Lokaverkefni - Hrollvekjur V25 by MTR

Sigríður Kristín

Skarphéðinn Þór Torfason og Víkingur Ólfjörð Daníelsson
,,Hlýr Kuldi’’

Ferlið.

Þegar við fengum það verkefni að gera einhvers konar lokaverkefni sem tengist íslenskum hrollvekjum kom margt í hugann. Aragrúi er til af íslenskum hrollvekjum en þó aðallega eru það íslenskar þjóðsögur um álfa, tröll og drauga. Við ákváðum strax að taka eitthvað sem er nýlegt sem á betur við okkar nútíð. Við ákváðum þá að notast við kvikmyndina Kulda sem er frá árinu 2023. Þegar það var ákveðið fórum við að huga að framsetningu, við höfum báðir gert slík lokaverkefni og vildum við báðir gera eitthvað sem hvorugur okkar hafði gert því að okkar mati er það að mála mynd vinsælast og ekki nógu krefjandi. Eftir mikla ígrundun var ákveðið að við vildum gera peysu sem auglýsir myndina. Þar með er þetta verk bæði fallegt og með notagildi. Tenging á verkinu við okkar viðfangsefni er ekki mikil fyrir utan að myndir af þeim sem leika í myndinni koma fram á peysunni ásamt nafni.

Framkvæmd.

Þegar við fórum að framkvæma hugmyndina byrjaði brasið. Við byrjuðum á að finna peysu sem er ekki notuð lengur. Þar eftir tókum við peysuna og máluðum hana í köldum litum sem tákna nú kulda. Þegar því var lokið byrjaði tölvuvinnan. Við notuðum forritið Inkscape til að hanna. Forritið Inkscape er notað til að búa til límmiða sem við gerðum úr hönnunninni. Þegar fablab-límmiðarnir voru tilbúnir límdum við þá á peysuna. En þegar við límdum límmiðana á peysuna vildu þeir ekki tolla á peysunni, þannig við straujuðum þá á. Þá átti eftir að leggja lokahönd á peysuna sem var það að spreyja peysuna með málningu og taka límmiðana af.Þetta verk er því meira auglýsing heldur enn listaverk, enn kannski er það listin.

Enn með þessu viljum við koma fram einkunnarorðum skólans.

Frumkvæðið í verkinu er að við byrjuðum á að hugsa út úr kassanum, með því að taka list sem er oft hefðbundin og einkennandi og breyttum henni í þetta verk okkar.

Sköpun í verkinu kemur fram með því að framkvæma verkið.

Áræði sýnum við með því að gefast ekki upp þegar komu upp vandamál sem þurfti að leysa eins og þegar við náðum ekki að líma límmiðann á peysuna og þar með náðum klára verkið.

Skarphéðinn Þór Torfason og Víkingur Ólfjörð Daníelsson

Sunna Lind Bang
Fullt nafn: Sunna Lind Bang

Titill: Þjóðsögur í nýjum búning.

Texti um verkið: Verkið mitt er skapandi vefverkefni sem sameinar leik, ljóð og þjóðsagnakenndan hrollvekjuanda. Það samanstendur af fjórum þáttum: orðaleit, krossgátu, sögu til að fylla í eyðurnar og ljóði. Þau eru öll sett fram á Google Sites heimasíðu, sem gerir verkið aðgengilegt, sjónrænt og gagnvirkt. Markmiðið var að nálgast íslenskar hrollvekjur á nýstárlegan hátt með því að setja myrka og sögulega þætti í form sem minnir á barnaleiki.
Verkið tengist námefninu með því að vinna beint úr íslenskum þjóðsögum og hefðum, til dæmis með tilvísunum í draugasögur, selkonur og huldufólk. Ljóðið er byggt á þjóðsögum um selkonur og það endurspeglar togstreitu milli mannlegrar tengingar og yfirnáttúrulegs eðlis.
Ég valdi óhefðbundna framsetningu á efninu, sem krefst frumlegrar hugsunar og sköpunar. Ég nýtti eigin textagerð, sjónræna hönnun og forvitni til að byggja upp heild sem sameinar klassískar þjóðsögur og nútímalega framsetningu.

