Vettvangsheimsókn by Sonja Finnsdóttir

Ráðgjöf iðjuþjálfa fyrir sokkaífæru.
Við heimsóttum konu eins skjólstæðingsins og kenndum henni að nota sokkaífæru sem hún gæti notað til þess að aðstoða manninn sinn við að klæða sig í sokka. Ásamt því að koma að öðrum ráðum varðandi heilsufar og líðan og skoða íbúðina og hvort eitthvað mætti gera til þess að auðvelda þeim lífið og aðstöðu heima fyrir.

Sokkaífæra / Sokkaúrfæra
Sokkaífæra auðveldar fólki að fara í og úr sokkum án þess að þurfa að beygja sig. Þetta reynist þeim sem eldri eru mjög vel, þar sem mjaðmahreyfingar geta oft verið erfiðar fyrir fólk vegna mjaðmaðgerða eða til að mynda gigtar. (Deborah Júlía Robinson, munnleg heimild,  2.-5.10).

Eldri maður sem býr með syni sínum
Við fylgdum Debbie einnig til níræðs manns sem bjó einn með syni sínum. Hann hafði rosalega mikinn bjúg á fótum og átti því erfitt með gang og studdi sig oft við húsgögn og annað. Við heimsóttum hann í þeim tilgangi að mæla fæturnar hans fyrir teygjusokka.

Heimsókn til eiginmanns
Við heimsóttum mann sem var tilltölulega hraustur og var mjög duglegur að aðstoða konuna sína sem var farin að fá heimahjúkrun og gat lítið tekið þátt í heimilsstörfum. Tekin var staðan á andlegri líðan hans og hvort hann þyrfti hjálp varðandi heimsendingu á mat og þess háttar. Honum var gefinn bæklingur með hagnýtum upplýsingum fyrir eldri borgara.

Heilsueflandi heimsóknir
Heilsueflandi heimsóknir byggist á danskri hugmyndafræði. Eins og ég sagði áðan þá er þetta í raun fyrsta skrefið í þjónustu við aldraða.

Gengið út frá því að komið sé til móts við skjólstæðinga á jafningjagrundvelli. Markhópurinn var upphaflega 75 ára og upp úr. En í dag hefur aldurinn verið hækkaður upp í 80 ára og eldri, einfaldlega vegna þess að heilsa fólks er mun betri í dag en áður fyrr.

Ferlið virkar þannig að send eru bréf til allra þeirra sem hafa náð 80 ára aldri sem kynnir heilsueflandi heimsóknir. Eftir það fær fólk árlega send til sín þessi bréf. Eftir að fólki hefur borist bréfin fær það símtal frá Debbie eða Ósk og því boðið að fá til sín heimsókn. Almennt eru um 52% þeirra sem fá bréfið sem þyggja að fá heimsókn frá þeim. Þær sinna Akureyri, Grenivík, Svalbarðsströnd, Fnjóskadal, Eyjafjarðarsveit, Grímsey, Hrísey, Hörgárdal og Öxnadal.

Síðan hefjast heimsóknirnar. Þar fer fram spjall milli iðjuþjálfans og skjólstæðinga um athafnir daglegs lífs. Debbie vill fá að vita hvernig því gengur með eigin umsjá, tómstundir, störf og hversu góða heilsu það hefur. Hún gefur þeim upplýsingabækling um ýmsar tómstundir og þjónustu sem það gæti haft góð not fyrir. (Deborah Júlía Robinson, munnleg heimild,  2.-5. október 2018).

Deborah Robinson - Debbie
Iðjuþjálfinn sem við heimsóttum heitir Deborah Júlía Robinson, kölluð Debbie og kemur frá Suður-Afríku. Áður en hún hóf nám í iðjuþjálfunarfræði starfaði hún í ferðamálum og á heilsugæslunni á Akureyri. Árið 2001 hóf hún síðan nám í iðjuþjálfunarfræði við Háskólann á Akureyri og tók meistaranám með áherslu á endurhæfingu í kjölfarið af því. Eftir að hafa lokið námi vann hún í Hrafnagilsskóla með fjölfötluðum börnum.

Í dag vinnur hún sem iðjuþjálfi á vegum Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Hún vinnur við heilsueflandi heimsóknir og ráðgjöf iðjuþjálfa. Hún vinnur 50% starf við heilsueflandi heimsóknir á móti Ósk sem er sjúkraþjálfari. Hún vinnur í nánu samstarfi við hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða.
Í ráðgjöf iðjuþjálfa starfar hún nánast eingöngu með öldruðum en í stöku tilfellum vinnur hún með langveikum eða fjölfötluðum.

