Leik- og námssvæði barna á Leikskóla Seltjarnarness by

Fataklefinn
Þessi fataklefi er notaður í samverustundir þá sitja börnin bara hjá sínu hólfi. Einnig eru börnin að leika sér á þessu svæði og geta þau oft fengið mikið næði til þess að þróa leikinn á þessu svæði.

Listaskálinn
Þetta rými er listaskálinn og þar geta börnin unnið að ýmsum verkefnum. Skapað það sem þau langar til að gera hvort sem það er að búa til pappamassa eða mála.

Eininga kubbarnir
Börnin njóta sín vel í einingakubbunum. Þar geta þau verið í hlutverkaleikjum og byggt allskonar byggingar. Börnin fá að nota ýmislegt dót með.
https://www.krumma.is/product/einingakubbar/

Vinnuborð
Börnin geta notað þetta horn t.d. til að föndra, lita og púsla, þarna gefst góður friður til að einbeita sér að fínhreyfingum.

Leikherbergi
Þetta leikherbergi er mikið notað í allskonar leiki. Þegar þessi mynd var tekin voru börnin að halda matarboð og voru búin að leggja á borðið. Þeim finnst mjög gaman að leika sér með teppin og geta þau búið til ýmsar undraveraldir þar undir.

Útisvæðið
Þessi garður er kallaður litli garðurinn; það eru sem sagt tveir garðar - litli og stóri. Þarna er litla húsið notað mikið í skemmtilega leiki eins og til dæmis hafa börnin verið með bakarí. Það sem er hins vegar mest spennandi við þetta hús er að það lærist mjög fljótt að klifra upp á það.

Lítið hús
Þetta hús stendur eitt bakvið stóran hól í litla garðinum. Börnunum finnst gaman að leika sér í þessu húsi og eru þau stundum að leika sér í hlutverkaleikjum sem að þau sjá heima. Oft er verið að fara í búðina á meðan einhver er í húsinu að baka.

Sandkassinn
Í leikskólanum er þessi stóri sandkassi. Ofan í honum er bátur og hægt að kveikja á vatni sem þau geta sullað með í sandkassanum. Börn sem eru í hlutverkaleik í bátnum eru allt í einu úti á hafi og verða að passa að detta ekki ofan í sjóinn.

Krókódíll
Þessi krókódíll er alveg nýr í leikskólanum. Börnin elska að sitja ofan á honum og gefa honum að borða. Stundum er hann svo heppinn að þau mála hann allan með krítum í regnbogans litum. Þau ímynda sér að hann sé lifandi.

Fótboltavöllurinn
Hérna er alltaf mikið að gera í útiverunni. Vinsæll staður í leikskólagarðinum og það er nýlega búið að setja gervigras en það gleymdist að setja tvö mörk. Þannig að börnin eru að keppa sín á milli með eitt mark. Þarna finnst okkur þurfa að bæta við öðru marki.

Skip og sandkassi
Börnunum finnst skemmtilegt að leika sér í skipinu. Ímyndunaraflið fær að njóta sín þar í allskonar leikjum. Skipstjórinn er uppi og farþegarnir niðri og geta svo komið upp og rennt sér ofan í sjóinn. Oft hefur það komið fyrir að skipið er orðið að sjóræningjaskipi! Þau æfa sig í grófhreyfingum með því að klifra um allt í skipinu, fara upp kaðalstigann og venjulega stigann. Svo leika þau sér mikið í sandkassanum, eru með bakarí, grafa djúpar holur og búa til völundarhús. Þegar þau búa til völundarhús þá er mest spennandi að láta vatnið renna eftir stígunum sem þau hafa grafið.

Outlast útikubbar
Börnin eru heppin að hafa þessa útikubba í garðinum en það eru staðsettir tveir svona kassar hlið við hlið. Þau nýta þetta svæði fyrir þá og börnin eru snillingar í að byggja úr þeim og nota samvinnu til að ferja þá stærri kubbana á milli.

Rólusvæðið
Rólusvæðið er alltaf vinsælt þegar börnin koma í útiveruna. Það er ekki nógu mikið af rólum fyrir allan þennan barnafjölda en þau eru dugleg að skiptast á. Gott að vera með þetta mjúka undirlag undir rólunum. Yndislegt þegar þau detta í söng meðan verið er að róla.

Salurinn
Börnin geta verið í allskonar hlutverka leikjum í salnum. Það eru stundum settar upp þrautabrautir og svo finnst þeim gaman að leika sér í búningum. Salurinn þjónar einnig því hlutverki að vera tónlistarsalur þar sem börnin fá gæða tónmenntarkennslu og haldnar eru reglulegar söngstundir.

Kósý horn
Þetta horn er bæði notað sem kósý horn þar sem börnin setjast niður í rólegheitum og lesa bækur og einnig til að leika með aðra hluti eins og sést á myndinni. Börnin eru að leika með einingakubba og voru í flottum leik.

Leikherbergi
Þetta er frekar lítið herbergi þar sem kannski fjögur börn geta verið að leika sér. Þarna er fullt í boði að gera, matardót, segulkubbar og hægt að lesa bækur. Á þessari mynd virðist vera margt í boði en börnin á myndinni eru að leika sér að byggja úr segulkubbunum.

Stórt leikrými
Þessu rými er hægt að skipta niður í tvær, jafnvel þrjár stöðvar. Börnin geta litað, púslað og byggt úr allskonar kubbum á borðinu. Og svo er hægt að hafa annað að gera á gólfinu og einnig hægt að tengja sófann við það. Það er hægt að leika með dýrin, stór gólf púsl og lestina. Eða hreinlega bara hvað sem þau velja sér sem hægt er að leika með á gólfinu.

Hérna er LEGO-borð
Börnunum finnst gaman að leika sér með LEGO-kubbana. Þar nota þau ímyndunaraflið og byggja það sem þeim dettur í hug. Það er alveg yndislegt að horfa á þau og t.d. sjá hvað þau spá mikið í því hvernig þau eigi að byggja skip.