Ígrundunarverkefni by Lilja Margrét Óskarsdóttir - HA

Samskipti og tengsl
Eins og komið hefur fram tekst Sara vel á við þær aðstæður sem hún er í en það er mikilvægt að greina frekar hvaða samskipti eru æskileg í aðstæðum sem þessum.

Mikilvægt er að hafa góða samskiptafærni og slík færni auðveldar oft aðstæður sem geta verið krefjandi í starfi.

Mikilvægt er að tryggja ávallt faglega framkomu slík framkoma er nátengt þeim gildum sem við höfum sett okkur sem fagmanneskjur.

Þegar kemur að faglegum samskiptum er mjög mikilvægt að hlusta alltaf vel og passa að maður skilji hvað er átt við.

Svör þurfa að vera skýr til þess tryggja að samhengi tapist ekki. Sara skilur að Jónas vill koma í bílinn og það er mikilvægt að sýna þann skilning alveg skýrt.

Mikilvægt er að tryggja að halda ró sinni verða ekki reiður eða hræddur.

Það er líka mikilvægt að fara ekki í vörn í svona aðstæðum því það getur ýtt undir gremju, einnig er mikilvægt að bregðast ekki við dæmandi.

Það er mikilvægast að sýna yfirvegun og einlægni þegar kemur að samskiptum almennt en sérstaklega þegar krefjandi aðstæður eru uppi. Þegar við beitum hlustun sem er mjög gagnlegt að gera en það krefst þess að við hlustum vel á hvað einstaklingur er að segja og stundum er gott að endurorða hvað viðkomandi er að segja til þess að átta sig betur á því sem átt er við. Mikilvægt er að eiga í staðfestandi samskiptum til þess að koma hlutunum frá sér á sem skýrastan hátt. Þegar verið er að eiga í samskiptum við einstaklinga sem eru reiðir eru nokkur atriði sem er mikilvægt að hafa í huga þá er mikilvægt að beita virkri hlustun mjög markvisst og tryggja að sýna ekki hræðslu gagnvart reiðinni. (Carol og Gina, 2016)

Almennt um heilabilun
Í raun og veru er heilabilun einkennalýsing frekar en sjúkdómur í sjálfu sér en er yfirheiti á sjúkdómum í heilanum.

Einkennist af:

Afturför á vitrænni getu

Minnisskerðingu

Færnistapi

(WHO, 2023)

Einkennin þróast mishratt og er það afar einstaklingsbundið. Með tímanum stigvaxa þessi einkenni og hægt er að skilgreina þau sem:

Væg

Miðlungs alvarleg

Alvarleg heilabilun

(Heilbrigðisráðuneytið, 2020)

Einkenni sem benda til heilabilunar:

Minnisörðugleikar

Hlutir á röngum stöðum

Skert áttun

Erfiðleikar með daglegar athafnir

Skert dómgreind

Vandkvæði með óhlutbundna hugsun

Erfiðleikar með tjáningu

Breytingar á skapi og hegðun

Skortur á frumkvæði

Persónuleikabreytingar

(Landspítali, 2004)

Ýmsar orsakir geta verið fyrir heilabilun líkt og sjúkdómar, heilaáföll eða heilaskaði eftir áverka eða slys en algengast eru taugahrörnunarsjúkdómar sem hafa í för með sér blóðrásartruflanir til heilans (Hugo og Ganguli, 2014).

Algengar orsakir heilabilunar:

Langalgengasti sjúkdómurinn er Alzheimer

Heilahrörnunarsjúkdómur

Orsök í um 60-80% tilfella fólks sem greinist með heilabilun (Alzheimer's Association, 2023)

Lewy body

Næst algengasti heilahrörnunar- sjúkdómurinn

Framheilabilun

Hrörnun í framhluta heilans

(Heilbrigðisráðuneytið, 2020)

Tíðni fólks með heilabilun á heimsvísu

5% á aldrinum 65-74 ára

13% á aldrinum 75-84 ára

33% á aldrinum 85-100 ára

(Alzheimer's Association, 2023)

Inngangur
Í þessu verkefni munum við segja frá klemmusögu milli skjólstæðings og fagaðila útfrá raunverulegu dæmi hópmeðlims. Við förum yfir söguna, notum aðstæðugreiningu og skoðum samskipti og tengsl milli Jónasar og Söru þar sem við nefnum nokkrar leiðir sem snúa að færni og samskiptatækni sem geta hjálpað til við úrlausn málsins.

Ákveðið var að fjalla um þetta mál þar sem það er gott dæmi um klemmu sem fagaðili getur lent í en það  getur verið flókið að tækla slíkar aðstæður þrátt fyrir þjálfun í samskiptatækni og þekkingu á aðstæðum skjólstæðings.

Lokaorð
Það sem við lærðum mest við gerð verkefnisins var hversu merkilegt það er að hugsa út í alla þá þætti sem viðkoma einu atviki í samskiptum. Það þarf að hugsa vel út í hvernig ákveðnar flækjur eru tæklaðar og hafa í huga mögulegar skerðingar hjá einstaklingnum. Í þessu tilfelli var það einstaklingur með heilabilun sem tekin var fyrir og er það skerðing sem hefur mikil áhrif á getu einstaklingsins í samskiptum og færni til að sjá aðstæður á skýran hátt. Það má sjá hvernig fagaðilinn beitir góðum aðferðum og hefur það í huga spor einstaklingsins.

