Bókmenntir, sjálfsmyndir og menning by Rannveig Klara Guðmundsdóttir - HI

Sjálfsmynd
Hvað ætli skuli einkenna mig sem manneskju? Hvað liggur á bakvið mína eigin sjálfsmynd? Ég held að ég hafi aldrei lagt mikla hugsun í þetta. Ég er bara eins og ég er. Ég hafði ekki endilega spáð í áhrifaþáttum á mína eigin sjálfsmynd. Jújú ég er alveg meðvituð um samfélagslega útlitspressu og slíkt og ég ætla ekkert að fara ljúga að því að slíkt hafi aldrei haft nein áhrif á mig. Alls ekki, þetta hafði jú áhrif á mig sem krakki og unglingur þegar bókstaflega allt hafði áhrif á mína líðan. Við gerðum æfingu í tíma þar sem við röðuðum upp 5 hlutum sem einkennir okkur hvað mest. Ég ætla setja inn myndir af þessum 5 hlutum sem ég skrifaði og ætla leyfa þér að giska hvaða mynd táknar hvað :D

Salka elsku Salka
Ég kynntist fyrst Sölku Völku í MR. Þá fengum við að velja á milli þess að lesa Sjálfstætt fólk og Sölku Völku. Ég man að ég valdi Sölku bara vegna þess að mér finnst Salka vera svo fallegt nafn. Ég á æskuvinkonu sem heitir Salka sem mér þykir mjög vænt um svo það litar smá álit mitt.

Salka Valka er frábær bók, hún kom mér á óvart í MR og kom mér ennþá meira á óvar núna þegar ég fæ að lesa hana með aðeins þroskaðri hug en í MR. Salka sem persóna er svo gífurlega skemmtileg gella. Ég sé smá af sjálfri mér í henni, þrjósk, úrræðagóð og vinur vina sinna. Þetta er þó auðvitað ekki eina sem einkennir hana Sölku mína og fannst mér gaman að pæla í henni og öðrum persónum út frá þeim sjálfsmyndarþáttum sem við erum búin að vera pæla í í þessari lotu. Ég reyndar viðurkenni að ég sá ekki ótrúlega mikið af þjóðerni í Sölku sjálfri en sögusvið bókarinnar og atriði í henni bæta upp fyrir það. Það sem maður tekur auðvitað mest eftir er stéttaskipting og trúin. Ég sé samt trúnna sem ákveðin vondan kall í sögunni. Það er kannski smá skrítið að segja það, en mér finnst herinn og sá boðskapur sem þau halda mest upp vera svo yfirborðskennt. Mér finnst þau vera nýta sér veikburða samfélag og vera að draga þau á asnaeyrunum. En það er kannski bara ég hahah.

Vá líka annað sem ég hafði pælt í áður voru þessi tákn sem Jón Yngvi talaði um. Eða þúst jú auðvitað hafði ég tekið eftir fuglinum. En hlutum eins og flæðarmálið hafði ég ekkert pælt í. Ætli mig skorti ekki bókmenntafræðigráðuna sem Jón hefur haha.

Það sem einkennir Sölku Völku að mínu mati eru samböndin sem birtast í henni. Sambönd Sölku við mömmu sína, við Arnald, við Steinþór og eiginlega samband hennar við Óseyri í heild. Þetta eru svo allt öðruvísi sambönd sem sýna okkur svo margar hliðir á henni Sölku, sem ég elska. Karakterar í bókum eiga það alveg til að verða frekar yfirborðskenndir en við fáum að sjá svo margsar hliðir á Sölku að manni líður að hún standi bara beint fyrir framan mann.

Ég ætla setja inn myndir af því sem ég held að Salka gæti litið út og hvernig Óseyri er í hausnum á mér. Ég notaðist við Dall-e gervigreind til þess að hjálpa mér.

Salka skv. Dall-e
Ég skrifaði þetta inn í gervigreindina: A realistic picture of a 13-16 year old girl. She is Icelandic. She has dark messy hair. She has bright green or blue eyes. She has a scowl on her face. She is a little bit dirty but very beautiful.

