Leiðsagnarnám by Helga Ósk Snædal Þórormsdóttir

Teymi 1 bekkjar
Spurning 1:

Traust er mikilvægur grunnur í samvinnu og samstarfi þannig að það ríki traust innan nemendahópsins og á milli kennara og nemenda. Góð samvinna hvetur til góðs starfsanda innan starfsmannahóps og sama á við um nemendahópa. Að draga úr samkeppni er mikilvægt svo hæfileikar allra nýtist sem best og hinir njóta góðs af. Nemendur græða líka á því, minnkar streitu til dæmis. Æskilegt er að hafa vaxandi hugarfar sem kennari og nemenda upp á sjálfsmyndina að gera til dæmis. Minnkar hræðslu við að gera mistök - mistök eru til þess að læra af þeim :) Eykur þrautseigju og úthald.

Á síðasta skólaári var umræðan um þessa þætti haldin á lofti, sýndar voru teiknimyndir um vaxandi hugarfar til dæmis. Umræðunni var haldið á lofti í kennslustundum. Agastefnan jákvæður agi styður vel við það að byggja upp traust og auka samvinnu. Hér var unnið með verkfæri jákvæðs aga sem styður við alla þessa þætti.

Spurning 2:

Það sem drífur nemendur oft áfram er áhuginn og því er mikilvægt að höfða til áhuga nemenda í námi. Það styður við þrautseigju og seiglu en nemendur eru líklegri til að halda áram ef áhuginn er til staðar og þeir sjá tilgang með námsefninu. Mikilvægt er að fá nemendur til að líta á mistök sem eðlilegan þátt í lærdómsferlinu. Í gegnum það að gera mistök þjálfast svo seiglan og þrautseigjan - þegar þau þora að gera mistök :)

Spurning 3:

Nemendur þurfa að vita af og finna fyrir því að það er tilgangur með námsefninu. Því er mikilvægt að kennarar hugi að því í skipulagningu að það er alltaf tilgangur með því námsefni sem unnið er með. Nemendum þarf að vera sagt hvað er verið að þjálfa hverju sinni. Unnið var með þennan þátt með umræðunni um markmið og tilgangi námsins haldið á lofti.

Spurning 4:

Mikilvægt er að hrósa fyrir vinnuna sem er unnin og framlag í kennslustundum frekar en lokaútkomuna. "It's the journey, not the destination". Hrósin hvetja til seiglu og þrautseigju sem eru þættir sem við erum alltaf að vinna með. Hrósin hvetja einnig til jákvæðs andrúmslofts í kennslunni.

Dæmi: Hrósa fyrir vinnusemina frekar en hraða vinnunar. Hrósin geta verið notuð til þess að beina athyglinni að því jákvæða sem gerist frekar en að einblína á það sem miður fer.

Spurning 5:

Á hverjum degi í kennarastarfinu erum við að ígrunda starfið, skoða hvað fór vel og hvað mætti betur fara. Fókus var á nýjar leiðir, til dæmis námsfélaga og engar hendur upp.

Spurning 6:

Það að nemendur meti sig í eigin námi kemur meira fram þegar lengra er kominn inn í námið. Í 1. bekk er verið að gera nemendur meðvitaða um að meta sjálfa sig og kenna þeim að meta eigin vinnu. Það þarf að koma inn þessari hugsun fyrst og fremst. Það að meta eigið nám er mikilvægt upp á áhugahvöt og metnað fyrir eigin frammistöðu.

Teymi 2-3. bekkjar
Spurning 1: Til að efla nemendur og gera þá ábyrga á eigin námi. Í fyrra var leitast við að efla sjálfstæði og vaxandi  hugarfar nemenda með því t.d. að lesa sjálfir leiðbeiningar og finna út hvað þau eiga að gera. Nemendur vinna á sínum hraða eftir sínum áætlunum.

Spurning 2: Mistök eru gott verkfæri til lærdóms. Gott er að nýta styrkleika allra, t.d. með því að hafa námsfélaga. Leitast er við að efla þrautseigju og vinnusemi nemenda og nota hrós sem hvatningu. Þetta er gert til að auka áhuga og líðan.

Spurning 3: Að hafa námsmarkmið sýnileg fyrir nemendur svo að þeir sjái tilgang með verkefnum sínum og námi og í kjölfar niðurstöður. Mikilvægt er að halda umræðunni á lofti.

Spurning 4: Okkar upplifun er sú að hrós eykur seiglu og þrautseigju. Hrós eykur ánægju nemenda við að sjá útkomu verkefna sinna og hósað er fyrir vinnusemina og hvernig nemendi vann verkefnið sitt en ekki hvað er klárað. Það er fallegt að sjá nemendur leiðbeina bekkjarfélögum sínum.

Spurning 5: Leiðsagnarnámið var ekki sett upp í formi þróunarhringinn síðasta vetur.

Spurning 6: Ekki var unnið markvisst með námshirnginn síðasta vetur.

