Mótun skólastefnu fyrir ÖLFUS -samantekt svara af fundum með starfsfólki by Ingvar Sigurgeirsson

1. Hvert er mat ykkar á stöðu skólamála í sveitarfélaginu?
Staða sveitarfélagsins í skólamálum almennt góð.
Metnaður í verkum starfsfólks og áhugi fyrir starfsþróun.
Góð þróun varðandi tæknimál í grunnskólanum.
Skýr verkaskipting yfirmanna og gott aðgengi að stjórendum grunnskólans.
Gott samstarf milli leikskóla og grunnskóla - nemendur koma vel undirbúnir í 1. bekk.
Stoðþjónusta innan grunnskólans er góð (bjarg, sérkennsla, stuðningsfulltrúar ofl.).
Sérkennslan innan leikskólans er góð.
Sérfræðiþjónusta mætti vera betri (sálfræðiþjónusta, talmeinafræðingar o.þ.h.) - of langt greiningarferli.
Þörf á hækkun starfshlutfalls náms- og starfsráðgjafa.
Þurfum að gera betur í að mæta öllum einstaklingum á þeirra forsendum.
Húsnæðislega býr grunnskólinn vel en með áframhaldandi fjölgun þarf að skoða stækkun.
Stefnuleysi hefur einkennt stöðu leikskólamála í sveitarfélaginu.
Mikilvægt að stefnumál séu vel kynnt og gagnsæi ríki í ákvörðunartöku.
Flýta þarf byggingu nýs leikskóla - mikilvægt að foreldrar hafi val um stefnu.
Gott samstarf beggja skóla við Tónlistarskólann.
Fækkun fagfólks á leikskólanum vegna breyttra leyfisbréfa er áhyggjuefni.
Gott samstarf á milli leikskólans og íþróttafélaga - t.d. eru börnin sótt á æfingar.
Starfsmenn leikskólans hafa stuðning frá yfirmönnum til þróunar í starfi.
Öll börn komast inn á leikskóla um 18 mánaða aldur.

2. Hverjir eru helstu styrkleikar?
Mannauður
Opin samskipti
Metnaðarfullt starf
Fjármagn
Góð stoðþjónusta
Góð sérkennsla og þjónusta við börn með sérþarfi á leikskólanum.
Stuðningsfulltrúar í öllum bekkjum á yngsta stigi og að hluta á miðstigi.
Gott samstarf milli nemenda og starfsmanna grunnskólans.
Gott samstarf og gagnkvæmt traust milli starfsfólks/kjarnastýra og yfirmanna á leikskólanum.
Mikill stöðugleiki innan starfhóps grunnskólans - aukin starfsgleði.
Húsnæði gott (grunnskóli) - íþróttahús og tónlistarskóli í/við skólabygginguna.
Útisvæði grunnskólans stórt og flott- nóg að gera fyrir alla.
Mikil uppbygging í tæknimálum grunnskólans (sjónvörp, Ipadar, fartölvur o.s.frv.)
Góð þróun teymiskennslu
Mikið úrval í valgreinum
Gott samstarf við Kiwanismenn (t.d. ferðir með unglingastig, hjálmar 1. bekkinga og leiktæki á skólalóð).
Vel tekið á móti nýjum hugmyndum og kennsluháttum meðal stjórnenda grunnskólans.
Öll börn sem þurfa komast að í frístund.
Þægilegar hópastærðir í list- og verkgreinum.
Gott samstarf milli leik- og grunnskóla.
Gott samstarf skólanna við tómstundir t.d. íþrótta- og tónlistarskóla - börn sótt á leikskólann af íþróttafélögum.
Lítið samfélag og nálægð við fólk (getur líka verið ókostur).
Þrískipting í matsal.
Starfsfólk grunnskólans vel menntað.
Góður starfsandi innan grunnskólans.
Velvild bæjaryfirvalda í menntamálum er mikill styrkleiki.
Ekki þörf á vottorði fyrir börn á sérfæði.
Laktósamjólk fyrir alla á leikskólanum - allir fá eins.
Fjölbreytt menntun innan starfhóps leikskólans og mikil þekking á starfi með börnum.
Auðvelt að fá sérfræðiþjónustu svo sem talmeinafræðing, sálfræðing, kennslufræðing.

3. Hvaða er brýnast að bæta?
Húsnæðismál leik- og grunnskóla. Viðhald ábótavant t.d. á  eldri turni sbr. biluð loftræsting.  Bæta þarf úr húsnæðisþörf  leikskóla og frístundar sem og mönnun og stjórnun frístundar.  Huga þarf vel að viðhaldi með endurnýjun leiktækja á skólalóð og byggja upp aðstöðu til útikennslu.

Fjölga fagfólki í leikskóla. Styrkja fólk til náms og stuðla þannig að fjölgun fagmenntaðs starfsfólks.

Auka sérfræðiþjónustuna með auknu starfshlutfalli hjá sérfræðingum til að minnka biðlista.
Auka samvinnu við Barnavernd og félagsþjónustu, snemmtæka íhlutun í sambandi við farsældarlög.

Bæta kennsluaðferðir og rökstuðning fyrir þeim, t.d. var talað um aðstöðu til skapandi vinnu í almennum námsgreinum.

Bæta og samræma kennsluáætlanir sem birtast foreldrum svo auðveldara verði fyrir foreldra að fylgja námi nemenda eftir.

Talað var um samvinnu huga, handar og hjarta, áhugahvötin sé drifkrafturinn. Bæta má samþættingu og teymisvinnu á mið- og elsta stigi. Endurskoða þarf einkunnagjöf á mið- og elsta stigi, draga úr einkunnagjöf frá kennurum og auka leiðsagnarmat, sjálfsmat og jafningjamat.