Heimasíðan:
https://sites.google.com/view/sunnalindbang-hrollvekjur/home

Hekla Sóley Magnúsdóttir
Hekla Sóley Magnúsdóttir
Vetrarhrollur
30x40

Verkið endurspeglar það sem við höfum farið yfir í áfanganum. Myrkrið í myndinni tengist beint hrollvekjum og dulúð. Snjórinn liggur yfir öllu, sem minnir á Bráðina, bókina sem við lásum og gerist um hávetur. Kastali Drakúla er uppi í fjöllunum og fullt tungl skín á himninum, sem gæti bent til að varúlfar séu á ferli. Ef gaumgæft er myndina má einnig sjá Frankenstein og skrímslið hans í fjöllunum, en í skáldsögunni er kafli þar sem þeir mætast einmitt þar.

Einkunnarorð skólans sjást vel í verkinu. Ég sýni frumkvæði með því að tengja myndina við það sem við höfum lært. Sköpun kemur fram í því hvernig ég blanda saman hrollvekjum og bókum. Ég sýni áræði með því að prófa að gera eitthvað öðruvísi og nýtt.

Hanna Valdís Hólmarsdóttir og Jason Karl Friðriksson
Höfundurinn af sjálfri sögunni er Yrsa Sigurðardóttir

En leikstjóri myndarinnar er Óskar Þór Axelsson

Það sem að þetta verk fjallar um er kvikmyndin ,,Ég man þig”. Við ákváðum að endurgera myndina í stuttmynd þar sem að við tókum upp atriðin sem að okkur finnst mest spennandi og aðlöguðum þau að okkar umhverfi.

Verkefnið varð til vegna þess að okkur langaði að gera um hryllingsmynd og var þessi mynd sú sem að okkur fannst mest spennandi af íslenskum hrollvekjum. Við vissum líka að okkur myndi finnast gaman að leika og klippa saman.

Einkunnarorð skólans tengjast þessu verki á þann hátt að við erum að skapa eitthvað. Það að gera stuttmynd er skapandi. Áræði vegna þess að við höfðum okkur sjálf í að gera þetta verkefni. Við gerðum eitthvað sem að maður gerir ekki á hverjum degi og sýnir það því áræði. Frumkvæði vegna þess að við fengum þessa hugmynd sjálf. Við ákváðum að gera stuttmynd af annarri mynd í okkar umhverfi og erum við einu manneskjurnar sem að við vitum um sem að gerðum þetta.

Páll Eyþórsson
Nafn: Páll Eyþórsson

Titill á verki: Endurrisinn

Strærð: 33 x 24cm

Texti um verkið: Verkið mitt sýnir Djáknann á Myrká og hestinn Faxa í myrkri og draugalegu umhverfi. Ég valdi að mála þetta því mér fannst sagan spennandi og klassísk íslensk hrollvekja. Ég notaði dökka liti til að ná fram stemningunni og sýna ógnina. Verkið tengist námsefninu því það byggir á íslenskri draugasögu. Ég sýni frumkvæði og áræði með því að velja málverk sem form og sköpun með því að túlka söguna á minn hátt.

Birkir Már Hafberg
Ég heiti Birkir Már Hafberg, verkefnið mitt er í A4 stærð og heitir "Kofinn".

Í þessu lokaverkefni ákvað ég að mála kofann úr bókinni Bráðin eftir Yrsu Sigurðardóttir. Bókin heillaði mig strax því sagan byggir upp mikla spennu og það eykst með hverri blaðsíðu. Með verk mitt vildi ég fanga augnablikið áður en allt fer á hinn endann. Hér virðist allt vera eðlilegt og við sjáum kofa sem stendur saklaus í fallegu landslagi og dádýr sem horfir rólega á hann. Við sem lesendur vitum að eitthvað skelfilegt er að fara gerast og þetta er kannski “the calm before the storm”.

