Sjúkraliðanemar 1 ár - Vinnustellingar, flutningstækni og hjálpartæki by Ösp Jónasardóttir

Flutningstækni - Skái og vogarafl
Skái er flötur sem hallar þannig að flutningur verður auðveldari.

T.d. þegar rúm er hækkað til fóta þannig það myndar skáflöt til þess að auðvelda flutning skjólstæðings ofar í rúmið.

Vogarafl er nýtt þannig að þyngd skjólstæðings er notuð til að auðvelda flutning í hlutverki vogarstanga. Þegar handleggur og fótleggur virka sem vogarstangir verður léttara fyrir okkur að snúa skjólstæðingnum og þægilegra fyrir hann.

T.d. þegar snúa á skjólstæðing, þá er hann beðinn um að beygja annað hnéð og teygja handlegginn inn yfir líkamann, þannig að þyngdaraflið verkar á fótlegginn og handlegginn þegar hann reynir að snúa sér og auðveldar snúninginn.

vinnustellingar og hvernig er æskilegast að beita líkamanum í vinnunni
Mikilvægt er að temja sér góðar vinnustellingar sem hæfa þeim verkum sem þú sinnir hverju sinni.

Gott er að hafa eftirfarandi í huga:

Forðastu að snúa upp á þig og hafðu S-sveigju á hryggnum - Við flutninga og tilfærslur skaltu vernda bakið með því að spenna samtímis maga-, hrygg- og grindarbotnsvöðva .annig heldur hryggnum í eðlilegri stöðu og kemst hjá bakmeiðslum. Ef þú snýrð upp á hrygginn á þéf við störf eykur þú álagið á hryggjarliðina. Þú kemst hjá því með því að passa upp á “Trýin þrjú” sem eru þitt eigin nef og skótærnar.

Hafðu liði í miðstöðu -  Brjósk gegnir því hlutverki að minnka núningsviðnámið milli beinanna svo þau leiki léttar í liðnum. Ef brjóskið eyðist núast beinin saman en ef þú gætir þess að hafa liðamót ekki óhóflega beygð við vinnu minnkarðu hættuna á að brjóskið eyðist. Og þegar þú passar upp á að vinna með liði í miðstöðu styrkjast vöðvarnirn við liðina

Notaðu stóru vöðvana - Stóru vöðvahóparnir eru skapaðir til að ráða við erfiða vinnu, til þessara vöðva teljast vöðvar í rasskinnum, lærum og kálfum. Þegar þú notar þessu stóru vöðva þá hlífir þú hryggjarliðunum, öxlum og handleggjum.

Beittu þyngdarfluttningi - Þegar þú nýtir þína eigin líkamsþyngd til að draga eða ýta því sem þú ætlar að færa til, beitirðu þyngdarflutningi. Þú beitir fótleggjunum og þyngd líkamans við að draga og úta í stað þess að nota aflið í handleggjum. Hafðu vegalengdir litlar og skiptu hreyfingu upp í smærri áfanga. Beygðu þig ögn í hnjánum þegar ú geitir þyngdarfluttning.

Hafðu gott jafnvægi - Mikilvægt er að hafa gott bil á milli fótanna þegar þú ýtir, dregur eða lyftir það gefur stöpuleika og gott jafnvægi. Þegar talað er um gott bil er átt við fjarlægð sem nemur mjaðmabreidd þinni og vest er að standa í skrefstöðu. Einnig er mjög mikilvægt að vera í góðum skóm.

Vertu þétt upp við viðfangsefnið - Ef þú stendu þétt upp við það sem þú ert að fást við þá hlífir þú bakinu og handleggjum. Ef þú færir þig þétt upp að því sem þú ætlar að lyfta þá verður álagið minna á bakið og einnig nærðu betra taki og það sem þú ætlar að lyfta virðist léttara eftir því sem þú hefur það þéttar upp við þig.

Spenntu grindarbotnsvöðvana - Þegar þú ýtir, dregur eða lyftir eykst álagið á grindarbotnsvöðvana því þú spennir magavöðvana. Mikilvægt er að spenna grindarbotnsvöðvanna áður en þú lyfir þungum hlutum, þannig býrðu þá undir álagið.

