Dýragarðurinn by 07Ní­na Rut Arnardóttir

Upplýsingar um bókina
Ólafur Haukur Símonarson er höfundur bókarinnar en Sögur er fyrirtækið sem gaf þessa bók út í Reykjavík árið 2017, blaðsíðufjöldinn er 125 síður.

Söguþráður
Þessi saga fjallar um Viggu, hún á lítinn bróður sem finnst gaman að  gera eitthvað nýtt og spennandi, þau fara í dýragarð sem þeim finnst flottur og ákveða þá að búa til dýragarð með öllum krökkunum í blokkinni, þau fá öll dýrin sem allir krakkarnir í blokkinni eiga og einnig geitina, hann Gutta sem slapp úr hinum dýragarðinum. En svo er það hann Gulli sem vill reisa spilahöll þar sem dýragarðurinn stendur og eyðileggja hann...

Aukapersónur
Óli er bróðir Viggu, hann er aðeins yngri en hún, rúmlega 9 ára, hann hefur gaman að því að bralla við ýmislegt, eins og að reisa dýragarð. Hann er oft glaður en getur tekið smá reiðisköst. Ari og Bjarni eru tvíburar, búa í sömu blokk og Óli og eru hans bestu vinir, þeir eru á sama aldri og Óli. Með skaplyndi og áhugamál eru þau mjög svipuð og Óla.

Aðalpersóna
Aðalpersóna bókarinnar heitir Vigdís, alltaf kölluð Vigga, hún er rúmlega 12 ára. Útliti hennar er ekki lýst í bókinni en hún æfir á fiðlu og finnst gaman að semja ljóð. Vigga á einn lítinn bróður Óla, systur Söru, mömmu Sigríði og pabba hann Tryggva. Hún verður aldrei reið en getur orðið pínu pirruð, sérstaklega á bróður sínum, öðrum finnst hún skemmtileg og klár.

Sögusvið
Þessi saga gerist aðallega í blokk í Reykjavík og í kringum hana, sögusviðið er mjög raunverulegt enda gæti þetta alveg hafa gerst. Þessi saga er skáldsaga.

Tími
Þessi saga gerðist á einu sumri árið 2017, það sést í byrjun bókarinnar.

Boðskapur
Boðskapurinn í þessari bók er sá að margar litlar hendur geta unnið stórt verk, þegar allir krakkarnir í blokkinni hjálpuðust að við að gera dýragarðinn. Einnig sá að meiri hlutinn ræður, þegar allir voru á móti því að Gulli myndi byggja spilahöll fyrir gamalmenni.

Mat á bókinni
Mér fannst þessi bók skemmtileg og áhugaverð, söguþráðurinn var ekki beint spennandi en hann var skemmtilegur og stundum fyndinn. Sögusviðið var ekki áhugavert því þetta gerðist á frekar venjulegum stað en sögupersónurnar voru áhugaverðar, sumar voru skrítnar, aðrar fyndnar og enn aðrar mjög óútreiknanlegar. Textinn var vel gerður og því skildi ég hann vel. Ef ég hefði verið höfundur bókarinnar hefði ég gert bókina aðeins lengri og aðeins meira spennandi en annars hefði ég ekki breytt miklu. Útlit bókarinnar eða bókakápan var flott og hún virðist skemmtileg að utan, leturstærðin er góð, ekki of stór eða of lítil en það eru engar myndir innan í bókinni sem mér finnst gott.