Mín túlkun á kofann er ákveðin tákn af fölsku öryggi. Hann virðist vera notalegur og öruggur en í raun leynist eitthvað illt í honum. Þetta tengist vel hrollvekjuþættinum “hið óvænta”, en þá sjáum við eitthvað sem virðist saklaust og tekur svo snöggan og skelfilegan snúning.

Andrúmsloftið er líka mikilvægt í bókinni og einnig í málverkinu mínu. Það er kyrrt, en því við erum með innsæi í komandi atburðarás, á sama tíma ógnvekjandi. Dádýrið táknar sakleysi náttúrunnar en einnig áhorfandi á hryllinginn sem mun eiga sér stað á sama hátt og við lesendur upplifum söguna.

Að mínu mati tengist verk mitt einkunnarorðum skólans á eftirfarandi hátt. Ég sýni frumkvæði því ég tók ákvörðun um að túlka kofann úr bókinni Bráðin. Sköpun því ég málaði myndina til þess að gefa innsýn inn í söguna. Síðast en ekki síst áræði því ég hugsaði út fyrir þægindarammann og kláraði verk mitt þó ég sé enginn Picasso.

Gunnar Ingi

Ólafía Gerður
Hlekkur á fréttablað: https://www.canva.com/design/DAGmtJ4qO0w/IHFbJSx_b_W4b1BWVAqD1g/edit?utm_content=DAGmtJ4qO0w&utm_campaign=designshare&utm_medium=link2&utm_source=sharebutton

Ísabella Ósk Eyþórsdóttir
Höfundur: Ísabella Ósk Eyþórsdóttir

Nafn verks: Húsið í Ó Karítas eftir Emil Hjörvar

Stærð verks: 30x24

Ég vildi teikna málverk af húsinu í Ó Karítas sem er lýst í sögunni sem fallegu gulu bárujárn húsi með útsýni yfir fjörðinn,strandirnar og nesið og er staðsett í Búðardal. Ég vildi leggja áherslu á hvernig húsið virðist venjulegt og fallegt en undir yfirborði þess leynist eitthvað djúpt og ógnvekjandi. Ég ákvað að hafa dökkan bakgrunn sem lýsir hrollvekjunni og einhvað yfirnáttúrulegt sem á sér stað í húsinu en hafa húsið sjálft venjulegt og fallegt til að sýna báðar hliðar. Vildi draga fram hvernig hið ógnvekjandi getur falið sig í því venjulega. Ég gerði einnig myndina með smá hreyfingu sem á að túlka þetta yfirnáttúrulega sem er að gerast í kringum húsið sjálft.

Karen Ósk Ákadóttir
Hæhæ Ég heiti Karen Ósk og þetta er verkið mitt Ég man þig krossgáta. Ég ákvað að gera verkefni um ég man þig kvikmyndina vegna þess að ég man eftir að hafa horft á hana þegar hún kom út og fannst kvikmyndin skemmtileg einnig tengist hún áfanganum því þetta er íslensk hryllingsmynd. Ég man þig er ótrúlega hræðileg kvikmynd sem fær hárin til að rísa en einkunnarorð skólans endurspeglast í þessu verki þannig að ég bjó sjálf til krossgátu frá mínu höfði.

Anna Steina Jórunn Þorsteinsdóttir
Höfundur: Anna Steina Jórunn Þorsteinsdóttir

Stærð málverks: 30x30

Heiti verks: Skrímsli Lagarfljótsins

Lokaverkefni

Íslenska

Ég málaði þetta málverk með Lagarfljótsorminn í huga, þessi mynd endurspeglar óttan sem ég fann fyrir þegar ég heyrði söguna fyrst og ég tel mig hafa séð hann þegar ég var yngri að ferðast nálægt Lagarfljóti.

