Komdu og skoðaðu - Eldgos by Henny Arnadottir

Texti bókarinnar
Texti bókarinnar er við hæfi nemenda. Auðlesinn en jafnframt hugsað til þeirra sem eru hæglesnir eða með lesblindu/lesörðuleika því rafbókin er gagnvirk og býður upp á hlustun.

Lykilorð eru ekki sýnileg en bókin er myndræn og orðskýringar eru ekki sjáanlegar í bókinni sjálfri. Skoða þarf kennsluleiðbeiningar til að finna mikilvæg orð sem kennurum er bent á að spyrja um.

Efni bókarinnar
Hæfniviðmið eru sett fram í kennsluleiðbeiningum sem miðast við námskrá. Efnið er byggt upp í söguformi sem hentar vel yngsta stigi grunnskóla. Hugtakaskýringar eru í kennsluleiðbeiningum og þarf kennari að kynna sér þær. Vefbókin býður upp á myndir, kort, myndbönd og annað skemmtilegt efni sem lífgar upp á kennsluna. Farið er yfir hverja opnu fyrir sig ítarlega í kennsluleiðbeiningum þar sem grunnhugtök koma fyrir, umræðuhugmyndir og leiðbeiningar með myndefni. Mikil fjölbreytni er í boði og kallar jafnvel á upplýsingaleit á neti og bókasafni, kortaskoðun og kortagerð, örnefni, ritun og margt fleira.

Framsetning
Ekkert efnisyfirlit er að finna í bókinni og sömuleiðis er engin kaflaskipting en í söguramma sem fylgir bókinni hefur höfundur skipt söguþræðinum upp í nokkra hluta og sett fram markmið fyrir hvern og einn.

Ekki er að finna atriðaorðaskrá í bókinni sjálfri en í kennsluleiðbeiningunum er tekin fyrir hver opna í bókinni og listuð upp grunnhugtök sem má finna á tiltekinni opnu.

Framsetning er mjög skipulögð og áhugavekjandi og eru myndir skemmtilegar en jafnframt skýrar og fræðandi. Engar töflur eða gröf er að finna í bókinni.

Verkefni
Verkefnin kalla á mikla þátttöku nemenda. Allt frá lífsleikni, þar sem ræða þarf um líðan og nemendur þurfa að setja sig í spor persóna bókarinnar, umræður, landafræði, sögugerð, veggspjaldagerð o.fl. Verkefnin bjóða upp á samþættingu námsgreina, eru fjölbreytt, við hæfi nemenda og huga að fjölgreindum. Verkefnin ættu að ná til áhuga nemenda að einhverju leyti og eru kennsluleiðbeiningar mjög nákvæmar fyrir kennara svo þeir geti framkvæmt þau með nemendum. Nemendur ættu að geta leyst þau sjálf í kennslustofunni.

Komdu og skoðaðu - Eldgos
Bókin er hluti af Komdu og skoðaðu bókaflokknum sem inniheldur fjölbreyttar bækur sem fjalla um ýmislegt tengt daglegu lífi og umheiminum. Bækurnar sameina ýmsa námsþætti á yngsta stigi grunnskólans þó þær tilheyri samfélagsgreinum. Í þessari bók er fjallað um orsakir eldgosa og jarðskjálfta og hvernig er best að bregðast við þeim. Einnig er farið inn á náttúrufræði, uppbyggingu jarðar, jarðskorpufleka og eldgos á Íslandi.

Grunnskólar hafa notast við prentaðar bækur en nú er þessi einnig fáanleg sem gagnvirk rafbók á vef Námsgagnastofnunar þar sem hægt er að styðjast við aukaefni eins og ljósmyndir, myndbönd og skýringamyndir sem gott er að nota samhliða kennsluleiðbeiningum. Einnig er skipulag fyrir söguramma sem býður upp á fjölbreytta vinnslumöguleika með nemendum.

