Fræðsla fyrir aldraða by Valkyrja Nótt Þóroddsdóttir

Hverjir þurfa á endurhæfingu að halda?
*Einstaklingar sem útskrifast af sjúkrahúsi og voru algjörlega sjálfbjarga áður en þeir lögðust inn.

*Einstaklingar sem þegar þiggja aðstoð og sækjast eftir hjálp við persónulega umhirðu. Þá gengur endurhæfingin út á að skjólstæðingurinn geti haldið áfram að sinna sínum störfum og bætt færni sína ef unnt er.

*Einstaklingar sem hafa ekki áður þurft á aðstoð að halda en óska nú eftir stuðningsþjónustu. Ef viðkomandi á möguleika á endurbata er honum boðin hverdagsendurhæfing í stað venjulegrar heimahjúkrunar.

Hvað er gert í endurhæfingu?
Endurhæfing er einstaklingsbundin en það getur verið sjúkraþjálfun, andleg meðferð eins og sálfræðiviðtöl og hópameðferðir.

Líkamsþjálfun getur falist í leikfimi, vatnsleikfimi, göngu og styrktarþjálfun. Síðan er metin þörf á sértækri meðferð, t.d. viðtalsmeðferð, vatnsmeðferð og hitameðferð. Öll meðferð er ætíð undir eftirliti fagfólks. Fjölbreytt fræðsla er í boði, m.a. um mikilvægi þjálfunar, varnir gegn byltum, minnisþjálfun, svefn, kvíða, þunglyndi og mataræði. Utan um meðferðina heldur teymi fagfólks sem samanstendur af lækni, hjúkrunarfræðingi, sjúkraliða, sjúkraþjálfara, íþróttafræðingi og sjúkranuddara.  Í lok dvalar er reynt að finna leiðir fyrir dvalargest til að viðhalda árangri eftir útskrift.

Hverjir koma að endurhæfingu einstaklings?
Ólíkir fagaðilar, s.s. iðju- og sjúkraþjálfarar, hjúkrunarfræðingar og sjúkra- og félagsliðar.

Hvert er markmið endurhæfingar?
Auka færni, virkni og þátttöku sjúklings í lífi og starfi og bæta lífsgæði hans.

Hvað er endurhæfing?
Endurhæfing er markviss, tímabundin samvinna milli skjólstæðings með skerta færni og faglegs heilbrigðisstarfsfólks. Endurhæfing er þverfaglegt verkefni sem tekur mið af lífsaðstæðum skjólstæðings í heild sinni. Fagaðilar í samvinnu við skjólstæðinginn leitast við að viðhalda og bæta líkamleg, sálræn og félagsleg bjargráð hans.

Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands
Á hverju ári koma um 550 einstaklingar 70 ára eða eldri til dvalar á Heilsustofnun. Flestir þeirra taka þátt í sértækri öldrunarendurhæfingu á svokallaðri Öldrunarlínu. Til eru ýmsar árangursmælingar varðandi ástand þessa fólks við komu og við brottför og lúta þær allar í eina átt, þannig að um greinilega framför í margs konar færni er að ræða. Sumir aldraðir hafa áttað sig á því að ástand þeirra batnar svo mikið við dvölina þar að þeir sækja um að koma aftur til dvalar að fáeinum árum liðnum. Líkur eru á að með slíkri endurhæfingu sé hægt að bæta og viðhalda bættu ástandi hins aldraða og vinna gegn ellihrumleika og einkennum langvinnra sjúkdóma. Telja má líklegt að með þessu móti megi lengja þann tíma sem viðkomandi einstaklingur getur notið heilbrigðrar öldrunar og þurfi síður á stofnanavist eða sjúkrahúsvist að halda