Heimsókn í Brákarhlíð by Heiðdís Rós

Ég heimsótti Aldísi Eiríksdóttur sem er iðjuþjálfi á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Hún útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri 2015 og er nú í 80% starfshlutfalli Í Brákahlíð. Starfsmenn Brákarhlíðar eru um 80 í ýmsum stöðuhlutföllum. Í Brákarhlíð er iðjustofa og þar fer fram fjölbreitt iðja undir handleiðslu iðjuþjálfa og annara starfsmanna.  Hennar starf er meira félagslegt heldur en t.d. starf iðjuþjálfa í endurhæfingu. Þarna er hún ekki að reyna að byggja upp færni, þar sem fólk á dvalarheimilum býr oftast við heilsufar sem er ekki hægt að breyta með þjálfun, heldur er hún að viðhalda færni í daglegu lífi og sjá til þess að fólkið njóti iðjunnar sem það er að fást við.
Hún Aldís kann sitt fag og unnir því vel. Það var mjög skemmtilegt að fylgjast með henni þessa daga og þessi heimsókn gjörbreytti minni sýn og hugmyndum um starfið og dvalarheimili yfir höfuð. Vinnan og metnaðurinn sem hún leggur í starfið er til fyrirmyndar. Hún gefur sig alla í starfið.

Þegar ég heimsótti Brákarhlíð var verið að undirbúa basar sem var haldinn 4. nóvember þar sem handverkin voru seld og rennur ágoði sölunnar til sumarferðalags heimilis- og starfsfólks Brákarhlíðar.

Í iðjustofunni er eitthvað fyrir alla og fara verkefnin eftir færni og áhuga einstaklinga, t.d. sitja margar konur og prjóna en það hafa ekki allir gaman að því. Þá er gott að hafa önnur verkefni sem er hægt að grípa í. Þarna eru litabækur sem eru mikið notaðar til slökunnar, þær henta mörgum og myndirnar eru misjafnlega krefjandi. Það er einnig föndrað og smíðað. Aldís notar svo það sem hefur verið búið til í önnur verkefni, t.d. hefur hún klippt út myndirnar sem hafa verið litaðar og skrifað ljóð aftaná, plastað inn, og í samverustundum velur fólk sér fallega mynd og les ljóðin fyrir hina. Þau búa svo vel að það eru fyrrverandi smiðir sem mæta mikið í vinnustöfuna og þar fá þeir að blómstra. Þeir taka þátt í að skipuleggja verkefnin og leiðbeina Aldísi svo ef það þarf að kaupa skrúfur eða verkfæri. Einnig er mikið af listafólki sem gerir smáatriði á hlutina sem eru skapaðir.

Eitt af stærri verkefnunum hjá þeim núna eru flísar og þá fer það eftir færni einstaklingsins hversu stórar flísar eru notaðar og þá eru búnir til plattar undir potta og svo minni plattar undir glös. Það hafa líka verið flísalagðar borðplötur á borðum sem sem standa og skreyta nokkur rými Brákarhlíðar og gefa þeim smá lit.

Samstarf við fyrirtæki
Iðjustofan er í samstarfið við nokkur fyrirtæki í Borgarnesi. Þar eru búnar til sláturnælur og þær seldar í búðum. Þau fá líka senda hluti frá verkstæðum til að flokka t.d. nagla.

Ég byrjaði fyrsta morguninn á því að fara með Aldísi í samverustun með heilabiluðum. Þar settust allir í hring, fengu mjúka, þæfða ullarbolta, sem voru búnir til í vinnustofunni sem henta mjög vel í þessar æfingar vegna þess að þeim fannst svo notarlegt að halda á þessum boltum. Þau voru látin kreysta boltana og sleppa, lifta höndunum upp og kreista og allskonar fleiri kúnstir. Eftir það var boltunum kastað á milli og þá tók ég eftir að sumir áttu erfitt með að sleppa boltanum, puttarnir bara virkuðu ekki og þetta minnti svolítið á þegar ungabörn eru alltaf með lokaða lófana fyrstu mánuðina. Í þessari samverustund var líka farið í boccia og svo í endann völdu þau myndir úr litabókunum með ljóðum bakvið og lásu ljóðin saman. Mér fannst alveg merkilegt hvað hæfnin við að lesa helst lengi við hjá fólkinu. Í samverustundinni lagði Aldís mikla áherslu á að örva hreyfingu og að þau héldu athygli allan tímann. Eftir þennan tíma rann upp fyrir mér hversu mikilvægt það er að heilabilaðir taki þátt í iðju. Þau voru öll glöð og leið vel en nokkrum mínútum seinna sagði Aldís mér að núna væru þau næstum öll búin að gleyma samverustundinni en það skipti ekki máli. Þeim leið vel og það sást greinilega að þau hafi skemmt sér. Endorfínið nefnilega streymir þótt þau geri sér ekki grein fyrir því afhverju þeim líður svona vel. Þar sem það er hormón og þau streyma í lengri tíma um líkamann eins og við lærðum í áfanganum um byggingu og starfssemi líkamans.

Í tónlistartímanum sem ég tók þátt í voru 3 einstaklingar. Í þessum tímum reynir hún að hafa ekki fleiri en 4 og reynir að raða þeim þannig upp að í þeim eru einstaklingar sem eru svipað staddir, í þessu tilviki með heilabilun. Í þessum tíma var hamonikuspilari, gítarspilari og þriðji einstaklingurinn greip í hristur og trommu til skiptis. Þegar leið á tímann vorum við farin að syngja og dansa saman við hamonikuspil.

