Leikskólafræði by Helga Friðriksdóttir

Innra herbergi
Hér er innra herbergið okkar. Börnin verja mesta leiktíma dagsins hér inni. Þegar að þau mæta á morgnanna og eru búin að borða morgunmat er þeim boðið hingað inn.
Þá leika þau ýmist með kubbanna sem að sjást í miðju herberginu. Kubbarnir ýta undir grófhreyfingar barnanna og eru í miklu uppáhaldi hjá þeim.
Börnin taka hvíldina sína í innra herberginu og eftir að allir eru vaknaðir er yfirleitt komin síðdegishressing. Þá er þeim boðið í innra herbergið eftir kaffitímann og við klárum daginn þar inni.

Samverukrókur
Hér má sjá samverukrókinn okkar. Hér fara allar okkar samverur fram, börnin sitja á púðunum í hring á meðan að við lesum sögur, syngjum lög, hlustum á sögur/lög í hátalarnum. Við teljum hvað mörg börn eru komin í leikskólann á þeim tungumálum sem að starfsmenn kunna sem eru m.a. íslenska, franska, danska, rússneska, swahili og enska. Einnig klöppum við atkvæði.
Við bjóðum þeim á þetta svæði þegar að þau vakna eftir hádegislúrinn í rólega leiki. Oftast er þá boðið upp á kubba/segulkubba eða leikfanga fígúrur (Dýr og fólk).

Heimiliskrókur
Hér má sjá eldavélina og þau dúkkurúm sem börnin leika með í hlutverkaleik. Mikil notkun er af dúkkurúmunum í hlutverkaleik. Mikilvægt er að efla samhug þeirra og hlýju gagnvart öðrum í þeim leikum sem dúkkur eru viðhafðar.

Heimiliskrókur
Hér má sjá hluta af okkar heimiliskrók. Leikið er með dúkkur og plastborðbúnað. Börnin leggja á borð og matreiða í hlutverkaleik. Gott er að hafa teppið til að mynda hlýju og notalegheit.

Innra herbergi
Pokarnir sem eru úr taui innihalda leikföng sem að eru oftast leikin með inn í innra herberginu. Í einum eru stórir mjúkir kubbar og í hinum tveim er könnunardót sem að starfsmenn hafa safnað saman t.d. tómar umbúðir af matvælum og shampoo brúsum

Skynjunarhorn
Þetta er eitt hornið á deildinni sem getur oft verið illnýtanlegt. Getur stundum myndast einskonar geymslusvæði fyrir þá stóla sem ekki eru í notkun hverju sinni. Þegar það gerist leika börnin sér oftast með einskonar skynjunardót sem eru geymd í þessari hillu. Glimmer í trékubbum, plasthringir með áferð. Allt sem þeim finnst gaman að koma við og snerta.

Hillur
Þessar hillur eru mest notaðar að geyma leikföng sem börnin hafa ekki frjálsan aðgang að nema með leyfi. Sem er oftast góðfúslega veitt. Púsl, sílafónn, bækur sem við viljum fara vel með, ýmislegt dót sem er smátt sem við viljum hafa yfirumsjón með þegar leikið er með það. Gögn sem beinast að starfinu sem er aðeins fyrir starfsmenn eru geymd í lokuðu rými. Einnig eru það verkfæri og tól sem við notum í föndurgerð. Skæri, lím, heftarar sem eru betur geymd úr augsýn barnanna. Í hillunni eru líka geymdir litir og blöð. Einnig eru geymd þroskaleikföng, karfa með fikt og skynjunardóti, lagatextar og margt fleira.

Heimiliskrókur
Heimiliskrókurinn er alltaf vinsæll meðal barnanna og hafa þau mikinn áhuga á því að vera í þeim krók en úthald þeirra í leik sem er tengdur honum er ekki mikill. Þau eru á þeim aldri sem að hliðarleikurinn er í fyrirrúmi og eru ekki byrjuð að mynda þennann samleik.

Hilla í innra herbergi
Í innra herbergi er ein hilla. Á henni eru plastkassar sem geyma sængur og kodda fyrir hvert barn. Einnig snuddur og bangsa barna sem það nota. Einn plastkassi er með bolta sem við notum mikið í leik í innra herbergi. Stór kassi er með bangsa sem deildin á sem öll börnin geta leikið með. Kassi fullur af búningum er leikið mikið með í innra herbergi. Slæður eru einnig í einum kassa en okkur finnst oft vera mikil slysahætta af þeim vegna þær eru svo sleipar á þessu gólfi. Eru þær því miður þá ekki eins mikið í notkun og við myndum vilja. Gott væri að geta ráðið bug á því vandamáli til dæmis með því að hafa eitthvað betra efni sem er ekki eins sleipt. Hestarnir sem sjá má í glugganum eru alltaf í mikilli notkun og hafa ekki fengið mikla hvíld í sínum bás né fengið að æja lengi.

Borðsvæði
Hér borða börnin á matmálstímum. Einnig fara ýmsir borðleikir fram eins og púsl, litir og málning, pinna. Við tökum oft elstu börnin og spilum með þeim spil í rólegheitum á meðan að yngri börnin leika í innra herbergi.