Skólastefna Bláskógabyggðar - meginkaflar skólatefnunnar by Ingvar Sigurgeirsson

Inngangur
Á fundi sveitarstjórnar ... var ákveðið að ráðast í endurskoðun á skólastefnu Bláskógabyggðar. Skipaður var starfshópur til að hafa umsjón með endurskoðuninni. Í hópnum voru Amelía Dröfn Hákonardóttir, nemandi í Reykholtsskóla, Anna Gréta Ólafsdóttir, tilnefnd af sveitarstjórn, Dagný Rut Gretarsdóttir, grunnskólakennari, Karl Hallgrímsson, deildarstjóri í Reykholtsskóla, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, fulltrúi foreldra leikskólabarna, Lieselot Simoen, leikskólastjóri Álfaborgar og Sólmundur M. Sigurðarson, tilnefndur af sveitarstjórn. Áslaug Alda Þórarinsdóttir formaður skólanefndar var í stýrihópum fyrri hluta verktímans en þá tók Harpa Sævarsdóttir við sem fulltrúi skólanefndar.

Leitað var til ráðgjafarfyrirtækisins Skólastofunnar slf til um verkefnisstjórnun og hefur Ingvar Sigurgeirsson fv. prófessor við Háskóla Íslands annast hana í samráði við stýrihópinn.

Áhersla var lögð á að tryggja aðkomu sem flestra að stefnumótuninni. Haldnir voru fundir með grunnskólanemendum, starfsfólki allra skólanna og foreldrum þar sem farið var yfir stöðu skólamálanna, styrkleika, brýnustu úrlausnarefni, sóknarfæri og framtíðarsýn. Skólastefnan er byggð á niðurstöðum fundanna, auk þess sem litið var til Aðalnámskrár og stefnumótunar Bláskógabyggðar, m.a. um innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni, forvarnar- og lýðheilsustefnu og stefnu um heilsueflandi samfélag.

Sveitarfélagið vill kappkosta að skólarnir í byggðinni standist ítrustu gæðakröfur með áherslu á góðan námsárangur, lýðræðislega starfshætti, samstarf, einstaklingsmiðað nám, umhverfismennt, skapandi starf og velferð nemenda og starfsfólks.

Í Bláskógabyggð eru þrír skólar. Lögð er áhersla á að enda þótt skólunum sé sett stefna sé eftirsóknarvert að þeir leggi einnig rækt við sérkenni sín og megináherslur.

Að Laugarvatni er samrekinn leik- og grunnskóli, Bláskógaskóli. Í skólanum sem skilgreinir sig sem skóla fjölbreytileikans er lögð sérstök áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir og útinám er stór þáttur í starfi skólans. Skólinn er einnig kunnur fyrir áherslur sínar á dyggðakennslu. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta og gleði.

Í Reykholti eru leik- og grunnskóli. Í leikskólanum Álfaborg er lögð áhersla á að skapa samfélag sem einkennist af umburðarlyndi og virðingu og að skapað sé umhverfi þar sem börn sýna hvert öðru umhyggju. Starfsfólk leikskólans notar aðferðir Hugarfrelsis, ART- þjálfunar og Vináttu til að þjálfa félagsfærni, efla seiglu og tilfinningagreind barna.
Einkunnaorð leikskólans  eru virðing, vellíðan og vinátta.

Í Reykholtsskóla, sem er grunnskóli, er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti; blöndu gamalla og nýrra aðferða, einstaklingsmiðun námsins, einstaklingsvinnu, samvinnunám og fjölbreytni þegar kemur að verkefnaskilum. Skólinn er teymiskennsluskóli og framkvæmd stoðþjónustunnar í skólanum hefur vakið athygli á landsvísu.

Allir skólarnir leggja mikla áherslu á sköpun og list- og verkgreinum gert hátt undir höfði. Skólarnir eiga með sér gott samstarf, sem og við skóla í nágrannasveitarfélögunum.

