Gosi spýtustrákur og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna by Bryndís María Olsen

Viðfangsefni 1
Sagan af Gosa er lesin fyrir nemendur. Athugið að lesa þarf bókina í hlutum og þar sem þetta er gömul saga þá þarf að vinna með orðaforða hennar jafnóðum. Kennari annaðhvort les bókina eða endursegir hana.

Hæfniviðmið: Hlustað með athygli og greint frá upplifun sinni.

Viðfangsefni 2
Gert er ráð fyrir að nemendur þekki bekkjarfundi og þær verkreglur sem þar gilda.

Bekkjarfundur. Á þessum bekkjarfundi verður rætt um:

Hvað vitum við um réttindi okkar?

Hvað viljum við vita um réttindi?

Hvað eru réttindi?

Hvað eru forréttindi?

Af hverju eru réttindi mikilvæg?

Eru réttindi eða forréttindi að eiga síma, eða hjól, að fá að borða, að fá nammi, að leika sér...

Hver er munurinn á réttindum og forréttindum?

Hæfniviðmið: Borin kennsl á gildi, svo sem virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, umhyggju og sáttfýsi. Gert sér grein fyrir jafngildi sínu og annarra manna.

Viðfangsefni 3
Bekkjarfundur, upprifjun á réttindum og forréttindum.

Ritunarverkefni. Nemendur skrifa um réttindi og forréttindi.

Nemendur fá að velja sér hvernig þeir útfæra þetta ritunarverkefni því hafa skal í huga að nemendahópurinn er fjölbreyttur.  Boðið verður upp á ýmsar mismunandi útfærslur eftir því hvað hentar hverjum og einum eins og til dæmis, sögubók, spjaldtölva og myndræn útfærsla allt eftir getu og áhuga nemenda.

Hæfniviðmið: nemendur geta tjáð hugmyndir og skoðanir sínar í rituðu máli eða myndum.

Viðfangsefni 4
Bekkjarfundur: Á þessum bekkjarfundi verður rætt um:

Hvernig fjölskyldu átti Gosi?

Eru allar fjölskyldur eins?

Mismunandi fjölskylduform.

Ólíkir menningarheimar og aðbúnaður.

Hvaðan komum við? Kennari stjórnar umræðunum eftir samsetningu hópsins.

Vernd og öryggi.

Leikur: Hópstyrkingarleikurinn Keðjuleikurinn, sjá hér neðst:

Hæfniviðmið: Áttað sig á að fólk býr við ólík fjölskylduform, hefur ólíkan bakgrunn og ber virðingu fyrir mismunandi lífsviðhorfum og lífsháttum. Geta sagt frá sjálfum sér með hliðsjón af búsetu, uppruna, fjölskyldu, siðum og venjum. Tekið þátt í samstarfi og samræðu í jafningjahópi.

Viðfangsefni 5
Bekkjarfundur: Á þessum bekkjarfundi verður rætt um mikilvægi menntunar.

Upprifjun á því þegar Gosi fór til Undralands þar sem allt virðist svo flott, kemur í ljós að skortur á menntun leiðir til þrældóms…. þeir breytast í asna, kennari leiðir umræðurnar út í  28. grein barnasáttmálans um að öll börn eiga rétt til náms.

Föndur. Nemendur búa til Gosa brúðu úr endurvinnanlegu hráefni eins og t.d. morgunkornspökkum, klósettrúllum, efnisafgöngum,  lími, alls konar litum og málningu og öðru því sem þeim dettur í hug að nota. Höfuðið er búið til úr blöðru, dagblöðum og lími.

Hæfniviðmið: Að nemandinn geri sér grein fyrir hvar styrkur hans liggur.  Nemandinn ræði um réttindi sín og skyldur í nær samfélaginu og sýni ábyrgð í samskiptum við aðra og þekki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum.

Viðfangsefni 6
Bókin Barnabókin, bók sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins er lesin fyrir nemendur og þess gætt að þeir sjái ekki myndirnar í bókinni. Nemendur er svo paraðir saman með því að fara í  hópskiptileik með látbragði, sjá hér neðst:

Nemendur  fá A3 teiknipappír og ýmsar gerðir af litum. Síðan fá þeir textabrot úr bókinni sem þeir eiga að túlka á myndrænan hátt. Lögð er áhersla á að nemendur velji sér mismunandi liti til að vinna myndirnar sínar.  Myndirnar eru síðan hengdar upp á vegg ásamt textanum. Í lokin er bókin aftur lesin fyrir börnin og þá fá þau að sjá myndirnar eftir listamennina.

