Umhverfisleikir by Svanhildur Bryngeirsdóttir

Krítalínan
Búin til lína og inn á hana er merkt: Mjög sammála, sammála, hlutlaus, ósammála og mjög ósammála. Síðan þarf að rökstyðja hvað maður valdi.
- Mér finnst Ísland vera hreint land.

- Íslendingar eru umhverfisvænir.

- Mér finnst mikilvægt að endurvinna rusl.

- Mér finnst í lagi að henda rusli á göturnar.

- Ég er umhverfisvæn/n.

- Mér finnst að við ættum að gera meira en við gerum nú þegar, til að koma í veg fyrir frekari hlýnun jarðar.

- Mér finnst í lagi að henda rusli á göturnar.

- Mér finnst að það ætti að banna stórverslunum að henda mat

- Mér finnst umhverfisstefna vinnuskóla Kópavogs góð.

- Mér finnst sjálfsagt að kaupa alltaf nýjasta nýtt.

- Ég gæti verið hamingjusöm/samur án rafmagns.

- Mér finnst í lagi að menn megi aðlagi umhverfi sitt að sínum eigin þörfum að vild.

- Ég er vakandi fyrir umhverfislegum áhrifum gjörða minna.

- Mér finnst mikilvægt að varðveita náttúrulegar auðlindir.

Tófur og hagamýs
Tilgangur leiksins: Að gera nemendur meðvitaðari um náttúruna og dýrin utan bæjarmarka, og hvað þau þurfa að gera til að komast af.

3 tófur, rest hagamýs. Svo er róterað nokkru sinnum. Mýsnum er raðað í hring í kringum einhvern hlut sem að tófurnar eiga að reyna að ná án þess að gera hinum viðvart. Mýsnar skulu vera með lokuð augun, ef að mús opnar augun bætist mínúta við tímann þeirra. Bilið á milli þeirra skal vera circa 4-5 skref og þær skulu vera svipað langt frá hlutinum.  Ef að mýsnar heyra í tófunum eiga þær að benda í átt að þeim. Það verður tímataka og sá hópur sem er fljótastur að ná hlutnum vinnur!

Gettu betur
Tilgangur leiksins: Að láta nemendur verða meira meðvitaða um umhverfi sitt og upplifa fjölbreytileika þess.

Hópnum er skipt upp í tvennt. Annar hópurinn fer og finnur einhvern hlut í náttúrunni, það má vera annaðhvort dýr eða planta. Hinn hópurinn á að reyna að finna út hver hluturinn er með spurningum. Síðan þegar sá hópur telur sig hafa nægilega miklar upplýsingar á hópurinn að reyna að finna hlutinn sem hinir völdu. Síðan er hópunum snúið við og sá hópur sem er fyrr að finna hlutinn sinn, sigrar.

Samspil í náttúrunni
Lýsing: Umhverfisvitund. Hver og einn þátttakandi er ígildi einhvers í náttúrunni. Gott er að velta fyrir sér fæðuvef og skipta hópnum niður á þætti vefsins. Þátttakendur standa í halarófu og mynda þéttan hring, svo þéttan að hver stendur fast upp við bak þess sem næst er á undan. Talið er upp að þremur og á sama tíma setjast allir í hringnum á hnén á næsta manni á eftir. Hringurinn verður alveg stöðugur ef allir setjast og enginn berst við að tylla sér bara. Þegar hringurinn er stöðugur eru allir sem eru t.d. „vatn“ beðnir um að fara úr hringnum. Þegar einn umhverfisþáttur er þannig slitinn úr samhengi, fjarlægður úr umhverfinu, fellur hringurinn – fæðuvefurinn hrynur.

Orðaforði og skynjun umhverfis
Lýsing:
- „Ég fer á veiðar og tek með mér“ … asparlauf.

- Ég fer á veiðar og tek með mér asparlauf og ánamaðk.

- Ég fer á veiðar og tek með mér asparlauf, ánamaðk og birki.

