V1 - Íris, Kolla, Magnús og Ögn by Kolbrún Jónsdóttir

Það er draumur að vera með dáta
Lag - texti: Brink - Bjarni Guðmundsson

Það mest fyrir augun í bæ þessum ber

að bærinn er fullur af útlendum her.

Þeir sposséra og stálda um stræti og torg

og stúlkurnar dufla við þá inn á Borg.

Og spyrji ég stúlku "Hve sé hún svo sæl?"

Þá svarar hún manni um hæl.

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

Og finna hve ljúft þeir láta,

þá líður stundin fljótt.

Og lífið það verður svo létt.

Þegar leiðumst við dálítið þétt.

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

Í Kvennó er yndislegt ungmeyjarskart.

Og ótalmörg hjörtu sem fengu þar start.

En nú er þeim bannað að notast við það,

sem náttúran gaf þeim og kom þeim af stað.

Þótt þær megi hermenn ei heyra né sjá,

samt hvíslar hún Ingibjörg H.

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

Og finna hve ljúft þeir láta,

þá líður stundin fljótt.

Og þá verður hugurinn hlýr.

Þegar hvísla þeir, "Darling oh dear."

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

Á æskulíðsfundi var æsingin nóg.

Nú átti að sýna hvað í þjóðinni bjó.

Þeir héldu þar ræður um ættjarðarást.

Og bannfærðu þær sem með bretunum sjást.

Já áhuginn hann var hjá strákunum stór,

en stelpurnar rauluðu í kór.

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

Og finna hve ljúft þeir láta,

þá líður stundin fljótt.

Að kela og kyssast alein.

Og hvísla svo "Do it again".

Það er draumur að vera með dáta

og dansa fram á nótt.

Braggablús
Lag - texti: Magnús Eiríksson

Ein í bragga, Magga, gægist út um gluggann,

bráðum sér hún Skuggabaldur skunda hjá.

Enn einn túrinn, stúrinn, olíu á skúrinn

er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá.

Í vetur, betur gekk henni að galdra

til sín glaða og kalda karla sem oft gáfu aur.

En Magga í sagga, situr ein í bragga

á ekki fyrir olíu er alveg staur.

Fyrst kom bretinn, rjóður, yndislega góður

þá bjó hún Magga á Borginni í bleikum kjól.

Svo kom kaninn, þaninn, kommúnistabaninn

þá kættist Magga ofsarlega og hélt sín jól.

Svo færðist aldur yfir eins og galdur

og ávallt verra og verra var í karl að ná.

Nú er Magga stúrin því olíu á skúrinn

er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá.

Ein í bragga Magga, gægist út um gluggann

bráðum sér hún Skugga Baldur skunda hjá.

Enn einn túrinn, stúrin, olíu á skúrinn

er erfitt nema fyrir fjandans aur að fá.

Í vetur betur gekk henni að galdra

til sín glaða og kalda karla sem oft gáfu aur.

En Magga í sagga situr ein í bragga

á ekki fyrir olíu er alveg staur.

Selja litla
Jón Jónsson frá Hvanná / Guðmundur Ingi Kristjánsson

Selja litla fæddist fyrir vestan,

frjáls og hraust í túni lék hún sér,

hlaut, við nám og erfðir, allra bestan

yndisleik, sem telpum gefinn er.

Svo varð hugur hennar stór og dreyminn,

hjartað sló í vængjaléttri þrá

til að fljúga eitthvað út í heiminn

ævintýraborgirnar að sjá.

Þreyjulaus er þráin eins og bára.

Þungabrim er léttur súgur fyrst.

Því fór Selja litla, sextán ára,

suðurleið í höfuðborgarvist.

Þar var margt um lífsins leik og kæti,

léttur hlátur glaðrar stúlku beið.

Það var eins og þessi kviku stræti,

þrungin lífi, gerðu henni seið.

Næsta sumar var um margt að velja.

Vesturförin yst á haka sat.

Knæpa réði Selju til að selja

setuliði drykk og léttingsmat.

Þar er hún með brosið bjarta og hýra,

borðið þekur drykk og vistum enn

fyrir hermenn ásta og ævintýra,

ameríska gesti. - Seljumenn.

Spegill samfélagsins
Íslenskir dægurlagatextar hafa í gegnum árin verið mikilvægur hluti af íslenskri menningu og hafa oft á tíðum endurspeglað samfélagið sem þeir voru samdir í. Þó dægurlagatextar falli oft í skuggann af öðrum skáldskap má ekki gleyma því að oft hafa ljóð margra þjóðþekktra skálda einmitt orðið þekkt vegna þess að þau voru sungin við dægurlagatónlist, og oft hafa þekktustu lagatextarnir verið beintengdir við þjóðfélagsátök og breytingar sem hafa verið ofarlega á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Þegar við hugsum um sögulega atburði á 20. öldinni er erfitt að finna eitthvað sem hefur haft jafn róttækar breytingar á íslenskt samfélag og hernámið árið 1940.

Breskir og bandarískir hermenn fluttu með sér nýja og spennandi tónlist og menningu, en margir Íslendingar, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni, börðust hart gegn þessum nýju áhrifum og áherslum.

Hér fyrir neðan má sjá nokkra vel þekkta texta sem samdir voru á þessum tíma.
Efniviður þeirra eru hernámið, ástandið og viðbrögð samfélagsins við því. Togstreitan milli sveitar og borgar sem skapaðist við aukna fólksflutninga “á mölina” kemur augljóslega fram eins og sjá má mörgum þeirra.

Heimildir:
https://skemman.is/bitstream/1946/29503/1/Spegillsamfelagsins_skemman.pdf
https://skemman.is/bitstream/1946/10514/3/BA%20ritger%C3%B0%20%C3%AD%20prentun.pdf
“https://skemman.is/bitstream/1946/3887/1/skil_fixed.pdf

Gunna var í sinni sveit
Bjarni Guðmundsson / Haraldur Á Sigurðsson

Gunna var í sinni sveit
saklaus prúð og undirleit,
hláturmild, en helst til feit,
en hvað er að fást um það.

Svo eitt haust kom mærin með
mjólkurbíl um leið og féð,
henni var það hálft um geð,
en hvað er að fást um það.

Svo leigði hún sér kvistherbergi
upp við Óðinstorg
og úti fyrir blasti við
hin syndumspillta borg.

Engum bauð hún upp til sín
og aldrei hafði hún bragðað vín,
horfði bara á heimsins grín,
en hvað er að fást um það.

Lóa litla á Brú
B.Carroll / R.Moody / Jón Sigurðsson

Lóa litla á Brú hún var laglegt fljóð,
svo ung og glöð og æskurjóð,
vildi fá sér vænan mann
og vera alltaf svo blíð og góð við hann.

Og eitt sumarkvöld ók Sveinn í hlað
á litlum bíl og Lóu bað
að aka með sér upp í sveit.
Þá varð hún feimin og rjóð og undirleit.

Og síðan saga þeirra varð sögu margra lík.
Þau áttu börn og buru og þau búa í Reykjavík.
Hann vinnur eins og hestur og hún hefur sjaldan frí,
því Lóa þarf að fá sér fötin ný.

Lóa litla á Brú hún er lagleg enn
og hýr á brá og heillar menn,
ergir oft sinn eiginmann,
því hún er alltaf svo blíð við aðra en hann.