Strákurinn í röndóttu náttfötunum. by Ingólfur Arnar

Bókin fjallar um hinn 9 ára gamla Bruno sem býr í Berlín á tímum síðari heimstyrjaldarinnar. Þar býr hann í fimm hæða húsi ásamt foreldrum sínum og systur. Einn daginn þegar Bruno kemur heim úr skólanum tilkynnti móðir hans honum að fjölskyldan þyrfti að flytja vegna vinnu föður hans, það hefði Firringurinn (Hitler) tilkynnt þegar hann kom til þeirra í kvöldmat og að föður hans væru ætlaðir miklir hlutir. Bruno fannst það frekar sérstakt því hann vissi ekki hvað það var sem faðir hans starfaði við.
Á nýja staðnum, Ásvipti (Auschwitz) fannst Bruno allt miklu verra heldur en heima í Berlín, fyrir utan húsið hans var há girðing þar sem fullt af fólki var fyrir innan, allir í röndóttum náttfötum, allt grátt og óspennandi.
Einn daginn fer Bruno í könnunarleiðangur, þar kemur hann að strák sem er hinum megin við girðinguna. Hann var í röndóttum náttfötum, grár í framan, grannur og augun sokkin. Hann og Bruno ræða saman. Strákurinn hét Shmuel. Í samtali þeirra komust þeir að því að þeir voru jafngamlir og áttu meira að segja sama afmælisdag.
Bruno hélt áfram að fara til hans á hverjum degi, hann tók með sér mat fyrir Shmuel og gaf honum, hann hafði loksins eignast vin á nýja staðnum. Í samtali þeirra má sjá að Bruno hefur ekki hugmynd um hvað það er sem fer fram á þessum stað. Hann hefur ekki hugmynd um helförina eða grimmdarverk landa sinna erlendis.
Á heimili hans komu reglulega hermenn við til að ræða við föður hans inni á skrifstofunni hans sem Bruno mátti aldrei fara inn á án leyfis föður síns.
Einu sinni þegar móðir hans Bruno er að undirbúa afmælisveislu fyrir föður hans, situr Shmuel skyndilega inni í eldhúsi, hann hafði komið með Kotler liðsforingja og átti að pússa glös fyrir veisluna. Bruno gefur honum fylltan kjúkling að borða á meðan Kotler og móðir hans Bruno sáu ekki til. Kotler sakar Shmuel um að hafa stolið matnum og það er næstum því búið að komast upp um vináttu þeirra félaga. Næst þegar þeir hittast er Shmuel allur marinn í andlitinu.
Bruno hittir ekki Shmuel í nokkra daga eftir þetta. Þrátt fyrir þetta gefst Bruno ekki upp á því að mæta á staðinn þeirra og einn daginn kemur Shmuel aftur. Hann segir Bruno frá því að hann hafi verið að leita að föður sínum sem hefur verið týndur í nokkra daga. Hann hafi farið að vinna ákveðið verkefni ásamt nokkrum öðrum og enginn þeirra hafi skilað sér aftur síðan.
Shmuel segir Bruno í einu samtalinu þeirra að þeir séu í Póllandi, að hann sé pólskur og að hann sé gyðingur og þess vegna sé hann þarna meginn girðingarinnar, að hann hafi einu sinni búið í venjulegu hverfi, að faðir hans sé úrsmiður og mamma hans kennari og þess vegna kunni hann þýsku.
Móðir hans Bruno var orðin leið á því að búa á þessum stað og sú ákvörðun er tekinn að þau flytji aftur heim til Berlínar, Bruno, Gréta systir hans og móðir þeirra. Pabbi þeirra verði eftir. Bruno tilkynnir Shmuel þetta þegar þeir hittast næst og þeir skipuleggja lokadaginn sinn saman. Þá ætli þeir að fara saman í könnunarleiðangur að leita að föður hans Shmuel. Shmuel ætlar að koma með föt fyrir Bruno svo hann falli inn í hópinn, það vildi svo til að Bruno þurfti að snoða sig nokkrum dögum áður vegna þess að hann var með Lús og var þessvegna alveg eins um hausinn og Shmuel.
Það rigndi mikið fyrr um daginn sem þeir ætluðu að láta verða að þessu, á meðan að þau systkinin voru í heimakennslu, en stytti síðan upp þegar hann fór út að hitta Shmuel. Bruno tekur við fötunum og hefur fataskipti og skríður svo undir girðinguna. Það sem hann sér hinum megin við girðinguna var allt öðruvísi heldur en hann bjóst við og honum leið óþægilega að vera þar. Þeir fundu engar vísbendingar um föður hans og Bruno ætlaði að fara að koma sér heim. Þá er flautað og hópurinn sem þeir eru inn í er umkringdur hermönnum. Shmuel segir honum að þetta gerist stundum og að þeir séu að fara í gönguferð. Í gönguferðinni byrjar að rigna og þeir enda á því að fara inn í gluggalaust hús, þar er myrkur og svo er hurðinni lokað á eftir þeim. Bruno heldur í sakleysi sínu að þarna séu þeir lokaðir inni til að forða þeim frá rigningunni.
Það er lýst eftir Bruno í langan tíma á eftir og mamma hans og systir fara aftur til Berlínar og  hún heldur að Bruno hafi farið þangað sjálfur og bíði eftir þeim. Að lokum finnur svo faðir hans fötin hans við girðinguna og áttar sig á því hvað hafði komið fyrir.

Rithöfundur bókarinnar er hinn írski John Boyne. Bókin kom út árið 2006 og Áslaug Agnarsdóttir sá um íslenska þýðingu sem kom út árið 2008.
Veröld bókaforlag sá um útgáfu hennar. Þýðingin var styrkt af Evrópusambandinu.
Bókin var einnig kvikmynduð árið 2008 undir leikstjórn Mark Herman.
Bókin hefur einnig verið sett upp í leikhúsi og sem balletsýning.

Hægt er að nálgast bókina á bókasöfnum um land allt.
Hún er einnig til sölu hjá Forlaginu og Pennanum Eymundsson. Þar að auki er hún aðgengileg hjá Hljóðbókasafni Íslands.

Verkefnið myndi vera viðeigandi fyrir nemendur í 9. eða 10. bekk. Þessi aldurshópur er nógu gamall til að skilja efni bókarinnar og geta sett sig í aðstæður og spor persónanna. Efni bókarinnar er tiltölulega þungt og fjallar um kaldan veruleika fólks í seinni heimstyrjöldinni og væri því efnið ekki við hæfi yngri nemenda. Bókin tekur á mikilvægum málefnum, svo sem stéttarskiptingu, rasisma, stríði, ofbeldi og fleiri þáttum sem mikilvægt er að nemendur fræðist um.

Við ákváðum að vinna með bókina The boy in the striped pyjamas. Kennslunni væri þannig háttað að nemendur fá bókina afhenta og taka hana með sér heim til að lesa. Við gerum lestraráætlun fyrir bekkinn okkar þar sem nemendur eiga að lesa ákveðin fjölda blaðsíðna á dag, t.d. 2-3 kafla og því ætti lesturinn að taka um tvær kennsluvikur.

Við höfum einnig útbúið verkefnamöppu tengda bókinni sem nemendur vinna í samhliða lestrinum. Verkefnamappan inniheldur spurningar úr bókinni ásamt umræðupunktum sem við kennararnir höfum valið sjálf til að ræða við bekkinn. Mikilvægt er að nemendur vinni spurningarnar í takt við lesturinn svo þeir dragist ekki aftur úr og séu með á nótunum þegar kemur að bókinni.

Þegar nemendur hafa klárað að lesa bókina og skilað inn verkefnamöppunni sinni þá tekur við ritgerðarverkefni. Ritgerðarverkefnið er í beinum tengslum við bókina sem við völdum. Mikilvægt er fyrir okkur sem kennara að ræða við nemendur um ritgerðasmíð, hvað er það sem einkennir góða ritgerð og hvernig skal hefjast handar. Ræða við þau um inngang, meginmál og lokaorð og önnur tæknileg atriði sem þarf að hafa á hreinu.
Við getum gefið nemendum hugmyndir að efni til að skrifa um og getur það verið margþætt, allt frá því að skrifa um ákveðna persónu í bókinni eða málefnum sem koma fyrir í henni á borð við stéttarskiptingu, rasisma, stríð og ofbeldi. Nemendur hafa í raun frjálsar hendur innan ákveðins ramma þegar kemur að viðfangsefni.

Nemendur hafa um 2 vikur til að skrifa ritgerðina.
Mikilvægt er að nemendur læri að fylgja fyrirmælum þegar kemur að ritgerðasmíðum á borð við lengd, letur og leturstærð og einnig uppsetningu, að hún innihaldi forsíðu, inngang o.s.frv.

Í hæfniviðmiðum samfélagsgreina í aðalnámskrá er talað um mikilvægi þess að nemendur geti sýnt fram á skilning á mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, fyrir mannréttindum, félagslegu réttlæti, jöfnuði og helgi mannlegs lífs.
Þessi bók fjallar um mikilvæga þætti mannkynssögunnar, helförina og seinni heimstyrjöldina ásamt því að koma inn á alls kyns önnur álitamál. Sagan er sögð frá sjónarhorni 9 ára drengs sem ekki er alveg meðvitaður um hvað sé að eiga sér stað í heiminum. Í bókinni sjáum tvo drengi, jafn gamla, með alveg mismunandi bakrunn og vináttuna sem skapast þeirra á milli. Vináttan sem skapast þrátt fyrir það hvað þeir eru ólíkir. Bókin sýnir hvernig Bruno aðalpersónan lítur ekki á Shmuel sem óvin þó svo að hann sé gyðingur en í umhverfi Brunos eru gyðingar óvinirnir. Bókin er kjörin til þess að skapa umræður um söguna, vináttu, hvernig börn hugsa fordómalaust áður en umhverfið hefur áhrif á þau og hvernig við getum lært af mistökum fyrri kynslóða.
Við kennslu bókarinnar er hægt að samþætta nokkrar kennslugreinar, svo sem samfélagsfræði, íslensku og lífsleikni svo eitthvað sé nefnt.
Einnig má þess geta að til eru kennsluleiðbeiningar eða tillögur að því hvernig hægt er að notast við bókina í kennslu, þær eru hægt að nálgast á vefversluninni Amazon.

Markmiðið okkar sem kennarar er að með þessu verkefni fáum við nemendur okkar til þess að lesa, skrifa og fyrst og fremst til að hugsa. Hugsa um söguna og lestur hennar, skoða hana frá fleiri sjónarhornum en aðeins texti á blaði, sögulegum sem og listrænum. Hugsa um viðfangsefni hennar, deilur, átök og mannleg tengsl. Fá nemendur einnig til þess að virða samfélagið í kringum sig og geta sett sig í spor annarra. Umræðurnar með kennurum og samnemendum koma þar sterkt inn og eru mikilvægur þáttur.
Mikilvægt er að nemendur fái svigrúm og tækifæri til að koma sínum eigin hugsunum á framfæri og geti fært rök fyrir skoðunum sínum og veitum við þeim tækifæri til þess, bæði í umræðutímum en fyrst og fremst í formi ritgerðar sem þeir eiga að skila frá sér sem bindur allt verkefnið saman. Ritgerðin er kjörið tækifæri fyrir nemendur að láta ljós sitt skína og til þess að tjá sig á rituðu máli um það sem liggur þeim á hjarta.