- Ég fer á veiðar og tek með mér asparlauf, ánamaðk, birki og drumb.

Nemendur standa í hring. Kennarinn byrjar og sá sem er honum til hægri handar þarf að endurtaka hvað hann tekur með á veiðar og bæta við einum hlut sem byrjar á næsta staf í stafrófinu og sem hann sér í umhverfinu í kringum sig. Það sem tekið er með á veiðar þarf að vera í umhverfinu í kring um leikinn. Þannig þylja nemendur stafrófið, koll af kolli, og taka eftir umhverfinu um leið. Sá sem man ekki allt færir sig fram fyrir þann sem var á undan honum og endurtekur hvað sá sagði.

Endurvinnslan
Gögn: Band
Svæði: Leiksvæði, tún, íþróttasalur eða annað autt svæði
Lýsing: Leikurinn hefst á því að einn leikmaður er „rusl“ og er auðkenndur á einhvern hátt t.d. með bandi eða borða. Hans hlutverk er að reyna að ná öðrum og gera þá að rusli og eins og nafnið gefur til kynna snýst leikurinn um að endurvinna ruslið. Það er gert með því að sá sem var náð á að leggjast á bakið og bíða eftir því að fara í endurvinnslu. Það gerist með því að fjórir leikmenn koma og bera ruslið í endurvinnslustöðina sem er afmarkaður reitur og það er alveg bannað ná þeim á meðan þeir gera það. Eins er bannað að klukka þá sem halda í ruslið og bíða þess að fleiri komi til aðstoðar.

Markmiðið er að endurvinnslan sigri ruslið.

Vefslóðir
Inná vef Landverndar má finna ýmsa leiki í verkfærakistu Grænfánaverkefnisins:
https://graenfaninn.landvernd.is/Verkefnakista

Inná vefsíðunni Skátamál má finna ýmsa leiki til að vinna með Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna um sjálfbæra þróun:
http://www.skatamal.is/wp-content/uploads/2018/10/Byggjum-_betri_heim_vefur.pdf

Rotvera - Planta - Dýr
Rotvera – Planta - Dýr

Rotvera (bakteríur og sveppir) – Planta – Dýr.

Dýrið vinnur plöntuna, plantan vinnur rotveruna, og rotveran vinnur dýrið *.

Búa þarf til hljóð og hreyfingar fyrir hverja lífveru. Tvö lið etja kappi. Hvort lið ákveður saman hvaða lífvera þau ætla að vera og koma svo inn að miðju. Síðan er talið upp á þrjá og þá allir sitt hljóð og sína hreyfingu. Liðið sem vinnur eltir hitt liðið. Þegar leikurinn er útskýrður er gott að ræða um hringrásir í náttúrunni og um hvernig náttúran endurvinnur efnin sín.

Verið velkomin á umhverfisleikjavefinn. Á þessum vef má finna safn af leikjum sem Vinnuskóli Kópavogs hefur notað í umhverfisfræðslu sinni ásamt leikjum sem nemendur Vinnuskólans hafa tekið saman og búið til.
Njótið! - Svanhildur Tekla Bryngeirsdóttir, umhverfisfulltrúi Vinnuskóla Kópavogs

Umhverfisvarúlfur
Byggt á leiknum Varúlfi nema heiti persóna breytt: http://leikjavefurinn.is/varulfur/

Markmið leiksins er að fá nemendur til umhugsunar um áhrif þeirrar neyslu á líf í hafi.

Um nokkurt skeið hafa fiskar í bænum Bikiníbotn þurft að glíma það vandamál að  plastflöskur fara á stjá á næturnar og drepa saklausa fiska. Nú þurfa fiskar að sameinast um að finna hverjir það eru sem breytast í plastflöskur áður en allir falla í valinn.

Allir nema sögumaðurinn fá sér sæti og verður það að vera þannig að allir sjá hvern annan vel. Sögumaðurinn úthlutar einu spili á mann og er alveg bannað að kíkja eða segja frá!