Á undirbúningsfundunum var rætt um styrkleika í skólastarfinu. Meðal þess sem fram kom var að í skólunum væri mannauður, fagmennska, traust, góður starfsandi og samheldni, gagnkvæm virðing, góð samskipti. Þá nýttu skólarnir vel einstakt umhverfi og nálægð við náttúru.

Á fundunum var einnig spurt um brýnustu úrlausnarefni. Tvö mál stóðu þar upp úr. Annað er skortur á fagmenntuðu starfsfólki í leikskólastiginu. Hitt er nauðsynlegar úrbætur á húsnæði, aðbúnaði og starfsaðstöðu. Áríðandi er að úrlausnir á þessum tveimur sviðum verði í forgangi á næstu árum.

Áríðandi er að skólastefna nýtist við þróun skólastarfsins. Gert er ráð fyrir því að annað hvert ár verði efnt til skólaþings með aðild nemenda, foreldra, íbúa og starfsfólks þar sem rætt verði hvernig innleiðingu stefnunnar hefur miðað, árangur metinn og stefnan endurskoðuð ef á þarf að halda.

Uppeldi og menntun
Skólarnir í Bláskógabyggð byggja starf sitt á aðalnámskrám leik- og grunnskóla. Á næstu árum verður lögð sérstök áhersla á eftirfarandi:

Innleiðingu nýrra laga um farsæld.

Inngildandi starfshætti með áherslu á jöfn tækifæri til náms og komið sé til móts við nemendur með einstaklingsmiðuðum hætti.

Fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti sem búa nemendur vel undir nám og störf í framtíðinni. Í því felast m.a. mörg tækifæri fyrir börn að glíma við fjölbreytt og skapandi viðfangsefni sem styrkja þau sem einstaklinga og efla samstarfsfærni þeirra.

Lýðræðislega starfshætti og samráð með áherslu á þátttöku alls starfsfólks og nemenda.

Að virðing sé borin fyrir fjölmenningu og áhersla á að öll börn og ungmenni nái árangri í námi og leik, standi vel að vígi félagslega og séu stolt af bakgrunni sínum og menningu.

Að móttökuáætlanir séu virkar og þeim fylgt.

Að áfram verði unnið að þróun útináms og nýtingu náttúru, umhverfis og nærsamfélags í skólastarfinu.

Að skoðað verði hvort æskilegt sé að auka samkennslu á mörkum skólastiganna með aukinn sveigjanleika að markmiði.

Að leitast verði við að flétta sjálfbærni inn í allt nám og skólastarf, m.a. með hliðsjón af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Að málskilningur og læsi í víðri merkingu verði þungamiðja í öllu námi og á grunnskólastiginu verði sérstaklega unnið með upplýsinga- og miðlalæsi, talna- og fjármálalæsi.

Nemendur
Bláskógabyggð er barnvænt samfélag. Kappkostað er að búa börnum bestu aðstæður til að læra og þroskast. Í því felst meðal annars að hvetja börn til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og tryggja að framboðið sé fjölbreytt. Í skólum sveitarfélagsins skal þess gætt að:

Velferð nemenda sé leiðarljós í öllu skólastarfi.

Í skólunum sé unnið með markvissum hætti að því að efla sjálfstæði nemenda, sjálfsvirðingu og sjálfsábyrgð.

Skólanir velji sér viðurkenndar leiðir til að vinna markvisst með nemendum að geðrækt, félags- og tilfinningafærni.

Styrkleikar nemenda fái notið sín.

Nemendur séu hafðir með í ráðum um skóla- og félagsstarf.

Nemendur fái á hverju skólaári mörg tækifæri til að tengja nám sitt eigin áhugasviðum.

Nemendur fái þjálfun í að virkja sköpunarkraft sinn og félagslegan styrk.

Framboð á íþrótta- og tómstundastarfi innan sveitarfélagsins og í nágrannbyggðum sé vel kynnt fyrir nemendum og foreldrum.

Einelti eða annað ofbeldi verði aldrei liðið og viðbragðsáætlunum fylgt markvisst eftir.

Námsumhverfi og aðbúnaður
Bláskógabyggð vill reka góða skóla og standa fyrir góðu frístundastarfi sem uppfyllir kröfur um öryggi og gæði og tekur mið af þörfum nemenda og starfsfólks. Til að tryggja gott námsumhverfi og aðbúnað verður:

Unnið markvisst að endurbótum og viðhaldi á skólalóðum og húsnæði skóla- og frístundastarfs.

Gerð áætlun um það sem gera þarf í húsnæðismálum og aðgerðum til úrbóta raðað í forgangsröð. M.a. verði hugað að eftirfarandi:

Að byggja upp góða aðstöðu til náttúrufræðikennslu.

Unnið verði að nauðsynlegum úrbótum á aðstöðu til kennslu list- og verkgreina.

Aðstaða félagsmiðstöðvar unglinga og skólafrístundar verði bætt.

Tryggt að aðbúnaður og tæknilegt umhverfi styðji við fjölbreytta notkun upplýsingatækni í skólastarfinu.

Tryggt að allir skólarnir hafi aðgang að góðri aðstöðu til útináms og áætlun um útikennslu.

Skólaakstur vel skipulagður og þess gætt við útboð að gerðar séu ítrustu kröfur um búnað skólabílanna.

Heilsueflandi samfélag og forvarnir
Bláskógabyggð er heilsueflandi samfélag sem leitast við að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum og vellíðan allra íbúa. Í skólunum skal þess gætt að:

Þar fari fram öflugt forvarnar- og fræðslustarf um heilsu, öryggi og velferð.

Hreyfingu og söng sé fléttað inn í skóla- og félagsstarf.

Nemendur eigi kost á hádegisverði í skólunum alla daga vikunnar og í boði sé hollur matur, eldaður frá grunni úr hráefnum úr heimabyggð eftir því sem kostur er.

Fundargerðasíðan

Heimasíða stýrihópsins

Mannauður, fagmennska og starfsþróun
Sveitarfélagið kappkostar að hlúa sem best að starfsfólki skólanna og tryggja góð starfsskilyrði þess, meðal annars með því að:

Grípa til aðgerða til að laða að fleira fagmenntað starfsfólk. Sérstaklega verði horft til þess hvernig fjölga megi leikskólakennurum.

Styðja við skólaþróunarstarf og hvetja starfsfólk til að afla sér endurmenntunar og veita því nauðsynlegan stuðning til þess.

Veita nýju starfsfólki góðan stuðning.

Veita öfluga stoðþjónustu með áherslu á snemmbæran stuðning.

Hafa kerfisbundið innra mat samofið skólastarfinu og nýta það við mat á framgangi skólastefnunnar.

Veita starfsfólki með annað móðurmál en íslensku reglulega aðgang að íslenskunámskeiðum.

Samantekt á því helsta sem fram kom á fundunum
Brýnast / mest áhersla á

Mannauðurinn ... efla leikskólastigið ... fleiri fagmenntað starfsfólk ... starfsþróun, endurmenntun ...

Húsnæðismál - úrbætur

Mötuneytismál

Áframhaldandi þróun útikennslunnar

Efla samstarf skólanna

Álfaborg

Aðstaðan

Svæði til hreyfingar inni vantar

Geymslur vantar

Aðstaða til undirbúnings ófullnægjandi

Maturinn ekki góður

Stoðþjónustan

Starfsþróun ... grunnnámskeið – nýliðanámskeið ... endurmenntun ... barnmiðuð skyndihjálparnámskeið

Efla samstarf við foreldra

Þróun útikennslunnar ...

Aukin virðing leikskólastigsins ...

Samræma skóladagtöl

Efla samstarf skólanna

Reykholtsskóli

Virk móttökuáætlun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku - íslenskir nemendur - aðlögun nýrra nemenda og starfsfólks

Verkgreinastofur

Náttúrufræðistofa

Efla samstarf skólanna ...

