Þróun flekakenningarinar by Sólrún

Hvað er landrekskenningin?
Kenningin var fyrst sett fram af þýska vísindamanninum Alfred Wegener árið 1912. Hún gengur út á það að meginlönd jarðar séu ekki stöðug heldur hafa þau hreyfst um yfirborð jarðar í milljónir ára. Wegener hélt því fram að einu sinni höfðu löndin legið saman og kallaði hann landið Pangea.

Rök fyrir kenningunni
Helstu rök kenningarinnar eru:

Segulmælingar sýna segulræmur á hafsbotni sem liggja samsíða rekhryggjum.

Rannsóknir á hreyfingum segulskautanna sýna óvæntar niðurstöður sem benda til hreyfinga meginlandanna.

Aldursgreining sýnir að hafsbotninn er yngstur við miðhafshryggi og eldist eftir því sem fjær dregur.

Kortlagning helstu jarðskjálftasvæða jarðar bendir til þess að þau tengist flekahreyfingum.

Finna má steingervinga af sömu tegundum dýra á meginlöndum sem nú eru aðskilin, sem gefur til kynna að löndin hafi áður legið saman.

Jökulrákir og önnur ummerki í bergi benda til þess að meginlöndin hafi myndað eina heild.

Svipaðar bergtegundir finnast báðum megin við Atlantshafið, sem bendir til sameiginlegs uppruna.

Eldri fellingafjöll bera vitni um jarðfræðilega hreyfingu meginlandanna.

Alfred Wegener (1880-1930)
Alfred Wegener var þýskur veðurfræðingur, jarðeðlisfræðingur og heimskautafræðingur. Árið 1915 gaf hann út bókina "The Origin of Continents and Oceans"  þar sem hann kynnti kenningu sína um landrek.

Wegener tók þátt í fjórum leiðöngrum til Grænlands og árið 1930 fór hann þangað í síðasta sinn. Skömmu eftir að hann hélt upp á fimmtugsafmæli sitt lést hann þar.

Kenning Wegeners um landrek mætti mikilli tortryggni frá vísindasamfélaginu. Þrátt fyrir að hann hefði fjölmörg sönnunargögn gat hann ekki útskýrt hvernig meginlöndin hreyfðust.

Marie Tharp (1920-2006)
Marie Tharp var bandarískur jarðeðlisfræðingur og brautryðjandi í kortlagningu hafsbotnsins. Tharp lauk jarðfræðiprófi í Michigan og hóf störf við Columbia-háskóla árið 1948.

Árið 1952 hóf hún samstarf við Bruce Heezen og kortlagði Norður-Atlantshafið með hljóðmælingum. Hún uppgötvaði sprungudal í miðju miðhafshryggsins og staðfesti með því kenningu Alfreds Wegeners um landrek.

Árið 1977 gaf Tharp út "World Ocean Floor Panorama", sem gjörbylti skilningi manna á jarðskorpunni. Hún er talin ein merkasta vísindakona 20. aldar.

Hvað er botnskriðskenningin?
Kenningin var sett fram af Harry Hess árið 1960. Samkvæmt kenningunni myndast hafsbotn við miðhafshryggi þar sem kvika streymir upp, kólnar og harðnar. Nýr hafsbotn rekur síðan út frá hryggnum, ýtir eldri hafsbotni í burtu og veldur flekahreyfingum. Að lokum sekkur eldri hafsbotn niður í möttulinn við djúpála, þar sem hann endurvinnst. Kenningin styður landrekskenninguna og útskýrir jarðfræðilega ferla eins og jarðskjálfta, eldvirkni og segulræmur á hafsbotni.

Harry Hess (1906-1969)
Harry Hess, prófessor í jarðfræði við Princeton háskóla, fékk áhuga á hafsbotnsrannsóknum þegar hann þjónaði í bandaríska sjóhernum í seinni heimsstyrjöldinni og notaði sónar til að kortleggja hafsbotninn í Norður-Kyrrahafi. Árið 1962 gaf hann út „The History of Ocean Basins“, þar sem hann setti fram kenningu um hafsbotnsdreifingu, sem útskýrði hvernig meginlönd hreyfast.

