STMF213F - Efni til umræðu í umræðutímum haust 2022 by Ingileif Ástvaldsdóttir

Umræðuefni frá hverjum hópi
Hver hópur les yfir umræðuna inni í umræðuhópunum sínum á Canvas og finnur tvær spurningnar, umræðuefni eða álitamál sem hann vill ræða eða deila með  samnemendum í umræðutímunum þar sem fjallað er um efni lotanna.
Smellið á plúsinn á töflunni til að setja inn innleggi hópsins. Munið að skrá númer hópsins í fyrirsögnina á innleggi ykkar.

Umræðan í kennslulotu II
Munið að í þessari lotu þarf hver hópur aðeins að setja inni eina spurningu, pælingu eða vangaveltu til að nota í umræðum í staðlotunni. Má samt alveg setja meira ef ykkur liggur mikið á hjarta.

Samantektir úr hverjum umræðutíma
Smellið á Padlettuna hérna fyrir ofan til að skrá samantektir úr umræðum í hópunum ykkar.

Gerið grein fyrir því hvaða efni þið völduð að taka fyrir.

Hvað kom fram í umræðunum sem þið viljið deila með samnemendum?

Sáuð þið ný sjónarhorn?

Funduð þið ný tengsl innan efnis eða lesefnis og eigin reynslu eða vettvangs?

Vöknuðu nýjar spurningar?

Skráið líka hverjir tóku þátt í umræðunum.

Hópur 6
Eftir fyrirlesturinn Skólinn sem lærdómssamfélag eftir Önnu Kristínu og lestur  greinanna Mat á stöðu faglegs lærdómssamfélags í grunnskóla: Þróun matstækis og Faglegt lærdómssamfélag og starfsánægja í leikskólum.

Spurning 1:
Hver eru lykilatriði til að stuðla að umbótum í skólastarfi og hvar kemur lærdómssamfélag inn í þessi lykilatriði?

Spurning 2:
Hvers vegna hefur mörgum skólum mistekist að innleiða lærdómasamfélag með árangursríkum hætti?

Hópur 3.
Eftir að lesa lesefnið tengt lærdómssamfélögum og að hlusta á fyrirlestrana vorum við mjög hugsi um það hvernig lærdómsamfélögin birtast í íslensku samfélagi. Við ræddum sérstaklega mikið um það hvernig það vantar meira og betra samstarf kjaranefndar kennara og fræðasamfélagisins þar sem stundum virðast þeir vinna í sitthvora áttina...Viðvera kennara minnkar t.d. með styttingu vinnuvikunar sem getur gert það erfiðara að stuðla að góðri samvinnu kennara og uppbyggingu sterks lærdómssamfélags. Því eru spurningarnar sem liggja okkur á hjarta þessar:

1. Hvernig birtast áherslur fræðasamfélagsins um aukið samstarf kennara og uppbyggingu lærdómssamfélags í kjarasamningum?

2. Upplifir þú skólann þinn sem lærdómssamfélag eða er eitthvað sem hindrar það? Hvernig má leysa þær hindranir?

Hópur 5
Anna Kristín talar um lærdómssamfélagið
í fyrirlestri sínum og við það vöknuðu nokkarar spurningar. Við hugleiddum líka hvernig hægt væri að nota CRM líkanið sem Ingileif Ástvaldsdóttir (2020) minntist á.

Spurning 1:
Eru allir skólar lærdómssamfélag? Hvernig getum við stutt við skólasamfélagið í að innleiða gott lærdómssamfélag?

Spurning2:
Er unnið eftir CRM líkaninu í íslensku skólasamfélagi? Ef ekki, ættum við að innleiða það? Hvernig gætum við komið því í markvissa notkun?

Hópur 8
Mjög áhugavert er að lesa um þróunnarstarf í menntastofnunum og úrbætur í þeim efnum á sama tíma og fréttir berast af hugmyndum barnamálaráðherra um að heimila fjölgun barna innan veggja leikskólans. Út frá því fór sú vanga velta af stað, hvar er fræðilegur rökstuðningur stjórnvalda á breytingum í skólastarfi?

Einnig var þeirri spurningu varpað fram hvort eða hvernig væri hægt að einfalda hugmyndir um lærdóssamfélag? Þ.e. þetta er flókið og í raun margþætt hugtak, og margt þarf að liggja til grundvallar því að hægt sé að tala um þroskað/þróað lærdómssamfélag innan skóla.

Hópur 2
Margt áhugavert í þessari viku, en það sem mig langaði að koma fram með tvær spurningar fyrir hóp 2.

Spurning 1: Hvert er hlutverk skólastjóra þegar fagleg einangrun á sér stað, er eitthvað í valdi skólastjóra til að efla samskipti, hvort sem það sé á milli skóla, innan skólans, koma á einhverjum millilið sem gæti orðið til þess að efla lærdómssamfélagið?

