Viðhorfs breytingar til hinsegin málefna by Freydis Sigurðardóttir

Viðmælandi er kona fædd árið 1984. Í viðtali okkar við hana kom skýrt og greinilega fram að hún hafði orðið vitni af miklum breytingum í gegnum árin. Hún sagði okkur frá því hvernig hennar upplifun var á hinsegin málefnum og hvernig hún upplifði viðhorf á þessum tíma. Í byrjun tíunda áratugarins þegar hún var barn voru þessi málefni ekki svo áberandi í umræðunni. Fyrsta sem hún man eftir var helst umræða um HIV- faraldurinn. Það var mikið talað um HIV og hræðsla. Börnin ræddu þetta líka sín á milli og man hún eftir að hafa lært að það væru hommar sem smituðust helst. Að öðru leyti var ekki mikil umræða eða rými fyrir fjölbreytileika. Hún man eftir einhverru pískri á milli fjölskyldumeðlima um einhvern frænda í útlöndum sem hefði fengið þennan sjúkdóm en það var greinilega tabú.
Með árunum fór umræðan að opnast, Páll Óskar kemur með látum fram á sjónarsviðið. Hún man að það vissu allir að hann væri hommi og það fannst öllum frekar merkilegt og skrýtið. Frá miðjum tíunda áratugnum fram yfir aldamót urðu breytingarnar miklar. Umræðan varð opnari, einhver fræðsla fór að eiga sér stað. Internetið var komið til sögunnar og samfélagið þróaðist hratt. Ekki var mikið talað um hugtakið hinsegin, frekar var fólk skilgreint og flokkað í ákveðna hópa sbr. hommar, tvíkynhneygðir þess háttar. Einhvernveginn virðist sem hennar kynslóð hefði verið tilbúin í þessar breytingar og aðlagast. Hún tekur samt fram að hún sé að segja frá sinni upplifun sem cis-konu sem tilheyri ekki hinsegin samfélaginu sem slíku. En engu að síður upplifði hún þessar breytingar sem mjög jákvæðar og að þær væru til bóta fyrir allt samfélagið. Nefnir hún að allir græði á því að réttindi hinsegins fólks séu virt. Samfélagið breyttist hratt á sínum tíma til hins betra í málefnum hinsegins fólks en það sé mjög sorglegt að sjá það vera að fara á nánast eins miklum hraða til baka.

Fólk um allan heim verður fyrir fordómum vegna þess hvern það elskar, hvernig það kýs að tjá kyn sitt eða upplifir það, og í raun og veru fyrir að vera það sjálft. Þessi mismunun getur ógnað lífi hinsegin fólks. Óheimilt er að mismuna fólki út frá kyni, kynvitund, kyngervi, kynhneigðar eða kyneinkenna.

Hinsegin fólk upplifir frekar einangrun og útilokun frá samfélaginu en aðrir og býr oft við verri andlega líðan. Bakslög á hinsegin samfélög annars staðar í heiminum hefur áhrif á þá fordóma og áreitni sem hinsegin fólk á Íslandi verður fyrir.

Ísland er eitt af efstu þjóðunum þegar kemur að réttindamálum hinsegin fólks, þótt svo að það öllum lagalegum réttindum hinsegin fólks á Íslandi hefur enn ekki verið náð. Samt sem áður er talsvert bil á milli formlegra réttinda hinsegin fólks og þær raunverulegu aðstæðna þeirra í samfélaginu.

Á Íslandi er lögð áhersla á fræðsluefni og vitundavakningu á hinsegin málefnum, t.d. í skólum og vinnustöðum. Þar sem Ísland leggur mikla áherslu á fræðslu um hinsegin málefni er þetta opin umræða í samfélaginu, og hinsegin einstaklingum á Íslandi líður oft vel með að geta verið það sjálft.

21. Öldin opnaði á marga möguleika fyrir hinsegin fólk, lagabreytingar um að fólk af sama kyni mætti koma saman í hjónaband varð að veruleika. Her á Íslandi var það árið 2010 en í Bandaríkjunum árið 2013. 21. Öldin er þekkt fyrir miklar sveiflur þegar kemur að hinsegin málefnum, svipaðar réttindasveiflur og voru á öldinni á undan. Alltaf koma einhverskonar öfl sem að reyna að halda aftur að réttindabaráttu hinsegin fólks. Á Íslandi eru flestir í samfélaginu jákvæðir við hugmyndir um réttindi fyrir hinsegin fólk, og er Pride gangan orðinn vinsæll partur af sumrinu fyrir marga.

