ÍSLE2RB05 - Lokaverkefni úr Gylfaginningu by MTR

Embla Sól Bergþórsdóttir
Lokaverkefni

Ég valdi að gera Fenrisúlf af því að mér finnst sagan um hann í Gylfaginningu ein sú ághugavert í norrænu goðafræðinni. Hann er eitt af börnum Loka og Angurboðu og goðin óttuðust hann mikið af því hann stækkaði svo hratt og varð svo hrikalegur. Mér fannst spennandi að reyna að fanga þennan karakter í hekl.

Sagan segir frá því hvernig goðin reyndu tvisvar að fanga hann með keðjum (Læðingi og Dróma) sem hann sleit léttilega, Að lokum þurftu dvergarnir að smíða töfrafjötunrinn Gleipni. Hann var gerður úr hlutum sem enginn sér í dag, eyns og dyn fótataksins hjá köttum, skeggi kvena, róttum fjallana og anda fisksins.

Íheklinu reyndi ég að sýna þessa sögu með því að bæta við smáatriðum sem gefa úlfinum dýpt. Ég heklaði keðju sem á að tákna Gleipni sem hélt honum föstum. Ég notaði líka rut garn í kringum munnin til að tákna blóðið þegar hann beit höndina af Tý og ég saumaði nokkur sár á Fenrir eftir Gleypni og goðin.

Viktoría Honganh Phang Mánadóttir

Ísabella Nótt Karlsdóttir
Titill á verki: Ragnarök

Stærð á verki: Mun vera á 30x30 striga

Upplýsíngar um verkið:

Verkefnið mitt fjallar um Ragnarök í norrænni goðafræði. Ég valdi þetta efni vegna þess að mér fi nnst það spennandi og dramatískt.

Í teikningunni sýni ég þór verjast við miðgarðsorminn í lokabardaga heimsins. Ég er búin að skissa verkið svo mun ég nota vaxliti til að lita það.

Þetta tengist Gylfaginningu því Ragnarök er mikilvægur hluti af sögunni.

Björgvin Bjarni Elíasson
Verkið mitt er tölvugert plakat sem sýnir Ragnarök. Á plakatinu sést dramatísk bardagasenur þar sem guðir og skrímsli berjast í mikilli ringulreið. Í miðjunni er hetjuleg persóna á hesti sem táknar bardaga guðanna, en í kring eru myrkar verur sem tákna jötna og eyðileggingu heimsins. Eldur og dökkir litir eru notaðir til að sýna að heimurinn er að farast.

Ég notaði Canva til að búa til plakatið og valdi mynd sem sýnir mikla hreyfingu og spennu. Ég bætti síðan við texta til að útskýra hvað Ragnarök eru, hvað gerist og hvað kemur eftir. Ég notaði dökka liti og gradient til að gera textann skýrari og til að skapa dramatískt andrúmsloft.

Tenging við einkunnarorð skólans

Verkið mitt tengist einkunnarorðum skólans á eftirfarandi hátt:

- Frumkvæði: Ég valdi sjálfur viðfangsefni og útfærslu og tók sjálfstæðar ákvarðanir í hönnun plakatins.

- Sköpun: Ég notaði myndir, liti og texta á skapandi hátt til að miðla efni sögunnar.

- Áræði: Ég valdi að vinna með dramatískan og stóran atburð og setja hann fram á áberandi og kraftmikinn hátt.

Gudný Clausen

Kristján Tyler Horne
Titill verks: Valhöll

Stærð er A3 blað, 29 x 42 cm.

Þetta verk er teiknað með teiknikoli sem mér finnst gaman að teikna með, þótt það sé leiðinlegt að þrífa kolinu af vinnuborð, hendur og af teikningunni sjálfa þar sem kol smyrjist yfir myndina við teikningu.

