Jón Stefán Sveinsson by

Hver var Jón Stefán Sveinsson?
Jón Stefán Sveinsson betur þekktur sem Nonni, fæddist á Möðruvöllum í Hörgárdal þann 16. Nóvember árið 1857. Sveinn Þórarinsson, faðir Nonna lést árið 1869 en þá var Nonni einungis ellefu ára. Eftir andlát föðurs þeirra var búið þeirra tekið til gjaldþrotaskipta. stóð þá móðir Nonna, Sigríður Jónsdóttir  ein eftir með börnin sín. Hún gat ekki séð fyrir öllum börnunum sínum  og varð því að láta þau öll frá sér nema eitt. Það var hann Ármann eða eins og hann var kallaður, Manni. Seinna meir flutti hún síðan til Kanada og giftist þar aftur.

https://is.wikipedia.org/wiki/J%C3%B3n_Sveinsson

Æviágrip á lífi Nonna
Í lok ágúst 1870 bauð franskur aðalsmaður tveimur íslenskum strákum til Frakklands í nám og var Nonni einn af þeim. Nonni hóf nám við latínuskólann í Amiens og nokkrum árum síðan fluttist bróðir hans Manni til hans og hóf nám við sama skóla. Árið 1885 lést Manni úr berklum aðeins 23 ára gamall.

Eftir nám við latínuskólann og háskóla í Frakklandi, Belgíu og Hollandi fór Nonni að starfa sem kennari. Hann starfaði við kaþólskan menntaskóla í Ordrup í Danmörku. Hann dvaldi fjögur ár í Englandi við guðfræðinám og tók einnig prestvígslu þar. Eftir það fluttist hann aftur til Danmerkur og kenndi í sama skóla og áður fyrr.

Árið 1912 hætti hann kennslu og flutti frá Danmörku. Næstu ár bjó hann meðal annars í Hollandi, Austurríki og Þýskalandi og starfaði við að skrifa bækur. Fyrsta af tólf Nonnabókum sem hann gaf út kom út árið 1913. Nonni skrifaði bækurnar sínar á þýsku en þó hafa þær verið þýddar yfir á yfir þrjátíu tungumál. Fyrir utan Nonnabækurnar er vitað um að minnsta kosti eina landkynningarbók um Ísland sem hann skrifaði á þýsku.

Nonni heimsótti Ísland einungis tvisvar eftir að hann kvaddi landið árið 1870. Árið 1930 er seinna skiptið sem hann kom og var það vegna þess að Ríkisstjórn Ísland bauð honum að koma á Alþingishátíðina. Þá var hann einnig gerður að heiðursborgara Akureyrar. Nonni féll frá þann sextánda október árið 1944. Hann var staðsettur í loftvarnarbyrgi undir St. Franziskus-spítalanum í Köln. Hann var grafinn í Köln í Melatenkirkjugarðinum.

https://is.wikipedia.org/wiki/J%C3%B3n_Sveinsson

Upphaf Nonnahúss
Nonnahús er eitt elsta hús Akureyrar og var það byggt árið 1850 af Jósef nokkrum Grímssyni sem var gullsmiður. Húsið byggði hann aðeins svo hann sjálfur gæti þar búið. Þegar Jósef síðan flutti út tók við af honum maður að nafni Páll Magnússon sem íbúi hússins en hann hafði flutt til Akureyrar úr Hörgárdal til þess að stunda kaupmennsku.
Magnús faðir hans bjargaði honum þar sem honum gekk illa að koma undir sig fótunum og gera átti hann gjaldþrota. Húsið var kallað Pálshús og Páll flutti þaðan og reyndi að selja húsið sem gekk ekki. Páll endaði á því að þurfa að leigja húsið.
http://www.nonni.is/?m=page&f=viewPage&id=15

Íbúar Nonnahúss
Tvær fátækar fjölskyldur fluttu inn árið 1861. Árið 1863 flutti kona inn í Nonnahús, kona sem bar nafnið Vilhelmina Lever. Vilhelmína rak veitinsölu og gistiheimili í húsinu. Þegar fyrstu bæjarstjórnarkosningar fóru fram mætti Vilhelmina á kjörstað þótt svo að konur fengu ekki kosningarétt fyrr en nítján árum síðar.

