Núvitund í skólastarfi by Ólafía Sif Sverrisdóttir

Inngangur
Í þessu starfsþróunarverkefni langaði mig að rannsaka hvernig ég gæti fléttað núvitund inn í daglegt skólastarf. Í hröðu nútíma samfélagi tel ég að það sé mikilvægt fyrir börn að læra hvernig þau geti nýtt sér núvitund og hugleiðslu til þess að takast á við þær aðstæður og áskoranir sem þau verða fyrir í daglegu lífi. Þegar hraðinn og áreitið í lífinu verður yfirþyrmandi getur það haft neikvæð áhrif á sálarlíf einstaklinga, því er mikilvægt að kenna börnum hvernig þau geti aukið eigin hamingju og vellíðan á ný með því að stunda núvitundaræfinar (Bryndís Jóna Jónsdóttir, 2015).
En hvað er núvitund? Núvitund felst í því að einstaklingar eru til staðar fyrir sjálfan sig með því að vera meðvitaðir um núverandi ástand sitt. Hvað þeir eru að gera og hvernig þeim líður og veita því óskerta athygli án þess að dæma sig en í staðinn mæta upplifuninni með opnum hug, mildi og yfirvegun. Með því að stunda núvitund öðlumst við betra samband við okkur sjálf, sem getur hjálpað okkur að draga úr kvíða, streitu og öðru álagi sem við upplifum í okkar daglega lífi (Brown og Olson, 2015).
Í þessu starfsþróunarverkefni mun ég því leitast við að finna leiðir til að kenna nemendum mínum að iðka núvitundundaræfingar. Rannsaka hvað fræðin segja um viðfangsefni og prófa hvaða aðferðir henti mínum nemendum með því að prófa mismunandi æfingar og athuga hvort það skili einhverjum árangri að innleiða núvitund við skólastarf.

Viðhorfskönnun
Ég bjó til könnun sem nemendur tóku í upphafi íhlutunarskeiðsins til þess að kanna viðhorf þeirra til númínútna. Við lok íhlutunarskeiðsins tóku þau svo sömu könnun sem innihélt nokkrar aukaspurningar varðandi kennsluna. Þannig gat ég metið kennsluna og hvort eða hvernig viðhorf þeirra til númínútna hefði breyst.
Niðurstöðurnar voru mjög jákvæðar, en þær sýndu að það hefði orðið miklar hugarfarsbreytingar gagnvart númínútum. Krökkunum fannst almennt skemmtilegra að fara í númínútur og leið betur eftir númínútur.
Nánar er fjallað um niðurstöðurnar í dálkunum umræða og lokaorð.

Píanó tónlist
Píanótónlist sem reyndist vel í númínútum og eins þegar við vorum að vinna í rólegri vinnu, eins og stærðfræði eða skrift.

Komdu og skoðaðu himingeiminn
Hérna ákvað ég að prófa að hafa númínútur úti og samþætta þannig hugleiðslu dagsins við Byrjendalæsis bókina Komdu og skoðaðu himingeiminn.
Dagbókarfærsla 23 feb:
þetta gekk svakalega vel. Við fórum niður að Reykjalundi í dásamlegu vetrar veðri, það var logn og svartamyrkur. Sumir urðu smá myrkfælnir í byrjun en óttinn gekk hratt yfir. Fyrst tókum við nokkrar mínútur til að ná okkur niður,  þá lágum við í snjónum og krakkarnir máttu tala saman um það sem þau sáu og spyrja spurninga. Eftir það hlustuðum við á róandi Disney tónlist og horfðum upp í himingeiminn. Krakkarnir nutu sín svo vel að þau neytuðu að hætta. Þegar við komum svo upp í skóla voru þau endurnærð og mun forvitnari um himingeiminn. Þetta mun ég klárlega gera aftur, það er svo nærandi að liggja í náttúrunni.