Sögumaðurinn hefur söguna: Nú fara allir bæjarbúar Bikiníbotns að sofa og þá loka allir augunum. Næst segir hann: Nú fara plastflöskur á stjá. Þá mega aðeins þeir sem fengu úthlutað plastflöskuspili að opna augun og sjá hver annan og velja með ábendingum í sameiningu hverja fiskana þeir ætla að drepa. Þegar sú ákvörðun hefur verið tekin segir sögumaður: Nú sofna plastflöskur. Stuttu seinna segir hann: Nú vakna fiskar allir… nema einn en það er hún _____ sem plastflöskurnar hafa náð um nóttina. Þá geta fiskarnir farið að ákæra þann sem þeir gruna helst, en þurfa þó stuðning við hverja ákæru.

Þegar ákærur hafa verið staðfestar hafa þeir sem ákærðir voru kost á að verja sig en eftir það kjósa fiskar með lýðræðislegri kosningu (rétta upp hönd) hvern þeir ætla að sakfella. Þá kemur í ljós hvort þeir náðu plastflösku eða saklausum fisk.

Ef þú ert fiskur er markmið þitt að komast að því hver er plastflaska og síðan að sannfæra hina fiskana að kjósa þá út. Einnig þarftu að passa þig að vera ekki kosinn út í misgripum fyrirplastflösku. Markmið þitt, ef þú ert plastflaska, er að að éta bæjarbúa á nóttunni og útrýma þeim einum á fætur öðrum þar til aðeins plastflöskur eru eftir. Á daginn reynirðu eftir fremsta megni að spila þig sem einn af fiskunum svo að þeir nái þér ekki.

Aðrar persónur:
Hafmeyja sem má kíkja eins oft og hún vill því hún getur ekki sofið af hræðslu við plastflöskurnar.

Sögumaður svarar með þumli upp eða þumall niður.

Ástarfiskur, sem fær að velja sér einn í byrjun leiks sem deyr með honum ef hann er drepinn (vonandi er það svo plastflaska!)

Sverðfiskur sem stingur einn þegar hann er drepinn og fær þannig að velja sér einhvern einn sem fer með honum (vonandi valdi hann vel!) Munurinn á sverðfiski og ástarfisk er að sverðfiskur fær að velja þann sem fer með honum þegar hann er drepinn, ekki í byrjun leiks eins og ástarfiskur.

Úrsúla. Úrsúla fær að þyrma einu lífi. Hún fær að vakna þegar plastflöskurnar eru búnar að fara á stjá og farnar aftur að sofa og sjá hver var drepinn. Ef hún vill bjarga honum setur hún þumalinn upp, ef ekki setur hún hann niður.

Náttúrustafrófið
Tveir eða þrír saman í hóp. Markmiðið er að finna einn hlut í náttúrunni sem byrjar á hverjum staf. Hægt er að nota sömu hlutina oft ef þið kunnið samheiti yfir þá.
(N Á T T U R A)

Hvað er mikilvægast?
Markmið: Komast að því í sameiningu og  með lýðræðislegri umræðu hvað okkur þykir mikilvægast.Hver nemandi velur tvær tölur (fær ekki að vita staðhæfinguna sem fylgir þegar hann velur tölu). Þarf svo að velja á milli þeirra setninga sem talan stendur fyrir, þ.e. hvort er mikilvægara. Staðhæfingin sem nemendi velur að sé mikilvægari heldur áfram en strikað er yfir hina töluna. Þá er gengið á röðina og næsti velur tvær tölur, má vera sama tala og mega vera tvær nýjar. Þetta gengur svo áfram þar til síðasti velur á milli tveggja staðhæfinga (síðustu tvær tölurnar) og þá er hópurinn í sameiningu búinn að velja mikilvægasta hlutinn.

Önnur leið er að búa til staðhæfingar og raða þeim svo í röð eftir mikilvægi og rökstyðja.