Hann uppgötvaði að höf voru grynnst í miðjunni, þar sem miðhafshryggir risu um 1,5 km yfir hafsbotninn. Hess sá einnig að djúpir sjávarskurðir, eins og Marianas-skurðurinn, voru við jaðar meginlanda og náðu yfir 11 km dýpi. Hann taldi að nýr hafsbotn myndaðist við miðhafshryggi þegar basalt streymdi upp úr möttlinum og dreifðist í báðar áttir. Eldri hafsbotn kólnaði, sökk niður og var að lokum eytt í djúpálum.

Þó kenningin væri rökrétt, skorti Hess, líkt og Wegener, fullnægjandi sannanir.

Frederick Vine (1939-2024) og Drummond Matthews (1931-1997)
Bresku jarðfræðingarnir Vine og Matthews hófu samstarf þegar Vine var doktorsnemi hjá Matthews við Cambridge háskóla. Þeir rannsökuðu mynstur segulranda á hafsbotni og settu fram tilgátu sem byggði á kenningu Hess. Þeir héldu því fram að samhverft mynstur segulranda væri ekki tilviljun heldur sýndi að segulsvið jarðar hefði reglulega skipt um stefnu.Þegar efni úr möttlinum rís upp við miðhafshryggi og kólnar, varðveitir basalt í hafsbotninum skrá yfir pólun segulsviðsins, þar sem það er sterkt segulmagnað og samræmist segulsviðinu við kólnun. Vine og Matthews tóku eftir að segulræmur voru samhverfar hvoru megin við miðhafshryggi, og aldursgreining sýndi að basalt í sömu fjarlægð frá hryggnum var jafngamalt. Þetta staðfesti að hafsbotn myndaðist við hryggina og dreifðist út til hliðanna.

Hvað er flekarekskenningin?
Flekarekskenningin útskýrir hvernig jarðskorpan er brotin upp í stóra fleka sem hreyfast á seigfljótandi möttli jarðar. Flekar hreyfast á mismunandi vegu: þeir geta færst í sundur (Fráreksbelti)  við miðhafshryggi þar sem nýr hafsbotn myndast, rekist saman (Samreksbelti) þar sem annar flekinn fer undir hinn og myndar t.d. fjöll eða djúpála, eða hreyfst samsíða (Hjáreksbelti) við hvor annan, eins og við San Andreas sprunguna.

Hreyfingar flekanna verða vegna varmastrauma í möttlinum, þar sem heitt efni rís upp og kalt efni sígur niður. Kenningin útskýrir hvernig hafsbotn myndast, eyðist og hvernig meginlöndin hafa hreyfst yfir tíma.

John Tuzo- Wilson (1908-1993)
Kanadíski jarðeðlisfræðingurinn John Tuzo-Wilson var upphaflega efins um flekarekskenninguna en varð síðar helsti stuðningsmaður hennar.

Árið 1963 lagði hann til að flekar gætu færst yfir "heita reiti" í möttlinum og myndað eldfjallaeyjakeðjur, eins og Hawaii, sem skýrir eldfjöll langt frá flekamörkum. Árið 1965 kynnti hann hugmyndina um umbreytingarmisgengi, þar sem flekar hreyfast lárétt við hvor annan, án þess að hafsbotn myndist eða eyðist, eins og sést á San Andreas misgenginu.

Dan McKenzie (1942-)
Þrátt fyrir að vísbendingar um meginlandsrek væru að safnast saman, var erfitt að skýra hvaða kraftar knýja hreyfingu jarðskorpufleka. Árið 1966 lauk Dan McKenzie doktorsnámi við Cambridge og nýtti þekkingu sína á varmafræði til að þróa líkan sem sýndi möttul jarðar í tvískiptri hreyfingu, sem stjórnaði flekahreyfingum. Rannsókn hans, "The viscosity of the lower mantle" birtist sama ár.

McKenzie rannsakaði einnig myndun kviku á miðhafshryggjum og möttulstrókum og hvernig hún breytist með tímanum. Hann útvíkkaði síðan rannsóknir sínar til flekahreyfinga á Venus og Mars.

Abraham Ortelius (1527-1598)
Árið 1596 benti Abraham Ortelius á að Ameríka og Afríka pössuðu saman, og árið 1858 hélt Antonio Snider-Pellegrini því fram að sams konar steingervingar beggja vegna Atlantshafsins bentu til þess að heimsálfurnar hefðu áður verið eitt meginland.