Hinsegin: Hérlendis hefur orðið hinsegi öðlast sess sem regnhlífarhugtak yfir allt það fólk sem er ekki gagnkynhneigt og/eða fellur ekki inn í það sem telst hefðbundið kyn eða kynhlutverk.

Incels: eru netbundnir hópar karla sem telja sig útilokaða frá ást og kynlífi vegna útlits, félagslegrar stöðu eða eigin persónueinkenna, og kenna konum og samfélaginu um það.

Red pill: vísar í dag til hugmyndafræði sem heldur því fram að femínismi og jafnréttissjónarhorn hafi blekkt karlmenn, og að þeir þurfi að „vakna“ til meðvitundar um meint yfirráð kvenna og endurheimta „eðlilegt“ kynjakerfi þar sem karlar ráða.

Manosphere: er regnhlífarhugtak yfir netbundin samfélög karla sem deila hugmyndum um að karlar séu undirsettir í nútímasamfélagi og þurfi að endurheimta völd sín, oft með kvenfyrirlitinni orðræðu og transfóbíu.

Eitruð karlmennska: er hugtak sem vísar til skaðlegra þátta hefðbundinnar karlmennsku, sem viðhalda undirskipun, ofbeldi og tilfinningabælni. Eitruð karlmennska viðheldur samfélagslegu misrétti og ýtir undir bakslag gegn réttindabaráttu.

Kvenfyrirlitning: er djúpstæð andúð, vanmat eða hatur á konum og kvenleika, sem birtist í viðhorfum, orðræðu, menningu og kerfum sem halda konum niðri eða útiloka þær.

Kynhneigð: Kynhneigð segir til um hverjum fólk getur laðast að, orðið skotið í eða ástfangið af.

Kyntjáning: hvernig við tjáum kyn okkar út á við.

Kynvitund: segir til um hvernig fólk vill lifa og vera í sínu kyni. Kynvitund vísar ekki til kynfæra, líffræði eða útlits heldur upplifunar fólks af eigin kyni. Allir hafa kynvitund því allir upplifa kyn sitt á einhvern hátt.

Kyneinkenni/intersex: Vísar til líffræðilegra sérkenna manneskju, til dæmis æxlunarfæri, uppbygging kynfæra, hormónastarfsemi, vöðvauppbyggingu og fleira. Það fólk sem er með ódæmigerð kyneinkenni er intersex.

Við skoðuðum rannsókn sem gerð var af European Union Agency for Fundamental Rights (FRA) árið 2024. Það var gerð könnun sem náði til yfir 100.000 hinsegin einstaklinga í Evrópu. Könnunin mat stöðu LGBTIQ+ fólks í aðildarlöndum Evrópusambandsins. Rannsóknin sem gerð hefur verið reglulega í gegnum árin skoðar þróun réttinda hinsegins fólks, upplifun af mismunun og stöðu í samfélaginu síðan síðasta mat var framkvæmt. Skýrslan sem við skoðuðum greindi frá niðurstöðunum frá þriðju könnuninni sem lögð var fyrir árið 2023. Sama könnun var lögð árið 2012 og 2019.

Helstu niurstöður kannarinnar:

Aukin sýnileiki hinsegins fólks, en varhugaverð staða er komin upp á sama tíma. Þrátt fyrir framfarir í lagalegum réttindum og aukinni viðurkenningu á tilvist hinsegin fólks, sýna gögnin að raunveruleg félagsleg samþykki hefur ekki haldist í hendur við réttarbætur.

Minni mismunun í lagalegum skilningi, en aukin áreitni og ofbeldi. Þá var sérstaklega  aukið ofbeldi gagnvart trans og intersex einstaklingum. Meira en helmingur þátttakenda sagðist forðast ákveðna staði vegna ótta við árásir.

Ungt hinsegin fólk upplifir meira einelti og óöryggi í skólum en áður.