Í þessum tíma var ferðast um landið í huganum og það var stór hópur í sal þar sem var myndvarpi og Aldís sýndi fólkinu myndir og talaði um staðina á myndunum. Þessi sýning er búin að vera í gangi í svolítinn tíma og hún byrjaði ferðalagið í Borgarnesi og vinnur sig svo hringinn í kring um landið. Aldís talaði um hverja og eina mynd og spurði svo út í sal hverjir hefðu komið á þennan stað og hvort einhver þekkti til þeirra. Það skapaðist skemmtileg umræða og í lokinn las hún þjóðsögu og sýndi youtube myndbönd og spilaði lög eftir fólk frá þessum stöðum.

Þessir hópar voru kynjaskiptir. Hún var með 4 konur í einum hóp og 4 menn í einum. Í hópana raðaði hún eftir getu og áhuga. Mér fannst sniðugt að hún skipti þeim í konu- og karlahóp vegna þess að það var ólík stemning í þessum hópum og áhugasviðið mjög ólíkt. Konurnar rifjuðu upp gamlar minningar og áhugaverða atburði í sögu Íslands. Síðan var lesin saga og spilað rommí. Mennirnir voru allir fyrrverandi atvinnubílstjórar og þá var lestur um bíla og vinnuvélar, hvenær þessi tæki komu til landsins og svo töluðu þeir um sín vinnutæki og sögðu sögur. Ég held að þessir hópar haf notið sín betur með þessari skiptingu vegna þess að áhugasviðið var svo ólíkt. Konurnar gátu notið sín og talað um fjölskyldur sínar og hvernig heimilislífið var með stór heimili. Mennirnir voru hins vegar með meiri gauragang og töluðu um tækin sín og reittu af sér bröndurum sem þeir hefðu örugglega aldrei þorað að segja með konum í hóp.

Í hverri viku er bíó. Þá eru sýndar íslenskar myndir eða leiksýningar. Einu sinni í mánuði, eða eftir síðustu bíósýningu mánaðarins er sparikaffi. Þá eru lögð á borð falleg bollastell af öllum stærðum og gerðum, sem Aldís hefur safnað að sér, og drukkið kaffi og spjallað. Það myndast mjög skemmtilegar umræður um bæði sýninguna og stellin og hlegið af sumum bollunum sem eru svo litlir að það kemst bara einn sopi í hann.

Ég fór með Aldísi í einn einstaklingstíma og þar settumst við niður og spjölluðum um líðan og áhugamál. Þar sem hennar starf er meira félagslegt var hún ekki að þjálfa viðkomandi líkamlega en hún sýndi mér tæki og tól sem hún myndi nota í svoleiðis þjálfun. Í kassanum voru lóð, nuddboltar og leir sem hún notar til þess að setja litla hluti inní og biður viðkomandi einstakling um að finna hlutinn og þjálfar þannig hendurnar. Hennar markmið er að hafa alltaf einhvern tilgang með öllu sem hún gerir. Hún er ekki að láta fólk hafa verkefni sem eru gerð og svo byrjað uppá nýtt aftur og aftur, heldur er hún að gera hluti sem verður úr afurð sem er svo seld á basarnum. Það er líka reynt að labba með fólkinu niður í vinnustofu þegar teknir eru göngutúrar í staðinn fyrir að labba gangana fram og til baka. Þannig er áherlsan lögð á að þjálfa í gegn um iðju og að fólkið geri eitthvað sem það hefur gaman að og hefur tilgang. Það er alltaf einblínt á það sem einstaklingurinn getur gert en ekki það sem hann getur ekki og þetta snýst ekki um að klára verkefnin á sem styðstum tíma heldur er þeim leift að njóta á meðan þau geta og efla þau í því sem þau eru sterk.

Aldís bíður uppá slökun á hverjum degi í hádeginu. Einu sinni í viku er hún með vax þar sem höndunum er dýft í vaxpott og svo er þeim pakkað inn. Einstaklingurinn fær svo að leggjast í hægindastól og slaka á með vaxið.

Í dag er fólk að koma seinna inn á dvalarheimili en fyrir nokkrum árum. Meiri áhersla er lögð á að efla færni og sjálfsbjargargetu á heimilinu með því að efla færni þeirra og styðja í sjálfstæðri búsetu. Þess vegna er iðjuþjálfun á heimilum aldraðra að aukast. Fólk fær aðstoð inná heimilið sitt með þrif, eldamennsku og margt fleira.  Þegar fólk eldist hægir á hreyfingum og dregur úr snerpu, sjón og heyrn versnar oft. Þess vegna verður meiri tími til tómastundaiðju þegar það er létt undir þessum verkum og þau komin í hendur annarra. Það koma nokkrir í dagvistun í Brákarhlíð og það er ómetanlegur stuðningur fyrir þau og léttir líka álagi af aðstandendum.

Iðjuþjálfun byggist á þeirri hugmyndafræði að það sé mikilvægt fyrir heilsu og vellíðan fólks að móta og stunda þá iðju sem fullnægir þörfum þess og áhuga og er í samræmi við kröfur og venjur samfélagsins. Með iðju er átt við öll þau verk og athafnir sem fólk tekur þátt í til að annast sjálft sig, njóta lífsins og koma samfélaginu að gagni.