Spurning 2: Traust er mjög mikilvægt innan skóla og Viviane Robinson talaði um hve mikilvægt og hvetjandi það er að hafa gott traust milli aðila á vinnustað. Einnig kom upp sú umræða hjá hópnum okkar, um greinina Faglegt lærdómssamfélag og starfsánægja í leikskólum, að þeir sem væru ófaglærðir að ef þeir fengu virðingu og traust frá þeim sem hafa gengið menntaveginn að þá skapist betra andrúmsloft og meiri starfsánægja. En svo er annað sem er og verður krefjandi í þessu faglega lærdómssamfélagi og þróun, þ.e. stytting vinnuvikunnar. Hvernig þróast þessi samvirka fagmennska innan leikskólans í lærdómssamfélagi með styttingu vinnuvikunnar í huga?

Hópur 10
Líflegar umræður hjá okkur og nú reynum við að setja aðalatriðin stutt og skorinort hérna inn.

Samvinna milli lærdómssamfélaga hlýtur að vera nauðsynleg og ekki gott ef hver skóli er afmarkað samfélag. Hvernig er hægt að nýta kosti lærdómssamfélagsins til að skapa samstarf og samfellu milli skólastiga? (þar komum við inn á grunnsk - framhaldssk).

Ein örstutt og einföld pæling!!! Lumar einhver á “góðri uppskrift” af því hvernig megi byggja upp traust, fá kennara/starfsfólk til að ígrunda faglega? Hvernig skal nálgast samstarfsfélagana sem helst vilja einangra sig, finnst flest samstarf vera þvinguð samvinna og líður í raun best í samstarfi þar sem aðgreiningarhyggjan er við völd?

Ígrundum er mjög mikilvægur þáttur í því að farnast vel sem kennara. Góð leið er  fyrir kennara og/eða teymi að velja sèr rannsóknarspurningu að hausti. Framkvæma ss starfendarannsókn. Rannsóknarspurningin snúist alltaf um kennsluna sjálfa/undirstöðuna  og verði þar með hluti undirbúnings og endurmenntunar. Þannig nýtist dýrmætur undirbúningstími þrefalt (ígrundun, endurmenntun, undirbúningur kennslu) og minni líkur á að sameiginlegir fagfundir fari í umræður um einstaklingsbundnar áskoranir. Hver er ykkar reynsla af ígrundun í starfi?

Frá Ingileif: "Open to learning mindset" og tengsl við lærdómssamfélagið
Hvernig tengist lærdómssamfélagið sem við kynntumst í annarri lotu því sem Robinson útskýrir í myndbandinu?

Ræðið hvar í líkaninu um lærdómssamfélagið það sem hún ræðir myndi koma fram.

Frá Ingileif: Þú hefur áhyggjur af tækifærum nemenda til framfara
Þú ert stjórnandi og kemur inn í skólastofu/leikrými hjá einum kennara/starfsmanni og bregður þegar þú sérð hvers konar texta/efnivið nemendur eru að vinna með. Þau eiga að geta unnið með nokkuð flóknari texta eða efnivið sem hæfir aldri þeirra, þroska og getu. Það sem þú varðst vitni að staðfestir líka gögn sem til eru um framfarir/líðan barnanna og/eða unglinganna. Þú veist að þú þarft að bregðast við.

Hvað gerir þú?

Hvernær?

Hvernig fylgir þú því eftir?

Hópur 5
Fullan (2016) segir að forsenda þess að breytingar verði árangursríkar verði að ríkja traust, góð samskipti og að allir séu að vinna að sama markmiði. Hann segir einnig að áætlanir í starfi og kennslu verði að vera raunhæfar.
Í ljósi þess viljum við spyrja:

Hvaða breytingar og þróunarverkefni í ykkar skóla finnst ykkur hafa tekist vel og hvers vegna?

Hvað er það sem skilur á milli breytinga/þróunarstörf sem hafa heppnast og þeim sem hafa ekki heppnast?

Hópur 6
Í lok fjórða kafla í bókinni Reduce change to increase improvement eftir Viviane Robinson eru lesendur beðnir að svara eftirfarandi spurningum miðað við sína reynslu. Viljum við í hóp 6 leggja til að þessar spurningar verði ræddar í umræðutíma fimmtu lotu.

- Hvernig meta stjórnendur þörf fyrir breytingar á þínum vinnustað?
- Að hvaða leyti myndir þú segja að þeir og þú séu hæfir til að ræða vandamálin á uppbyggilegan hátt?
- Er viðhöfð virðing hjá teyminu þínu þegar rædd eru atriði í kennslu sem þarf að bæta?