Agamál (skólabragur, lítil hlustun og stundum mismunandi framkoma nemenda gagnvart ólíkum hópum starfsmanna). Koma í veg fyrir stéttaskiptingu meðal starfsfólk. Staða endurmenntunar fyrir annað starfsfólk en kennara.
Val á miðstig.

Aukna þjónustu við börn af erlendum uppruna, á borð við aukna íslenskukennslu og orðaforðaþjálfun.
Auka forvarnir.

Auka má samstarf við aðra skóla, sem og á alþjóðlegum vettvangi sem mun víkka sjóndeildar bæði kennara og nemenda.

Skoða eldhúsið og elda meira frá grunni.
Samþætting á milli skólastiga þegar kemur að fríum. Viðmið um vistunartími barna verði sett í samræmi við aldur þeirra.

4. Hvaða sóknarfæri sjáið þið helst? Hvernig viljið þið þróa starfið? Í skólanum ykkar? Í sveitarfélaginu?
Nýta mannauð betur td í mini menntabúðum (mættu vera oftar). Nýta betur styrkleika fólks í starfi, styðja áfram við starfsfólk í námi og hlúa að því, halda áfram með þróun í upplýsingatækni með áherslu á nýtingu tækninnar í þágu kennsluaðferða, nýta stækkandi samfélag. Móttaka nýbúa á yngsta stigi.
Auka val og áhugasviðsverkefni. Hugarfarsbreytingar nemenda gagnvart námi (Carol Dweck). Breyting á vinnutíma nemenda (geta bæði verið styttri og lengri). Auka markmiðasetningu nemenda á öllum stigum. Auka vægi nýsköpunar á öllum skólastigum og verkefnamiðaðra nám.

Byggja upp útikennslusvæði sem öll skólastig geta nýtt.
Auka samstarf í nærsamfélaginu t.d. við fyrirtæki með því að bjóða nemendum upp á starfsnám.
Endurvekja skólaleikrit 10.bekkjar, taka upp samvinnu við leikfélagið og hljómlistafélagið.

Sumarfrístund þarf að bæta með því að gera hana ólíka venjulegu skólastarfi. Vinnuskólinn þarf að vera markvissari  þ.e. fræðsla og forvarnir.
Bjóða upp á leikskóla frá fæðingarorlofi.
Skipa fagstjóra í grunnskóla til að tryggja samfellu einstakra námsgreina.
Klára þarf innleiðingu Hjallastefnunnar.
Sveitarfélagið styrki starfsfólk í leikskólakennaranámi (vettvangsnám á launum og innilotur líka).
Samþætta skóladagatal leik- og grunnskóla.
Styrkja sérfræðiþjónustu á vegum sveitarfélagsins.

5. Hafið þið skoðanir á skólaskipan - og ef svo hverjar?
Mikilvægt að nýr leikskóli sé ólíkur núverandi leikskóla svo foreldrar hafi val.
Að nýr leikskóli verði rekinn af sveitarfélaginu með aðra stefnu en Hjallastefnan.
Núverandi fyrirkomulag gott.
Frístundastarf fari úr skólabyggingunni en verði í nágrenninu. Hugað verði að nægu plássi.
Stytta opnunartíma leikskólans.
Stytta vistunartíma leikskólabarna.
Jákvætt að grunnskólastarfið hefjist kl. 8:15/8:30.
Að sveitarfélagið semji við Árborg um inngöngu barna í grunnskólana í samræmi við leikskólagöngu (afla upplýsinga um þennan lið).

6. Hvernig viljið þið sjá skólastarfið eftir fimm til tíu ár? Hvað viljið þið helst að einkenni það?
Áhersla á val og sköpun.
Áhersla á aðferðir þar sem nemendur eru virkir þátttakendur.
Áhersla á áframhaldandi þróun upplýsingatækni.
Áhersla á vellíðan, gleði, sjálfstraust, ábyrgð, virðingu, samvinnu, framsýni og sköpun.
Að nemendur hafi öðlast sterka sjálfsmynd.
Áframhaldandi áhersla á markvisst þróunarstarf.
En meiri áhersla á einstaklingsmiðað nám.
Áhersla á færni í vinnubrögðum.
Áhersla á áframhaldandi stuðning við skólastarfið og áhersla á framúrskarandi starfsaðstæður í víðu samhengi.
Framúrskarandi aðstaða til list, tækni og verkgreinakennslu. Stefnt verði að samtengingu grunnskóla og íþróttahúss.
Aukin tenging við atvinnulífið - vinnustaðanám.
Aukin sérfræðiþjónusta - Félagsráðgjafa, sálfræðinga og talmeinafræðingar.
Að lögð verði áhersla á faglegt frístundastarf.
Stórefld snemmtæk íhlutun.
Endurskoðuð fjölmenningarstefna og móttaka nýrra nemenda.
Áhersla á fleira fagmenntað starfsfólk í leikskólanum.
Áhersla á að tryggja öfluga stoðþjónustu í leikskólanum.
Áhersla á að samræma kjör og starfsaðstæður leik- og grunnskólakennara.
Áhersla á nægilegt rými fyrir börn í leikskóla.
Símenntun starfsfólk í forgrunni.
Fræðsla um hinseginleikann, fatlanir og stöðu minnihlutahópa fastur liður í námskrá skólanna.
Áhersla á að þróunarverkefni séu alltaf í gangi.

7. Viljið þið breyta framsetningu á skólastefnunni? Uppbyggingu? Efni?

Núgildandi skólastefna