1.     Hafa hreint vatn                                                     26. Geta átt gæludýr

2.     Búa í sanngjörnu samfélagi                                      27. Hafa aðgang að listum/menningu

3.     Geta horft á skemmtilega þætti/afþreyingu                28. Búa í lýðræðislegu samfélagi

4.     Eiga heimili                                                           29. Fá sumarfrí á hverju ári

5.     Eiga maka                                                            30. Geta hlustað á tónlist/farið á tónleika

6.     Að fá að velja maka sinn sjálfur                                31. Allir eru bólusettir

7.     Vera heilbrigður                                                     32. Eiga bíl

8.     Eiga góðan síma                                                    33. Geta spilað tölvuleiki

9.     Komast á netið                                                      34. Eiga tölvu

10.   Eiga flott föt                                                         35. Tjáningarfrelsi

11.   Geta menntað sig                                                   36. Kunna að lesa

12.   Valið vinnuna sína sjálfur                                          37. Hafa hreint andrúmsloft

13.   Fá sanngjörn laun                                                   38. Geta fengið sér nammi og snakk

14.   Að það sé til óspillt náttúra                                       39. Eiga nóg af mat

15.   Hafa nóg vatn til að sturta niður og geta farið í sturtu    40. Geta farið til læknis

16.   Geta eignast börn                                                   41. Að það sé hlustað á skoðanir manns

17.   Að vernda allt lífríki (á landi og í sjó)                           42. Að vera fyndinn

18.   Geta fengið sér skyndibita                                         43. Að vera aldrei of kalt

19.   Hafa aðgang að öllum þeim vörum sem framleiddar eru   44. Að fá góðar einkunnir

20.   Eiga mikinn pening                                                   45. Borða kjöt

21.   Vera hamingjusamur                                                 46. Þurfa aldrei að vakna við vekjaraklukku

22.   Fá matarpásur í vinnunni sinni (/skóla?)                       47. Geta tekið strætó/almenningssamgöngur

23.   Spila íþróttir/hreyfa sig                                             48. Að fá meira en 100 læks á instagram

24.   Búa nálægt fjölskyldu                                               49. Að hafa gott sumar á Íslandi

25.   Geta ferðast til útlanda                                             50. Geta keypt sér stórt einbýlishús

- Leikur frá Vinnuskóla Reykjavíkur

Geimskipið
Markmið verkefnisins er að nemendur geti unnið saman í hópum, tekið lýðræðislegar ákvarðanir varðandi lokaniðurstöður hóps, borið virðingu fyrir sýn annarra og miðlað upplýsingum áfram.

Tilgangur verkefnisins er að fá nemendur til að vinna lausnarmiðað að verkefnum í hópum. Að þau geti nýtt ímyndunarafl sitt til að vinna saman og tekið þátt í umræðum af virðingu en jafnfram gagnrýnni hugsun.

Texti sem lesinn er:
Jarðarráðið hefur valið þig til að taka þátt í stærsta ævintýri sögunnar. 100 manns verða valdir til að kveðja Jörðina og ferðast til Kepler 186F, sú reikistjarna sem virðist líkust Jörðinni af þeim sem fundist hafa. Ferðin tekur 500 ljósár á ljóshraða óháð tíma og rúmi, þ.e. Fólkið í skipinu upplifir ferðina sem 500 ár. Sökum drifsins þarf ekki að hugsa út í stýrikerfið eða skipið sjálft. Skipið stoppar hvergi og ekki er hægt að breyta um stefnu.

Áður en lagt er í ferðalagið þarf að skoða eftirfarandi hluti:

Hvernig á að búa til fæðu?
Eru dýr? Plöntur? Hvar? Hvernig?
Hvernig á að sjá fyrir andrúmslofti? Hvernig er loftinu haldið hreinu?
Hvernig á að sjá fyrir vatnsþörf? Hvernig er vatninu haldið hreinu?
Hvað gera þessir 100 manns?
Hvernig eru híbýlin?
Hvað gerist ef upp kemur ágreiningur eða stríð?
Hvað verður um rusl og úrgang?
Hvaðan koma föt og húsgögn?
Hvað verður gert ef það verður of mikið af fólki í skipinu? Hvernig á að koma í veg fyrir slíkt?

