RVN - Hópur 11 by Ída Bjarnadóttir

Við ákváðum að vinna með yngsta stig í grunnskóla þar sem að okkar hópur er blandaður af leik- og grunnskólakennaranemum og fara þannig milliveginn og einblína á 1. og 2. bekk. Hæfniviðmiðin fyrir sjálfbærni eru því við lok 4.bekk. Við bjuggum til þrjú hæfniviðmið sem fjalla um eigin neyslu með tilliti til kolefnisspors síns og með það markmið að minnka það.

Endurnýting og sköpun
Nú styttist í öskudaginn og nemendur fá það verkefni að hanna gera sinn eiginn öskudagsbúning. Til að gera hann þurfa þau að endurnýta það sem til er. Heima eiga nemendur að finna til vefnaðarvöru og fleira sem hægt er að nýta, það þarf ekki að tengjast þeirra eigin búning. Í skólanum fá nemendur tækifæri til að sjá hvað hinir komu með og sjá hvort þeir geti nýtt eitthvað sem aðrir ætla ekki að nýta. Þeir fá tíma í saumastofu skólans til að vinna að þessu. Með þessu eiga nemendur að gera sér grein fyrir neyslu sinni og ekki þarf alltaf að kaupa nýtt. Endurnýting er góð leið til að minnka kolefnisspor sitt sem er gott fyrir náttúruna. Með þessu eflir nemandinn þekkingu sína á því hvað hann getur gert til að minnka kolefnisspor sitt.

Minni plastnotkun
Nemendur fá það verkefni að tína saman allt plast sem fellur til á heimilinu á þrem dögum. Þeir vinna svo með þetta mikla magn sem allir koma með og búa til einhvern skúlptúr úr því. Þetta verkefni á að vekja nemendur til umhugsunar um eigin neyslu/neyslu fjölskyldunnar á óþarfa plasti. En það hefur margoft sannast að ef plast berst í sjóinn þá hefur það slæm áhrif á lífríkið, oft sjáum við myndir af því, t.d. af skjaldböku sem hefur fest plast utan um skelina þegar hún var lítil en svo þegar skjaldbakan stækkar þá hefur plastið áhrif á vöxt skeljarinnar. Einnota plast er stærstur hluti þess rusl sem safnast saman í fjörum og því er gott að börn sjái með þessu að besta leiðin er að takast á við vandann strax með því að hindra að plast berist í hafið.  Með þessu lærir barnið að bera virðingu fyrir umhverfinu sínu. Gaman væri svo að þessi skúlptúr væri til sýnis á sýningu fyrir foreldra sem vonandi einnig vakna aðeins gagnvart eigin neyslu.

Minni matarsóun
Nemendur fá það verkefni að mynda hádegismatinn sinn í skólanum í eina viku. Mynd er tekin af disknum áður en barnið borðar og eftir að það hefur borðað, og þannig notar barnið upplýsingatæknina til að skrá myndrænt hvað það leyfir á hverjum degi. Verkefnið gæti haldið áfram með því að myndirnar eru prentaðar út, hengdar upp á ganginum til að vekja athygli á matarsóun og vekja aðra nemendur og kennara til umhugsunar. Þarna getur barnið tengt við að hegðun þess hafi áhrif á aðra, ef ég fæ mér meira en ég ætla að borða og hendi svo afgangnum getur verið að ég hafi tekið og hennt því sem einhver annar hafi geta nýtt. Auk þess sem hegðun okkar verður til þess að það þarf að rækta meiri mat, bæði dýr, ávexti og grænmeti. Aukin ræktun kallar á breytingu á landi og með því verða vistkerfi og lífverur í hættu. Aukin öfga veður eru afleiðingar af þessari hegðun okkar og gott að geta tengt fréttir líðandi stundar við það hvað óábyrg hegðun í einum heimshluta getur haft áhrif í öðrum. Með þessari kennsluaðferð er verið að vinna með samþættingu námsgreina, stærðfræði og upplýsingatækni, ásamt því að flétta sjálfbærni inn í það. Með þessu lærir barnið að taka ábyrgð á sinni matarsóun og átta sig á afhverju það er mikilvægt fyrir jörðina að við sóum ekki mat.