Þakklætisganga
Fórum í stuttan þakklætisgöngutúr. Þá gengum við hring í Reykjarlundaskógi þar sem nemendur máttu ekki tala heldur áttu að hugsa eitthvað sem þau væru þakklát fyrir. Fyrst tók ég stelpurnar og svo strákana.
Dagbókarfærsla 24. mars:
Áður en ég lagði að stað með hópana lagi ég verkefnið fyrir þau. Við ræddum um þakklæti, hvað það væri og fyrir hvað þau væru þakklát og skráðum það upp á töflu. Báðir hóparnir voru spenntir fyrir verkefninu og ég hélt að þetta myndi verða leikur einn, en svo varð ekki. Strákarnir áttu erfitt með að einbeita sér að verkefninu og voru að fíflast eiginlega allan tímann. Stelpurnar stóðu sig aðeins betur en báðum hópum fannst erfitt að takast á við verkefnið að alvöru. Þrátt fyrir að þetta hafi ekki gegnið alveg nógu vel var þetta virkilega lærdómsrík tilraun. Næst mun ég eflaust hafa hópana enn þá minni og prófa þetta aftur þegar það er orðið hlýrra úti.

Viðhorfskönnun- niðurstöður
1-2. Viðhorf nemenda og líðan varð mun betra eftir inngripið. Út frá því má áætla að með því að hafa núvitund reglulega og blanda henni við hefðbundna kennslu hafa nemendur fengið rými til að venjast hugleiðsluforminu og kynnst hvaða ávinningur fellst í því að stunda núvitund (Rechtschaffen, 2014).

3. Það kom mér skemmtilega á óvart hvað þau voru hrifin af því þegar ég stjórnaði hugleiðslunni. Sem segir mér að það hafi skipt máli að undirbúa mig vel og finna minn innri jóga gúrú.

5. Finnst greinilega betra að vera í litlum hópum þegar þau iðka núvitund.

6. Meira en helmingur nemenda hafði nýtt sér hugleiðslutækni utan kennslu til að ná að slaka á.

Fyrirlestur um hugleiðslu og núvitund barna
Ég fór á áhugaverðan og fróðlegan fyrirlestur hjá Berglindi Ýr Karlsdóttur um hvernig hægt sé að blanda hugleiðslu og núvitund við kennslu og skólastarfið. Berglind starfaði lengi vel hjá Helgafellsskóla þar sem hún innleiddi núvitund inn í leikskólastarfið með góðum árangri, en hún hefur menntað sig sérstaklega í barna jóga. Á fyrirlestrinum fékk ég góð ráð um hvernig búnað væri hægt að nota til að gera númínúturnar betri og nýtti ég mér ráð hennar með góðum árangri.

Krefst þolinmæði og seiglu
Ég hef lært að það þarf að kenna nemendum um núvitund og að hugleiða, það tekur tíma og krefst þolinmæði. Þegar innleiða á hugleiðslu þarf kennarinn að vera þolinmóður og sýna seiglu þar sem það er ekki gefins að nemendur kunni að meta núvitunaræfingar í upphafi, finnist þær tilgangslausar og jafnvel leiðinlegar. En ég hef lært að öll erfiðsivinnan er 100% þess virði og með því að framkvæma núvitundaræfingar reglulega venjast nemendur hugleiðsluferlinu og læra hvernig þeir geti nýtt sér núvitund á eigin skinni (Rechtschaffen, 2014).

Hvers vegna á að kenna nemendum hugleiðslu og núvitund?
Hugleiðsla getur haft margvísleg jákvæð áhrif á nemendur og skólastarf. Í gegnum hugleiðslu geta nemendur lært betur inn á sig þar sem þeir verða meira meðvitaðir um eigin tilfinningar. Þeir geta einnig lært hvernig þeir geta minnkað streitu og kvíða og öðlast meiri samkennd til annara. Að auki getur hugleiðsla kennt nemendum að sjá hlutina frá öðru sjónarhorni. Þannig getur hugleiðsla haft jákvæð áhrif á bekkjarbraginn, því að nemendur geta orðið samstarfsfúsari. Með því að iðka núvitund vera einstaklingar meðvitaðri um aðstæður í kringum sig og þannig verður námsumhverfið þægilegra fyrir alla (Rechtschaffen, 2014).