Lyftarar sem hjálpartæki, hvað er mikilvægt að tileinka sér í notkun þeirra og hver er munurinn á þeim seiglum sem hægt er að nota.
Til eru nokkrar gerðir af lyftörum sem notuð eru sem hjálpartæki.

Gólflyftari: Eru notaðir fyrir fólk sem getur ekki stigið í fæturnar, einnig til að ná fólk sem hafa dottið á gólfið.

Loftlyftari: Hentar fyrir sömu skjólstæðinga og gólflyftarinn, er einnig góður fyrir þunga sjúklinga og hann þarf ekki mikið gólfpláss.

Standlyftari: Þessi lyftari virkjar skjólstæðinginn, en hann þarf að geta staðið í fæturnar og geta haldið jafnvægi.

Algengustu seglin sem eru notuð á lyftara eru af þrennu tagi.

Heilsegl: Eru notuð ef styðja þarf höfuðið.
Hálfsegl: Notuð þegar skjólstæðingur getur haldið höfði hjálparlaust.
Salernissegl: Er lítið um sig og er notað til að fara með fólk á salernið, þægilegt er að smeygja buxunum niður áður en það er látið síga niður á salernið.

Þetta þarf að hafa í huga ef nota á lyftara sem hjálpartæki:

Að það sé gott pláss, bæði fyrir skjólstæðing, aðstoðarmann og lyftara.

Þeir eiga ekki að vera í bremsu þegar er verið að lyfta skjólstæðingnum, hemla á stand og gólflyfturum á aðeins að nota þegar þeir eru hlaðnir.

Má ekki vera teppi á gólfinu, gólfið þarf að vera hart og ósleipt.

Meiga ekki vera þröskuldar á flutningsleiðinni.

það er í okkar verkahring að halda dekkjunum hreinum á tækjunum.

Ef tækið bilar á að hafa samband við hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands.

Muna að setja lyftarann í hleðslu eftir notkun.

Æskilegast er að tveir starfsmenn hjálpist að við að lifta, en það getur verið mismunandi eftir vinnustöðum. Athugaðu reglurnar á þínum vinnustað.

Padlet D: Segðu frá því hvernig þú beitir flutningstækni þegar skjólstæðingur þarf hjálp við að færa sig út að rúmstokknum.
Þegar rúmliggjandi sjúklingum er hagrætt, lyft og snúið þarf iðulega líka að skipta um, færa til og laga rúmfatnað svo að vel fari um þá. Yfirleitt þarf tvo starfsmenn til verksins, stundum jafnvel fleiri. handtökin eru mörg og það þarf að gæta þess að hvorki sjúklingur né starfsfólk skaðist við hnjaskið. Þá skiptir máli hvernig dýnan í rúminu er og hvort hún passar í rúmið, hvernig lök eru notuð, hvernig hliðargrindur eru hannaðar og hvernig stýribúnaður rúmsins, bremsa, gálgi og steypibúnaður eru útfærð.
Ávallt sjá til þess að samskipti þín við sjúklinga séu góð. Sjúklingarnir verða að skilja hvað þú gerir - og þú verður að skilja hvað þeir vilja. Gott er að segja sjúklingum frá fyrirhuguðum flutningi og útskýra hvað þú ætlir að gera. Sjúklingar sem þarfnast hjálpar við að færa sig eiga oft erfitt með að tjá sig eða skilja hvað þú segir við þá.

Þú þarft að sem sagt að færa sjúkling að þér

Sjúklingur getur beygt hne og hjálpað til

Þú leiðbeinir honum með hvernig hann ber sig að með fætur og hendur.

Nú smegirðu rennilaki inn undir sjúklinginn - frá mjöðmum og upp fyrir höfuðið.

Þverlak ofan á rennilakið. Með rennilakinu minnkarðu núningsviðnámið.

Næst biðuru sjúkling um að færa fætur ögn í áttina til þín. Leiðbeinir síðan hverng hann ber sig að með eðlilegum tilburðum.

Síðan skaltu draga sjúkling að þér. Þú togar í þverlakið  sem liggur ofan á rennilakinu. Mundu að beita þyngdarflutningi þegar þú togar í þverlakið.

