Verkefni 4 - Tölvuleikir í skólastarfi by Ásdís Rún Ólafsdóttir

Um leikinn
Minecraft tölvuleikinn má ýmist nálgast sem smáforrit í spjaldtölvu eða snjallsíma, sem leik í borð- eða fartölvu eða sem leik í leikjatölvu. Leikurinn er vinsæll meðal barna og fullorðinna en það er okkar upplifun að flestir krakkar á grunnskólaaldri á Íslandi spila, eða hafa spilað, þennan leik.

Í leiknum getur spilarinn kannað óendanlegan heim og í leiðinni byggt og hannað allt frá einföldum húsum upp í neðansjávarkastala. Leikurinn er fullur af möguleikum og býður nánast upp á allt sem ímyndunaraflið leyfir.

Hægt er að spila leikinn á tvo vegu. Annars vegar í skapandi hlutverki (e. creative mode), en þar hefur maður endalausa möguleika, og hins vegar í hlutverki þar sem aðal áherslan er í því að lifa af (e. survival mode) (Mojang, 2009-2021). Í seinna hlutverkinu þarf spilarinn t.d. að varast ýmsar hættur ásamt því að safna sér byggingarefni og búa sjálfur til verkfærin sem hann notar til að byggja heiminn sinn.

Leikinn má svo ýmist spila einn eða með öðrum.

Minecraft og stærðfræði: Rúmfræðiverkefni
Hér er dæmi um Minecraft verkefni þar sem hægt er að nota leikinn við kennslu rúmfræði. Verkefnið er við hæfi nemenda á miðstigi í grunnskóla en leikurinn er gefinn upp fyrir 9 ára og eldri. Nemendur búa til hús með ákveðnum fyrirmælum í huga.

Verkefni

Nú ætlar þú að byggja parhús í Minecraft. Hvor íbúð á að vera 140-160 fermetrar að stærð en Minecraft steinninn sem þú notar til að byggja húsið er 1m x 1m. Þú ræður hvort íbúðirnar séu á einni hæð eða tveimur en þú þarft að hafa eftirfarandi í huga:

Að hafa a.m.k. 1 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu.

Íbúðirnar þurfa að speglast.

Skipulag íbúðanna þarf að vera eins, þ.e. að veggirnir speglist þrátt fyrir að þú hafir ólík húsgögn í þeim.

Þegar þú hefur lokið við bygginguna gerir þú fasteignaauglýsingu þar sem þú kynnir húsnæðið fyrir samnemendum þínum. Til þess að ákvarða raunhæft verð ákveður þú hvar eignin er staðsett og kannar fermetraverð á svæðinu.

Það er mikilvægur þáttur í námi að verkefni séu ekki einungis unnin og endi svo ofan í skúffu. Hér fá nemendur tækifæri til þess að kynna sitt verkefni og reyna að "selja" samnemendum sínum eignina.

Þetta er verkefni sem hægt væri að taka mun lengra. Nemendur gætu búið til heimasíðu til að auglýsa fasteignirnar eða tekið upp myndbönd. Það er hægt að bæta í verkefnalýsinguna að garðurinn og umhverfið eigi að bjóða upp á sjálfbærni, afþreyingu og svo margt fleira.

Athafnakostir Minecraft
Niðurstöður úr rýni Freitas (2018) um tölvuleiki í námi gefa til kynna að tölvuleikir geti verið mjög gagnleg námsverkfæri og sé rétt farið að leikjanámi gæti það staðið framar hefðbundnu námi og kennslu. Minecraft er engin undantekning og leikurinn hefur marg sýnt og sannað notagildi sitt þegar það kemur að námi.

Menntunargildi Minecraft varð til þess að útbúin var sérstök menntunar útgáfa af leiknum. Í þeirri útgáfu hefur Minecraft heimurinn verið sérstaklega hannaður með nám og kennslu að leiðarljósi.  Í myndbandinu hér að ofan má sjá stutta samantekt á því sem Minecraft menntunar útgáfan hefur upp á að bjóða (Minecraft: Education Edition, 2020).

Einn af augljósum kostum þess að nýta Minecraft sem námsefni er að nemendur fá tækifæri til þess að aðstoða hvern annan og deila þannig þekkingu sinni með samnemendum. Þetta tengist beint einu af hæfniviðmiðum aðalnámskrár fyrir nemendur í upplýsingatækni en þar segir að nemendur eigi að geta sýnt sjálfstæði í vinnubrögðum undir leiðsögn og í samvinnu með öðrum (Aðalnámskrá grunnskóla, 2013).