Með því að kenna nemendum hugleiðslu erum við að gefa þeim mikilvæg verkfæri og bjargir sem þeir geta nýtt sér þegar þeir verða kvíðnir eða lenda í erfiðum aðstæðum, ekki aðeins í skólanum heldur geta þeir einnig nýtt sér hugleiðslutæknina í lífinu sjálfu (Brown og Olson, 2015). Núvitundarkennsla eykur ekki aðeins samkennd til annara heldur getur hún einnig aukið samkennd í eigin garð sem er mikilvægt þar sem börn eru oft mjög gagnrýnin á sjálfan sig. Rannsóknir sýna að núvitund og máttur hennar eflir skilning nemenda á að mæta sér af mildi og kennir þeim leiðir til að takast á við erfiðleika (Þórunn Kristjánsdóttir, 2019).

Hvað græðum við á því sem kennarar að innleiða núvitund?
Við sem kennarar græðum heilmikið af því að kenna nemendum okkar núvitund og  hugleiðslu. Í gegnum hugleiðslu æfingar kynnumst við nemendum okkar og þeirra þörfum betur, lærum að þekkja hvenær þeir verða of stressaðir og hvenær þeir þurfa að taka pásur. Þannig getum við sem fagmenn skapað betri námsumhverfi og stuðlað að auknum námsárangri hjá nemendum okkar (Rechtschaffen, 2014).

Hvernig er best að innleiða núvitund í skólastarfi og hvað á að leggja áherslu á?
Besta leiðin til að innleiða hugleiðslu og núvitund í skólastarf er að flétta hana inn í námið og láta nemendur æfa sig reglulega (Brown og Olson, 2015). Rechtschaffen (2014) tekur í sama streng og bætir við að best sé að byrja á stuttum æfingum til að hjálpa nemendum að venjast því að gera núvitundaræfingar. Lilja Úlfarsdóttir og Valgerður Ólafsdóttir (2015) mæla t.d. með að byrja á stuttum hugleiðslu æfingum (3-5 mín) þegar núvitund er innleidd í kennslu og lengja svo tímann þegar nemendur er tilbúnir.

Nemendur verða að fá að vita hver tilgangurinn er með því að gera núvitundaræfingar, rými til að æfa sig og þeir verða að fá að vita hvernig þeir geta nýtt sér þá færni sem þeir öðlast í gegnum núvitundaræfingar í fjölbreyttum aðstæðum (Lilja Úlfarsdóttir og Valgerður Ólafsdóttir, 2015).
Öndunaræfingar eru gott dæmi um hvað nemendur læra í gegnum núvitundaræfingar. Góð öndun er grunnurinn að vellíðan og í gegnum núvitundaræfingar læra nemendur m.a. hvernig djúp öndun getur hjálpað þeim að slaka á, róa sig, ná aukinni einbeitingu og hugarró þegar þau lenda í krefjandi aðstæðum. (Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir, 2015). Stranglega bannað er að þvinga nemendur til þátttöku en það getur haft neikvæð áhrif á upplifun þeirra á ferlinu (Rechtschaffen, 2014).
Nota tónlist og hljóð
Brown og Olson (2015) segja að tónlist og hljóð séum mikilvægur partur af hugleiðslu. Án tónlistar og hljóða getur hugleiðsla verið erfið, sérstaklega fyrir byrjendur. Því er mikilvægt að nýta sér tónlist þar sem hún getur verið gagnlegt tól til að hjálpa einstaklingum að ná fullri meðvitund, slaka á, vera til staðar og einbeita sér. Án þess að við höfum áhyggjur af öðrum hugsunum eða utan að komandi áreiti.
Mikilvægt er fyrir kennarar sem eru að byrja að kenna nemendum núvitund að vera meðvitaðir um að nemendur eru ef til vill ekki allir jafn viljugir til að iðka núvitund til að byrja með. Nemendur eru misjafnir einstaklingar og því þarf að sýna skilning og taka tillit til þeirra. Einstaklingar þurfa mis mikinn tíma og mis miklið rými til að venjast núvitundaræfingum og læra að njóta þess að vera í núinu og slaka á (Rechtschaffen, 2014).