Hæfniviðmið: Hlusta af athygli. Geta skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum. Útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki.

Viðfangsefni 7
Undirbúningur fyrir bekkjarsáttmála.

Bekkjarfundur:

Gosi lýgur að sjálfum sér og bláu álfadísinni, hann lýgur til að vernda sjálfan sig. Stundum ljúgum við til að forðast einhverjar afleiðingar. Gosi þráði heitt að vera venjulegur strákur en hvernig einstaklingar viljum við vera?

Hvernig viljum við að aðrir sjái okkur?

Hvernig viljum við læra?

Hvernig líður okkur best í skólastofunni?

Unnið að bekkjarsáttmála. Nemendur koma með hugmyndir af sáttmálanum og kennari skrifar allar hugmyndirnar upp á töflu, þær eru síðan sameinaðar í nokkrar málsgreinar sem verður að lokum bekkjarsáttmáli.

Lögð er áhersla á að málgreinarnar í bekkjarsáttmálanum fjalli um það hvernig við viljum hafa skólaumhverfið okkar svo öllum líði vel.

Nemendur  búa til sjálfsmyndir í fyrir fram ákveðinni stærð, þeir búa til augu og hár úr pappírs- og garnafgöngum. Bekkjarsáttmálinn er límdur á pappaspjald eða málaðan maskínupappír og sjálfsmyndirnar límdar kringum hann.  Bekkjarsáttmálinn er hengdur upp á vegg.

Hæfniviðmið: Að nemendur geti sett sig í spor jafnaldra, taki þátt í samræðum og samstarfi í jafningjahóp, geti sett sér markmið og gert áætlanir við úrlausn verkefna, beri kennsl á gildi, svo sem virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, umhyggju og sáttfýsi.

Viðfangsefni 8
Bekkjarfundur: Upprifjun á Barnasáttmálanum.

Umræður um það hvernig við ætlum að kynna barnasáttmálann fyrir foreldrum.  Börnin semja málsgreinar út frá sáttmálanum sem verða skrifaðar á skilti. Hér eru hugmyndir af setningum.

Ég er barn með augu, hendur, rödd, hjarta og réttindi.

Ég hef rétt á að eiga nafn.

Ég hef rétt á að eiga fjölskyldu sem brosir til mín og land sem ég get kallað heimalandið mitt.

Ég hef rétt á að fá mat og vatn svo ég geti vaxið og þroskast.

Ég hef rétt á bestu læknisþjónustu sem er í boði ef ég veikist.

Ég hef rétt á að ganga í skóla án þess að borga, svo ég geti lært hvernig fuglar og flugvélar fljúga og frjókorn svífa.

Ég hef sömu réttindi hvort sem ég er strákur eða stelpa. Strákar og stelpur hafa rétt á að syngja sömu söngvana. Ég hef nákvæmlega sömu réttindi til að vera virt/ur hvort sem ég er hvít eða brún á hörund, lítil eða stór, rík eða fátæk, fædd hér á landi eða annarstaðar.

Ég hef rétt á að vera laus við hvers kyns ofbeldi. Og enginn hefur rétt á að misnota mig  bara út af því ég er barn. ENGINN!

Ég hef rétt á að ganga í skóla og neita að vinna. Ég mun velja starf þegar ég hef lært allt það sem mig langar að læra.

Ég hef rétt á að læra um vináttu, frið og virðingu fyrir jörðinni okkar, og  virðingu fyrir hverri einustu manneskju sem lifir á jörðinni, öllum dýrum og lífverum.

Ég hef rétt á öllum þessum réttindum bara út af því að ég er barn.

Ég vil að öll börn búi við réttindi Barnasáttmálans, hvar í heiminum sem þau eru.

Hæfniviðmið: Rætt um valin samfélagsleg og siðferðileg málefni. Áttað sig á gildi jafnréttis í daglegum samskiptum

Tillögur sóttar af:

Viðfangsefni 9
Undirbúningur fyrir samverustund.

