Egils saga by

Þórólfur og Grímur Kveld-Úlfssynir.
Þórólfur: myndarlegur, líkur móðurfrænda sínum, glaður, ör, ákafur og vinsæll.

Grímur: svartur, ljótur og líkur föður sínum bæði í útliti og í skapi. Mikill athafnamaður og hinn mesti smiður og sjómaður.

Þórólfur erfir Bárð Brynjólfsson.
Bárður hafði erfit allt frá föður sýnum Brynjólfi og var giftur Sigríði á Sandnesi þegar hann lést. Áður en hann dó óskaði hann eftir því að Þórólfur skyldi taka allan arfinn hans, konu og son því hann treysti honum mest.

Andlát Björgólfs.
Þegar Björgólfur lést fékk Brynjólfur, sonur hans úr fyrra hjónabandi, bæði bú og allan arfinn. Einnig skipaði Brynjólfur þeim Hildiríði og synum að fara burt af bænum og neitaði þeim um arf.

Hildiríðasynir óska eftir arfi.
Hárekur og Hrærekur fór á fund Þórólfs og báðu þar um hlut af arfinum hans Björgólfs sem þeir töldu sig eiga rétt á. Þórólfur neitar og segist trúa að Brynjólfur og Bárður höfðu látið þá fá allan þann arf sem þeir ættu rétt á.

Þórólfur og menn brenna bæ og drepa.
Þórólfur og menn hans hefna sína á Sigtrygg og Hallvarð, eftir að þeir rændu skipið hans Þorgils, og brenna bæ þeirra ásamt því að drepa um tuttugu menn.

Konungurinn drepur Þórólf.
Þórólfur og menn sitja við drykkju í Sandnesi. Haraldur kemur að Sandnesi og umkringir þar bæinn. Hann biður konur, börn, þræla, ungmenni og gamalmenni um að ganga út. Harladur vill að Þórólfur gefist upp og leiti erftir miskun hjá konungi en að menn hans muni þó sæta refsingu. Þórólfur neitar og eftir örstutta baráttur drepur konungurinn Þórólf.

Hildiríðarsynir segja lygasögur.
Eftir að Þórólfur neitaði Hildiríðarsyni hluta af arfinum urðu þeir mestu óvinir hans. Tóku þeir því til í að segja lygasögur um Þórólf til konungs í von um að gera illt á milli þeirra.

Hildiríðarsynir drepnir.
Ketill hængur hefnir frænda síns, Þórólf, og drepur Hildiríðarsyni.

Sigtryggur og Hallvarður.
Sigtryggur snarfari og Hallvarður harðfari eru mikilvægir í hirð konungs. Þeir bræðurnir eru stekrir og miklir garpar og sjá þeir um erfiðu verkin og því óttast fólk þá almennt.

Kveld-Úlfur neitar að ganga í lið Harlads konungs.
Harladur hárfagri var að leggja undir sig Noreg og vildi því fá með sér í lið Kveld-Úlf og syni hans en Kveld-Úlfur vildi það ekki því hann fann það á sér að eitthvað slæmt myndi gerast fyrir þá feðgana.

Skalla-Grímur og Kveld-Úlfur hefna Þórólf.
Skalla-Grímur tekur eftir skipi Sigtryggs og Hallvarðar. Skalla-Grímur og Kveldur-Úlfur fara að skipinu á tveim bátum. Kveld-Úlfur drepur Hallvarð með því að höggva í höfuðið á honum og síðan kastar hann honum út í sjó. Skalla-Grímur drepur Sigtrygg.

Kveld-Úlfur deyr.
Kveld-Úlfur verður slappur og leggst í rekkju. Hann veit að hann sé dauðsvona og byður því skipverja sína um að setja líkið sitt í kistu og flegja útbyrgðis. Biðja svo Skalla-Grím um að byggja fyrir sig bústað þar sem kistan kemur að landi.
Þegar Kveld-Úlfur dó gera skipverjar hans eins og hann bað. Kistan kemur æa land í Borgarfirði.

Börn Skalla-Gríms og Beru.
Skalla-Grímur og Bera eignast mörg börn sem deyja fyrst öll. Síðan eignast þau Þórólf, Sæunni, Þórunni og Egil.
Þórólfur er mjög líkur frænda sínum Þórólf Kveld-Úlfssyni og Egil líkur föður sínum Skalla-Grími. Því eru Þórólfur og Egill algjörar andstæður alveg eins og Þórólfur og Grímur voru.

Björn Brynjólfsson og Þóra hlaðhönd.
Björn Brynjólfsson verður mjög hrifinn af Þóru hlaðhönd og biður því bróður hennar Þórir hersir um hönd hennar. Þórir neitar og tekur því Björn það að sér að ræna Þóru.
Haraldur konungur, góður vinur þórir hers, segist vilja lát drepa Björn, það fréttist svo út um öll lönd.
Björn fréttir að hann sé orðin útlagi og ákveður að giftast Þóru ólöglega.
Þau eignast síðan stúlku að nafni Ásgerður.
Skalla-Grímur sendir síðan menn til Noregs í von um sættir á milli Björns og Þóris, það tekst. Björn hættir að vera útlægur og hjónabandið löglegt.