Náttúruhljóð
Náttúruhljóð reyndust einnig vel í númínútum og eins þegar við vorum að vinna í rólegri vinnu, eins og stærðfræði, föndri eða skrift.

Bakgrunnstónlist

Hugarfrelsi

Kennsluáætlun og skipulagning
Til þess að halda mér við efnið bjó ég til kennsluáætlun. Á mánudögum var lögð áhersla á öndunaræfingar og á fimmtudögum var lögð áhersla á hugleiðslu. Með tímanum urðu æfingarnar svo fleiri, lengri og fjölbreyttari. Þar sem nemendur mínir höfðu smá reynslu á því að stunda hugleiðslu byrjuðum við á því að taka númínútur 2 sinnum í viku, c.a. 7-10 mínútur í hvert sinn.

Ég hef lært eins og krakkarnir í gegnum þetta ferli hvernig ég get nýtt mér hugleiðslu og núvitundaræfingar í aðstæðum sem mér finnst vera erfiðar. Hvernig ég get nýtt mér öndun til að slaka á og núllstilla sig í amstri dagsins.

Ég hef kynnst nemendum mínum betur og er betur í stakk búin til að koma til móts við þau en áður.

Lýðræðislegar númínútur í litlum hópum
Það gekk mjög vel  að leyfa krökkunum að hafa áhrif á hvernig númínúturnar ættu að vera.
Dagbókarfærsla 19. apríl:
Þetta var mjög skemmtilegt ferli og gekk þessi litla tilraun frekar vel. Nemendur fengu að velja sig sjálf í fjóra 5-8 manna hópa. Hópurinn fékk svo að velja hvort þau fengu tónlist eða leidda hugleiðslu, frá kennara eða hugarfrelsi. Krakkarnir fengu einnig að ráða hvernig þau röðuðu dýnunum, hvort þau notuðu töfrakrukku, tímaglös eða hvað sem þeim datt í hug. Þau fengu 7 mínútur til að skipuleggja hvernig hópurinn vildi hafa sínar númínútur. Flestir hóparnir unnu vel saman, stóðu sig vel og það var gaman að sjá mismunandi útfærslur þeirra.
Það var frekar tímafrekt að taka þetta allt á einum degi, mögulega er betra að dreifa þessu á tvo daga. Næst langar mig að prófa að skipta þeim handahófslega í hópa og sjá hvernig það mun ganga í samanburði við þetta.

Kynjaskiptar númínútur
Þar sem bekknum er skipt í sundhópa eftir kyni ákvað ég að nýta tímann þegar annar helmingurinn er í sundi til þess að taka minni hópa í hugleiðsluleiki.
Brot úr dagbók 10. mars :
Nú hef ég tekið bæði stelpurnar og strákana sér í nokkur skipti. Ég vissi að stelpurnar myndu standa sig vel en það kom mér á óvart hvað strákarnir eru búnir að vera flottir, þeir eru greinilega að venjast forminu. Þessir leikir hafa verið mjög góðir til að efla og bæta samskipti innan beggja hópa. Þegar tækifæri gefst langar mig að prufa að skipta þeim aftur í tvo hópa en hafa þá kynjablandaða.

