Bergþóra Guðmundsdóttir og Guðrún Edda Haraldsdóttir by Guðrún Edda Haraldsdóttir

Útdráttur
Sagan sem við ákváðum að nota í verkefnið heitir Pollýanna og er það jafnframt nafn aðalpersónu sögunnar. Pollýanna er ung stúlka sem misst hefur báða foreldra sína og er því send til að búa hjá móðursystur sinni, ungfrú Pollý, sem er auðug af fé en síður af hamingju. Faðir Pollýönnu var prestur og hafði alið hana upp við mikilvægi þess að sjá ávalt það jákvæða við allt í lífinu, sama hversu erfitt það var. Pollýanna kemur inn í líf frænku sinnar og allra annarra sem hún hittir sem bjartur sólargeisli og hjálpar fólki að læra og nýta sér  jákvæðnileikinn sem pabbi hennar hafði kennt henni til að sjá góðu hlutina í oft erfiðu lífi sínu.

Uppruninn
Pollýanna er saga eftir Bandaríska rithöfundinn Eleanor H. Porter og kom hún fyrst út sem bók árið 1913. Bókin hefur verið gefin út á íslensku nokkuð oft en sú útgáfa sem nú er aðgengilegust er sjötta íslenska útgáfan. Þýðingu hennar annaðist Freysteinn Gunnarsson og er hún fáanleg í flestum bókaverslunum og bókasöfnum, þar á meðal hljóðbókasafninu. Hún var gefin út af Uglu og hefur verið endurprentuð nokkrum sinnum, síðast árið 2013.

Nokkuð hefur verið skrifað um bókina og má meðal annars finna 1.931 dóm um hana á Goodreads hér: https://www.goodreads.com/book/show/1000751.Pollyanna.

Bíómyndin
Nokkrar kvikmyndir hafa verið gerðar eftir bókinni en sú nýjasta kom út árið 2003 og var leikstýrt af Sarah Harding en Simon Nye skrifaði handritið eftir bók Porters. Hún er aðgengileg án endurgjalds á YouTube í góðum gæðum en því miður ekki með íslenskum texta. Walt Disney gaf einnig út myndina Pollýanna árið 1960 sem var byggð á bókinni og er hún fáanleg á Amazon.

Hér er má finna umfjöllun um myndina: https://www.imdb.com/title/tt0314519/reviews

Myndin frá 2003

Aldurshópurinn
Við hugsum þetta verkefni fyrir 8. bekk grunnskóla.
Ástæðan er sú að við teljum þann aldur nógu þroskaðan til að skilja dýpri hluta efnisins en enn nægilega móttækileg fyrir boðskapnum sem okkur langar til að þau móttaki í verkefninu.

Hér er linkur á myndina:

Innlögnin
Við sjáum fyrir okkur að verkefnið nýtist sem samþætt verkefni íslensku og lífsleikni og yrðu tímar hjá umsjónarkennara nýttir í að afhenda bókina. Nemendurnir nýta hana til heimalesturs auk þess sem þau mega nýta yndislestur í skólanum. Nemendur fá tvær vikur til að klára bókina og á þeim tíma verður hún rædd lauslega í tímum en ekki farið djúpt í hana. Kennari mun þó benda á punkta sem gott er að velta fyrir sér í hverjum hluta bókarinnar eftir því sem lestrinum miðar áfram.

Að tveimur vikum liðnum horfum við með þeim á myndina og nýtum til þess samliggjandi tíma í stundatöflu. Það eru flest allar stofur í skólum með skjávarpa og hátalara og krakkarnir geta legið á gólfinu og setið á borðum eða jafnvel í sumum skólum setið í sófa og grjónapúðum.

Verkefnið
Eftir myndina skiptum við þeim upp í þriggja til fjögurra manna hópa og þar eiga þau að ræða saman og vinna verkefni sem ber yfirskriftina: Hvað er að vera Pollýanna? Spurningarnar sem þau eiga að velta fyrir sér eru:

Hvað er að vera Pollýanna?

Hvað gerir Pollýönnu sérstaka?

Hvernig get ég hugsað sem Pollýanna?

Eftir umræður á hver hópur að finna að minnsta kosti 8 atriði sem þau sjálf geta nýtt til að breyta sinni hugsun til betri vegar þegar kemur að jákvæðni. Hver hópur býr til stutta kynningu á sínu verkefni og má hún vera í formi veggspjalds eða glærusýningar með munnlegri kynningu, leikrits eða myndbands. Kynningar munu fara fram í lífsleiknitíma hjá umsjónarkennara og eftir að allir hópar hafa kynnt sín verkefni verða umræður.

Meira um myndina
https://www.theatlantic.com/entertainment/archive/2013/02/how-we-all-became-pollyannas-and-why-we-should-be-glad-about-it/273323/

Af hverju Pollýanna
Börn og unglingar í dag lifa í heimi þar sem mikið er passað upp á að þau þurfi sem sjaldnast að takast á við erfiðleika. Hvernig sem heimilis- og félagsaðstæður eru er markmið fullorðinna oft að bólstra sem mest í kringum þau svo að þeim líði sem best. Það er alls ekki alslæmt en af þeim sökum eru ungmenni oft illa í stakk búin til að takast á við mótlæti og eiga erfitt með að sjá ljósu punktana þegar eitthvað bjátar á.

Pollýanna sem saga, hvort heldur sem er í bóka- eða bíómyndaformi, er svo innilega einlæg og kennir þeim sem henni kynnast einmitt þetta sem upp á vantar. Hún sér ávalt góða punkta í öllu og er þakklát fyrir það sem að henni er rétt, jafnvel þó það sé ekki alltaf það sem hana vantaði eða hún óskaði sér.

Hvenær
Ein af tímasetningunum sem okkur datt í hug að gæti verið sniðug væri til dæmis rétt fyrir jól. Þá væri hægt að tvinna inn í verkefnið væntingarstjórnun og gleði yfir öllum gjöfum, litlum sem stórum.

Lokaorð
Í þeim heimi sem við erum að ala börn upp í í dag væri mjög jákvætt að sem flestir kynntust Pollýönnu og tækju hana sér til fyrirmyndar.

Við vonum því að sem flest ungmenni kynnist henni og Pollýönnum heimsins fari ört fjölgandi.

Bergþóra, Guðrún Edda og Pollýannan í þeim báðum.

Eleanor H. Porter

Bókin sem er búið að lesa 31 sinni, hið minnsta.
Önnur okkar fékk Pollýönnu í 11 ára afmælisgjöf árið 1988 og hefur lesið hana minnst einu sinni á ári síðan. Þetta eru áhrifin sem þessi dásamlega saga getur haft á fólk sem henni kynnist. Þig bara langar að eyða meiri tíma með Pollýönnu og hennar líkum og líkjast henni sem mest.

Það hefur verið sungið um hana líka: