Endurhæfingahúsið HVER á Akranesi by Beta

Thelma Hrund Sigurbjörnsdóttir útskrifaðist  2005.

Er í dag iðjuþjálfi og forstöðukona

Kennsluréttindi frá Kennaraháskólanum

Starfaði hjá Janus endurhæfing

Byrjaði hjá HVER árið 2009

Ekki dæmigert starf iðjuþjálfa vegna stjórnunarhlutans

Mikilvæg tengsl við atvinnulíf á Akranesi

Saga HVER
Starfsemi HVER hefur lengst af verið tvíþætt, athvarf og endurhæfing.
Athvarfið er öllum opið.
Fagaðilar vísa fólki með heilsubrest í endurhæfingahlutann.
Unnið að endurkomu einstaklinga á vinnumarkaðinn.

2008:
Tilraunaverkefni til þriggja ára.
Starfsendurhæfing athvarfsins fer af stað.
Var fyrst til húsa í lítilli byggingu.

Þeir sem stóðu að stofnun verkefnisins voru

Akraneskaupstaður

Rauða Krossinn

HVE

Svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra

Árið 2010:
Samstarf við VIRK starfsendurhæfingu

Árið 2011:
Akraneskaupstaður gefur grænt ljós á áframhaldandi starfsemi.
Mikill hagur í því að sinna endurhæfingahópi.

Árið 2012:
Nýtt og stærra húsnæði
Áframhaldandi formun á starfseminni.

Árið 2014:
var StarfVest stofnað. Það er starfsenduhæfing Vesturlands. Stofnendur starfsendurhæfingunnar voru

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi

Vinnumálastofnun á Vesturlandi

Stéttarfélög á Vesturlandi

Verkalýðsfélag Akraness

(Akraneskaupstaður, 2014)

Skjólstæðingsmiðuð nálgun í endurhæfingu
Hugtakið skjólstæðingsmiðuð iðjuþjálfun var skilgreind árið 1997 sem samvinna skjólstæðings og iðjuþjálfa með þann tilgang að efla iðju skjólstæðings. Vaxandi athygli heilbrigðisþjónustunnar hefur verið á hugtakinu síðustu áratugi sem er eitt af kjarnahugtökum nútímaiðjuþjálfunar.

Aðaláherslur skjólstæðingsmiðaðrar iðjuþjálfunar eru margþættar. Samvinnuferli iðjuþjálfa og skjólstæðings til að efla þáttöku hans. Grundvöllurinn er gagnkvæm virðing. Skjólstæðingur veit hvað skiptir hann máli og er sérfræðingur eigin lífs. Iðjuþjálfi er sérfræðingur í eflingu iðju. Hann hvetur skjólstæðing til þátttöku með því að veita upplýsingar, leiðsögn og stuðning. Þjónustan er sveigjanleg og miðar að iðju og umhverfi skjólstæðingsins (Guðrún og Snæfríður 2011).

Notendur endurhæfingar virðast meta tengsl iðjuþjálfans framar tæknilegri færni. Þeir vilja finna að fagfólk leggi sig fram við að efla það við að taka ákvarðanir er tengjast þeirra daglega lífi. Aðal áhersla endurhæfingar er sjálfræði fólks og þátttaka (Guðrún Pálmadóttir, 2008).

Iðjuþjálfar þurfi að vera hvetjandi með því að styðja og ýta undir þann kraft sem býr í skjólstæðingnum. Það er nauðsynlegt að gefa þeim von því það sé meginafl hvatningar á áframhaldandi endurhæfingu (Guðrún Pálmadóttir, 2008). Thelma reynir að hafa það að leiðarljósi. Einhverjir skjólstæðingar þeirra séu t.d. með skert innsæi hvað varðar starfsgetu. Sumir gera óraunhæfar kröfur og telja sig geta verið í vinnu með 500.000 á mánuði. Það fellur þá oft í verkahring iðjuþjálfan hússins að fá fólk til að horfast í augu við raunveruleikann en gera það án þess að slökkva drauma þess. Markmiðið verður að vera að koma fólki þangað þar sem það plummar sig. Sömuleiðis segist hún þurfa að vinna kjark í fólk sem tapað hefur sjálfstraustinu á eigin getu.