Kennsluleiðbeiningar
Kennsluleiðbeiningar fást með þessu efni og er það mjög ítarlegt með þessum bókaflokki og kannski skýringin á því hvers vegna þær eru jafn vinsælar og þær eru í kennslu á yngsta stigi grunnskólans. Þær eru mjög skilmerkilegar, gagnlegar og auðveldar í notkun. Farið er yfir hverja opnu fyrir sig, skýr markmið sett þar sem hin ýmsu hugtök eru kynnt til sögunnar til að auka orðaforða og hugtakaskilning. Jafnframt eru sett fram umræðuefni og hin ýmsu verkefni. Bent er jafnframt á í lok kennsluleiðbeininga á vefsíður er tengjast efninu sem gagnlegt er að skoða og benda á. Ekki má gleyma sögurammanum sem ómetanlegt er fyrir kennara að hafa því hann gef tóninn um kröfur verkefnavinnunnar.

Námsmat
Ekki fylgir sérstakt námsmat með bókinni. Hins vegar ætti að vera auðvelt fyrir kennara að útbúa það því í kennsluleiðbeiningunum eru ítarleg markmið og sögurammi þar sem farið er yfir lykilspurningar, hvernig vinna nemenda eigi að fara fram, skipulag, námsgögn og afrakstur. Það má segja að söguramminn sé hálfgert leiðbeinandi námsmat.

Fordómar
Í bókinni er ekki að finna fordóma af neinu tagi.

Komdu og skoðaðu - Eldgos

Megin niðurstöður
Bókin hentar vel í kennslu á yngsta stigi grunnskóla. Hún býður upp á ítarlegar kennsluleiðbeiningar fyrir kennara og fjölbreyttar hugmyndir. Hún reynir á athygli nemenda og þátttöku þeirra. Jafnframt tengir hún vel við hinar ýmsu námsgreinar og hæfniviðmið námskrár.

Kostir vefs
Helstu kostir vefsins er aðgengi að rafbók sem býður upp á aukaefni í kennslu og kennsluleiðbeiningum á vef Námsgagnastofnunar

Gallar vefs
Helstu gallar vefsins eru að rafbók og kjarnaefni er ekki endilega á sama stað ef leitað er eftir bókinni. Rafbókin getur komið þess vegna eingöngu upp og þá vantar allar upplýsingar um kennsluleiðbeiningar og söguramma. Jafnframt er sér vefur fyrir kennsluleiðbeiningarnar sem þarf að opna í stað þess að allt sé aðgengilegt á einum stað fyrir hverja bók.
Að auki má benda á að linkar á bakvið sumar krækjur í rafbókinni virka ekki og beina manni inn á síður sem ekki finnast.

Kristey Lilja Valgeirsdóttir
Ég heiti Kristey Lilja og er 24 ára gömul. Ég er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði en flutti í bæinn eftir að hafa klárað framhaldsskólann á Höfn. Þá tók við BSc nám í sálfræði í HR sem ég kláraði vorið 2017. Núna er ég staðnemi í fullu framhaldsnámi í kennslu samfélagsgreina og starfa með námi sem stuðningsfulltrúi í Sæmundarskóla. Ég bý í Hlíðunum með kærastanum mínum og eigum við von á okkar fyrsta barni í ágúst.

Henný Árnadóttir
Ég heiti Henný Árnadóttir, er einstæð tveggja barna móðir og bý á Selfossi. Ég starfa sem umsjónarkennari í Vallaskóla og kenni 4. bekk. Ég hef lokið B.ed. gráðu við Menntavísindasvið HÍ og er nú í mastersnáminu í kennslu yngri barna.

Skólinn minn leggur mikið upp úr snjalltækjakennslu en höfum við á yngsta stigi því miður ekki notað tækin nægilega mikið og vantar þekkingu. Mér finnst mikilvægt að nemendur geti gengið að stafrænu efni líkt og bókum og því finnst mér ávallt forvitnilegt að bæta við mig námskeiði sem þessu.

Örvar Birkir Eiríksson
heiti og er 42 ára tveggja stúlkna fjölskyldufaðir í Grafarvogi. Ég er með BA-gráðu í sagnfræði og vinn núna hjá Öryggismiðstöðinni en hef áður unnið í t.d. Viðey og Toy´s R Us. Ég er í fjarnámi í M.ed. námi í Kennslu samfélagsgreina og er ég aðallega að horfa á kennslu á efsta stigi grunnskólans. Ég hef ekki unnið við kennslu en klæjar í puttana að klára námið og hefjast handa við það.