Óseyri skv. Dall-e
Ég skrifaði þetta inn í gervigreindina: A small Icelandic fishing town village in the 19th century on a grey rainy day. Birds eye view

Smáar sögur með stórt hjarta
Í þessari lotu lásum við 5 smásögur. Ég ætla bara að byrja að segja að ég elska smásögur. Þetta er held ég eitt af mínum uppáhaldssagnaformum. Það er hægt að gera svo mikið í svo litlu plássi og mér finnst það svo magnað. En já ég ætla fara yfir þær allar nema ég ætla reyna gera það í einni setningu. Ég fylgist stundum með redditþræði sem heitir One Sentence Horror Stories. eða r/onesentencehorror. Mér finnst skemmtilegt hvað hægt er að gera með fáum orðum. Eins og má sjá í sögunum sem við lásum núna.

Réttur - Halldór Stefánsson.
Lykilinnihaldsefni í uppskrift að íslensku sjávarþorpi er súrt auðvaldsepli sem gamall kall neitar að bíta í.

Fyrnist yfir allt - Svava Jakobs
Týnd telpa, föst milli steins og sleggju, eða eins og ég kýs að kalla það, ameríku og íslands.

Infernó - Gyrðir Elíasson
Þriðja vaktin er að þurfa að pína manninn sinn að fara með sér í IKEA.

Matmálstími - Kristín Marja Baldursdóttir
Stundum er betra að þegja ef maður hefur ekkert gott að segja.

Ljósakrónan - Fríða Ísberg
Týpíska mamman í vesturbænum sem hatar tengdadóttur sína meira en hún hatar einkabílinn.

Sko ég verð samt að fá að segja að ég sá ekki endilega sjálfsmyndarþættina sem Jón Yngvi tengir við hverja og eina sögu. Ég sé t.d. ekkert endilega hvað búseta hefur með málið að gera í Matmálstíma og Ljósakrónunni. En það er kannski bara ég.

Nútímaljóð
Okei, ég elska nútímaljóð eins og hvert annað ung kvenkyns bókmenntanörd, já ég held að kvk og jafnvel kynsegin bókmenntanördar seú líklegri til þess að elska nútímaljóð heldur en kk. Þetta er einhver steríótýpa í hausnum á mér. Strákar elska að halda í hefðirnar því þær eru oft taldar æðri og betri og flottari. En stelpur og kvárar elska allt svona nýtt og flott og spennandi og æðislegt hahaha. Skemmtilegt svona hugmyndir okkar um kyn og kynjahlutverk. Mætti halda að ljóðin sem við lásum fjölluðu um eitthvað slíkt :o

En allavegana. Ég elska nútímaljóð EN mér finnst sum ganga of langt og oftar en ekki mistakast harkalega. Ég er ekki að segja að ljóðin sem við vorum að lesa núna falli undir þetta. En sum eru hins vegar á mörkunum. Ljóðin hennar Eydísar t.d.. Þau eru mjög flott og vel heppnuð svona stutt ljóð sem segja mikið, smá svona eins og twitter statusar. Æj svona ljóð finnst mér samt svo of notuð og smá tískubóla sem ég á erfitt með.

En ég sko elska elska elska elska ljóðin hennar Ingunnar Snædal. Þau eru svo laumulega rómantísk en á sama tíma alls ekkert laumuleg. Þetta er smá svona ég er ekki rosa mikið að auglýsa ást mína á annarri konu en ég elska hana samt mikið og ég skammast mín ekkert fyrir það.