Klemmusaga
Jónas er eldri maður sem býr einn og hefur færni og geta hans minnkað vegna heilabilunar. Hann er óáttaður á stað og stund en er annars líkamlega hraustur og rólegur maður að eðlisfari. Aðdragandi atviksins var þannig að Sara, fagaðili á vegum heimhjúkrunar, fer heim til Jónasar í vitjun til að gefa honum morgunlyf, augndropa og aðstoða hann í teygjusokka líkt og er gert daglega en hann fær heimahjúkrun kvölds og morgna alla daga. Þegar því er lokið spjalla þau um daginn og veginn og Jónas spyr hvort Sara eigi þennan flotta bíl sem hann sér útum gluggann hjá sér en þetta var vinnubíll Söru og spáði Jónas mikið í hann. Þegar vitjun er lokið fylgir Jónas Söru til dyra og sér bílinn aftur og vill fara með Söru í bílinn. Sara segir að það sé því miður ekki hægt þar sem hún er í vinnunni og þurfi að fara í næstu vitjun. Jónas skilur það ekki og snöggreiðist, hann spyr afhverju hann megi það ekki og verður mjög æstur. Sara reynir aftur að útskýra aðstæður fyrir honum á meðan hún reynir að halda ró sinni en Jónas lemur í vegginn á húsinu og stappar niður fætinum af reiði. Hann heldur áfram að reyna komast með og öskrar af reiði. Á þessum tímapunkti verður Sara frekar hrædd þar sem hún hefur ekki lent í þessu áður með Jónas og var ekki undirbúin fyrir þetta, hún getur þó ekki hlupið í burtu þar sem hún er fagaðili og veit að Jónas skilur ekki aðstæður vegna heilabilunar. Hún stendur frekar nálægt honum og talar við hann rólega og reynir að afvegaleiða hann með því að tala um eitthvað annað en er tilbúin að forða sér ef Jónas mun beita hana ofbeldi.

Aðstæðugreining og álitamál
Jónas er með heilabilun og gerir sér þar af leiðandi ekki fulla grein fyrir raunverulegum aðstæðum. Honum finnst það sjálfsagt mál að fá að fara með Söru í bílinn vegna þess hann sér ekki út fyrir sínar langanir vegna skertrar dómgreindar og það eina sem hann er að hugsa er að þetta er flottur bíll og ekkert ætti að hindra það að hann megi setjast upp í hann. Það er einnig ástæðan fyrir því að Jónas verður reiður, hann skilur ekki afhverju það er verið að banna honum eitthvað sem honum langar og þó að Sara sé á fullu að reyna útskýra fyrir honum aðstæðurnar þá nær hann ekki utan um upplýsingarnar sem hún er að veita honum. Sara tæklar aðstæðurnar vel og með mikilli ró þrátt fyrir að hafa aldrei lent í slíku áður. Hún stendur á sínu og lætur óttann ekki slá sig út af laginu sem er mjög fagmannlega gert. Að mæta reiði Jónasar með yfirvegun var mun hjálplegra fyrir bæði Jónas og Söru sjálfa í þessum aðstæðum. Ef Sara hefði leyft óttanum að taka yfir, hlupið í burtu eða jafnvel orðið reið sjálf, hefði farið illa fyrir þeim báðum, Jónas hefði verið skilin eftir og ringlaður og Sara ekki lært jafn mikið sem fagaðili. Þetta er fullkomið dæmi um flækju þar sem fagaðili þarf að beita samskiptahæfni sinni og fræðslu til þess að geta mætt skjólstæðingi á uppbyggilegan hátt. (Carol og Gina, 2016)

Heimildaskrá
Alzheimer’s Association. 2023 Alzheimer’s Disease Facts and Figures.

Alzheimers Dement 2023, 19(4), 1598-1695. https://doi.org/10.1002/alz.13016

Carol M. Davis, Gina Maria Musolino. (2016). Patient Practitioner Interaction. SLACK incorporated.

Heilbrigðisráðuneytið. (2020, apríl). Málefni einstaklinga með heilabilun. https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Stefnumótun%20í%20málefnum%20einstaklinga%20með%20heilabilun%20(3)frá%20JSuppsetningGEMEGE080420.pdf

Hugo, J. og Ganguli, M. (2014). Dementia and cognitive impairment:

epidemiology, diagnosis, and treatment. Clinics in geriatric

medicine, 30(3), 421–442. https://doi.org/10.1016/j.cger.2014.04.001

Landspítali. (2004, janúar). Heilabilun: 10 vísbendingar. https://www.landspitali.is/library/Sameiginlegar-skrar/Gagnasafn/Sjuklingar-og-adstandendur/Sjuklingafraedsla---Upplysingarit/oldrun/heilabilun_10_visbendingar.pdf

World Health Organisation. (2023). Dementia. https://www.who.int/health-topics/dementia#tab=tab_1

BPSD
BPSD (e. Behaviour and Psychological Symptoms in Dementia) stendur fyrir atferlistruflanir og geðræn einkenni í heilabilun. Einkennin hafa áhrif á líðan og hegðun einstaklinganna sem glíma við heilabilun en geta oft verið tímabundin.

Einstaklingar með heilabilun geta sýnt:

Atferlistruflanir líkt og reiði, óróleika, ráf, hróp, köll og stundum ofbeldi.

Þessi einkenni geta verið meira áberandi hjá einstaklingum með langt komna heilabilun.

Geðræn einkenni líkt og þunglyndi, kvíða, svefntruflanir og ranghugmyndir.

Þessi einkenni eru meira áberandi hjá einstaklingum sem eru með væga heilabilun eða áður en hún greinist.

Þekking heilbrigðisstarfsfólks á einkennum og möguleikum á meðferð er afar mikilvægt til að ná góðum árangri (Heilbrigðisráðuneytið, 2020).