Þórólfur og Ásgerður.
Þórólfur biður um hönd Ásgerðar. Björn tekur vel undir það og haldið er uppá brúðkaupið þeirra hjá honum í Noregi.

Gunnhildur biður bræður sína að drepa Skalla-Grímssyni.
Gunnhildur vill að bræður sínir Eyvindur og Álfur drepi að minnsta kosti annan hvorn Skalla-Grímssoninn á blótinu. Það tókst ekki hjá þeim bræðrunum þar sem Egill varð eftir  heima með Arinbirnir og Þórólfur og Þórir voru svo nálægt hvor öðrum þetta kvöld að aldrei gafst tækifæri til.

Egill drap mann sjö vetra gamall.
Fjölmennur kanttleikur er skipurlagður. Egill keppir við Grím sem er þá um 3-4 árum eldri en hann. Grímur er sterkari en Egill og þegar Egill lemur Grím með kylfunni keyrir hann Egil niður og hendir honum.
Eftir niðurlægingu Egils fer hann til Þórðar sem segist ætla að hjálpa honum að hefna sín. Þeir fara því aftur á knattvöllinn og taka með sér exi. Egill hleypur að Grími og heggur hann í höfuðið svo það sást í heila.

Eiríkur blóðöx.
Eiríkur Blóðöx tekur við ríki af pabba sínum, Haraldi hárfagra og eignast Gunnhildi sem konu. Þau eru bæði góðir vinir Þórólfs Skalla-Grímssonar.

Egill tekur sótt.
Egill tekur sótt og kemst því ekki í brúðkaupið þeirra Þorleifs og Ásgerðar.

Egill drepur Atleyjar-Bárð.
Þrátt fyrir að margir húskarlar Ölvis eru orðnir mjög drukknir og veikir heldur Bárður áfram að dæla í þá enn meiri öl. Egill drekkur af horni Ölvis, hann segist síðan gruna að Bárður sé í einhverskonar svikum.
Bárður og Gunnhildur byrla fyrir Agli en hornið hans springur og lak vökvinn niður.
Þegar Egill er að aðtoða Ölvi til dyra, eltir Bárður þá og biður Ölvi að drekka meira áður en hann fer. Egill kastar horninu og drepur Bárð.
Með því varð hann mesti óvinur Gunnhildar og Eiríks.

Þórólfur fellur.
Þórólfur féll í baráttu í Englandi en þeir bræðurnir börðust á móti Skotum fyrir Aðalstein Englandskonungs.

Egill jarðar Þórólf.
Egill býr til gröf fyrir bróður sinn. Þórólfur er síðan grafinn með vopnum sínum, öllum klæðum og tveimur gullhringum sem Egill lét á hann.
Egill ferð síðan á fund Aðalsteins konungs en þar eru menn mjög kátir og mikil veilsa í gangi. Egill viðist vera leiður og neitar að drekka.
Konungurinn gefur því Agli gullhring af fingri sínum, birtir þá yfir Agli og hann þiggur loksins öl að drekka.

Egill verður þunglyndur.
Egill segir Ásgerði frá Þórólfi. Ásgerður leiðist þessar fréttir en Egill segist muna sjá um hana og dóttur þeirra Þórdísi.
Egill verður brátt þunglyndur og játar svo við vin sinn Arinbjörn, frænda Ásgerðar, að hann sé ástfanginn af henni.

Egill og Ásgerður giftast.
Arinbjörn hvetur Egil tl að fara og biðja um hönd Ásgerðar hjá Birni. Björn tekur vel undir og þau Egill og Ásgerður giftast. Egill verður því mun kátari eftir þetta.

Arfur Ásgerðar.
Björn faðir Ásgerðar deyr. Berg-Önundur, maður Gunnhildar Björnsdóttur, lagði undir sig allan arf Ásgerðar.
Egill og Ásgerður sigla til Noregs til þess að tala við Berg-Önund um arfinn. Egill fer og hittir Beg-Önunnd og segist eiga rétt á helming arfsins. Berg-Önundur neitar honum og segir að svo sé ekki þar sem Ásgerður er dóttir ambátts og getin utan löglegs hjónabands.
Málið fer til Gulaþings þar sem Egill og Berg-Önundur útskýra mál sín.
Egill býður svo Berg-Önundi hólmgöngu en hann neitar.

Egill er gerður útlægur í Noregi.
Eiríkur skipar mönnum sínum að róa á eftir Agli og Arinbirni og taka Egil af lífi.

Andlát Skalla-Gríms.
Skalla-Grímur dó úr elli og var heygður á Digranesi ásamt hesti, vopnum og smíðatólum.
Egill tók við arfi hans, löndum og lausum aur.

Ainbjörn talar til Eirík.
Airnbjörn nær að tala til Eirík sem gefur Agli líf. Hins vegar voru engin sátt þar á milli og Eiríkur vildi aldrei sjá Egil aftur.