Guðrún Pálmadóttir (2008) nefnir að iðjuþjálfun hafi óformlegt yfirbragð vegna áherslu iðju á daglegt notenda. Iðjuþjálfar hafa því einstakt tækifæri til persónulegrar nálgunar og jákvæðra tengsla við skjólstæðinga sína. Thelma segist nokkrum sinnum hafa veitt mjög persónulega og að sumra mati óþolandi þjónustu, þó í samráði við skjólstæðing. Einstaklingurinn hafi átt erfitt með að vakna á morgnanna og því mikil hætta á að missa af dagskrá og standa ábyrgð sína á mætingu. Thelma hafi þá boðist til að mæta heim til viðkomandi á morgnanna. Sem hún og gerði, hún bankað, dinglað og barði á glugga til að vekja aðilann. Hún hlær þegar hún segir frá þessu og nefnir að hún hafi ekki þurft að gera þetta mörgum sinnum. Það vildi enginn fá hana gólandi á glugga hjá sér snemma morguns. Einnig kæmi oft fyrir að þau hringdu í þá sem ekki hefðu tilkynnt fjarveru og ættu að vera mættir í dagskrálið sem þeir væru skráðir í. En það væri þá yfirleitt í samráði við skjólstæðingana (Guðrún Pálmadóttir, 2008).

Valdefling
Margir hverjir sem nýta sér þjónustu HVER eiga við þann vanda að etja að geta ekki tekið flóknar ákvarðanir, eru ósjálfbjarga eða hafa þróast yfir í að verða ósjálfbjarga og er hlutverk valdeflingar að auka sjálfstæði í ákvarðanatöku á sem flestum sviðum lífsins án forræðishyggju annara aðila. Kjarni valdeflingar er að breyta sjálfsskilningi fólks og ýta undir sjálfsákvörðunarrétt og sjálfsvirðingu. Valdeflingu má lýsa sem ferli þar sem vald hlýst af þátttöku í uppbyggjandi athöfnum sem hafa raunverulegan tilgang og leiða til þekkingar færni og meðvitundar. Vald er afrakstur í þátttöku og athöfnum og samskiptum þar sem fólk getur sagt það sem því finnst upplifað  og að það skipti máli.  Fólk öðlast reynslu á eigin forsendum í stað þess  að vera alltaf háður þeim sem telja sig vita hvað er fyrir bestu. Einfaldast væri að segja að valdefling  er ,,Ég get það“. Valdefling er komið að enska orðinu Empowerment og mætti best þýða sem  máttefling eða sú upplifun að við séum máttug eða öflug eða ég hef valdið (Jóhanna Magnúsdóttir, 2015).

Hlutverk HVER  er að veita notendum sem mestar og bestar upplýsingar um allt sem viðkemur lífi einstaklingsins þannig að ákvarðanataka eigi sér ekki stað í tómarúmi heldur gefi möguleika á að meta kosti og galla hverrar ákvarðanatöku. Sem dæmi er kennsla hvernig á að nota heimasíður,hvernig á að fylla úr umsóknir og svo framvegis.

Margir sem nýta sér starfsemi HVER eiga við geðræna sjúkdóma að stríða. Geðstimpillinn gerir það oft að verkum að ákvarðanataka þeirra sem eiga við geðræn vandamál eru ekki metnar á sama máta og þeirra sem ekki eiga við þannig vandamál að stríða og eru oft stimplaðir frekir,stjórnsamir eða annað neikvætt og þar með eru þessir jákvæðu eiginleikar ekki metnir að verðleikum. Notendur HVER hafa oft á tíðum einangrast frá samfélaginu og misst alla von. Oft hrökklast fólk frá vinnu vegna árekstra í félagslegum samskiptum og er hluti valdeflingar að vekja von fólks á ný að einstaklingur geti haft áhrif og ætti að temja sér að vera vongóður. Í HVER er reynt að uppfylla drauma fólks að sem mestu leiti.

Hópefli er mikilvægur hluti af starfsemi HVER og eru ákvarðanir teknar í hópum á lýðræðislegum grunni. Valdefling snýst ekki bara um einstaklinginn heldur einnig um að tilheyra hópi og mynda tengsl við aðra. Það að missa tengsl við samfélagið og aðra er oft stór þáttur í lífi margra sem sækja HVER.

Hluti valdeflingar er að hafa áhrif á breytingar í eigin lífi og samfélagi og þegar manneskja kemur breytingu til leiða þá eykst sjálfstraust hennar og það leiðir af sér frekari og áhrifameiri breytingar sem aftur hefur áhrif á heildina.