Lagfæring skólalóðar

Aukin áhersla á að nýta nærumhverfið - ættum að nýta meira náttúruna

Þróun sérkennslunnar

Söngur og tónmennt skipi stóran sess í skólastarfinu

Læra meira í gegnum leik í grunnskóla

Félagsfærnistefna, eins og fyrir þá sem eru ekki sterk félagslega.

Að byggja upp fjölmenningarskóla

Foreldrar (Reykholtsmegin)

Utanumhald varðandi börn með sérþarfir

Meiri útikennslu ...

Meiri verkefni fyrir bráðger börn ...

Fagmenntað fólk á leikskólann

Samræmt skóladagatal

Huga þarf að skólabílunum ... að þeir séu allir fjórhjóladrifnir ... eru ekki alltaf á vetrardekkjum

Sameining skólanna í Reykholti

Sinna tvítyngdum börnum betur

Upplýsingatæknin – kenna nemendum á samfélagsmiðlana

Bláskógaskóli - Laugarvatni

Laga aðstöðu í leikskóladeildinni

Fleiri menntaða leikskólakennara vantar

Svigrúm til endurmenntunar ...

Maturinn hentar ekki leikskólabörnum

Heilsueflandi skóli

Bæta aðstöðu fyrir list- og verkgreinar

Aukinn stuðningur frá heimilum

Framkvæmdir í kringum skólann ...

Styðja betur við starfsfólk sem er í námi

Aðstaða fyrir náttúrufræðikennslu ...

Festa útikennslu í sessi – þróa hana áfram

Hugað verði að auknu samstarfi skólanna

Foreldrar (Laugarvatnsmegin)

Meiri fjölbreytni valáfanga.

Faggreinakennsla á unglingastigi.

Efla kennslu í upplýsingatækni. Læra basic tölvukunnáttu, framtíðin er tölvur! Vantar meiri grunn í hin ýmsu forrit sem hægt væri að nota í náminu, t.d stærðfræðiforrit, bókhaldsforrit, teikniforrit.

Húsnæðismál

Fagmenntaðir kennarar í leikskólann og á yngsta stigið.

Fá fleiri gestakennara í valáfanga.

Mætti bæta upplýsingagjöf hjá leikskólanum, t.d þegar nýir starfsmenn byrja

Meiri metnað fyrir kennslu og námsárangri á öllum stigum.

Vantar að bæta stoðþjónustu, t.d aðgengi talmeinafræðinga.

Leiðin sem löbbuð er niður í íþróttahús og sundlaug er hættuleg, þar sem þarf að labba í gegnum bílaplön, vantar gangbrautir.

Mikilvægt að kenna ritkennslu, fingrasetning á lyklaborði.

Aukin verkleg kennsla

Matarmálin

Aðgengi að stoðþjónustu

Innleiða leiðsagnarmat – leiðsagnarnám

Sveigjanleiki í frístund

Sterkara foreldrasamstarf

Nám í gegnum leik

Fá félagsmiðstöð fyrir alla nemendur til að auka tengsl og samvinnu.

Nemendur

Maturinn

Áhugasviðsverkefni

Leikaðstaðan

Starfsfræðsla

Samstarf
Í Bláskógabyggð er áhersla á gott samstarf milli skóla og nærsamfélags, ekki síst góð samskipti heimila og skóla, sem og við skóla í nágrannabyggðum. Því verði lögð áhersla á að:

Upplýsingaflæði milli foreldra og skóla sé gott, foreldrafélögin virk og skólarnir opnir foreldrum og nærsamfélagi.

Skólarnir í sveitarfélaginu vinni saman en einnig sé samstarf og samráð við skóla í nágrannasveitarfélögunum um félagsstarf, kennslu og starfsþróun.

Að skólarnir setji sér sameiginlega málstefnu.

Að skóladagatöl verði samræmd eftir því sem unnt er.

Að markvisst verði unnið að því að efla virðingu fyrir leikskólastiginu, m.a. með kynningu á starfi leikskólanna og auknu samstarfi við foreldra.