Hópur 3
Fullan (2016) leggur áherslu á það að markvisst, sameiginlegt nám í lærdómssamfélögum sé mikilvægra en  einstaklingsmiðað nám þegar að það kemur að umbótastarfi í skólum. Þar á hann við að það sé mikilvægt að ýtt sé undir það í lærdómssamfélögum að einstaklingar læri í sameiningu með ákveðin markmið í huga. Traust, sameiginleg markmið og þekking séu þannig mikilvæg þegar að það kemur að umbótum og þróun.

Okkar hugleiðing í umræðuna er því þessi:

- Leggjum við of mikla áherslu á einstaklingsmiðaða starfsþróun kennara, þurfum við að læra meira í sameiningu til að ná fram tilætluðum umbótum í skólastarfi?

Hópur 10
Í lesefninu er víða nefnt að hlutdeild kennara í breytingum sem verið er að innleiða er mikilvæg. Það eru jú oftast kennarar sem framkvæma innleiðingu breytinganna (eru á gólfinu) og þá getur vantað upp hlutdeildina ef ekki er haldið nógu vel utan um breytingarnar sem verið er að innleiða. Niðurstaðan verður þá oft á tíðum að breytingarnar festast ekki í sessi og engar umbætur eiga sér stað.
Því er spurt:
- Á þeim vinnustað/stöðum sem þið þekkið til, hvaðan koma tillögur að þróunarverkefnum/innleiðingu breytinga? Frá kennurum, stjórnendum, skólayfirvöldum... ?
- Hvað er það sem sker úr um hvort þróunarverkefni/breytingar sem á að innleiða verði farsæl og festist í sessi - (hvað er að klikka í verkefnum sem ekki festast í sessi)?

Frá Ingileif úr fyrirlestrinum Faglegt atgevi I

Frá Ingileif úr fyrirlestrinum Faglegt atgervi I

Hópur 5
Segðu frá endurmenntun/starfsþróun sem þér fannst árangursrík og hafði áhrif á starfshætti þína. Hvað einkenndi hana, þ.e. hvað var það sem gerði hana svona árangursríka?

Hópur 3
1. Við ræddum um starfsþróun kennarara í tengslum við hugmyndir Fullan og Hargreaves (2016) um lærdóm í starfi og starfsþroska. Hvernig er starfsþróun tryggð innan stofnana, er gert ráð fyrir henni í skipulagi stofnana eða þarf kennari sjálfur að sinna faglegri starfsþróun í eigin tíma? Er samræmi milli skólastiga varðandi þetta?

2.  Við veltum líka fyrir okkur hvernig megi tryggja þá sannfæringu sem þarf meðal kennara áður en verkefni fara af stað og hindra það að stjórnendur noti 'bypass' leiðina við innleiðingu og jún gangi illa upp. Hvað ætli hindri helst þáttöku í verkefnum sem koma að ofan, þrjóska, óöryggi eða annað?

Hópur 2
1. Hefur þú, í þinni kennslu eða námi, sett þér markmið um að bæta kennslu þína sem og bæta nám nemendans, hvernig þá? (Í samvinnu við aðra, einn eða ígrundun um eigið starf til dæmis eftir kennlustundir, rýnt í gögn, annað?)

2. Er tækifæri til þess að stuðla faglegri starfsþróun á þínum skóla og vinnustað eða þar sem þú hefur unnið áður og þá hvernig? (samvinna?, er virk endurgjöf?, með ígrundun?, nýjar aðferðir?, er nægur tími til þess?, annað?)

Hópur 10
1) Í einum af fyrirlestrinum lotunnar kom fram að stjórnendur vilja hafa meiri tíma til að sinna faglegu starfi en þeir eru mest fastir í fjárhagsáætlun og álíka verkefnum auk þess daglega sem kemur upp. Þeir vilja hafa tíma til að taka þátt í t.d. vinnu við námskrá og innleiða breytingar og þeir vilja hafa formlegt stuðningsnet í stað þess óformlega til að geta verið í betri forystu fyrir faglegt starf.

Hvernig er hægt að breyta þessu?

2) Segjum að þetta breytist... þá myndast tími meiri sem stjórnendur geta til dæmis nýtt í formlegan stuðning við kennara/teymi. Fylgst með, tekið ígrundunar samtöl (Open to learning conversation). Þið sem ekki eruð vön faglegum samtölum, hvernig haldið þið að þið takið slíkum samtölum? Ríkir traust á ykkar vinnustað til að taka þessi samtöl? Hvernig væri hægt að innleiða þessi vinnubrögð og festa í sessi?

Hópur 6
Hvernig er best að að ná til þeirra starfsmanna sem ekki vilja taka þátt í þeirri starfsþróun sem skólastjórnandi leggur upp með?

Hverning geta skólastjórnendur orðið virkari þátttakendur og sýnilegri í daglegu starfi skólans, þannig að þeir nái betri tengslum við starfsfólkið og starfið?