti?

3. Hvaða þrjú lýsingarorð mynduð þið nota fyrir Harry í upphafi bókarinnar, en í lok hennar?

4. Fannst ykkur endir bókarinnar fyrirsjáanlegur?

5. Í lok bókarinnar kom fram af hverju Harry Potter lifði af. Hvað finnst ykkur um að ást geti verið svo sterk að hún bjargi mannslífi?

6. Ræðið muninn á Ron og Draco.

7. Haldið þið að Draco líði vel?

8. Hvaða námsgrein mynduð þið helst hafa áhuga á að læra í Hogwarts?

9. Í hvaða húsi mynduð þið helst vilja vera, rökstyðjið.

Hvers vegna Harry Potter?
Bókaflokkurinn um Harry Potter og líf hans hefur farið sigurförum um allan heim. Börn sem og fullorðnir dragast inn í heim hans og eiga erfitt með að leggja bókina frá sér.

Við teljum að það að kenna bókina á unglingastigi sé fullkomin leið til þess að kynna ungmenni fyrir lestri og því að hann þurfi ekki að vera leiðinlegur. Það væri þá markmiðið að nemendur fengju í kjölfarið frekari áhuga á lestri. Þar er einnig gott að bókin er hluti af bókaflokki með sjö bókum í. Nemendur gætu því fundið áhuga á því að lesa allar bækurnar.

Þá er einnig hægt að tengja mikið við grunnþætti menntunar út frá Aðalnámskrá grunnskóla. Þar má nefna:

- Læsi: Bókin þjálfar læsi í þeim skilningi að börn æfa sig í lestri og þjálfa umskráningu og lesskilning. Þó á sér einnig stað þjálfun í t.d. Menningarlæsi þar sem bókin gerist í Bretlandi þar sem öðruvísi menning en á Íslandi.

- Sköpun: Bókin ýtir undir forvitni og heldur nemendum áhugasömum. Þá er mikið hægt að nota ímyndunaraflið, þá bæði til þess að sjá fyrir sér það sem er að gerast í bókinni o.fl.

- Lýðræði og mannréttindi: Þrátt fyrir að bókin gerist í ímynduðum heim þá eiga sér stað vandamál sem hægt væri að tengja inn í mál sem eiga sér stað í heiminum í dag. Einnig vandamál sem gætu átt sér stað inn í skólastofunni t.d. einelti. Bókin gæti því verið nýtt til þess að fræða börn um málefni daglegs lífs.

- Jafnrétti: Í bókinni er einnig mikið um málefni sem hægt væri að tengja þessum flokki. Ef við tökum sem dæmi eitt augljóst mál þá væri hægt að tala um stéttaskiptingu út frá Draco og Ron.

Það má því sjá að hægt er að þjálfa grunnþætti menntunar á sama tíma og unnið er með bók sem er skemmtileg í lestri.

Lokaorð
Við vorum sjálfar í grunnskóla þegar við duttum inn í heim Harry Potter. Líf hans og vandamál drógu okkur inn. Harry, Ron og Hermione urðu strax eins og vinir sem hafa fylgt okkur síðan.

Síðan við lásum bækurnar höfum við báðar haldið áfram að lesa og lesið mikið. Í heimi bóka höfum við fundið tækifæri til þess að gleyma okkur í heim persóna sem eins og við nefndum hér fyrir ofan verða eins og vinir. Okkur finnst synd hversu margir fara á mis við lestur og heimana sem það getur opnað á.

Við teljum því að Harry Potter og viskusteinninn gæti verið fullkomin leið til að kynna ungmenni fyrir lestri.