Teymi 4-5, bekkjar
Spurning 1: Þessir þættir eru mikilvægir vegna þess að þá geta allir náð framförum og samhliða því eykst trú á eigin getu. Við vinnum með þessa þætti með því að blanda í hópa og skipta um reglulega um námsfélaga. Námsefni er aðlagað að hverjum og einum svo allir fái áskoranir við hæfi. Við spyrjum opinna spurninga til að vekja forvitni.

Spurning 2: Mistök eru hluti af vegferðinni að einhverri vörðu. Vegferðin sjálf er námið og það sem skiptir öllu máli. Hvað við getum lært af því ferli, öllum tilraunum og mistökum er mikilvægt og að þau sjái að niðurstaðan getur breyst í því ferli sem er skemmtilegt. Þrautseigju og seiglu sinnum við með hvetjandi umræðu, hafa hrósið vel skilgreint. Með því að leyfa þeim að hafa áhrif eða upplifa að þau hafi áhrif með val um leið til að skila verkefnum getum við styrkt innri áhugahvöt.

Spurning 3: Til að átta sig á því af hverju þú ert að læra hlutina.

Spurning 4: Hrós þurfa að vera vel afmörkuð og markviss. Ljóst þarf að vera hverju er verið að hrósa fyrir. Byggir upp sjálfstraust - leið til að tengjast nemendum okkar.

Spurning 5:

Við þekkjum ekki til þróunarhringsins.

Spurning 6:

Við nýttum námshring ekki síðasta vetur, höfum ekki næga þekkingu á honum. Þessi hringur gæti þó nýst nemendum til að átta sig á stöðu sinni og e.t.v. skilning á tilfinningum ef illa gengur á sama tíma og hann gæti hjálpað þeim sem vel gengur hjá að sjái að þau geti gert meira kröfur til sín.

Teymi 6-7. bekkjar
Spurning 1: Þeir eru mikilvægir því þeir ýta undir vellíðan starfsfólks og nemenda. Með vellíðan er mun léttara að vaxa og þroskast í starfi.

Dæmi um þessa þætti á síðasta ári er til dæmis orðræða við nemendur, að nota hvetjandi orð "Þú getur gert erfiða hluti" og fleira í þeim dúr. Mikilvægt er að hlusta á nemendur og koma til móts við þá þar sem þeir eru staddir, eiga uppbyggileg samtöl og hafa verkefni við hæfi svo að nemendur finni hvernig þeir vaxa og eflast.

Spurning 2:

Þessir þættir stuðla að auknum árangri nemenda og áhuga þeirra á náminu, með auknum áhuga og árangri eflist bekkjarandinn líka og námsmenningin verður betri.

Spurning 3:

Spurning 4:

Hrós þurfa að vera lýsandi, segja hvað það er sem var vel gert og ýta undir að það verði aftur gert. Það er ekki nóg að segja "Vel gert" eða "Vá hvað þú varst fljótur". Við viljum hrósa nemendum fyrir góða eiginleika, framfarir og vinnuframlag.

Spurning 5:

Var farið í þróunarhringinn á síðasta ári?

Spurning 6:

Við höfum ekki kynnt okkur þetta eða notað markvisst.

Teymi 8-10. bekkjar
Spurning 1: Við erum að vinna að því að skapa sjálfstæða einstaklinga sem eru samkeppnishæfir í samfélaginu. Við gefum nemendum t.d. ekki einkunn fyrir verkefni í kennslustundum heldur í gegnum internetið (Classroom eðað Mentor) og gefum fólki svigrúm til þess að ræða sín mál á sínum forsendum. Við erum alltaf í hvatningu, einstaklingssamtölum og byggjum markvisst upp sjálfsöryggi með því að gefa gott svigrúm til mistaka.

Spurning 2: Við nýtum mistök í námi sem námstækifæri. Við erum að fara yfir verkefni og gefum tillögur til baka sem nemendur fá tækifæri til þess að fara yfir og skila aftur. Við stígum fast til jarðar þegar kemur að því að halda t.d. skiladögum en ef nemendur vilja vekja athygli á sínu máli vegna þess að þeir ná ekki að halda því plani þá erum við alltaf til í samtal.

Spurning 3: Hvers vegna gefur okkur tækifæri að leyfa nemendum að skilja tilgang, dýpka þekkingu sína og

Spurning 4: Hrós er gott til þess að tengjast nemendum, til þess að byggja sjálfstraust þeirra upp og hefur mótandi áhrif á námsgetu þeirra undir.

Spurning 5: Þróunarhringurinn var ekki nýttur til daglegra starfa í unglingateyminu.

Spurning 6: Við höfum ekki notað þetta markvisst eins og kenningin segir með hlutlægum hring.

ÍSAT teymi
Spurning 1: Með því að ýta undir þessa þætti erum við að stuðla að því að hver einstaklingur fái allt það sem hægt er út úr náminu. Öll okkar kennsla miðast við getu hvers og eins og hver nemandi fer í gegnum námið á sínum hraða og forsendum - t.d. nemendur raðast á stig eftir getu í ísat og hafa svigrúm til að klára þessi stig á 2-4 árum. Traust er einn mikilvægasti þáttur í ísat kennslu, þau byrja ekki að læra hjá okkur fyrr en þau fara að treysta okkur.

