FUS - CAM, styrkleikagreining by Heiðdís Rós

Tilgangur verkefnis
Ólíkt þarfagreiningu þá snýst styrkleikagreining um samstarf við fólkið í samfélaginu til þess að kortleggja það sem er til staðar í samfélaginu með áherslu á hversu vel það nýtist þeim í stað þess að einblína á hvað vantar. Að kortleggja styrkleika samfélagsins getur verið valdeflandi og hvetjandi fyrir samfélagsþegna. Þá fæst betri yfirsýn yfir þjónustu og afþreyingu sem íbúar geta sótt í eða styrkt enn frekar (Burns, Paul og Paz, 2012).

Hægt er að virkja fólkið í samfélaginu, staði, fyrirtæki og stofnanir til að betrumbæta samfélagið sitt. Markmið styrkleikagreiningar er að mynda tengslanet milli allra þátta og safna saman verðmætum upplýsingum um samfélagið. Styrkleikagreining einblínir á það jákvæða og þá styrkleika sem samfélagið hefur upp á að bjóða og eflir tengslanet á milli mismunandi stofnanna og fyrirtækja innan bæjarfélagsins. Styrkleikagreining eflir samfélagsmeðlimi til að gera sér ljóst um hvernig er hægt að umbreyta samfélaginu og gefur þeim sjálfstraust til framkvæmdar. Samfélagsþegnar í styrkleikagreindu samfélagi eru hvattir til að leita lausna og bjargráða innan samfélagsins. Markmið styrkleikagreiningar er að fjalla ítarlega um þá styrkleika og auðlindir sem samfélagið býr yfir. Þær upplýsingar eru svo notaðar til að útbúa áætlun sem tengir faglærða samfélagsþegna og stofnanir við þá sem þurfa á sérkunnáttu þeirra að halda. (Goldman og Schmalz, 2005).

Tilgangur verkefnisins er að kortleggja styrkleika samfélagsins á Akranesi með áherslu á þjónustu við eldri borgara. Við völdum þennan hóp vegna þess að þetta er ákveðinn minnihlutahópur í samfélaginu (McNamara, 2019). Þau eru uppfullt af reynslu og hafa frá mörgu að segja. Við vildum skoða hvaða styrkleika þau tiltaka í umhverfi sínu. Það veitir tækifæri til þess að koma auga á hluti sem hægt er að bæta og skapa ráðrúm að leiðum sem stuðla að bættu samfélagi, farsælli öldrun og betri félagslegri stöðu eldri borgara (Burns, Paul og Paz, 2012). Rannsóknarspurningin sem setjum fram og hyggjumst svara er sú: Telja eldri borgarar á Akranesi að samfélagið hugi vel að þjónustuþörf eldri borgara?

Framkvæmd verkefnis
Vinna okkar hófst á því að við höfðum samband við Félag eldri borgara á Akranesi (e.d.) með því að senda tölvupóst í gegnum heimasíðu þeirra. Þar óskuðum við eftir samvinnu við félagið til þess að komast í samband við félagsmeðlimi til að fá að taka rýnihópaviðtal. Við kynntum okkur lauslega og lýstum tilgangi verkefnisins. Við fengum ekkert svar svo við brugðum á það ráð að óska eftir inngöngu á hóp þeirra á Facebook (e.d.). Við vorum samþykktar í hópinn og í kjölfarið auglýstum við eftir þátttakendum. Fjórar konur og tveir karlmenn höfðu samband við okkur og voru áhugasöm um að taka þátt í verkefninu okkar. Við mæltum okkur mót á bókasafni Akraness þar sem við hittumst nokkrum dögum síðar og tókum viðtal við hópinn. Við byrjuðum umræðuna á því að kynna okkur betur og segja þeim nánar út á hvað þetta rýnihópaviðtal snérist. Síðan fórum við hringinn og báðum alla um að kynna sig. Við vildum komast að því hver og hvaðan þau væru áður en við byrjuðum að greina umhverfið þeirra. Þau voru spennt fyrir samtalinu og voru tilbúin að veita okkur þær upplýsingar sem við þurftum. Þegar við tókum eftir að fólkinu var farið að líða vel, verða afslappaðri og aðeins búið að kynnast okkur byrjuðum við að spyrja spurningana sem við vorum búnar að undirbúa til að draga fram þau svör sem við vorum að leitast eftir (Fylgiskjal 1).