Athafnakostir leikjarinns bjóða upp á fjölþætta samþættingu þar sem Minecraft á erindi í fjölmargar námsgreinar og þannig má nota leikinn í margvíslegum viðfangsefnum innan skólans. Á þessari síðu munum við sýna dæmi um hvernig má nýta Minecraft við kennslu í stærðfræði á miðstigi grunnskóla.

Takmarkanir Minecraft
Einungis fimm einstaklingar geta spilað leikinn saman í spjaldtölvuútgáfunni (Birgir Rafn Friðriksson, 2016). Þetta getur verið heftandi ef kennari ætlar til dæmis að láta heilan bekk gera veröld saman en gæti þó líka talist kostur ef fimm einstaklinga fyrirkomulagið hentar betur aðstæðum.

Einn ókostur er að þegar leikurinn er notaður á samnýttum spjaldtölvum á opnu þráðlausu neti getur hver sem er farið inn í veröld og jafnvel eyðilagt fyrir öðrum (Birgir Rafn Friðriksson, 2016). Þarna er mikilvægt námstækifæri þar sem kennari þarf að vera búinn að setja skýrar reglur þar og nemendur læri að bera virðingu fyrir verkum hvers annars.

Freitas (2018) bendir svo réttilega á að leikjamiðað nám  með tölvuleikjum gerir m.a. kröfu um lengri kennslustundir og þverfaglegt samstarf til að fá sem mest út úr þessari námsaðferð en það getur oft verið erfitt að innleiða það í hið hefðbundna skólakerfi. Það þarf einnig að ríkja jafnvægi milli skemmtanagildi tölvuleikja og notkun þeirra til náms sem hægt er að meta með hæfniviðmiðum (Freitas, 2018, bls. 80), en að finna þetta jafnvægi getur verið krefjandi. Þetta á ekki síður við um notkun Minecraft í skólastarfi.

Annar ókostur liggur svo í tungumálinu okkar, en aðgengi að efni á íslensku er þó sífellt að aukast. Minecraft býður ekki upp á íslensku sem tungumál í öllum útgáfum sínum en þó er í boði að spila á íslensku í java-útgáfu leiksins (Mænkraft, 2019) en þýðingin mætti vera betri og þar liggur talsvert rými fyrir úrbætur.

Hæfniviðmið fyrir rúmfræðiverkefni
Verkefnið reynir á fyrri þekkingu nemenda í rúmfræði til þess að byggja sitt eigið húsnæði en í aðalnámskrá grunnskóla (2013) segir meðal annars að við lok 7. bekkjar geti nemendur leyst stærðfræðiþrautir um viðfangsefni sem gefa tækifæri til að beita innsæi, eigin túlkun og framsetningu, byggða á fyrri reynslu og þekkingu.

Nemendur eiga líka að geta rannsakað og gert tilraunir í rúmfræði með því að nota tölvur og hlutbundin gögn og tengt tölur og útreikninga við flatarmyndir og þrívíða hluti (Aðalnámskrá grunnskóla, 2013) og þetta verkefni fellur vel að því hæfnivimiði.

Einnig eiga þeir að geta rannsakað og greint tvívíð og þrívið form, teiknað einfaldar flatar- og þrívíddarmyndir, speglað, snúið og hliðrað flatarmyndum við rannsóknir á mynstrum sem þekja flötinn (Aðalnámskrá grunnskóla, 2013).

Heimildaskrá
Aðalnámskrá grunnskóla: Almennur hluti 2011: Greinasvið 2013 /2013.

Birgir Rafn Friðriksson. (2016, 22. september). Minecraft í kennslu Gunnlaugs. Snjallskóli. http://snjallskoli.is/2016/09/mincraftikennslu/

Freitas, S. d. (2018). Are Games Effective Learning Tools? A Review of Educational Games. Journal of Educational Technology & Society, 21(2), 74–84. doi:10.2307/26388380

Minecraft: Education Edition. (2020, 25. ágúst).

Welcome to Minecraft: Education Edition [myndband]. Youtube. https://www.youtube.com/watch?v=AZ7AcvbebKo

Mojang. (2009-2021). What is Minecraft?
https://www.minecraft.net/en-us/about-minecraft

Mænkraft. (2019, 6. mars). Að stilla Minecraft yfir á Íslensku | Minecraft á Íslensku [myndband]. Youtube. https://www.youtube.com/watch?v=PKWEw9VDOdw