Spurning 2: Þessir þættir eru mikilvægir til að hver og einn einstaklingur nái að fóta sig sem best í samfélaginu. Alls staðar eru tækifæri til að læra og áhugahvötin skiptir þar miklu máli. Okkar kennsla fer mikið fram í gegnum spjall þar sem fyrri reynsla og áhugahvöt skiptir miklu máli.

Spurning 3: Til að sjá tilganginn og nytsemina í því sem þú ert að læra.

Spurning 4: Svo að nemendur viti fyrir hvað kennarar eru að hrósa þeim. Líka svo að kennarinn sjái nemandann sem einstakling og viti hvernig er best að hvetja nemandann áfram í að þróa sitt vaxandi hugarfar. Nota t.d. nafn nemandans í hrósinu, hrósið sé hnitmiðað og nemandinn skilji hvað verið er að hrósa honum fyrir.

Spurning 5: Leiðsagnarnámið var ekki sett upp í formi þróunarhrings síðasta vetur.

Spurning 6: Námshringur var ekki notaður síðasta vetur en áhugavert að skoða hann betur og nýta í kennslu.

Íþróttateymi
Spurning 1: Þeir eru mikilvægir til að þróa okkur áfram því annars stæðum við í stað. Við höfum unnið markvisst að því að allir geti unnið með hverjum sem er.

Við höfum farið með þau í samvinnuleiki og leiki þar sem þau þurfa að tala og vinna saman að sameiginlegu markmiði og með því erum við að reyna að minnka samkeppnina.

Spurning 2: Þessir þættir eru mikilvægir því allir gera mistök og þau eru til að læra af. Þegar nemandi gerir mistök þá getum við sýnt honum að það er ekki lausn að hætta bara heldur að læra af þeim til að geta bætt sig og haldið áfram. Einnig getum við fengið þau til að bæta sig með því að spyrja þau hvort að það sé eitthvað sem þau geti gert til að bæta sig og fá þau til að vilja að bæta sig með því að æfa sig.

Spurning 3: Eins og í sundi þá er markmiðið að þau læri að synda bringusund, skriðsund og baksund og læri að nýta sundlaugina sem líkamsrækt og afþreyingu. Þess vegna eru þau að synda þessar sundaðferðir og njóta þess að vera með vinum sínum í sundi. Samt fáum við alltaf spurninguna hvers vegna þurfum við að mæta í sund.

Það þarf að koma nemendum í skilning að öll hreyfing er góð hvort sem hún er í sundlaug eða utan sundlaugarinnar og til þess að geta nýtt sundlaugar til líkamsræktar þá þurfa þau að læra sundaðferðirnar.

Spurning 4: Hrós er mikilvægur partur af þróun nemenda í að bæta sig en það þarf að vera markvisst og á réttum tíma því það gerir mikið fyrir nemendur að fá hrós og þá fá þau vilja til að bæta sig.

Það þarf samt að passa sig hrósa öllum þannig að það passi við getu þeirra í því verkefni sem þau eru að leysa.

Sem dæmi nemendur í fótbolta þá myndum við hrósa þeim sem eru góðir í fótbolta þegar þau vinna að því að hjálpa öðrum að bæta sig og verða betri en þeir sem eru ekki góðir í fótbolta fá hrós við að gera góða sendingu eða gott skot.

Spurning 5: Þekkjum ekki til Þróunarhringsins.

Spurning 6: Höfum ekki kynnt okkur námshringina nógu vel til að geta skrifað eitthvað um þá.

List og verkgreina teymi
Spurning 1: Það er mikilvægt að kenna vaxandi hugarfari þannig að nemendur geti flakkað um námsupplifun þar sem ferli er jafn mikilvægt og vara. Það er mikilvægt að fá þá til að hugsa um nám sitt, taka eignarhald á því og upplifa það á mismunandi hátt.Þau vinna saman og sin eigin markmið. Til dæmis í heimilisfræði þau vinna saman mikil og hjálpað að.

Spurning 2: Þú gera læra mikið frá mistök og ekki vera hrætt að mistök. Hvert verkefni er ferðalag og er upplifun af seiglu og . Til dæmis var það áskorun fyrir suma nemendur að útskera  prentblokk en um leið og þeir prenduðu fyrstu prentun sína fannst þeim vel heppnast. Þau fá að velja myndefni sitt og hvernig þau munu skapa verk sín. Markmið okkar er að styrkja  þá í eigin áhugahvöt og sköpunargáfu.

Spurning 3:

Spurning 4: Það er mikilvægt að fá ekta hrós og endurgjöf um það sem þau hafa áorkað vel. Þessi hrós hafa bein áhrif á shálfsvirði þeirra og sjálfstraust. í myndlist fögnum við sigrum vel unnið verkefnis, sérstaklega þegar það tók smá tíma að komast þangað. Leirverkefni hrynja stundum og þarf að byrja aftur. Að sjá í gegnum áskorun og fá siðan hrós fyrir eitthvað vel gert leiðir til þess að nemendur byggja upp sjálfstraust sitt.

Spurning 5:

Spurning 6: