Mótun skólastefnu fyrir Þingeyjarsveit: Íbúafundur í Skjólbrekku - hópur 3 by Ingvar Sigurgeirsson

1. Hvert er mat ykkar á stöðu skólamála í sveitarfélaginu?
Hlutirnir gerðir eins vel og hægt er. Augljóslega starfsmannavandi í sumum skólum sem er vissulega ekki gott.
Getur verið erfitt að halda utan um marga skóla. Allir að gera sitt besta.

Við erum með mjög sterka grunnskóla, skóla sem koma vel út í innra mati. Mönnunarvandi hefur neikvæð áhrif á leikskólana - jákvætt þó að börnin séu mörg. En staða skólamála annars bara í þónokkuð góðum málum. Skólarnir ná að nýta sér smæð sína til að bjóða upp á fjölbreytt nám.

Menntunarstig kennara í grunnskólunum hátt. Ekki eins gott menntunarstig í leikskólunum og starfsmannaveltan þar er hröð sem veldur miklu róti á starfinu og nemendunum.

Fjöldi lausra kennarastaða fyrir næsta skólaár vekur ugg.

Aftur á aðalsíðu

2. Hverjir eru helstu styrkleikar?
Einstaklingsmiðað nám. Skólarnir nýta sér tækifærin sem felast í smæðinni vel. Skólarnir eru hornsteinar í samfélaginu og það er mikill velvilji til skólanna í samfélaginu öllu.

Í skólunum eru sterkar og jákvæðar hefðir í bland við nýja kennsluhætti og uppbrot í skólastarfinu. Íþróttastarfið í skólanum er sterkt. Jákvætt að tónlistarkennslan sé á sama stað.

Það felast styrkleikar í fæðinni, nemendur njóta þess með einstaklingsmiðuðu námi og týnast síður innan um aðra nemendur.

Styrkleikar skólanna felast líka í umhverfi þeirra og hvernig það er nýtt í kennslunni.

Nemendur í litlum skólum umgangast frekar nemendur á öllum aldursstigum.

3. Hvaða er brýnast að bæta?
Það er brýnt að bæta mönnun í skólunum - sérstaklega leikskólunum.

Það þarf að útbúa strax tímanbunda áætlun fyrir næstu ár fyrir samstarf á unglingastigi svo það þurfi ekki að hanga í óvissu með það fyrir hvert ár.

Það þarf að efla list- og verkgreinar.

Það er brýnt að fjölga börnum til að koma í veg fyrir félagslega einangrun en viðhalda samt nándinni sem felst í smæðinni.

Það þarf að koma unglingunum úr öllum skólum í samstarf.

Það þarf að koma á samstarfi milli skólanna.

Það þarf að bæta húsakost og aðstöðu margra skólanna, sérstaklega leikskólanna. Það þarf að sinna viðhaldi núverandi bygginga betur.

Það þarf að bæta vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk.

Það þarf að bæta aðgengismál í skólunum.

Það er mikill skólaakstur í sveitarfélaginu öllu. Það þarf að tryggja öryggi og velferð nemendanna allra. Í skólaakstri eru nemendur á öllum aldri saman í langan tíma eftirlitslaus, þarf að koma á stefnu og áætlun um skólaakstur.

Brýnt að hafa gott aðgengi að faglegri stoðþjónustu.

Koma faglegri tónlistarkennslu á.

4. Hvaða sóknarfæri sjáið þið helst? Hvernig viljið þið þróa starfið? Í skólanum ykkar? Í sveitarfélaginu?
Það er mikilvægt að koma á faglegu starfi með menntuðu fólki á leikskólunum. Það er hægt að gera skólana að aðlaðandi vinnustað til að halda starfsmönnum og þekkingu í skólunum.

Það væri hægt að nýta mannauðinn milli skóla, til dæmis kennara með sérfræðiþekkingu á borð við listgreinar, smíðar, eðlisfræði og efnafræði.

Nýta sérfræðiþekkinguna sem býr í samfélaginu og draga hana inn í skólana.

Nýta tæknina í fjarkennslu og samkennslu skólanna.

Efla tæknifærni nemendanna.

6. Hafið þið skoðanir á skólaskipan - og ef svo hverjar?
Á meðan það er þessi mönnunarvandi í leikskólunum þá gengur samrekstur skólanna illa. Á meðan það er alltaf verið að slökkva elda er lítið rúm fyrir faglega vinnu á báðum skólastigum.

Í núverandi ástandi er ekki tilefni til að sameina grunnskólana.

Það gæti verið sniðugt að sameina unglingastigið og þá á Laugum. Til að það gangi þarf að vera virk teymiskennsla.
Það fylgja mögulegu sameiginlegu unglingastigi áskoranir, til að mynda gætu unglingar úr Fnjóskadal kosið að fara frekar inn í Eyjafjörð sem er nær.

7. Hvernig viljið þið sjá skólastarfið eftir fimm til tíu ár? Hvað viljið þið helst að einkenni það?
Skólarnir eru fullmannaðir fagfólki. List- og verkgreinum og útikennslu er gert hátt undir höfði.

Samstarf skólanna í sveitarfélaginu verður faglegt og komið í fastar skorður.

Það sem einkennir skólana er að þar eru sjálfstæðir, hraustir og hamingjusamir nemendur.

Eftir 5-10 ár verða skólarnir eftirsóttir og aðlandi vinnustaðir. Það er ekki nóg að skólarnir séu það heldur þarf samfélagið allt að vera eftirsóknarvert að búa í því. Hér verður öflugt félags- og íþróttastarf, sundlaug og blómstrandi mannlíf og síðast en ekki síst húsnæði í boði fyrir áhugasamt starfsfólk!

5. Hvernig sjáið þið fyrir ykkur samstarf skólanna og við kennara í nágrannasveitarfélögunum?
Efla fyrst og fremst félagslega samstarf skólanna, það að nemendurnir hittist og kynnist. Verið er að leggja grunninn að því með til dæmis Þingeyjarleikunum sem verða haldnir í vor.

Væri hægt að nýta útivistar- og þemadaga saman svo nemendurnir hafi þá bæði reynsluna af því að vinna saman og leika saman.