Egill vinnur arfinn hennar Ásgerðar af Atla.
Egill fer til Atla hins skamma að óska eftir arfi Ásgerðar sem hann hafði nú erft frá bróðir sínum Berg-Önundi. Atli segir að Egill ætti frekar að bæta honum fyrir bræður sína, Berg-Önund og Hadd, sem hann drap.
Egill stefnir Atla til Gulaþings þar sem hann skorar hann á hólm.
Egill sigrar með því að bíta barkann á Atli í sundur og fékk þar afleiðandi arfinn hennar Ásgerðar.

Egill gerist aftur þunglyndur.
Egill verður skyldilega þunglyndur. Arinbjörn spyr Egil hver ástæðan fyrir depurðunni skyldi vera og Egill sagði að það væri af því hann fékk ekkert fé launað eftir að hafa drepið Ljót bleika og að menn konungs höfðu tekið féð til þess að færa konungi.
Eftir að Arinbjörn reyndi að fá eignir Ljóts frá Hákoni Aðalsteinsfóstra án einhvers árangur ákvað hann að greiða Egil þá andvirði sem hann hefði átt að fá eftir Ljót. Þetta gerði Egill glaðan aftur.

Böðvar Egilsson druknar.
Böðvar var á unglings aldri þegar hann fékk að fara með húskörlum að sækja timbur í skip sem lá við festar í Hvítá. Þeir lenda síðan í vondu veðri og skipið ferst. Böðvar drukknar í kjölfarið.

Egill reynir að svelta sig í hel.
Böðvar var í miklu uppáhaldi hjá honum Agli og varð hann mjög sorgmæddur eftir andlát hans.
Ásgerður hafi miklar áhyggjur af Agli og lét því send eftir Þorgerði dóttur þeirra.
Þorgerður fær hann til þess að tyggja söl eftir að hafa sagt ætla að deyja með honum. Sölin gerði hann þar afleiðandi mjög þyrstann og endaði hann á því að drekka mjólk. Hún stingur svo uppá því að hann yrki ljóð.
Eftir þetta verður Egill mun hressari og færir hann Þorgerði gjafir áður en hún fer aftur heim til sín.

Egill vill drepa Einar fyrir að hafa gefið honum skjöld í gjöf.
Einar skálaglamm og Egill voru góður vinir. Einar var einnig mikið skáld eins og Egill og kom því þeim vel saman.
Einar var skáld Hákonar jarls en Hákon jarl hafði drepið Harald Eiríksson og Arinbjörn, besta vin Egil, í baráttu í Danmerku.
Þegar Einar kemur heim frá Noregi reynir hann að hitta Egil en svo tekst ekki svo eftir að Einar hafði beðið í þrjár nætur skildi hann eftir skjöldinn sem Hákon jarl hafði gefið honum.
Þegar Egill kemur heim og fréttir af því hver ætti þennan skjöld ætlaði hann að ríða á eftir Einar og drepa hann. Það var þó eki fyrr en hann frétti hversu snemma um morgunin Einar hefði lagt afstað sem hann hætti við.

Egill vill fara til alþingis.
Egil var orðinn gamall. Hann hafði skerta sjón, skerta heyrn og fótstirður. Hann bað Grím um að ríða með sér til Alþingis. Þórdís spyr hann hvers vegna hann ætli til alþingis og Egill segir það hann ætli að dreifa silfrinu sínu um allt Lögberg í von um að fólk berjist um silfrið. Grímur neitar að fara með Agli til alþings.

Egill felur silfrið.
Egill fær með sér tvo þræla eitt kvöldið til þess að fela silfurkisturnar. Egill drap síðan þrælana og faldi kisturnar. Kisturnar hafa ekki fundist síðan.
Stuttu seinna varð Egill veikur og lést.

Höfuðkúpan svo þykk.
Grímur tók Kristni og lét smíða kirkju að Mosfelli.
Höfuðkúpa Egils fannst undir kirkjunni á Mosfelli.
Seinna tóka Skapti Þórarinsson prestur upp höfuðkúpuna og varð hann svo forvitinn hve þykk hún væri að hann tók exi og barði af öllu afli í kúpuna. Höfuðkúpan var svo þykk að ekki komu einu sinni sprungur í hana.

Mýramannakyn.
Þau Þorsteinn og Jófríður eignast 10 börn og frá þeim er komin fjölmenn kynslóð sem nefnd er Mýramannakyn.

Ættartré.

Egill drepur 19 menn.
Egill innheimtar skattinn fyrir konung frá Arnviði Jarl. Egill finnst Arvið borga heldur lítið og minnir hann því á þá menn sem höfðu verið drepnir í þessum ferðum hans. Arnviður biður tvo bræður og félaga um að drepa Egil og urðu þeir um 30 menn sem umkringdu Egil. Egill drepur 19 af þeim og særir hina sem flúðu burt.

Lát Ásgerðar
Ásgerður deyr og Egill selur Þorsteini syni sínum bæinn. Hann sest síðan að hjá Þórdísi Þórólfsdóttur og Grími á Mosfelli.