4.1 Kveikja
Nemendum er sýnt kvikmyndin The Pianist. Myndin var gefin var út árið 2002 og hlaut mikilla vinsælda á sínum tíma. Hún er byggð á sönnum atburðum um píanóleikarann og gyðinginn Władysław Szpilman sem bjó í Póllandi í seinni heimstyrjöldinni. Myndin gefur nemendum annað sjónarhorn á atburði seinni heimstyrjaldarinnar heldur en bókin. Hún er hrárri og áhorfendur sjá frá sjónarhorni fullorðins manns en bókin er sögð frá sjónarhorni barns sem skilur ekki alveg aðstæður.

4.2 Aðstæður
Nemendur lesa bókina og vinna spurningar úr lesefni vikunnar heima og í skólanum eru umræðutímar.
Í umræðum þar sem kennarinn er með, þá sitja nemendur við sín borð og ræða allir saman sem bekkur. Þegar nemendum er skipt í nokkurra manna umræðuhópa fá þeir frelsi til að vera þar sem þeir vilja í stofunni eða fá að fara á bókasafnið. Í stofunni er horn með mottu og púðum til að gera rýmið sem notalegast.
Í umræðutímum ræða nemendur umræðuspurningar sem tengjast lesefni vikunnar og einnig eru spurningar vikunnar ræddar. Mikilvægt er að hafa umræðutíma þar sem viðfangsefni bókarinnar getur verið þungt og átakanlegt, þar fá nemendur að koma sínum skoðunum og sjónarmiðum á framfæri.

4.3 Umræðuspurningar
Umræðuspurningar þjóna margvíslegum tilgangi, bæði til að fræða nemendur um tiltekið efni en einnig til að virkja þá í samræðum og heyra álit þeirra og skoðanir á mörgum viðfangsefnum bókarinnar.

Umræðurnar er hægt að vinna á margvíslegan hátt. Allt frá því að kennarinn ræði við bekkinn í heild sinni um tiltekin málefni og í að nemendum sé skipt í minni hópa og þeir ræða og rökræða sín á milli og miðla síðan upplifun sinni til allra.

Hugmyndir að umræðuspurningum

Hvernig stendur á því að Bruno átti sig ekki á því sem faðir hans gerir eða því sem er að eiga sér stað í Auschwitz?

Hvernig er gyðingum lýst í bókinni ?

Hvað er athyglisvert við það sjónarhorn sem John Boyne hefur lagt fram fyrir lesandanum?

Helförin.

Jafnrétti.

Rasismi.

Stéttarskipting.

Er eitthvað í sögunni sem á ennþá við í okkar samfélagi í dag?

Hvaða áhrif höfðu flutningarnir á Bruno, Gretel og mömmuna?

Hvað er líkt og ólíkt með Bruno og Scmule ?

Lýsið vináttu þeirra Bruno og Scmule.

Ætli viðhorf Herforingjans (Pabba Bruno) til stríðsins hafi breyst eftir þá atburði sem áttu sér stað í lokin?

Hver er boðskapur sögunnar?

4.4 Önnur úrvinnsla
Með bókinni fá nemendur einnig verkefnablöð frá kennara. Á verkefnablöðunum eru spurningar úr lesefni hverrar viku, um 5 til 10 spurningar. Í umræðutímum ræðir kennari þessar spurningar við nemendur og út frá þeim getur skapast góð umræða. Að vinna spurningar úr bókinni veitir nemendum einnig betri skilning á efni hennar.

Að loknum lestri vinna nemendur ritunarverkefni í tengslum við bókina. Kennari gefur nemendum hugmyndir að viðfangsefnum, dæmi um hugmyndir gætu verið sýnileiki rasisma í bókinni, hvernig stéttarskipting birtist í bókinni, að skrifa um ákveðna persónu eða þess háttar.

Því næst horfa nemendur saman á kvikmyndina The Boy in The Striped Pyjamas. Þessi hluti er hugsaður til að verðlauna nemendur fyrir vinnu sína og til þess að eiga góða stund saman sem bekkur.