Hluti af hugmyndafræði HVER er að hvetja fólk til að vera sýnilegra í samfélaginu en hluti af skertri færni er að fólk einangrar sig. Í valdeflingu er talað um að koma út úr skápnum og þrátt fyrir að það geti verið erfitt fyrir marga þá er það merki um aukið sjálfstraust að takast á við það. Í HVER eru haldnar keppnir t,d á torginu á Akranesi sem er opinber og vinsæll staður hjá bæjarbúum.og fólk gert sýnilegt þegar það vil og treystir sér til. Skjólstæðingar í HVER hafa margir hverjir tekið þung skref inn í húsnæðið sem er staðsett á áberandi stað í bænum og hræddir við að vera stimplaðir en það er oft eigin fordómar sem þjaka það. Það er mikilvægur hluti valdeflingar að efla jákvæða sjálfsmynd og vinna bug á fordómum. Eftir því sem valdefling einstaklingsins eykst fer hann að finna fyrir auknu sjálfsöryggi og aukinni trú á eigin getu. Þetta leiðir til þess að hann verður færari um að stjórna eigin lífi, sem hefur aftur í för með sér enn bættari sjálfsmynd. Þegar sjálfsálitið eykst fer fólk oft að sjá sig ekki lengur sem sjúklinga og skrefin verða auðveldari.

Valdefling er ekki ákvörðunarstaður heldur ferðalag og breyting og þroski tekur alla ævi og er stöðugt verkefni (Grófin, e.d.).

Starfsemi HVER
Tvískipt starfsemi

Athvarf

Starfsendurhæfing

Markmið starfseminnar í heild er fjölbreytt

Aukin lífsgæði

Rjúfa félagslega einangrun

Veita stuðning við að ná markmiðum

Auka persónulega- og samfélagslega virkni og færni

Aðstoð við að komast aftur út á vinnumarkaðinn í viðeigandi starfshlutfalli

Hvetja fólk í nám

Athvarfið
Starfsemi Hver er athvarfið
Þrír starfsmenn í 1,5 stöðugildi.

Forstöðukona/iðjuþjálfi 20%

Deildarstjóri 80%

Félagsráðgjafi 50%

Utanaðkomandi fagteymi skipað félagsráðgjafa og iðjuþjálfa.

Starfsendurhæfingin
Fleiri starfsmenn heyra undir starfsemi StarfVest.

Sjúkraþjálfi 20%

Félagsráðgjafi 30%

Mannauðsráðgjafi 50%

Sálfræðingur 25%

Sjúkraliði 65%

Forstöðukona/iðjuþjálfi 80%

Aðal markmið StarfVest

Aðstoð til þeirra sem eru á endurhæfingalífeyri eða örorku við að fá vinnu í samræmi við getu og vilja.

Aðstoð við að finna nýjar leiðir til að nýta hæfileika sína.

Gerð vinnusamning

Þátttaka skjólstæðinga
Margir skjólstæðingar vilja vera á vinnumarkaði
Einhverjir þættir í vinnunni sem erfitt er að takast á við.
Mæting skiptir máli!

Daglega mæta í kringum 10-15 manns án tilvísunar

Um 10 manns sem sinna endurhæfingu sinni á hverjum degi og

20-25 manns frá StarfVest sækja dagskrá í húsi á hverjum degi

Um 100 manns eru virkir notendur í hverri viku

Fyrri dagurinn
Við mættum um morguninn og fengum að sitja einn fyrirlestur í fyrirlestraröð Theodórs Francis Birgissonar sem er klinískur félagsráðgjafi (MA) og fjölskyldufræðingur hjá Lausninni fjölskyldumiðstöð. Yfirskrift námskeiðsins var "Samskipti og meðvirkni". Mikill fjöldi var mættur og allir sýndu mikinn áhuga og margar spurningar komu fram. Allir virtust ánægðir í lokin.
Því næst var okkur sýnt húsnæðið sem við tókum myndir af.
Eftir hádegishlé mættum við á fyrirlestur hjá Siggu iðjuþjálfa hjá HVE, með yfirskriftinni "Að vera og dafna". Fyrirlestur dagsins var um verki (og kvíða?). Fróðleikur flæddi frá Siggu í rúmlega 20 mínútur og að því loknu var hún með um 10 mínútna núvitundaræfingu sem allir virtust njóta vel, við meðtalin.
Okkur var boðið að fylgjast með vatnsleikfimi sem fór fram í innisundlaugina Bjarnarlaug sem stendur í næstu götu við Hver. Það var vel mætt í laugina.

Seinni dagurinn
Þegar við mættum um morguninn var Thelma iðjuþjálfi með fyrirlestur, "Aftur til vinnu". Það var uppörvandi og um leið fræðandi. Hún fór meðal annars yfir vinnusamninga í samstarfi við Vinnumálastofnun. Að því loknu gaf hún sér tíma frá þétt skipaðri dagskrá til að svara öllum spurningum sem okkur datt í hug að spyrja.

