Megas og íslensk bókmenntasaga by Katrin Laufdal

Megas
Magnús Þór Jónsson fæddist þann 7. apríl 1945. Hann ólst upp í Reykjavík þar sem hann stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík. Þaðan hélt hann til Noregs þar sem hann lagði stund á nám í þjóðháttafræði.
Hann fór snemma að semja lög og texta sem iðulega voru í þeim þjóðlagastíl sem einkennt hefur tónlist hans frá upphafi. Textagerðin hefur skipað töluvert stóran sess í lagasmíðunum og hefur hann sótt áhrif víða, til að mynda til íslendingasagnanna og nútíma sagna Íslendinga. Hann samdi líka lög við Passíusálma Hallgríms Péturssonar sem hann hefur flutt á páskunum.

Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
Megas hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu árið 2000. Þegar hann var spurður hvað verðlaunin þýddu fyrir hann, svaraði hann "Böns of Monní".

Ótrúlegt magn af útgefnu efni
Megas hefur gefið út hátt í 40 hljómplötur, einn síns liðs og í samstarfi við aðra,  á ferli sínum, sem og ljóðabækur, skáldsögur og fleira.

Mú
Mú er maður sem Megast hreifst af í Taílandi og bjó með á Íslandi um tíma. Vangaveltur um samkynhneigðar ástir koma fram á þremur plötum frá þessum tíma.  Mú hafði mikil áhrif á Megas, en eitt fallegasta ástarljóð allra tíma, Tvær stjörnur, var einmitt ort til hans.

Tvær stjörnur
Lagið Tvær Stjörnur er eflaust eitt af ástælustu lögum Megasar. Textinn var valinn besti íslenski dægurlagatextinn af álitsgjöfum RÚV árið 2017. Einnig var það valið besta íslenska ástarlagið af álitsgjöfum Vísis árið 2014.

Halldór Laxnes
Annar helstu áhrifavalda Megasar, í æsku, var Halldór Laxnes. Hann dáðist að skáldinu og af honum lærði hann um listrænt frelsi. Hinn helsti áhrifavaldurinn var Elvis Presley, með alla sína persónutöfra, en hann var sveitadrengur sem sigraði heiminn og var sterk fyrirmynd.

Bob Dylan
Megas kynntist síðar tónlist Bob Dylan og þróun hennar, sem varð svo að einskonar þráhyggju. En þeir félagar eiga ýmislegt sameiginlegt, svo sem að fara sínar eigin leiðir og láta ekki gagnrýnendur stjórna list sinni. Auk þess hefur Megas sótt til hans mikinn innblástur, í bæði tónlist og textagerð.

Fyrsta platan bönnuð
Árið 1972 braust út mikil reiði yfir plötunni „Megas", sem var fyrsta plata Megasar og þótti mjög ögrandi, en ríkisútvarpið bannaði flutning hennar um tíma. Megas var með ljóðaformið á hreinu, en innihaldið þótti gera lítið úr virtum skáldum og hetjum þjóðarinnar.  Ekki þótti heldur öllum söngurinn fallegur. En Megas hefur gefið út heilmikið af efni síðan þá og hefur alltaf verið umdeildur listamaður.

„Listaskáldin vondu"
Megas hafði mikil áhrif á unga listamenn og var boðið að koma fram, ásamt „Listaskáldunum vondu", í stóra sal Háskólabíós, sem þau leigðu fyrir ljóðaupplestur. Salurinn yfirfylltist, sjónvarpið hunsaði boðið, útvarpið tók upp lesturinn en týndi honum. Steinunn Sigurðardóttir, Birgir Svan Símonarson, Þórarinn Eldjárn, Sigurður Pálsson, Hrafn Gunnlaugsson og Pétur Gunnarsson voru „Listaskáldin vondu", en auk Megasar var Guðbergi Bergssyni boðið að koma fram með þeim.