Fréttamolar frá Samtökum áhugafólks um skólaþróun - september 2025 by Ingvar Sigurgeirsson

Ráðstefna um covidrannsóknina og framhaldsskólann í Verzlunarskóla Íslands 28. nóvember
Föstudaginn 28. nóvember verður haldin ráðstefna þar sem kynntar verða niðurstöður rannsóknarinnar COVID-19 og framhaldsskólinn. Gagnasöfnun hófst strax vorið 2020 og stóð í meira en þrjú ár. Niðurstöðurnar veita mikilvægar upplýsingar um starfsaðstæður framhaldsskólakennara, bæði á farsóttartímum og í kjölfar þeirra, en varpa einnig ljósi á hugmyndir framhaldsskólafólks um nám og kennslu, sem og framtíð skólastigsins. Ráðstefnan fer fram í Verzlunarskóla Íslands og verður nánar auglýst þegar nær dregur.

Ráðstefna 13. október: Hvað er leikskóli?
Félag leikskólakennara og Samtök áhugafólks um skólaþróun efna til ráðstefnu á Hilton Reykjavík Nordica, mánudaginn 13. október,  kl.  09:00-15:00 um  hlutverk leikskólans í samfélaginu og hlutverk kennara og annars starfsfólks í leik og námi barna.

Nánari upplýsingar og skráning hér

Samkeppni um ritun greina í Skólaþræði
Í tilefni af 20 ára afmæli sínu efna Samtök áhugafólks um skólaþróun til samkeppni um ritun greina um skólamál til birtingar í vefritinu Skólaþráðum. Leitað er eftir greinum um þróunar- og umbótastarf og umræðugreinum um stefnur og strauma í skólastarfi. Eftirsóknarvert er að fá greinar um árangursríka kennsluhætti og samstarfsverkefni, innlend eða alþjóðleg.

Sjá nánar hér!

Aðalfundur
Aðalfundur Samtaka áhugafólks um skólaþróun verður haldinn þriðjudaginn 18. nóvember, kl. 17.00.

Þetta verður hátíðarfundur í tilefni af því að samtökin voru stofnuð þennan dag á Selfossi fyrir 20 árum. Takið daginn frá - dagskrá og staðsetning verður kynnt fljótlega.

Íslensku menntaverðlaunin 2025
Samtök áhugafólks um skólaþróun hafa umsjón með Íslensku menntaverðlaununum í samvinnu við fjölmarga aðra aðila. Stefnt er að því að afhenda verðlaunin í ár á Bessastöðum 4. nóvember. Tilnefningarnar verða væntanlega kynntar í Síðdegisútvarpinu á Rás 2, mánudaginn 6. október (daginn eftir alþjóðlega kennaradaginn).

Samræða um menntastefnu til ársins 2030
Félag um menntarannsóknir og Samtök áhugafólks um skólaþróun bjóða félagsmönnum og öðrum áhugasömum um menntamál á nestisfund föstudaginn 10. október, kl. 12.00-14.00, þar sem rætt verður um aðra aðgerðaáætlun vegna Menntastefnu til ársins 2030:

Umræðuna leiða þau Ingólfur Ásgeir Jóhannesson og Hermína Gunnþórsdóttir sem nýlega hafa farið í saumana á áætluninni og birt niðurstöður sínar.

Sjá nánar hér

Félagsgjöld 2025 innheimt
Félagsmenn fá fljótlega innheimtu félagsgjalda í heimabanka. Gjaldið er kr. 2000.- Þess má til gamans geta að félagsgjöldin hafa haldist óbreytt í áratug.

Samtökin bjóða nokkrum kennurum út að borða!
Birtir þú eða þið kennsluáætlanir á opinni vefsíðu?

Undanfarin ár hefur færst í aukana að kennarar og kennarateymi birti kennsluáætlanir eða verkefnalýsingar á opnum vefsíðum. Með því móti hafa nemendur, foreldrar og aðrir áhugasamir greiðan aðgang að efninu. Að deila áætlunum og námsefni með þessum hætti er, að mati stjórnar Samtaka áhugafólks um skólaþróun, til fyrirmyndar. Í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna hefur stjórnin ákveðið að bjóða nokkrum þessara kennara út að borða (gjafakort)!

Kennarar, sem hafa áhuga á að koma til greina, eru beðnir um að senda samtökunum ósk um það með tilkynningu á þetta netfang (skolathroun@skolathroun.is) fyrir 1. nóvember 2025. Eins geta aðrir sent inn ábendingar. Tilkynningunni þarf að fylgja vefslóð að efninu sem um ræðir og gjarnan upplýsingar um hve lengi það hefur verið birt með þessum hætti.

Matsviðmið:

Viðfangsefnin eru fjölbreytt og áhugaverð

Verkefnin eru byggð á lykilhæfni, hæfniviðmiðum eða öðrum mikilvægum markmiðum eða grunnþáttum aðalnámskrár

Viðmót er notendavænt og framsetning góð (málfar, uppsetning, hönnun).

Við það er miðað að hægt verði að bjóða allt að 20 kennurum út að borða!

Dómnefnd verður skipuð til að meta vefsíðurnar.