Slam poetry - Ljóðaslamm
Þegar ég var yngri elskaði ég að horfa á slam poetry á youtube. Þau áttu það öll sameiginlegt að þetta voru ofur feminískar reiðar stelpur að tala um hvað það er erfitt að vera stelpa. 12-15 ára ég gjörsamlega LAPTI það upp. Ég held að þetta hafi alveg mótað mig sem manneskju. Ég myndi segja að ég væri ofurfeminísti og algjörlega gegn hvers konar fordómum, og ég ángrins held að hluti af því sé vegna þessara myndbanda sem ég horfði á sem unglingur. Ljóðin hennar Kristínu Svövu eru smá í þessum dúr sérstaklega ljóðið Stelpur. Þetta minnir mig á svona ljóðaslamm myndband eða skrekksatriði. Það er notabene ekki neitt diss, ég elska skrekksatriði.
Ætla að setja inn nokkur uppáhalds slam poetry hér fyrir neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=cPG6nJRJeWQ

Ljósa
Okei ætla vera fullkomnlega hreinskilin en mér fannst Ljósa svo leiðinleg bók hahaha. Ég átti smá erfitt að komast í gegnum hana. Hún er ótrúlega vel skrifuð og mjög flott bók en ég átti bara erfitt með að týna mér í henni. Mér finnst mjög töff hvernig Kristín nýtir 2.p frásögn í gegnum bókina og er þetta ekki mjög algeng sjón og finnst skemmtilegt hvernig hún leikur sér með það, en ég átti svo erfitt með þessa bók.

Birtingamynd geðsjúkdóma í þessari bók er svakaleg. Mér finnst kúl hvernig það er svona óvitað í byrjun að Ljósa sé lasin. Maður einhvernvegin sér ekki geðveikina í henni fyrr en það fera að líða á hana. Aðstæðurnar sem fólk þurfti að lifa við á þessum tímum voru hörmulegar og ógeðslegar og var mjög erfitt að lesa lýsingar á þessu í bókinni.

En já svakalega átakanleg bók, mjög vel skrifuð en vá

Mamma Klikk
ÉG ELSKA BARNABÆKUR.

Þau sem segja að barnabækur séu ekki alvöru bókmenntir mega hoppa þangað sem sólin skín ekki. Okei þetta var kannski full langt gengið en ég bara elska barnabækur. Gunni Helga er líka meistari meistaranna þegar kemur að skrifa barnabækur. Vá hann er svo skemmtilegur og persónurnar hans gjörsamlega lifna við á blaðsíðunum fyrir framan mann. Mér leið stundum bara eins og ég væri Stella.

Í mömmu klikk birtist aftur þetta stílbragð (?) veit ekki hvað ég á að kalla þetta, að fela mikilvægar upplýsingar frá lesanda og leyfa honum svolítið að fatta þetta sjálfur. Fötlunin hennar Stellu verður manni ekki augljós fyrr en seinna í bókinni. Sem mér finnst mjög fallegt og sýnir manni sem lesanda að fötlunin skilgreinir Stellu alls ekki sem persónu og er í raun aukaatriði.

Ég elska líka hvað Gunni er með fjölbreytta flóru af persónum í bókunum sínum. Eins og vinkonur Stellu sem eru sumar af erlendum uppruna eða iðka aðra trú en kristni. Finnst fallegt hvað hann nær að endurspegla raunveruleika barna vel í bókunum sínum. Fjölmenning á Íslandi er alltaf að aukast og mun halda áfram. Sem er frábær hlutur og oft skortir þessa lýsingu á fjölmenningu í bókum, sérstaklegsa barnabókum og því finnst mér mikilvægt að Gunni gerir það í sínum bókum.

Hver er ég núna?
Sko ég viðurkenni að mér finnst ég ekkert ósvipuð þeirri Rannveigu sem hóf þetta námskeið í janúar og þeirri Rannveigu semsitur og skrifar þetta í apríl. Námskeiðið breytti ekki beint mér en það kannski breytti sjónarhorni mínu aðeins. Ég tek frekar eftir öðrum áhrifaþáttum á fólk bæði í bókum og í kringum mig. Ég tók t.d. ekki eftir stéttamuninum á milli mín og kærasta míns fyrr en við vorum að tala um stéttir í námskeiðinu.

Allt í allt fannst mér þetta skemmtilegt námskeið og fannst gaman að skoða bókmenntir út frá sjálfsmynd, eitthvað sem ég hafði ekki pælt í áður og hefði mögulega ekki pælt í ef það væri ekki fyrir þetta námskeið haha.

Takk fyrir mig kæri Jón, sjáumst síðar :D