Hún hefur mikla ástríðu í sínu starfi og þykir vinnan bæði gefandi og skemmtileg. Hún leggur gríðarlegan metnað í sína vinnu og mælir eindregið með námi í iðjuþjálfunarfræði. Hún vill sjá starfstéttina stækka og öðlast meiri virðingu. (Deborah Júlía Robinson, munnleg heimild,  2.-5. október 2018).

Upplifun í starfi ásamt framtíðarsýn
Samkvæmt Debbie þá er starf hennar mjög gefandi og innihaldsríkt. Sérstaklega sá þáttur að geta í mörgum tilfellum fyrirbyggt einangrun og erfiðleika fólks á efri árum. Hún segir þetta forvarnarstarf vera mjög mikilvægt í nútíma samfélagi.

Hún lagið mikla áherslu á mikilvægi þess að hafa gott bakland og stuðning frá fjölskyldu og aðstandendum. Efri árin geta reynst þeim mjög erfið sem eiga engan að.

Iðjuþjálfunarstarfið virðist vera víkka og breikka og gaman verður að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Auðvitað er margt sem mætti betur fara eins og álit annarra á starfinu og mikilvægi þess að rýma fyrir iðjuþjálfum innan heilsugæslustöðvarinnar. (Deborah Júlía Robinson, munnleg heimild,  2.-5. október 2018).

Samstarf heilbrigðisstarfsmanna
Í Skarðshlíð 20 er sameiginlegt skrifstofurými fyrir starfsfólk HSN sem vinna að mismunandi þjónustu fyrir aldraða. Þar er að finna teymi heilsueflandi heimsókna, 4 teymi heimahjúkrunar og einn starfsmann sem sér um færni og heilsufarsmat.

Starfsmennirnir mynda þétt net sem þjónustar aldraða, þeir funda reglulega og hjálpast að við að þróa starfið. Þrátt fyrir að sinna mismunandi störfum er það mjög hjálplegt fyrir öll teymin að geta unnið í samvinnu við hvort annað þar sem þau vinna mikið með sömu skjólstæðingana. (Deborah Júlía Robinson, munnleg heimild,  2.-5. október 2018).

Hjálpartæki
Það er hluti af starfi Debbie að skoða aðstæður hjá fólki og athuga hvort það hafi þörf fyrir hjálpartæki. Hún sér svo um að panta þau fyrir það. Dæmi um hjálpartæki eru baðbretti, baðstólar, lyftur, sjúkrarúm, sokkaífærur, öryggishnappar og svo framvegis.

Það er mismunandi hvernig hjálpartæki henta hverjum og einum. Sumir gætu haft einhverjar séróskir varðandi lit og annað. Reynt er að komast til móts við alla. (Deborah Júlía Robinson, munnleg heimild,  2.-5. október 2018).

Samskipti iðjuþjálfa og skjólstæðinga
Það er eitt af meginhugmyndum iðjuþjálfunar að bjóða upp á skjólstæðings- og fjölskyldumiðaða nálgun við skjólstæðinga. Með þeirri aðferð er hægt að efla iðju einstaklinga í fullu samráði við þá. Með skjólstæðingsmiðuðum vinnubrögðum fer fram virðing á milli fagaðila og skjólstæðings, deiling á valdi og opin samskipti þeirra á milli.  Hlutverk iðjuþjálfans er að veita gagnlegar upplýsingar sem skjólstæðingurinn getur nýtt sér til að leysa vandamál ef einhver kynnu að vera. (Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson, 2011, bls. 106-107).

Þetta sýnir sig vel í starfi Debbie þar sem hún heimsækir aldraða skjólstæðinga á jafningjagrundvelli og spjallar við þá til þess að kynnast þeim og þeirra lifnaðarháttum. Hún fær innsýn inn í líf þeirra ásamt því að veita þeim gagnlegar upplýsingar. (Deborah Júlía Robinson, munnleg heimild,  2.-5. október 2018).

Að búa í eigin húsnæði
Tilgangur heilsueflandi heimsókna er að vera fyrirbyggjandi aðstoð og upplýsingagjöf fyrir aldraða svo þeir geti búið sem lengst í eigin húsnæði. Þetta er í raun fyrsta skrefið í þjónustu aldraðra, þar sem reynt er að bæta aðstæður og koma með tillögur að gagnlegum úrræðum áður en brýn nauðsyn er á að gera einhverjar breytingar á lifnaðarháttum fólks. (Deborah Júlía Robinson, munnleg heimild,  2.-5. október 2018).