Fleiri hinsegin einstaklingar eru opnir um kynhneigð sína, kynvitund, kyntjáningu og kynþætti.

https://fra.europa.eu/en/publication/2024/lgbtiq-equality-crossroads-progress-and-challenges

https://fra.europa.eu/en/publication/2024/lgbtiq-equality-crossroads-progress-and-challenges

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-04-17-adgerdaaaetlun-fyrir-hinsegin-folk-2026-til-2029-441772

https://kynjafraedi.vefbok.forlagid.is/?id=184

https://otila.is/hinsegin-regnhlifin/

https://otila.is/

Við tókum viðtal við tvítugan strák. Þar sem viðmælandinn er ungur var þema viðtalsins beint að því félagslega landslagi sem ungt hinsegin fólk býr við í dag. Viðmælandinn tjáði frá því að þrátt fyrir að ýmis lagaleg réttindi séu til staðar fyrir hinsegin fólk, er félagslegt öryggi áfram óáreiðanlegt. Tilvist og sýnileiki hinsegin fólks mætir gjarnan tortryggni, kaldhæðni og fordómum. Það er ekki eingöngu frá eldri kynslóðum, heldur einnig frá jafnöldrum og samnemendum. Þessi lýsing fellur vel að því sem margar nýlegar rannsóknir hafa sýnt, að lagalegar framfarir tryggja ekki sjálfkrafa félagslegt samþykki.

Viðmælandinn talaði sérstaklega um hvernig transfóbía og kvenfyrirlitning birtast mjög áberandi á netinu. Hann sagði að á samfélagsmiðlum væri stöðugt flæði efnis sem ýtir undir andúð á hinsegin fólki, sérstaklega trans einstaklingum. Það sem áður var oft einangrað við jaðarhópa hefur nú orðið sýnilegra og er normaliserað í gegnum svokallaðar karlrembuhreyfingar eins og Incels, Red Pill og svokallað Manosphere. Hefðbundin kynhlutverk og líffræðilegt kyn er gjarnan notað sem vopn gegn hinsegin fólki.

Þessar hreyfingar nota hugmyndir um hefðbundin kynhlutverk og hugtakið líffræðilegt kyn sem vopn til að ógilda og afmennska trans fólk. Það sé haldið fram að „karlar séu karlar og konur konur“, án tillits til kynvitundar, og að „raunveruleikinn“ sé að hrynja vegna þess að samfélagið hafi misst tengingu við „vísindin“ sem í þessu samhengi eru valin selectively og þjóna pólitískum tilgangi. Viðmælandinn lýsti því að þessar hugmyndir væru mjög útbreiddar meðal jafnaldra hans, sérstaklega ungra stráka, og væru jafnvel teknar upp af kennurum og fjölmiðlum.

Einstaklingar eins og Andrew Tate, fyrrverandi hnefaleikamaður og samfélagsmiðlaáhrifavaldur eru fyrirmyndir ungra stráka. Hann beitir hugmyndafræði eitraðrar karlmennsku, sem felur í sér að karlmennska byggist á stjórnsemi, tilfinningalegri fjarlægð, valdi og höfnun á tilfinninganæmi. Viðmælandinn sagði að margir strákar í kringum hann litu á Tate sem einhverja rödd sannleikans, sem hvetur þá til að „endurheimta vald sitt“ með því að hafna jafnrétti, fjölbreytileika og gagnrýnum umræðum.

Einnig kom hugtakið „woke heilavírusinn“ upp í viðtalinu. Þetta er nýleg netorðræða sem hefur orðið gríðarlega áberandi á síðustu misserum. Þar er „wokeness“, sem í upprunalegri merkingu vísar til gagnrýninnar meðvitundar um óréttlæti og misrétti, framsett sem smitandi hugsýki. Samkvæmt þessari sýn eru þeir sem styðja réttindi hinsegin fólks, transfólks, innflytjenda, fatlaðra og kvenna, ekki að leggja sitt af mörkum í lýðræðislegu samtali. Þeim er gert að hafa „smitast“ af vitsmunalegri veiki sem ógni rökhugsun, vísindum, hefðum og heilbrigðu samfélagi. Þessi orðræða tengist beint öfga hægri hreyfingum og nýfrjálshyggjuorðræðu sem stillir réttindabaráttu upp sem ógn.

Viðmælandinn lýsti því að þessi hugmyndafræði, þrátt fyrir að hljóma fáránlega, hafi raunveruleg áhrif á líf ungs hinsegin fólks. Tilveruréttur hinsegins fólks og sjálfsmynd þeirra er dregin í efa.

Þetta viðtal undirstrikar mikilvægi þess að rýna í valdatengsl, karlmennskuhugmyndir og hugmyndafræði afturhalds. Þótt lögin hafi breyst, þá lifa hugmyndir um undirskipan og útilokun áfram, oft í nýrri mynd. Að fræða um þessi hugtök og opna fyrir samræðu er ekki „woke vírus“ heldur eina leiðin til að byggja upp raunverulegt, réttlátt og fjölbreytt samfélag.