Við lok 4.bekkjar getur nemandi:
Gert sér grein fyrir möguleikum og mikilvægi endurnýtingar

Gert sér grein fyrir óþarfa plasti í daglegu lífi

Gert sér grein fyrir mikilvægi þess að sporna við matarsóun

Umhverfis ljóð
Þú verndar aðeins það sem þú elskar, þú elskar aðeins það sem þú þekkir, þú þekkir aðeins það sem þér er kennt.

Guðmundur Páll Ólafsson

Landvernd. (e.d.). Grænfáninn sótt af https://landvernd.is/graenfaninn/

Bryndís Sóley Gunnarsdóttir, Sólveig María Árnadóttir, Bragi Gunnarsson, Ólafur Páll Jónsson. (2020). Menntun til sjálfbærni staða Íslands. Netla.

Á kennarafundi svarar Anna umsjónarkennari í 1. og .2. bekk: “Ég er algerlega ósammála, Sigurður. Þetta er gamaldags hugsunarháttur, sjálfbærni er okkur mjög mikilvæg. Þú gerir þér ekki grein fyrir mikilvægi sjálfbærni. Sérstaklega eftir nokkur eða jafnvel mörg ár. Við þurfum að kenna nemendum okkar að allar okkar gjörðir hafa áhrif, ekki aðeins fyrir okkur núna heldur okkur öll um ókomna tíð. Það er ekki allt í lífinu sem hægt er að kenna í klukkutíma kennslustund eins og stærðfræðina. Sjálfbærni er dæmi um þetta. Hún er þáttur sem þarf, og best er, að flétta inn í allt skólastarfið og kenna þvert á námsgreinar. Það er mikilvægt að kenna sjálfbærni, sér í lagi á yngri stigum skólastigsins, svo nemendur læri að bera virðingu fyrir náttúrunni og gangi vel um hana. Því fyrr sem kennslan byrjar því betra. Yngri nemendur eru jú móttækilegri til að læra eitthvað nýtt. Markmiðið með sjálfbærni er að skila landinu og auðlindunum eins, eða betri en þær voru þegar við tókum við þeim, það gerum við best með því að kenna nemendum að allt sem við gerum hefur áhrif, ef ekki núna þá síðar. Grænfána verkefni Landverndar sem margir grunnskólar vinna eftir hefur sýnt það að hugsa um umhverfið hefur aukið umhverfismennt í heiminum. En þetta er stærsta alþjóðlega verkefni í heimi á sviði umhverfismenntunar. Stærðfræði er mæld á prófi eins og þú segir, en þú segir að árangur sjálfbærni myndi ekki mælast fyrr en eftir einhver ár. Er þá ekki markmiðinu náð? Að skila jörðinni til baka til samfélagsins í ekki lakara ástandi en við tókum við henni.  Stærðfræðiformúlur t.d. standa ólíklega með nemendum eftir 30 ár, þeir muna ekki hvað þeir gerðu á stærðfræðiprófi í grunnskóla. Sjálfbærnin hefur þá síast töluvert betur inn heldur en stærðfræðin sem nemendur lærðu fyrir margt löngu. Snýst annars ekki skólakerfið/menntakerfið um að undirbúa nemendur fyrir lífið en ekki bara eitt próf í einu? Best er þegar við náum þeirri hæfni að að fara vel með umhverfið og náttúruna án þess að þurfa að hugsa svo mikið um það, heldur erum við orðin svo vön að hugsa út í afleiðingar gjörða okkar að það verður ósjálfrátt flæði og við hættum að þurfa að hugsa um hvernig við pössum upp á umhverfið heldur erum við farin að gera það ósjálfrátt. ”

Hæfniviðmið mæla þá lágmarkshæfni sem nemendur þurfa að búa yfir til að geta lokið námskeiði.