Nemendum er skipt niður í hópa 3-4 saman, þar sem rætt er um lausnir og hugmyndir á þessum spurningum. Í lokin eru hugmyndir ræddar og bestu lausnirnar sameinaðar í eitt geimskip. Mikilvægt er að meirihluti nemenda sé sammála þeim lausnum sem valdar eru. Notast má við kosningakerfi þar sem kallaðar eru upp lausnirnar en aldrei í sömu röð þannig að nemendur gangi ekki út frá því að þeir séu að kjósa lausnir sérstakra einstaklinga.

Þegar hugmyndir um geimskipið eru komnar fram má tengja það við aðstæður á Jörðinni sjálfri. Hvernig er þetta ólíkt og hvað er líkt? Við erum að skoða lokuð kerfi - hringrásir efna (t.d. Vatns og kolefnis). Væri hægt að heimfæra niðurstöður okkar og lausnir fyrir geimskipið yfir á vandamál Jarðarinnar? Hvað getum við gert?

- Leikur fenginn frá Vinnuskóla Reykjavíkur.

Flokkum flöskur
í leiknum Flokkum flöskur eru tveir-þrír nemendur með hlutverk umhverfissóða og restin af hópnum eru umhverfissinnar. Tíu flöskur eru faldar á velli (gott að vera á stað þar sem hægt er að fela hluti, t.d. leikvelli, og er markmið umhverfissinna að finna flöskurnar og setja þær ofan í flokkunartunnu sem er staðsett við annan enda vallarins. Umhverfissóðarnir eiga hins vegar að reyna að ná umhverfissinnum og setja þá í fangelsi sem er við hinn enda vallarins. Umhverfissinnarnir reyna að frelsa hinum sem hefur verið náð en þurfa að passa að umhverfissóðarnir nái þeim ekki. Ef umhverfissinnar ná að setja allar flöskurnar í tunnuna vinna þeir. Ef umhverfissóðar ná öllum sinnunum sigra þeir.

- Leikur frá nemendum í Salaskóla

Umhverfisfeluleikur
Umhverfisfeluleikur virkar eins og hver annar feluleikur nema þegar maður er fundinn þarf maður að segja eina hugmynd um það hvernig maður geti verið umhverfisvænn. Hægt er að breyta leiknum að vild.

- Leikur frá nemendum í Salaskóla

Umhverfis-ALÍAS
Umhverfisalías er hægt að spila eins og venjulegt Alías nema í stað almennra orða eru orð sem tengjast umhverfisfræðslu- og málum notuð. Hægt er að velja sérstaklega hvaða orð skal hafa með sé markmiðið að kenna ákveðin orð.

Útisætaleikur
Leikurinn er útileikur. Í byrjun eru tíu sæti þar sem sjálfboðaliðar setjast afmörkuð með einhverjum hætti. Síðan er kallað upp hlut til að leita að; getur verið rusl, laufblað, trjágrein, steinn o.s.frv. Síðan hlaupa sjálfboðaliðarnir og reyna að finna hlutinn og setjast aftur í sætið sitt eins fljótt og þeir geta en í hvert sinn sem allir hlaupa af stað er tekið eitt sæti í burtu alveg þangað til einn stendur uppi sem sigurvegari. Leikurinn er skemmtilegastur ef hægt er að hafa tónlist í gangi.

- Leikur frá nemendum í Lindaskóla

Plokk-skotbolti
Plokk-skotbolti virkar eins venjulegur skotbolti nema til þess að lifna við verður maður að hlaupa í náumhverfi vallarins sem spilað er á og tína upp rusl. Þá er einnig hægt að keppa í liðum og láta magn þess rusl sem tínt er hafa áhrif á úrslitin.

- Leikur frá nemendum í Álfhólsskóla