Marta, Guðrún Ósk, Berglind, Agnieszka, Halla Rún by Marta Karlsdóttir

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna skiptir réttindum niður í fjögur svið
Réttur til lífs

Þetta ákvæði felur í sér réttindi barnsins til lífs og þá kröfu um að grundvallarþörfum þess sé mætt. Með því er átt við að barnið fái nóg að borða, eigi sér húsaskjól og hafi aðgang að læknisþjónustu.

Réttur til að þroskast og læra

Hér er átt við réttindi barna til þess að þroska þá hæfileika sem í þeim búa með aðgengi að menntun, möguleikanum á tómstundum og leik, aðgengi að upplýsingum, trúfrelsi og frelsi til sjálfstæðrar hugsunar.

Réttur til þátttöku

Ákvæðið felur í sér rétt barna og unglinga til að taka þátt í því samfélagi sem þau búa í. Þau skulu hafa rétt til að tjá skoðanir sínar, vera aðilar í félögum og hafa rétt til að hafa álit á þeim málefnum sem hafa bein áhrif á þeirra eigið líf.

Réttur til verndar

Hér er átt við réttindi barna sem eru nauðsynleg til að tryggja þeim vernd fyrir hvers konar ofbeldi, vanrækslu og misnotkun.

Síður til að afla sér upplýsinga um réttindi barna:
Í þessum link geta börn og unglingar leitað réttar síns með því að spyrja spurninga og segja sína skoðun: https://www.barn.is/boern-og-unglingar/
Umboðsmaður barna https://www.barn.is/
Unicef https://unicef.is/
https://www.barnaheill.is/Alþingi https://www.althingi.is/lagas/nuna/1992018.2c5.html
Barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna http://barnasattmali.is/

Barnasáttmálinn
Barnasáttmálinn var fullgiltur fyrir Íslands hönd árið 1992.  Fullgilding hans felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði samningsins. Lög og reglur sem gilda hér á landi ættu því að vera í samræmi við Barnasáttmálann.
Samningurinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á að börn þarfnist sérstakrar verndar umfram hina fullorðnu. Öllum þeim sem koma að málefnum barna ber að gera það sem í þeirra valdi stendur til að framfylgja samningnum. Hér er átt við stjórnvöld, foreldra, skóla og alla aðra sem vinna með börnum.

Réttindi barna
Þegar talað er um réttindi barna er verið að meina allt það sem börn þurfa að hafa til að geta lifað, þroskast og liðið vel.

Tilurð Barnasáttmálans
Mannréttindi eiga að tryggja öllum mönnum rétt til þess að njóta mannlegrar reisnar, eins og meðal annars kemur fram í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1948. Börn eiga að sjálfsögðu að njóta sömu mannréttinda og fullorðnir. Vegna þroska- og reynsluleysis njóta börn þó ekki allra stjórnmálalegra réttinda, svo sem kosningaréttar.

Forréttindi
Mikilvægt er að börn læri að greina réttindi sín og njóta þeirra forréttinda

Mikilvægt er að börn læri líka að fara eftir lögum og reglum,

Mikilvægt að greina milli réttinda og forréttinda sem þau njóta. Forréttindi er eitthvað sem er skemmtilegt og gott að fá.

Dæmi um réttindi:
• að fá að ganga í skóla og fá þar þá aðstoð sem maður þarf,
• að búa á heimili með fjölskyldu sem hugsar vel um mann,
• að fá að þekkja og umgangast báða foreldra sína,
• að fá hollan mat, hreint vatn og föt sem henta veðri og aðstæðum,
• að fá að leika sér og hvíla sig,
• að hafa leyndarmál sín og einkamál í friði,
• að fá að segja það sem manni finnst um það sem skiptir mann máli,
• að njóta verndar gegn ofbeldi, hættulegum sjúkdómum og slysum.

Grundvallarreglur Barnasáttmálans Réttindi barna í Barnasáttmálanum endurspegla fjórar grundvallarreglur:
1. Bann við mismunun (2. grein): Öll réttindi gilda undantekningalaust um öll börn. Ríkinu ber skylda
til að vernda börn gegn hvers kyns mismunun.
2. Hagsmuna barna skal gætt (3. grein): Hafa skal hagsmuni barnsins í fyrirrúmi við allar
ákvarðanatökur sem það varðar. Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang fram yfir
hagsmuni hinna fullorðnu (t.d. foreldra, kennara, forráðamanna). En spurningunni um hvernig
ákveða skal hvernig hagsmunum barns sé best borgið er enn ósvarað, það bíður frekari umræðu.
3. Rétturinn til að lifa og þroskast (6. grein): Rétturinn til lífsins er barninu áskapaður og ríkinu ber
skylda til að tryggja að barnið lifi af og nái þroska. Í því felst að börn má ekki dæma til dauða eða
taka af lífi.
4. Virðing fyrir skoðunum barna (12. grein): Barnið á rétt á að láta í ljós skoðanir sínar og að tekið sé
tillit til skoðana þess í öllum málum sem það varðar.

Börn eiga réttindi

Börn tala um réttindi

Hvert skal tilkynna brot:
Í IV. kafla barnaverndarlaga er fjallað um skyldur manna til að tilkynna barnaverndarnefnd ef þeir verða þess vísir að barni sé misboðið, uppeldi þess vanrækt eða aðbúnaði þess sé svo áfátt að barninu geti stafað hætta af. Þessi skylda hvílir á okkur öllum.
Starfsfólk barnaverndarnefnda veitir upplýsingar og tekur við tilkynningum á dagvinnutíma. Einnig er hægt að hringja í Neyðarlínuna í síma 112 og bera upp erindið við starfsmann Neyðarlínunnar.

Hvað væri áhugvert að kynna sér frekar?
Við sem störfum með börnum verðum að þekkja réttindi barna, og kenna börnum og foreldrum að þekkja réttindi sín.
þegar brotið er á börnum er það vegna vanþekkingar á sáttmála, réttindum og reglum sem að eru á Íslandi.

Umboðsmaður barna
Embætti umboðsmanns barna var stofnað 1. janúar 1995.

Umboðsmaður barna er Salvör Nordal, hún var skipuð í embættið frá 1. júlí 2017 til næstu fimm ára.

Meginhlutverk umboðsmanns barna er að vinna að bættum hag barna og standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi barna undir 18 ára aldri.

Umboðsmaður baran er talsmaður barna og unglinga. Í því felst að umboðsmaðurinn kemur til réttinda og hagsmunamálum barna og unglinga á framfæri við opinbera aðila sem og einkaaðila. Hann hefur ekki heimild til að hafa afskipti af vandamálum einstakra barna, en með slík mál fara aðrir, t.d. barnaverndarnefndir.

Réttindi barna, verkefni
Réttindi barna á að stuðla að því að barn njóti öryggis, menntuntunnar og að stuðlað sé að almennu andlegu og líkamlegu heilbrigði þeirra meðal annars. Hlutverk okkar sem fullorðinna, foreldra sem og fagfólks er að gæta þess að þessum réttindum sé framfylgt og einnig að fræða börn um hver eiginleg réttindi þeirra sé. Og hjálpa þeim að greina á milli lagalegra réttinda þeirra og svo aftur á móti forréttinda. Okkur ber skilda að tilkynna ef minnstur vafi er á að brotið sé á rétti barns eða við teljum að barn sé að verða sér að skaða.