Jógadýnur
Jógadýnur sem nemendur lágu eða sátu stundum á á meðan við stunduðum hugleiðslu.
Dagbókarfærsla:
Krakkarnir standa sig mun betur í númínútum þegar þau fá sitt pláss en liggja ekki í kremju á mottunni í krók.

Gong bjalla
Gong bjalla var notuð til að hringja númínúturnar inn og út. Með tímanum lærðu krakkarnir að þegar þau heyrðu í bjöllunni voru númínútur formlega byrjaðar og tími til að setja sig í hugleiðslustellingar. Bjallað klingdi svo aftur í lokin og þá vissu krakkarnir að númínúturnar voru búnar.

Slökunarvatn
Vatn blandað við ilmolíudropa var notað til að spreyja yfir nemendur við lok tímans. Þau fengu ávalt að velja hvort þau vildu fá spreyið  yfir sig eða ekki.

Töfrakrukka
Töfrakrukkur voru notaðar við hugleiðslu. Hér er búið að blanda vatni, glimmer, lími og uppþvottalegi saman. Nemendur sitja í kringum krukkuna, krukkan er hrist þannig að allt glimmerið fer af stað. Síðan eiga nemendur að horfa á glimmerið falla hægt og rólega þangað til allt glimmerið er fallið á botninn.
Brot út dagbókarfærslu:
Töfrakrukkan hefur reynst ADHD krökkunum vel. Þeim finnst þægilegt að fá hana til að róa sig niður með að hrista hana og horfa á glimmerið. Frábær viðbót sem hjálpar þeim þegar áreitið verður of mikið.

Gagnabanki
Ég nýtti mér þessi spjöld til þess að  framkvæma hugleiðslu með nemendum og eins þegar ég var að undirbúa mig fyrir að leiða æfingarnar.

Öndunaræfingar
Ég kynnti þessi öndunarspöld fyrir nemendum og hafði þau aðgengileg fyrir þau.

Öndunaræfingar
Öndunaræfingarnar virkuðu mjög vel á nemendur, sérstaklega þá með ADHD, námsörðugleika eða glíma við kvíða . Ég prentaði og plastaði hverja æfingu fyrir sig og þegar nemendur urðu reiðir eða lentu í einhverjum atvikum gátu þau náð sér í spjald og róað sig með því að anda samkvæmt æfingunni.
Brot úr dagbók 16. mars:
Það kemur mér skemmtilega á óvart hvað öndunarspjöldin eru vinsæl og hvað þau virka vel á nemendur. Eins og í dag kom X alveg brjálaður inn úr frímínútum. Hann sagði ekkert heldur rauk inn í bókaherbergi með spjöldin og kom svo fram eftir nokkrar mínútur þegar hann var búin að róa sig sjálfur.

Ég þurfti að finna minn innri jóga gúru og gera tilraunir
Brown og Olson (2015) segja að undirbúningur kennara sé mjög mikilvægur til að tryggja að kennarar séu í stakkinn búinn til að kenna hugleiðslu á skilvirkan hátt og að þeir sjálfir séu ánægðir og sáttir með hugleiðsluferlið. Undirbúningsferlið getur verið mismikið fyrir hvern einstakan kennara, en það er algengt að byrja á eigin hugleiðsluferli og að kynna sér mismunandi leiðir til að stunda hugleiðslu.
Til þess að undirbúa mig hlustaði ég á hugleiðslu hlaðvörp og fór í nokkra jóga tíma til þess að koma mér almennilega í andlega gírinn. Ég æfi mig að lesa æfingarnar í þessu hefti upphátt. Ég prófaði allar 14 æfingarnar í þessu hefti  í bland við aðrar æfingar sem ég bjó til sjálf til að finna út hvað henntaði mínum bekk best.

