Nám og kennsla by Gulla Þorbjörns

The Boy in the Striped Pajamas
Bókin sem við völdum heitir The Boy in the Striped Pyjamas, og er eftir rithöfundinn John Boyne. Bókin kom út árið 2006, og árið 2010 hafði hún selst í yfir 5 milljónum eintaka um heim allan. Árið 2008 var síðan gerð bíómynd eftir bókinni.

Um bókina
Bókin fjallar um 9 ára strák sem heitir Bruno. Hann elst upp í Berlín i seinni heimsstyrjöldinni. Fjölskyldunni hans er gert að flytja vegna starfs pabba hans, en hann er einhvers konar yfirmaður hjá hernum. Þau flytja því rétt hjá útrýmingarbúðum gyðinga svo Bruno sér fólkið þar út um gluggann hjá sér. Ómeðvitaður um ástandið, skilur hann ekki í af hverju fólkið þar sé alltaf í náttfötum allan daginn, en það var auðvitað í fangabúningum.

Einn daginn stelst hann út og fer að girðingu búðanna. Þar hittir hann strák, Shmuel, sem er á sama aldri og Bruno. Bruno spyr af hverju þau séu alltaf í náttfötum en Shmuel segir að þeim sé skipað að vera í þeim og að hann sé þarna með pabba sínum, bróður og afa en hafi verið aðskilinn frá mömmu sinni.

Strákunum verður vel til vina og fer Bruno að stelast út til hans nær daglega, bæði til að leika og til að færa honum mat. Einn daginn finnast lýs í hárinu á Bruno, svo hann er snoðklipptur, eins og allir sem í búðunum voru. Einn daginn ákveða þeir að Bruno muni grafa sér leið inn í búðirnar til Shmuel og hjálpa honum að leita að pabba hans. Scmuel lætur hann fá eins föt og hann er í, svo enginn fatti að hann eigi ekki að vera þar. Einnig var hann eins og áður sagði, komin með sömu klippingu og hinir fangarnir og féll því vel inn í hópinn.En þegar hann er inni í búðunum hjá honum, er hópnum smalað saman í gasklefann, þar sem þeir láta lífið, saman vinirnir. Síðar uppgötvast að Bruno sé týndur og fjölskyldan hans fer og leitar að honum og kemst að lokum að því hvað hafði gerst.

Höfundur
Höfundur bókarinnar er John Boyne. Hann hefur skrifað alls 14 bækur og þar af 9 fyrir fullorðna og 5 fyrir unglinga. Bókin The Boy in the Striped Pajamas er í hópi þeirra bóka sem skrifaðar eru fyrir unglinga.  John Boyne er fæddur og uppalin í Dublin á Írlandi og býr þar enn. Hann er fæddur árið 1971 og er því 45 ára.

Hvernig má nýta bókina í kennslu.
Við teljum að bókin sé fyrir eldri nemendur, eða 9 og 10.bekk.  Það er bæði hægt að kenna hana í ensku og samfélagsfræði og jafnvel í lífsleikni. Orðaforðinn í bókinni er ekki of flókin og þæginlegt að lesa hana. Einnig er til kvikmynd til að styðja sig við ef nemendum gengur illa að lesa.
Í samfélagsfræði væri hægt að ræða um seinni heimsstyrjöldina og þarna fá nemendur innsýn í hvernig líf fólks var á stríðsárunum og sjá svart á hvítu hve illa var farið með gyðinga. Þetta er þó einunigs fyrir allra elstu nemendurna.

Í lífsleikni væri svo hægt að tvinna saman mismun á fólki og umræður um mismunun sem fólk upplifir. Umræður um að fólk hefur ólíkan bakgrunn og býr við mismunandi aðstæður.

Hugarheimur grunnskólanemenda
Bruno er 9 ára strákur sem býr í einbýlishúsi með foreldrum sínum, systur og þjónustufólki. Bruno er venjulegur 9 ára strákur með fjörugt ímyndunarafl og þráir ekkert meira en að fá vin til þess að leika sér við.
Shmuel er strákur á svipuðu reki og Bruno og þeir eiga sama afmælisdag! Shmuel býr við bágar aðstæður í útrýmingarbúðum þar sem hann fær ekki mikið að borða og hefur það verr en Bruno. Þrátt fyrir mismunun ná þeir vel saman.  Nemendur gætu velt fyrir sér að fólk lifir  við mismunandi aðstæðum allstaðar í heiminum.  Umræður um einelti, mismunun, flóttafólk ofl.
Í endan deyr Bruno þar sem hann festist í gasklefanum með Shmuel. Þar áttar faðir Bruno sig á því að hans eigin sonur tók afleiðingunum. Nemendur gætu velt fyrir sér ábyrgð og afleiðingu.

Kvikmyndin
Gerð var kvikmynd eftir bókinni. Kom hún út árið 2008.  Myndin er um ein og hálf klukkustund og fjallar um stríðið og stríðsárin. Hún er einnig svolítið dramatísk.  Kvikmyndin er séð frá sjónarhorni barna sem er ólíkt sjónarhorni kvikmynda sem gerðar hafa verið í þessum dúr. Kvikmyndin vann til 7 verðlauna og fékk 7 tilnefningar. Myndin er átakanleg og hentar því kannski best eldri nemendum.

Heimildir
John Boyne. (2006). The Boy in the Striped Pyjamas. Írland: David Fickling Books.

The Boy in the Striped Pyjamas. (2006, 19.maí). Wikipedia. Sótt 13. febrúar 2017 af  https://en.wikipedia.org/wiki/The_Boy_in_the_Striped_Pyjamas

Seinni heimsstyrjöldin
Bókin og myndin, gefur nemendum góða og raunsæa innsýn í þennan part ástandsins í seinni heimsstyrjöldinni hvað gyðinga varðar. Hún er átakanleg og sorgleg, en sett þannig fram að þau eiga auðvelt með að skilja, og meðtaka hvernig þetta virkilega var, og vekja áhuga þeirra á þessu tímabili sögunnar án þess að vera þurrt efni á að horfa eða lesa. Því bókin er eins og áður sagði skrifuð með unglinga í huga. Því teljum við hún eiga vel við sem kennsluefni í efstu bekkjum grunnskóla.