Í aðdraganda fundarins var búið að kortleggja þjónustu, verslanir, veitingastaði og kaffihús ásamt afþreyingu og útivist innan landamæra sem lagt var upp með. Ekki var kortlögð þjónusta sem heyrir til barna, líkt og leikskólar, grunnskólar og leikvellir. Sjónræn kortlagning var gerð með því að merkja inn á yfirlitsmynd á heimasíðu Loftmynda ehf. (e.d.). Ásamt því nýttum við okkur upptalningu á þjónustu og afþreyingu inn á leit.is (e.d.) til þess að fá sem besta yfirsýn yfir það sem stendur til boða. Fyrirfram var ákveðið að ein úr okkar verkefnahópi myndi spyrja spurninganna, önnur myndi punkta hjá sér svör og sú þriðja myndi fylgjast með líkamstjáningu rýnihópsins. Það reyndist góð ákvörðun því sú sem fylgdist með tók eftir svipbrigðum þegar fólk hafði eitthvað að segja en tók ekki til máls fyrr en hún spurði eftir þeirra áliti.

Samantekt
Helstu styrkleikar bæjarfélagsins að mati viðmælanda er að Akranes er lítið samfélag en þar er allt til alls í formi þjónustu. Flestir þurfa ekki að sækja daglega þjónustu utan bæjarins. Undantekning á því er þó heimsóknir til sérfræðilækna og verslunar- og innkaupaferðir í stærri búðir og verslunarmiðstöðvar. Þá má nefna Costco, Rúmfatalagerinn, Kringluna og Smáralind.

Öll eru þau virk í félagsstarfi eldri borgara og þykir þeim það mikilvægur partur af velferð þeirra. En þeir eldri borgarar sem taka þátt í félagsstarfi eru ólíklegri til að finna fyrir þunglyndi eða leiða (Cobb, 1976).

Við vorum með rýnihópaviðtölin á bókasafninu og fórum því að ræða starfsemina á bókasafninu við viðmælendur. Flestir sækja sér einhverja þjónustu á bókasafnið, sumir fara með barnabörnunum og aðrir í ljósmyndagreininguna þar sem þau skoða gamlar ljósmyndir (Bókasafn Akraness, e.d.). Öll voru þau sammála um að starfsemi bókasafnsins sé mikill styrkur fyrir menningu og þjónustu bæjarins.

Aðrir styrkleikar bæjarfélagsins eru fjölbreytt útivistarsvæði, strendur, græn svæði og skógarlendi. Þó svo að einhverjir viðmælendur okkar sæki sérfræðiþjónustu lækna á höfuðborgarsvæðið þá er heilbrigðisþjónustan góð, enda eru höfuðstöðvar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi (Heilbrigðisstofnun Vesturlands, e.d.).

Okkur fannst einnig mikill kostur, að stutt er í alla þjónustu og afþreyingu. Vegalengdir eru ekki langar og frítt er í þann strætó sem keyrir innanbæjar.

Þegar við ræddum umbætur í bæjarfélaginu sögðu viðmælendur að helst væri það að þurfa að fara í höfuðborgina til sérfræðilækna, þau töluðu einnig um hvað það sé leiðinlegt að sjálfstæðar búðir væru að hverfa þar sem unga fólkið gerir sér frekar ferð til stór-Reykjavíkursvæðisins í stað þess að versla í heimabyggð. Einnig tjáðu þau okkur um það að snjómokstri væri ábótavant, erfitt væri að nota útisvæðin á veturna auk þess að gangstéttir væru helst einungis ruddar miðsvæðis í bænum. Nokkrum þótti slæmt að það væri einungis ein byggingavöruverslun á svæðinu í dag en áður fyrr voru þær tvær.

Miðað við þessar niðurstöður mættu bæjaryfirvöld veita meira fjármagni í viðhald gönguleiða og útisvæða yfir vetrartímann, í hálkuvarnir og snjómokstur.

Hægt væri að setja af stað verkefni sem myndi leggja áherslu á að það sé fólkið í samfélaginu sem beri ábyrgð á að halda verslunum í bæjarfélaginu gangandi. Markmið verkefnisins væri að hvetja fólk að versla í heimabyggð. Með þessu þyrftu verslunarrekendur að taka höndum saman og passa upp á vöruúrval og að þær vörur sem fólk sækir í séu til í verslunum.

Það sem okkur fannst markverðast í samfélaginu er hvað mikið er um íþróttamannvirki, útisvæði og almenna heilsueflingu. Tveir viðmælendur töluðu um að þau sæki heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri. En það er verkefni sem bærinn stendur fyrir og fór af stað síðastliðið haust. Heilsueflingin fer fram í öðru íþróttahúsinu og úti við fimm sinnum í viku og er þátttakendum að kostnaðarlausu (Akraneskaupstaður, 2019). Þessi umræða þótti okkur góður punktur um hvernig styrkleikagreining geti afhjúpað áður týnda styrkleika sem geti bætt tilraunir samfélagsins til heilsueflingar (Goldman og Schmalz, 2005). En nokkrir úr hópnum vissu ekki af þessu verkefni en leist vel á að prófa að mæta.