Íhlutunarskeiðið
Íhlutunarskeiðið var frá 13. febrúar-19. apríl. Á þeim tíma undirbjó ég mig og kynnti ég mér núvitund í skólastarfi með því m.a. að lesa um viðfangsefnið, fá ráð hjá fagfólki og ræða við samstarfsfólk mitt. Auk þess að ég framkvæmdi mismunandi núvitundaræfingar með nemendum mínum, skráði hjá mér hvernig kennslan gekk og ígrundaði vinnuna sem fór fram til að bæta kennsluna.

Skipulag og ígrundun
Ég hef lært að það er mikilvægt að skipuleggja sig og ígrunda eigin kennslu til þess að ná árangri og skoða hvernig hægt sé að gera kennsluna betri. Það sem hjálpaði mér og hélt mér við efnið var að búa til kennsluáætlun og ákveða fyrirfram að ég ætlaði að framkvæma núvitundaræfingar a.m.k tvisvar sinnum í viku. Ef ég hefði ekki sett það inn í töflu hefði verðið auðvelt fyrir mig að sleppa því að gera æfingarnar.
Með því að ígrunda kennsluna gat ég séð hvað var að virka og hvað virkaði ekki. Ég sá hvernig ég gat bætt mig og kennsluna til að auka gæði númínútna og var kennsluáætlunin því lifandi skjal sem þróaðist með tímanum.

Út fyrir þægindarrammann!
Af hverju valdi ég þetta viðfangsefni? Því að í skólanum sem ég vinn í eru númínútur, en það er ákveðinn tími dags þar sem allur bekkurinn fer í hugleiðslu eða slökun í stuttan tíma. Við í mínu kennarateymi höfum ekki verið nægilega dugleg að taka númínútur þar sem við erum frekar óörugg um hvernig eigi að framkvæma þær og oft er bara mikið að gera. Þannig að mig langaði til að bæta þekkingu mína og verða betri í að framkvæma núvitundaræfingar með nemendum mínum. Að auki valdi ég þetta viðfangsefni sem starfsþróunarverkefni því ég vildi takast á við eitthvað sem ég þekki ekki og ýta mér út fyrir  minn þægindaramma. Einnig var ég forvitin að sjá hvort að bæði nemendur og ég myndum græða eitthvað á því að iðka reglulega núvitund og blanda henni við hefðbundið skólastarf .

Námsumhverfið
Ég hafði hugleiðslugögn eins og öndunaræfingarnar, glimmer krukkurnar og tímaglös sýnileg og aðgengileg til að minna nemendur á að þau gætu nýtt sér það þegar þau þurftu. Að auki bjó ég til veggspjöld til að minna nemendur á mátt núvitundar.

Tónlist
Þar sem tónlist og hljóð geta verið mikilvægur þáttur í því að einstaklingar nái djúp slökun í hugleiðslu (Brown og Olson, 2015) bjó ég til nokkra lagalista á streymisveitunni Spotify. Ýmist til að nota þegar við vorum í númínútum eða til þess að nota sem róandi bakgrunnstónlist í kennslustundum.
Lagalistana er hægt að skoða í dálknum gögn og tónlist.

Gúrku númínútur
Gúrku númínútur var hugmynd sem kviknaði meðal nemenda. Stelpurnar voru búnar að tala um að þeim langaði að hafa ,,spa" dag og fá gúrkur yfir augun eins og í bíómyndunum. Að sjálfsögðu var ég tilbúin að framkvæma þetta með þeim og mætti með gúrku sneiðar fyrir alla næsta dag.
Brot úr dagbók 31. mars:
Allur bekkurinn var saman í þessari æfingu. Þau fengu að velja sér stað í stofunni til að slaka á og allir fengu tvær gúrkusneiðar til að setja yfir augun. Við tókum 10 mínútna slökun og hlustuðum á ekta spa tónlist á meðan. Krakkarnir voru mjög ánægðir með þetta og fannst þetta mjög mikið sport. Þegar við vorum að klára tók ég eftir að einn nemandinn var greinilega svangur því hann var búin að borða gúrku sneiðarnar sínar. Það er svo gaman að framkvæma hugmyndir þeirra því þá eru þau svo miklu meira til í að taka þátt.