Ég valdi að teikna valhöll eins og ég sé fyrir mér. Ég sá fyrir mér hvernig ég vildi teikna þetta verk og náði að dunda mér við þetta um kvöldin og um helgar. það var mikið þrifið eftir sig fyrir svefn og ég þurfti að vanda mig rosalega að þrífa ekki af það sem var teiknað þegar ég þurfti að stroka út kol sem dreyfðist út um alla myndina. Ég notaði svart, grátt og hvít teiknikol og pappír til þess að skyggja

Einkunnarorð skólans "frumkvæði, sköpun og áræði". Frumkvæði og sköpun koma í huga við teikningu verksins. Mér finnst áræði eiga við verkið þar sem ég hef ekki teiknað með teiknikol í langan tíma og vissi ekkert hvernig þetta myndi koma út, en ég er sáttur með mitt verk og ætla reyna finna mér meiri tíma í að skapa meira útaf þessu verkefni.

Alexandra Jóhannesdóttir

Sigurður Bjarnason

Kristján Sigurðarson
YGGDRASILL - Kristján Helgi Sigurðarson

Yggdrassill er lokaverkefnið mitt í íslensku, málað með vatnslitum.

Áhugamál mitt er saga og verkið sýnir Yggdrasill túlkað, tréð sem heldur uppi öllum heimum í norrænni goðafræði. Í þessu samhengi er tréð ekki bara goðsagnakennt fyrirbæri, heldur táknar tengsl lífs, dauða, hugsana, vals og afleiðinga. Ræturnar teygja sig djúpt niður á meðan greinarnar ná út í ólíkar áttir, sem endurspeglar leit mannsins að eigin stöðu og stefnu í tilverunni.

Í myndinni er lögð áhersla á uppbyggingu heimsmyndarinnar sem lýst er í Gylfaginningu. Yggdrasill tengir saman ólíka heima og við rætur þess má ímynda sér brunnana þrjá, þar á meðal Urðarbrunn, þar sem nornirnar vökva tréð og viðhalda lífi þess. Nornirnar, sem tengjast fortíð (Urður), nútíð (Verðandi) og framtíð (Skuld), móta jafnframt örlög manna og undirstrika þannig þá hugmynd að líf hvers einstaklings sé hluti af stærra og fyrirfram mótuðu samhengi. Í greinum trésins eiga sér einnig stað ýmis ferli; þar má finna dýr á borð við örn í toppi trésins og íkorna sem heitir Ratatosk og fer með skilaboð frá erni í efri hluta trésins, til dreka í neðri hluta trésins. Örninn hefur yfirsýn og visku, milli augna hans situr haukurinn Veðrfölnir. Drekinn Níðhöggur reynir að eyða trénu, með því að naga rætur, á meðan nornir reyna að viðhalda trénu. Þannig eru átök og hreyfing í Yggdrasil.

Í verkinu er óreiða sem vísar í margbreytileika hugans og tilveru. Þarna er samspili ljóss og myrkurs, jafnvægi sem getur breyst. Þetta tengist Gylfaginningu, þar sem Yggdrasill er sterkt en ýmislegt getur haft áhrif á jafnvægi þess. Í tengslum við ragnarök má hugsa skjálfta trésins sem tákn fyrir hrun gamla heimsins og breytingu yfir í eitthvað nýtt. “Gamli heimurinn” hrundi árið sem ég fæddist 2008 þegar bankar hrundu og það þurfti að byrja upp á nýtt.

Einkunnarorð MTR - frumkvæði, sköpun og áræði - þetta endurspeglast í verkinu á markvissan hátt. Ég sýni frumkvæði með því að túlka tréð á minn eigin hátt, ekki bara eins og því er lýst í bókum. Ég lagði áherslu á sköpun með litum og formum sem eiga að láta mann stoppa og hugsa aðeins. Svo er það áræði - að þora að gera eitthvað sem er ekki endilega rétt eða fullkomið, en samt mitt verk.