Það sem kom í ljós að er mikið af í bæjarfélaginu sem eldri borgarar virðast ekki nýta sér eru skyndibitastaðir og mikið framboð hárgreiðslu- og snyrtistofa. Flestir viðmælendur höfðu orð á því að þykja gott að búa í nálægð við sveitina, þangað eiga sum þeirra rætur að rekja. Að þeirra sögn er mikill kostur að stutt sé að fara til að komast í ósnerta náttúruna. Það kom okkur á óvart að báðir karlkyns viðmælendur okkar sæki báðir í útivist og félagslegt samneyti utan þéttbýlisins og utan þeirra landamæramarka sem við höfðum sett. Þetta voru nýjar upplýsingar sem við höfðum ekki gert ráð fyrir. Annar viðmælandinn er meðlimur í Skógræktarfélagi Akraness. Félagið er með tvö skógræktarsvæði, annað í útjaðri bæjarins og hitt í hlíðum Akrafjalls (Skógræktarfélag Íslands, e.d.). Við gátum vel greint það frá líkamsbeitingu og frásögn hans að það starf styrkti hann andlega og félagslega. Að upplifa það að tilheyra samfélagi og taka þátt í þýðingarmikillri iðju ýtir undir vellíðan og veitir fólki ákveðin tilgang og reglufestu í sitt daglega líf (Gallagher, Muldoon og Pettigrew, 2015).

Við tókum eftir því að viðmælendur okkar voru almennt mjög jákvæðir í garð heimabæjar síns og þeirrar þjónustu sem þeim stendur þar til boða. Það er mjög í takt við niðurstöður rannsóknar McNamara (2019). Þar kemur fram að sú vitneskja sem eldri borgarar hafa um þjónustu samfélagsins sem beint er að eldri borgurum sé í takt við vitneskju þeirra sem tilheyra ekki þeirra hópi. En þó eigi eldri borgarar það til að virða styrkleika samfélags síns mikils. Þessar niðurstöður svara því rannsóknarspurningu okkar, eldri borgarar á Akranesi telja að samfélagið hugi vel að þjónustuþörf þeirra.

Heimildaskrá
Akraneskaupstaður. (2019). Heilsuefling 60 ára og eldri. Sótt af https://www.akranes.is/is/frettir/heilsuefling-60-ara-og-eldri

Bókasafn Akraness. (e.d.). Sótt af https://bokasafn.akranes.is/

Burns, J., C., Paul, D., P. og Paz, S., R. (Bonilla, T., Cooke, D. og Farris, T. ritstjórar). (2012). Participatory Asset Mapping: a community research lab toolkit. Los Angeles: Advancement Project – Healthy City

Cobb, S. (1976). Social support as a moderator of life stress. Psychosomatic Medicine, 38(5), 300-314. doi:10.1097/00006842-197609000-00003

Facebook. (e.d.). Feban: Félag eldri borgara á Akranesi og nágrenni. Sótt af https://www.facebook.com/groups/822321771206679/

Félag eldri borgara á Akranesi. (e.d.). Sótt af http://feban.is/

Gallagher, M., Muldoon, O. T. og Pettigrew, J. (2015). An integrative review of social and occupational factors influencing health and wellbeing. Psychology for Clinical Settings. doi:10.3389/fpsyg.2015.01281

Goldman, K., D. og Schmalz, K., J. (2005). “Accentuate the Positive!”: Using an Asset-Mapping Tool as Part of a Community-Health Needs Assessment. Health Promotion Practice, 6(2), 125-128. doi:10.1177/1524839904273344

Heilbrigðisstofnun Vesturlands. (e.d.). Forsíða. Sótt af https://www.hve.is/

Leit.is. (e.d.). Sótt af http://leit.is/

Loftmyndir ehf. (e.d.). Sótt af http://map.is/base/@352721,427447,z6,0

McNamara, A. A. (2019). Community engagement and subgroup meta-knowledge: some factors in the soul of a community. Computational Statistics, 34(4), 1511-1535. Sótt af https://link.springer.com/article/10.1007/s00180-019-00879-x

Skógræktarfélag Íslands. (e.d.). Skógræktarfélag Akraness. Sótt af http://www.skog.is/skograektarfelag-akraness/

Viðaukar

Niðurstöður
Hér má sjá yfirlitsmynd af Akranesi og útlínur þess svæðis sem kannað var.