Valdeflandi og eykur sjálfstæði
Mér er nú ljóst að með því að kenna nemendum núvitund og hugleiðslu er verið að efla þau sem manneskjur, valdefla þá, kenna þeim seiglu og auka vellíðan þeirra. í gegnum hugleiðslu og núvitund kynnast þau sjálfum sér betur því þau læra m.a. um hvar þeirra mörk liggja, hvenær þau verða stessuð eða líður illa. Núvitundar kennsla eykur líka sjálfstæði nemenda þar sem þau læra hvað þau geta gert til að hjálpa sér sjálfum þegar þau lenda í erfiðum aðstæðum. (Þórunn Kristjánsdóttir, 2019)

Svegjanleiki
Sveigjanleiki er nauðsynlegur þegar maður er að kenna núvitund. Eins og Rechtschaffen (2014) segir þá eru nemendur mismunandi eins og þeir eru margir og maður þarf að sýna því skilning. Í upphafi verkefnisins vildi ég hafa sömu markmið fyrir alla nemendur, en með tímanum og reynslunni fann ég að það gekk alls ekki. Það þarf í raun og veru að einstaklingsmiða núvitundarkennslu alveg eins og aðrar námsgreinar. Ég fann þegar ég fylgdi úthaldi nemenda að númínúturnar gegnu mun betur og ferlið varð náttúrulegra fyrir alla. Ég fann einnig að það var mun betra að skipta bekknum upp í minni hópa, stundum eftir getu og oft var betra að taka númínútur eftir hádegi eða þegar nemendur voru hátt uppi. Þá hjálpaði oft að taka nokkrar mínútur í slökun og núllstilla sig.

Innlagnir mikilvægar
Áður en ég hóf þetta starfsþróunarverkefni hafði ég alveg verið með númínútur en þær voru hvorki markvissar né skipulagaðar og ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því hversu mikilvægt það væri að leggja þetta viðfangsefni inn eins og aðrar námsgreinar. Á meðan að ferlinu stóð sá ég hvað það skipti miklu máli að legga viðfangefnið inn, ræða við þau um núvitund og kosti þess að stunda hugleiðslu, hvernig þau geta nýtt sér hugleiðslu í dagsins önn og hvernig hægt sé að nýta sér hana þegar þau lenda t.d. í erfiðum aðstæðum.

Auðvelt að samþætta við aðrar námsgreinar
Í gegnum ferlið sá ég hvað það er auðvelt að flétta núvitund við aðrar námsgreinar, eins og Komdu og skoðaðu himingeiminn, stærðfræði (telja í hljóði) eða íslensku (stafrófið) og troða stuttum æfingum inn í kennsluna þegar tækifæri gafst.

Hér verður lærdómur annarinnar ræddur, ígrundaður og tengdur við fræðilegt baksvið verkefnisins.

Dæmisaga
Dæmisaga: Ein stelpa í bekknum lenti í snjósleðaslysi og fékk stórt gat á ennið. Móðir hennar hafði samband við mig og sagði hvernig X hafði nýtt sér öndun og hugleiðsluæfingar  til að róa sig sjálf niður í þessum erfiðu aðstæðum. Móðirin var mjög hissa á getu dóttur sinnar til að slaka á í þessum erfiðu aðstæðum með því að beita djúpri öndun og þakkaði okkur fyrir að hafa innleitt hugleiðslu við kennsluna.

1. kveikja
2. Inngangur
3. Fræðilegur rökstuðningur
4. Lýsing á því sem gert var
5. Æfingar sem stóðu upp úr ásamt dagbókarfærslum
6. Gögn og búnaður
7. Mat og ígrundun á lærdómi annarinnar
8. Umræða og lokaorð
9. Heimildaskrá