Mótun skólastefnu fyrir Þingeyjarsveit: Íbúafundur í Ýdölum - hópur 5 by Ingvar Sigurgeirsson

Aftur á aðalsíðu

1. Hvert er mat ykkar á stöðu skólamála í sveitarfélaginu?
Sáttur við það sem af er af skólagöngu barnsins.
Mætti vera fjölbreyttari úrræði við t.d. lesblindu, hentar ekki það sama fyrir alla.
Öðruvísi starf, samþætting takmörkuð milli leik og grunnskóla, stoðþjónustan þarf að virka líka fyrir leikskólann.
Finnst vera stöðnun, margt sem mætti bæta. Skólinn auglýstur sem ,,jákvæður agi" en ég sé það ekki.
Samstarfið milli skóla þyrfti að vera meira.
Skólaþjónustan þyrfti að vera aðgengilegri fyrir alla.
Upplifi kaos og hræðslu, hræðsla við breytingar og að styggja  fólk. Ákveðin menning innan skólans, hjá nemendum sem þyrfti að taka á. Hræðsla við að setja stefnu og framfylgja henni. Kannski þyrfti að taka ákvarðanir um skipulagið utan frá, frekar en inni í skólanum.
Hræðsla við breytingar þvi enginn vill tapa sínu, sem er ekki gott. Það munu þurfa að koma óvinsælar ákvarðanir.
Samstarfið milli Reykjahlíðar og Þingeyjarskóla gengur vel, gott skref.
Umræða um samstarf milli tónlistadeilda hefur ekki farið almennilega af stað. Að þvæla fólki fram og til baka er steik.
Eðlilegt að fólk upplifi kaos.
Hættan að það myndist svona ,,við og þau'' umræða.
Sameining sveitarfélaganna þýðir að það verða breytingar og sumir eru hræddir við það. Meiri vilji til samstarfs til hagsbóta fyrir börnin.

2. Hverjir eru helstu styrkleikar?
Vilji til samstarfs.
Frábært mötuneyti í skólunum, kostur að það sé gjaldfrjálst.
Möguleiki á uppbyggingu á Laugum.
Allskonar tækifæri
Tækifæri í tækni.
Það er stoðþjónusta, ekkert mál að komast að t.d. hjá talmeinafræðingi.
Tónlistarskólarnir inni í grunnskólanum, engir biðlistar. Eykur möguleika á tónlistarnámi, allir geta nýtt sér það.
Skólaumhverfið, náttúran einstök, stutt í allt í umhverfinu.
Félagsstarfið þyrfti að vera í beinu framhaldi af skólanum.
Íþróttaæfingar í Reykjahlíð fyrir krakka, klifur, skíði og krossfitt.
Stuttar boðleiðir, það er mikill kostur. Sveigjanleiki og vilji til að gera betur.
Leikskólinn er inni í skólunum og þannig er samvinna skólastiga mjög góð. Það er frábært. Auðvelt að samnýta starfsfólk.
Möguleikar á samstarfi við Framhaldsskólann á Laugum.
Möguleikar á online kennslu tónlistar.

3. Hvaða er brýnast að bæta?
Hegðun nemenda, hegðunarmenning sem þarf að leiðrétta.
Stjórnun skólans. Upplýsingaflæði í skólanum.
Heildarímynd skólanna, gera þá meira aðlaðandi.
Bæta útiaðstöðu, aðlaga að öllum skólastigum.
Frístundastarf, finnst skrítið hvernig frístundastarfið er hér í sveitarfélaginu.
Það eru ekki lengur bara bændur sem eiga börn hér.
Samstarfið milli skóla, mjög brýnt að bæta það. Það þarf að brjóta girðingarnar sem eru í hausunum á okkur. Á ekki að miða skólastarf við eitthvað sem var einusinni gott. Þarf að miða við hvernig það getur verið gott núna og til framtíðar.
Vantar framtíðarsýn, höngum of mikið í taglinu á hestinum en höfum ekki stjórn.
Samskiptavandi og skortur á vinnufriði í skólanum.
Sundkennslukeyrsla úr Reykjahlíðarskóla, setur allt annað skólastarf í uppnám í margar vikur. Slær út allann takt. Það stærsta sem er að er taktleysi í náminu, of mikið sem er að troðast inn. Danskennsla í viku, eitthvað annað í viku osfrv.