Við kortleggjum - Afþreying og útivist
Á þessu korti má sjá söfn, íþróttamannvirki og sundlaugar, félagsstarf og þekkt útivistarsvæði

Bókasafn

Byggðasafn

Sex íþróttamannvirki, þar af tvær sundlaugar

Félagsstarf eldri borgara

Safnaðarheimili

Bíóhús

Golfvöllur

Ellefu útivistarsvæði, þar af hundasvæði og tvær skógræktir

Hópur kortleggur - Afþreying og útivist
Hér má sjá

Fjögur útivistasvæði, þar af þrjár Skógræktir

Fjárhús

Tvö Félagsstörf eldri borgara

Ein Sundlaug

Bókasafn

Tónleikahús

Safnaðarheimili

Kirkja

Bíóhús

Skógræktarfélag

Við kortleggjum - Veitingastaðir og kaffihús
Hér má sjá

Tveir veitingastaðir

Fjöfur kaffihús

Sjö skyndibitastaðir

Hópur kortleggur - Veitingastaðir og kaffihús
Hér má sjá

Þrjú kaffihús

Tveir veitingastaðir

Þrír skyndibitastaður

Við kortleggjum - Verslanir
Hér má sjá

Fimm matvöruverlsanir

Tvö apótek

Vínbúð

Nytjamarkaður

Fjórar bensínstöðvar

Tvær raftækjaverslanir

Fjórar fataverslanir

Handavinnubúð

Gæludýraverslun

Hópur kortleggur - Verslanir
Hér má sjá

Fjórar matvöruverslanir

Tvö apótek

Vínbúð

Nytjamarkaður

Handavinnubúð

Fatabúð

Við kortleggjum - Þjónusta
Hér má sjá

Bókasafn

Tveir bankar

Tónleikahús

SJúkrahús og heilsugæsla

Tvær tannlæknastofur

Pósthús

Fimm verkstæði

Tíu hárgreiðslu- og snyrtistofur

Nudd og sjúkraþjálfun

Kirkja

Tvö tryggingafélög

Hópur kortleggur - Þjónusta
Hér má sjá

Tvær tannlæknastofur

Sjúkrahús og heilsugærsla

Bókasafn

Byggingavöruverslun

Fjögur verkstæði

Tveir bankar

Fjórar hárgreiðslu- og snyrtistofur

Pósthúsið

Fylgiskjal 1
Viðtalsrammi

Hvað finnst ykkur gott við að búa á Akranesi?

Dettur ykkur í hug einhverjir styrkleikar sem Akranes býr yfir?

Hvert farið þið til að kaupa í matinn/sækja lyf/læknisþjónustu

Hvert farið þið til að njóta afþreyingar? - Geturðu sagt mér nánar frá því?

Hvar leitið þið upplýsinga um verktaka/iðnararmenn (fyrir bílinn, heimilið..)

Hvert farið þið til að hitta annað fólk og eiga í félagslegt samneyti?

Eru þið í einhverju hópum sem hittast reglulega?

Hvert farið þið til að njóta útivistar? - Segðu mér meir frá því.

Dettur ykkur eitthvað í hug sem þið hafið til að bjóða samfélaginu, ykkar styrkleikar?

Þekkið þið einhvern sem býr yfir styrkleikum sem þið nýtið ykkur? Hvernig þá?

Dettur ykkur einhver starfsemi í hug sem ykkur þykir styrkja samfélagið?

Fylgiskjal 2
Styrkleikalisti

Apótek x 2

Bankar x 2

Bensínstöðvar x 4

Bíóhús

Bókasafn

Byggðasafn

Byggingavöruverslun

Fataverslanir x 4

Félagsstarf eldri borgara

Fríar strætóferðir innanbæjar

Gæludýraverslun

Golfvöllur

Handavinnubúð

Hárgreiðslu- og snyrtistofur x 10

Íþróttamannvirki x 6, þar af tvær sundlaugar

Kaffihús x 3

Kirkja

Matvöruverslanir x 5

Nudd og sjúkraþjálfun

Nytjamarkaður

Pósthús

Raftækjaverslanir x 2

Safnaðarheimili

Sjúkrahús og heilsugæsla

Skyndibitastaðir x 8

Tannlæknastofur x 2

Tónleikahús

Tryggingafélög x2

Útivistarsvæði x 11 þar af eitt hundasvæði og tvær skógræktir

Veitingastaðir x 2

Verkstæði x 5

Vínbúð