Ég er ennþá að reyna að skilja fullt af hlutum - bæði í þessum gömlu sögum og bara í lífinu almennt. Kannski er Yggdrasil svolítið eins og það: eitthvað sem maður skilur ekki aldrei alveg, en heldur samt áfram að pæla í þegar maður hugsar um lífið og jafnvægi í lífinu.

Verkið sést hérna fyrir neðan og málað með vatnslitum (gouache) á striga og er 30x40 cm að stærð.

Sæunn Hólmarsdóttir
Ég heiti Sæunn Hólmarsdóttir og þetta er verk mitt, “Hrímfaxi og Skinfaxi."
Verkið er teiknað á A4 blað.

Við sköpun jarðar fengu hinar ýmsu persónur stór hlutverk, og mér þykir merkileg útskýringin sem Gangleri fékk á því hvernig þeir aðgreindu dag og nótt.
Nótt Narfadóttir átti með ásnum Dellingi son sem hét Dagur.
Nótt var svört yfirlitum en Dagur var bjartur og fagur.
Óðinn úthlutaði þeim tvo hesta, Hrímfaxa og Skinfaxa.
Á hverjum tveimur dægrum, eða hvern morgunn, ríður Hrímfaxi eftir himninum með Nótt á bakinu og döggvar jörðina með munnvatni sínu en Skinfaxi ríður á eftir þeim með Dag og er hann svo bjartur að það lýsist allt loftið og jörðin af faxi hans. Þarna kemur útskýringin á því afhverju dagurinn er bjartur og hví morgundöggin myndast á yfirborði jarðar.
Mér þótti skemmtileg hugmyndafræðin á bakvið þær persónur sem stýra gangi jarðarinnar og þótti þessir tveir hestar hljóma ekki síður merkilegir en Sleipnir með sína átta fætur.

Ég sá þá svo skýrt fyrir mér og fékk þá hugmynd að teikna þá í þeirri mynd sem ég sá þá. Ég ímyndaði mér þá stund er þeir kvöddust áður en þeir riðu af stað upp í himininn.

Til þess að tengja þetta verk við einkunnarorð skólans, þá áræddi ég loks að teikna eitthvað eftir 10 ára hlé. Það tók mig nokkrar tilraunir að safna kjarki í að byrja á myndinni.
Ég notaði sköpun til þess að færa hestana á blað eftir mínu höfði í bæði útliti og litasamsetningum. Hrímfaxi er með kuldalega fjólubláa og bláa undirtóna og sítt fax því hann fylgir Nótt en Skinfaxi varpar upp birtu úr faxi sínu, er bjartur og snögghærður.
Ég sýndi einnig frumkvæði því það er ekki að finna margar myndir af þessum tveimur persónum úr Snorra Eddu.

Valdimar Valdimarsson

Frímann Ásgeirsson
Titill verks:
Yggdrasil - Heimarnir níu

Stærð:
A3

Upplýsingar um verkið:
Verkið mitt er mynd af Yggdrasil, tré heimsins, úr Gylfaginningu. Ég valdi að teikna heimsmyndina þar sem tréð tengir saman alla níu heimana, eins og Ásgarð, Miðgarð og Hel.

Á myndinni sést tréð í miðjunni með greinum og rótum sem tengja heimana saman. Ég notaði mismunandi liti til að sýna muninn á þeim, til dæmis bjarta liti efst og dekkri neðar til að skapa andstæðu milli heimanna.y

Verkið tengist Gylfaginningu þar sem þar er fjallað um uppbyggingu heimsins og heimana níu. Með þessu verki er ég að sýna hvernig þessi heimsmynd lítur út samkvæmt norrænni goðafræði.

Mér fannst áhugavert að vinna með þetta efni en líka smá krefjandi að teikna tréð og tengja alla heimana saman á skýran hátt.

Einkunnarorð skólans koma fram í verkinu þar sem ég sýndi frumkvæði með því að velja mína eigin útfærslu, sköpun í því hvernig ég teiknaði tréð og heimana og áræði með því að takast á við stórt efni úr goðafræði og færa það í mynd.

Einar Snorri Snorrason