Kynning á hópverkefnum, nemendur velja sér verkefni eftir því sem þeir vilja: Brúðuleikhús, dans, tónlist, sviðsmynd og skilti. Nemendur velja sér hóp með hjálp kennara. Kennari aðstoðar hópana eftir því sem þurfa þykir. Mikilvægt er að allir fái hlutverk eftir áhuga og styrkleika.

Nemendur semja handrit í samráði við kennara um söguna af Gosa fyrir brúðuleikhús. Nemendur búa til brúður úr pappa og líma grillpinna á bakhliðina til að stýra brúðunni. Búa til  Gosa, Láka gamla, köttinn Músa-Pétur,  Gullugga, Tuma engisprettu, álfadísina,  refinn Guðbjörn og köttinn Manga, Kára kónganef. Ekki þarf að gera allar persónurnar en það fer eftir því hversu ítarlegt handritið verður.

Búa til leiktjöld, hægt er að búa til svið með því að festa svart efni eða pappír á kústskaft og nemendur krjúpa þar á bak við. Einnig þarf að útbúa hvalinn og hvalsmagann ásamt annars konar bakgrunni eftir því sem vinnan við leiksýninguna þróast. Búa til skilti fyrir leiksýninguna, nota pappírsspjald og prik.

Búa til dans strengjabrúðanna.

Tónlist með ásláttarhljóðfærum.

Hæfniviðmið: Unnið eftir fyrirmælum og borin ábyrgð á eigin verkefnum og vinnubrögðum þegar við á. Unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar. Tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt. Gengið frá eftir vinnu sína.

Viðfangsefni 10
Undirbúningur og æfing fyrir samverustund.

Nemendur vinna í hópunum og æfa brúðuleikritið um Gosa með sviðsmynd, tónlist og dansi.  Tónlistarhópur æfir sig á ásláttarhljóðfærin. Danshópur æfir spor til túlkunar á líðan strengjabrúðanna í sirkusnum. Tónlistar og danshópur vinna saman og kennari aðstoðar. Sviðsmyndahópur stjórnar uppsetningu og færir til eftir þörfum. Brúðuleikhús um Gosa. Sagan er sögð í stuttu máli af sögumanni og  nemendur leika með brúðum. Í lokin er dans um sirkus atriðið þar sem danshópur dansar brúðudans og túlkar líðan strengjabrúðanna, tónlistarhópur sér um undirspil. Nemendur detta niður í lokin og ná í skilti á gólfinu sem þeir hafa útbúið. Nemendahópurinn raðar sér upp og les upphátt af skiltunum sínum, ýmist einn og einn, pör saman eða allir hópurinn.

Hæfniviðmið: Unnið eftir fyrirmælum og borin ábyrgð á eigin verkefnum og vinnubrögðum þegar við á. Unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar. Tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt. Gengið frá eftir vinnu sína.

Viðfangsefni 11
Samverustund með foreldrum.

Foreldrar koma með veitingar á sameiginlegt hlaðborð.

Tillaga að dagskrá:

Foreldrar boðnir velkomnir og athyli þeirra vakin á verkum nemenda á veggjum skólastofunnar.

Brúðuleikhús.

Danssýning.

Kynning á Barnasáttmálanum á skiltum.

Samverustund og kaffi.

Hæfniviðmið: Tekið virkan þátt í leikrænu ferli í hópi og sýnt skólasystkinum tillitssemi. Notað einfalda leikmuni og sviðsbúnað til að styðja við sköpun sína. Beitt einföldu formi leiklistar.

Viðfangsefni 12
Bekkjarfundur: Uppgjör

Hvað vitum við um Barnasáttmálann?

Er eitthvað sem við þurfum að fjalla betur um?

Hvað fannst ykkur vera mikilvægast í Barnasáttmálanum?

Hvernig finnst ykkur að sagan af Gosa tengist Barnasáttmálanum?

Er eitthvað í Barnasáttmálanum sem ykkur finnst Ísland ekki fara eftir?

Hvað lærðir þú af þessu verkefni?

Samverustund þar sem horft verður á Disney myndina um Gosa.