4. Hvaða sóknarfæri sjáið þið helst? Hvernig viljið þið þróa starfið? Í skólanum ykkar? Í sveitarfélaginu?
Samþættingu, samnýtingu milli skóla og skólastiga.
Þarf að skoða það með opnum hug að sameina unglingastigið og hafa á Laugum.
Sóknarfæri í íþróttaaðstöðunni á Laugum og framhaldsskólanum.
Sameiningin er sóknarfæri, nú eru möguleikar opnir sem voru ekki áður. Tækifæri fólgin í því. Nú þurfum við að sjá hvað er best að gera. Það má breyta og finna lausnir.
Vandamál hvað skólarnir eru litlir, það eru göt í árgöngum. Krakkarnir hafa gott af því að það séu gerðar breytingar. Það ekkert óhollt að fá áskoranir.
Tækifæri í að taka 21.aldar hæfni inn í skólastarfið. Þarf að þjálfa framkomu og flutning verkefna.

6. Hafið þið skoðanir á skólaskipan - og ef svo hverjar?
Sameina unglingastigið, það er góð hugmynd.
Leikskólinn á Laugum, hann er of lítill, hlýtur að bitna á þroska barnanna. Ætti að leyfa foreldrunum að velja milli hinna þriggja.
Breyta yfirstjórn skólanna, mætti hafa meiri samvinnu, stjórnendateymi?
Spurning hvort ætti að vera einn skólastjóri yfir öllum skólunum og svo deildarstjórar á hverjum stað. Ekki öðruvísi en vinna sveitarstjóra.
Þarf skóli að vera hús?
Vegalengdir eru þannig í dag að ekki er vit í að færa yngstu nemendurna á sama stað.
Ætti að sameina unglingastigið og færa það á Lauga í samstarf við Framhaldsskólann. Íþróttakennslan á unglingastiginu er erfið þegar aldursbilið er of mikið. Því fleiri unglingar því auðveldara.
Líklegra að breytingarnar takist ef við byrjum með unglingastigið, svo væri hægt að skoða að flytja miðstigið.
Ef unglingastigið er á Laugum þá væri líka möguleiki að nýta skólarútuna fyrir framhaldsskólakrakkana, ekki skylda að vera á heimavist.

7. Hvernig viljið þið sjá skólastarfið eftir fimm til tíu ár? Hvað viljið þið helst að einkenni það?
Fleiri nemendur, meiri stöðugleiki, flæðið milli skólastiga sé auðvelt.
Hægt að læra á hvaða hljóðfæri sem er.
Sum af þessum fögum eru farin, meiri kennsla í takt við þarfir samfélagsins.
Það verður að vera aðlaðandi að búa í sveitarfélaginu, til að börnunum fjölgi.
Skólaárið verður orðið mun lengra.
Lögð meiri áhersla á félagsfærni og tilfinningafærni.
Sterkur gagnfræðaskóli á Laugum og sterkari einingar í ,,gömlu skólunum". Þarf að passa sig á því að styrkja allar einingarnar.
Íþróttafélögin séu búin að sameina krafta sína og hafa íþróttaæfingar fyrir alla krakkana allstaðar.
Spáum í lestrarkennslu; skiptir það máli hvernig þú aflar þér þekkingar? að lesa, hlusta eða horfa? Við þurfum að nýta okkur alla möguleika til að afla okkur þekkingar og miðla henni frá sér.
Ýta undir skapandi skil, sköpunargleði barna.
Við viljum sjá meira skapandi í starfi skólanna.
Meira frístundastarf og félagsstarf tengt skólatíma.

5. Hvernig sjáið þið fyrir ykkur samstarf skólanna og við kennara í nágrannasveitarfélögunum?
Stórutjarnir eru í samstarfi við skólanna í Eyjafirði.

Fablab á Húsavík, hvernig væri að nýta það, kennari þar myndi bjóða unglingum/krökkum í heimsókn.

Möguleikar í fjarkennslu, t.d. í músík.

Nýting á kennurum annarsstaðar yrði að vera á netinu.

Þyrfti betri kynningu frá verknámsskólum til að kynna verknám fyrir krökkunum okkar.

Kennarar ættu að fara oftar og skoða skólastarf annarsstaðar. Endurmenntun. Samnýta endurmenntun með öðrum sveitarfélögum. Skiptir sérstaklega miklu máli fyrir tónlistar- og verkgreinakennara. Alltaf hægt að læra af öðrum.

Nýta betur starfsdaga í endurmenntun - heimsækja aðra skóla.