Leik- og námsumhverfi í leikskóla by Stefanía Sigurðardóttir

Leiksvæði barnanna
Helgafellsskóli er á þremur hæðum en á efstu hæð skólans er leikskóladeildin. Neðri hæðirnar eru notaðar fyrir grunnskólann. Mikið samstarf er á milli leikskólans og grunnskólans.

Þó grunnskólinn noti eina lóð og leikskólinn aðra lóð á efstu hæðinni, þá er leikskólabörnum oft boðið að fara að leika á grunnskólalóðinni. Því má segja að miklir möguleikar séu í boði fyrir börn skólans. Skólinn vinnur mikið með náttúruna og opinn efnivið og má bersýnilega sjá það á hönnun lóðarinnar.

Umhverfið er mjög fjölbreytt sem gefur aukna möguleika á fjölbreyttum leik og námi barnanna.

Fastir liðir
Teymisstjórar hverrar deildar í Helgafellsskóla setja saman dagsskipulag sem verða svo að föstum liðum út önnina. Á meðfylgjandi mynd má sjá dagsskipulagið fyrir tveggja og þriggja ára börn.

Í upphafi dags er boðið upp á morgunmat og rólegan leik. Hópastarfið tekur svo við um klukkan 9:00 þar sem er ýmist farið í málörvun, vettvangsferðir, yoga, listsköpun eða leikur að læra. Fyrir útiveruna er svo ávaxtastund. Allur gangur er á lengd útiveru og ræður þar íslenska veðrið ríkjum en gert er ráð fyrir klukkutíma útiveru.
Eftir útiveru er síðan samverustund þar sem er sungið saman á meðan beðið er eftir matnum og er sá tími einnig nýttur í klósettferðir og bleyjuskipti.
Þau börn sem sofa fara svo í hvíld eftir hádegismatinn á meðan hin börnin hlusta á sögu í ró og næði.
Börnin fá svo tíma fyrir frjálsan leik þar til komið er að nónhressingu. Í lok dags er svo annað hvort farið aftur út eða lestrarstund og frjáls leikur inni, fer allt eftir veðrinu. Einnig má nefna að oft er val um útiveru í lok dags þar sem þau börn sem vilja fara út gera það á meðan önnur börn vilja leika inni.

Umgjörð
Börnin á suðurborg hafa aðgang að fjölbreyttum og skemmtilegum efnivið. Öll leikföng eru í glærum kössum og vel sýnileg börnunum.

Val er tvisvar sinnum í viku þar sem starfsfólk setur ákveðinn efnivið á ákveðin svæði. Myndir af svæðum og efnivið eru settar upp á töflu þar sem börnin hafa greiðan aðgang að. Þar velja þau hvað þau vilja gera með því að setja nafnið sitt undir myndirnar. Aðeins eru ákveðið mörg pláss á hverju svæði og mega börnin skipta eins og þau vilja svo lengi sem það er laust. Starfsmenn passa að það sé alltaf nóg um að velja svo börnin geti valið sér.

Frjáls leikur er þrisvar til fjórum sinnum í viku og þá fá börnin algjörlega að ráða ferðinni, hvar þau eru og hvað þau vilja leika sér með. Einu skilirðin eru að ef þau vilja leika sér með eitthvað annað verða þau að ganga frá eftir sig fyrst.

Flæði er einu sinni í viku og virkar það þannig að starfsfólk kemur fyrir efniviði á ýmsa staði og mega börnin fara á milli alveg eins og þau vilja.

Hópastarf
Í leikskólanum Suðurborg fer hópastarf fram þrisvar í viku á öllum deildum. Börnum á hverri deild er skipt upp í þrjá minni hópa og hefur hver hópur sinn hópstjóra.
Hópastarfinu er skipt upp í þrjá meginþætti:
-Stærðfræði og málörvun
-Lubbi finnur málbein
-Listsköpun
Með því að skipta börnunum upp í minni hópa hefur kennarinn meiri yfirsýn yfir hverju barni. Börnin njóta þá betri og persónulegri kennslu, þjálfa félagsfærni og samvinnu.
Hópurinn og hópstjórinn vinna svo saman allan veturinn með starfið fléttað inn í stundirnar.

Fataklefinn
Fataklefinn er það rými sem við framkvæmum þessar hversdagslegu athafnir, að klæða okkur. Hér hafa börn tök á að sækja sér það sem til þarf. Annars vegar útiföt niðri við útganga og hins vegar föt til skiptanna ef svo ber undir, inni á deildinni sjálfri. Mikil áhersla er lögð á að föt sem börn koma með í leikskólann séu ekki föt sem valda útistöðum heima. þar á að vera nóg af fötum því það að ekki séu föt til staðar og ekki eða erfitt sé að leysa vandann sem upp er kominn, veldur meiri óþægindum fyrir börn en ella. Eldri börn fá þau meira val um hverju þau klæðast fyrir útiveruna og læra að þekkja líkamann. Geta þá til dæmis bætt við peysu ef þeim er kalt eða geymt vettlingana ef þeim er heitt. Af tíma og rými í fataklefa ætti alltaf að vera nóg. Aðstoð kennara sem þó eflir sjálfshjálp er til staðar og málörvun fer þar fram í auknu mæli.

Sýnileiki starfsins
Sýnileiki starfs leikskóla hefur ávallt glatt foreldra. Foreldrar eru þeir sem setja börnin sín í hendur okkar kennara og treysta því að þeim líði vel á meðan. Með því að efla það traust geta leikskólar  til dæmis sýnt myndir og hengt upp verk barnanna. Síðustu tvö ár hafa kannski enn aukið þörfina á sýnileika starfs þar sem tengsl hafa að einhverju leyti verið rofin með takmörkunum stjórnvalda vegna heimsfaraldurs. Aukin notkun snjalltækja og samskiptamiðla hefur þar gefið aukna möguleika til sýnileiksa starfsins. Foreldrar hafa aðgang að lokaðri myndasíðu sem sýnir frá starfinu, myndbönd frá uppákomum og kveðjum til leikskólabarna svo eitthvað sé nefnt.
Gangar leikskólans eru skreyttir með verkum barnanna og aðgengi að kennurum gott.

Samveru- og söngstundir
Í samverunni er haft í huga að öllum eigi að líða vel, allir skuli hafa jafnan möguleika á að tjá sig og taka þátt. Stórum hópi er skipt niður í tvo svo þetta gangi betur eftir. Börnin skiptast á að gá til veðurs og velja í kjölfarið myndir, niðurstöðum sínum til skýringar. Í samverunni eru lesnar bækur, sagðar sögur og sungið. Börn eru hvött til að standa fyrir framan vini sína og segja frá eða syngja, þau hrósa vinum sínum og allir taka þátt á sínum forsendum. Við sýnum virðingu með því að hlusta á aðra eins og við viljum að hlustað sé á okkur. Öllum skal líða vel og það er aldrei gengið út frá því að tveir hópar séu eins og því eru samverur sniðnar eftir hverjum hópi fyrir sig, lengd þeirra, efni og fjölda þátttakenda.