Elín Guðrún Gunnarsen var saumakona og flutti í húsið árið 1865 og bjó þar í einungis eitt ár. Hún var einstæð með þrjú börn vegna þess að maðurinn hennar flúði landið.

Þann sjöunda júní sama ár flutti fjölskylda inn. Það voru þau Sveinn Þórarinsson og konan hans Sigríður Jónsdóttir ásamt börnunum sínum fjórum og vinnufólki. Jón Stefán eða Nonni eins og hann var kallaður var einn af börnunum og var einungis sjö ára. Sveinn leigði húsið af Páli en gat ekki keypt það af honum vegna þess að fjölskyldan var of fátæk. Eftir að Sveinn lést og Sigríður lét frá sér börnin sín og flutti út úr húsinu fór Nonni að skrifa bækur. Nonni varð heimsfrægur barnabókahöfundur og þess vegna fékk æskuheimili hans nafnið Nonnahús. Tveir af sjö heiðursborgurum Akureyrar hafa búið í Nonnahúsi og einn af þeim er Nonni. Fjölmargar fjölskyldur bjuggu í Nonnahúsi eftir að fjölskylda Nonna hvarf. Síðasta fjölskyldan til að flytja út er talin hafa gert það árið 1944.

http://www.nonni.is/?m=page&f=viewPage&id=15

Zontaklúbbur Akureyrar
Árið 1949 þegar Zontaklúbbur Akureyrar stofnaður kom upp sú hugmynd að heiðra minningu Nonna. Á þeim tíma var Nonnahúsið eign zontahússins og var notð sem eins konar verkstæði eða geymsluskúr, því var það mjög illa farið. Hjónin sem áttu bæði húsin hétu Sigríður Davíðsdóttir og Zóphónías Árnason og árið 1952 ákváðu þau að gefa Zontaklúbbi Akureyrar Nonnahúsið til þess að þar væri hægt að gera minjasafn um þennan merka mann. Allar hjálpuðust konurnar í klúbbnum að við uppsetningu safnsins og á afmælisdegi Nonna þann sextánda nóvember árið 1957 opnaði safnið. Safnið hefur verið starfandi frá þeim degi og er viðhald hússins mun meira nú en það var áður. Árið 2007 gaf Zontaklúbburinn Akureyrarbæ safnið og rekur Minjasafnið á Akureyri núna Nonnahús.

http://akureyrar.zonta-island.org/facts/
http://www.nonni.is/?m=page&f=viewPage&id=15

Styttan af Nonna
Fyrir utan Nonnahús stendur stytta af  Nonna sjálfum. Styttan er eftir Nínu Sæmundsson, hún gerði hana árið 1957. Styttan stóð um tíma hjá í gamla Borgarbókasafninu  þangað til að  Konur í Zontaklúbb Akureyrar fréttu af styttunni og hófu leit. Þær vildu  nefnilega fá styttuna fyrir utan Nonnahús. Konurnar fengu almenning til aðstoðar  og margar blaðagreinar birtust um styttuna á árunum 1970-1980 og að lokum bar leitin árangur. Styttan fannst á Korpúlfsstöðum og var hún þar innpökkuð. Zontaklúbbnum var gefin styttan og ákváðu þau að steypa hana í brons og setja hana upp á Akureyri. Eftir að styttan var send til Þýskalands var hún vígð þar.
http://www.nonni.is/?m=page&f=viewPage&id=12

Niðurlag og mínar skoðanir
Jón stefánsson eða Nonni var merkur rithöfundur og voru bækur hans þýddar á ótal mörg tungumál. Óhætt er að segja að ævi Jóns Sveinssonar hafi verið merkileg og hefur hann haft mikil áhrif á að koma Akureyri á kortið með bókum sínum. Það mætti segja að Jón Sveinsson hafi verið ákveðinn frumkvöðull í ritsmíði á Akureyri.

Safnið sem um hann var gert er verðskuldað og er hann maður sem ætti að minnast um ókomna tíð. Ekki yrði svo galin hugmynd að taka það upp í grunnskólum Akureyrar að lesa eina bók eða svo eftir Nonna. Það gæti haft góð áhrif á viðhorf ungra krakka gagnvart menningu Akureyrar. Framtak Zontaklúbbsins gangvart minningu Nonna er eitthvað sem er mjög aðdáunarvert og hefur klúbburinn unnið mjög gott starf og á hann skilið gott hrós fyrir.