Fjölbreytt dagskrá
Húsið opnar kl 9 mán - fim
kl 10 á fös.
Opið til 15:30 á hverjum virkum degi.
Kalmennskir morgunfundir 4 daga í viku.

Margt í boði:
Hreyfing:

Hot yoga

Gönguhópur

Vatnsþjálfun

Tabata

Hreyfistjórn og styrkur

Hreyfiflæði

Sjósund

Fyrirlestrar:

Næringarfræðsla 1 sinni í viku

Að njóta lífsgæða

Heilsuskóli

Fyrirlestraröð um meðvirkni

Að vera og dafna

Aftur í vinnu

Fjármálafræðsla

Hópastarf:

Eldhúsþjálfun 3 sinnum í viku

Húsfundir 1 sinni í viku

Öðrum tilfallandi dagskráliðum er sinnt fyrir hádegi á föstudögum.

Annað sem er í boði í hverri viku:

Handverk

Föndur

Fab Lab

Handaþjálfun

Heitt vax

Sálfræðitímar

Viðtal við félagsrágjafa

Árstíðarbundin dagskrá

Sláturgerð

Berjatínsla

Kartöflurækt

Vorferð

Þorrablót

Góugleði

Litlu jól

Dorveiðikeppni

Hugmyndafræðin
Unnið er út frá hugmyndafræði valdeflingar og skjólstæðingsmiðaðrar nálgunar. Það er mikil breidd í þörfum skjólstæðinga, andleg og líkamleg. Þeir sem nýta sér þjónustu HVER er eins ólíkir og þeir eru margir og er áhersla á að mæta hverjum og einum á þeim stað sem hann eða hún er á. Thelma talar um að þrátt fyrir aðgreiningu í náminu varðandi iðjufræðin og matstækin þá hafi mörkin afmást þegar kemur að vinnunni sjálfri. Starf Thelmu snýr svo mikið að stjórnunarhlutanum og skipulagi starfsins að henni gefst ekki almennilegur tími til að sinna þeirri vinnu eins og hún myndi vilja. En hún nýti sér faglega rökleiðslu sína í skipulagningu og allri yfirsýn á starfseminni. Líkt og með matstækin þá renna mismunandi sjónarhorn rökleiðslunnar saman í eitt og beitir hún þeim svo (Guðrún Pálmadóttir, 2011). Við þaul spurðum hana þó út í hverskonar mælitæki hún væri þó helst að nota þegar til þess kæmi og sagðist hún þá grípa  þá helst í tvö líkön, mæling á færni við iðju (COMP) og iðjulíkanið MOHO. Thelma tekur fram að áhorf hafi reynst sér best við að afla iðjuupplýsinga. Upplýsingunum safnar hún helst í mismunandi hópverkefnum sem skjólstæðingar sinna.

Hluti af eldhúsinu

Viðtalsherbergi fyrir hópa

Vinnustofa fyrir handverk og föndur

Herbergi fyrir einstaklingsviðtöl

Akraneskaupstaður. (12. desember,    2014).Starfsendurhæfing Vesturlands stofnuð á Akranesi. Sótt af https://www.akranes.is/is/frettir/starfsendurhaefing-vesturlands-stofnud-a-akranesi

Guðrún Pálmadóttir. (2008). Iðjuþjálfun í ljósi skjólstæðingsmiðaðrar nálgunar. Iðjuþjálfinn, (1), 8-18.

Gúðrún Pálmadóttir. (2011). Þjónustuferli og fagleg rökleiðsla. Í Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson (ritstjórar). Iðja, heilsa og velferð, iðjuþjálfun í íslensku samfélagi (bls 121-135). Akureyri: Háskólinn á Akureyri.

Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson. (2011). Skjólstæðingsmiðað starf með einstaklingum og fjölskyldum. Í

Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson (ritstjórar). Iðja, heilsa og velferð, iðjuþjálfun í íslensku samfélagi (bls 105-120). Akureyri: Háskólinn á Akureyri.

Grófin, geðverndarmiðstöð. (e.d.) Hugmyndafræðin, vinnuskilgreining á valdeflingu, útdráttur. Sótt af https://grofin.wordpress.com/about/hugmyndafraedi-grofarinnar/

Jóhanna Magnúsdóttir. (28. Mars, 2015). Hvað er valdefling? Sótt af https://johannamagnusdottir.com/2015/03/28/hvad-er-valdefling/