Iðjuþjálfun aldraðra í heimahúsum fer vaxandi og mun eiga til með að vera mun meiri í framtíðinni. Það hefur sýnt sig að það auki lífsægði aldraðra að búa í eigin húsnæði. Því er mjög gagnlegt að iðjuþjálfar aðstoði aldraða við að efla færni og styðja við sjálfstæði og sjálfsbjargargetu þeirra svo það þurfi ekki að fara strax inn á stofnun. (Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson, 2011, bls. 194).

Upplifun aldraðra á heilsu
Í kjölfar aldurstengdra breytinga á líkamsstarfsemi krefjast dagleg viðfangsefni meiri tíma og orku. Ef við getum ekki aðlagað umhverfið í takt við dvínandi færni er hætt við að bilið milli aldraðra og umhverfis breykki og samsvörunin verði ekki söm og áður (Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson, 2011, bls. 64).

Aldurstengdar breytingar eru eðlilegar en hafa mismikil áhrif á einstaklinginn, líkamlega, andlega og félagslega. Það hægir á hugsun, sjónin breytist og heyrnin sljóvgast. Það hægir á hreyfingu og dregur úr snerpu. Verkin taka lengri tíma en áður vegna breytinga á líkamsbyggingu og líkamsstarfsemi. Aldraðir eigi því oft erfitt með athafnir daglegs lífs (ADL) eins og að baða sig, komast í og úr stól og rúmi og fara um. Stór hluti starfs iðjuþjálfa er að meta og styðja við færni aldraða með því að breyta verklagi, aðlaga umhverfi og þjálfa aldraða í sjálfstæði.

Kvíði og depurð geta oft einkennt efri árin, þess vegna er brýnt að eiga einhvern að, svo sem fjölskyldu eða ættingja. Slíkt stuðningsnet getur skipt sköpum. Tómstundir og félagsstarf getur komið sterkt inn og stuðlað að aukinni hamingju og virkni innan samfélagsins.(Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson, 2011, bls. 194-202).

Einstaklingur með sykursýki
Við heimsóttum einstakling sem bjó einn og er greindur með sykursýki. Hann á í erfiðleikum með að stjórna sykursýkinni sjálfur og fær reglulega heimahjúkrun. Við heimsóttum hann í þeim tilgangi að mæla út hvernig sjúkrarúm hann þyrfti á að halda. Hvað myndi henta honum best og myndi auðvelda honum og þeim sem vinna við heimahjúkrun að athafna sig.

Hún mældi út herbergið hans til þess að sjá hvaða rúm myndi passa inn. Vanalega lætur hún skjólstæðingana sjálfa um að velja hvernig rúm þeir vilja en í sumum tilfellum eins og þessu leyfa þeir henni að ráða hvernig rúm þeir fá.

Heimsókn til hjóna
Við fengum að fylgja Debbie í heimsókn til manns sem hún hafði heimsótt fyrir ári síðan. Hann virtist mjög hraustur en sagði frá því að hann hefði nýlega greinst með krabbamein og væri að gangast undir meðferð. Konan hans var illa haldin af gigt en hafði þrátt fyrir það mjög jákvættt viðhorf gangvart aðstæðunum. Þau höfðu ýmsar spurningar, meðal annars um aðgengi að augnlækni á Akureyri og niðurgreiðslu á fótsnyrtingu varðandi líkþorn. (Deborah Júlía Robinson, munnleg heimild,  2.-5. október 2018).

Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson. (2011). Skjólstæðingsmiðað starf með einstaklingum og fjölskyldum. Í Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson (Ritsjtórar), Iðja, heilsa og velferð: Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi. (bls. 106-107). Akureyri: Háskólinn á Akureyri.

Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir og Eygló Daníelsdóttir. (2011). Iðjuþjálfun Aldraðra. Í Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson (Ritsjtórar), Iðja, heilsa og velferð: Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi. (bls. 194-202). Akureyri: Háskólinn á Akureyri.

Sigríður K. Gísladóttir og Þóra Leósdóttir. (2011) Hlutverk og Starfsvettvangur. Í Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson (Ritsjtórar), Iðja, heilsa og velferð: Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi. (bls. 64). Akureyri: Háskólinn á Akureyri.

Using a sock aid. (2012, 18. október) [Myndskeið] Sótt af https://www.youtube.com/watch?v=RUxldCxHJAU

Viðhorf okkar til starfsins.
Debbie veitti okkur innsýn inn í hugmyndafræði iðjuþjálfunar og starf iðjuþjálfans. Hennar sjónarmið og jákvæðni sýndi okkur hversu gefandi og persónulegt starfið sé. Það var mjög skemmtilegt að fá að fylgja henni í starfi þar sem hún hefur rosalega mikinn drifkraft og hefur mikla ánægju af starfi sínu.