Þessi mynd tengist Íslenskri hrollvekju þar sem þetta er þjóðsaga sem flest okkar höfum lesið eða heyrt þegar við vorum yngri sem gerir þetta fullkomið verk fyrir áfangann.

Hvernig einkunnarorð skólans endurspeglast í verkinu mínu.

Frumkvæði: Frumkvæðið gaf lausar hendur til að leyfa mér að skapa hvernig ég sé Lagafljótsorminn í mínum augum.

Sköpun: Ég ákvað að skapa þetta myndrænt og notaðist við striga og ímyndunaraflið mitt.

Áræði: Ég notaði mína kunnáttu út frá sögunni og skoraði mig á að mála hana á striga til að sýna ögrandi mynd að skrímslinu.

Natalía Diljá Guðmundsdóttir
Natalía Diljá Guðmundsdóttir

Myrkur

25x30

Verkefnið mitt er málverk sem er byggð af sögunni Djákninn á Myrká. Það sem ég vil sýna með þessu verki er hvernig list getur verið túlkuð á mismunandi hátt, hvernig ég túlka þetta getur einhver annar túlkað listaverkið á allt annan hátt. Mér finnst gaman að mála og finnst skemmtilegt að gera skapandi list af einhverju sem er ekki endilega ætlað að vera list. En Djákninn á Myrká er ein uppáhalds draugasagan mín og fannst svo skemmtilegt þegar við fengum að gera okkar eigin framhaldssögu af henni í áfanganum og finnst ég þurfa halda áfram að vinna í þessari sögu og fannst þess vegna tilvalið að byggja lokaverkefnið mitt á henni.

Frumkvæði: Ég valdi að vinna verkefnið á listrænan hátt, sem að mínu mati er óvenjuleg nálgun á hrollvekjum, þar sem þær eru oftast gerðar í ritformi. Með því sýni ég frumkvæði með því að setja þekkta íslenska hrollvekju í nýtt samhengi, út frá minni eigin túlkun og sjónrænu ímyndunarafli.

Sköpun: Ég ætla vinna með litaval, sem endurspeglar stemninguna á myndinni og táknrænt myndmál til að túlka hrollvekjandi andrúmsloft sögunnar. Málverkið er afrakstur skapandi ferils.

Áræði: Ég vel að takast á við íslenska hrollvekju og tilfinninga krefjandi efni og nota myndlististina til að túlka hana. Ég sýni áræði í því að vinna með ógnvekjandi stemningu og túlka hana á minn eigin hátt og leyfa því að vekja fram sterkar tilfinningar.

Sunna Birnu og Katrín Jóna Jóhannsdóttir

Vaka Halldórsdóttir

Kristinn Tómas Eiðsson
Kristinn Tómas Eiðsson

Andlit Djáknans á Myrká

30x40 myndarammi með andlits skúlptúr

Djákninn á Myrká er ein frægasta draugasaga Íslands sem gerist í Eyjafirði.

Verkið er innblásið af sögunni sem við lásum í áfanga um íslenskar hrollvekjur og má sjá hér skúlptúr af andliti djáknans sem er mótað úr gifsi. Andlitið er ófullkomið, áferðin er hrjúf, með sprungum og ójöfnu yfirborði sem gefur til kynna hvernig tíminn og dauðinn hafa markað hann.

Í sögunni er hann að fara hitta hana Guðrúnu á Bægisár en þegar hann gengur yfir ánna þá dettur hann og rekur höfuðið í ísjaka sem veldur dauða hans. Sárið myndast aftarlega á hnakka hans og má sjá á verkinu í hvítu höfuðkúpuna hans.

Einkunnarorð skólann, frumkvæði - sköpun - áræði endurspeglast í þessu ferli.

Frumkvæðið felst í því að túlka gamla þjóðsögu á sjónrænan hátt, sköpunin felst í sjálfri útfærslunni og áræðið fólst í því að vinna með krefjandi viðfangsefni og þora að sýna það hrátt og á þennan hátt.

Emilía Sigrún Karlsdóttir