Padlet W. Segðu okkur frá því hvernig það að nota stóru vöðvana og beita þyngdarflutningi getur haft góð áhrif á vinnustellingar og flutningsgetu okkar.
Hentugri líkamsstöðu við vinnu er best lýst þannig að starfsmaðurinn geti unnið með

beint bak og slakar axlir, með olnbogana sem næst líkamanum, hvort sem unnið er

standandi eða sitjandi.

Það er Þrjár mikilvægar reglur sem við þurfum alltaf að hafa i huga :

• Haltu hlutnum eins þétt að líkamanum og hægt er allan tímann

• Varastu að snúa uppá hryggsúluna þegar haldið er á þungum hlutum
• Notaðu stóru lærvöðvana til að lyfta en ekki bakvöðvana.

Padlet E. Hvaða flutningstækni beiti ég þegar ég aðstoða skjólstæðing við að setjast fram á rúmstokkinn.
Aðferð:
Mikilvægt er að skjólstæðingur liggi nógu ofarlega í rúminu þegar höfðalagið er hækkað. og að hann liggi með mjaðmirnar þar sem grófin myndast.

Byrja á að hækka höfðalagið og biður skjólstæðing um að færa fótleggina hægt út að rúmmstokknum, þannig nýtirðu eigin getu og eðlilega tilburði skjólstæðings.

Réttir skjólstæðingnum aðra höndina og beitir þumalgripi og styður með hinni hendinni við fótlegginn á honum. ef fætur skjólstæðings eru þungir þá er gott að smeygja rennilaki undir hæla hans því þannig minnkar núningsviðnámið á hælunum.

Einnig er hægt að smeygja rennilaki undir þá rasskinn sem snýr að þér, þannig minnkar núningsviðnámið enn frekar.

Gæta þarf þó að rennilakið nái ekki alveg fram á rúmstokkinn því þá er hætta á að skjólstæðingurinn renni fram af.

Hvernig Beitum við flutningstækni þegar skjólstæðingur flyst úr rúmi í hjólastól
Alltaf skal hugsa vel um sig og líkama sinn. Mikilvægt að temja sér góðar venjur í upphafi.. Nota stóru vöðvana, þyngdarflutnig og vera í jafnvægi.

Í upphafi hvers verks þurfum við að vera meðvituð um hvað sjólstæðingur getur.  Tölum við skjólstæðing og látum hann vita hvað við erum að fara að gera. Svo hann geti hjálpað til.

Ef skjólstæðingurinn fær (á sínum eigin hraða) að stjórna flutningi frá rúmi í hjólastól t.d. getur það orðið til að styrkja sjálfsímynd hans. Ef við reynum að skapa traust, þannig að skjólstæðingurinn verði óhræddur og virkur þátttakandi, verður hver tilfærsla þjálfun. Skjólstæðingurinn býr yfir auðlind sem ber að nýta bæði honum sjálfum og aðstoðarmönnum hans til góðs. Starf okkar verður léttara með því móti.

Ef viðkomandi getur ekki gert þetta að neinu eða litlu leiti er best ef við getum verið tvö að aðstoða.

- Nýta skáa
- Nýta vogarafl
- Bjargráð
- Geta

Við notum þau hjálpartæki sem eru best í hverju tilfelli - fer eftir skjólstæðingum.

Myndbönd -
https://www.youtube.com/watch?v=JZPh9uK30eQ

https://www.youtube.com/watch?v=4BUlu0TNs_8

Padlet F - Segðu frá því hvernig þú beitir flutningstækni þegar skjólstæðingur þarf hjálp við að færa sig aftar í stólinn.
Ef skjólstæðingurinn getur hallað sér fram og til hliðanna þá sé ég til þess að hann nái með fæturna niður á gólfið, ef hann er í hjólastól þá set ég fótstigin á stólnum undir fætur hans. Þannig tryggi ég að skjólstæðingurinn renni ekki fram úr stólnum. Ég bið hann síðan að halla sér aðeins áfram og dálítið til hægri ýti svo á vinstra hnéð. Næst bið ég hann um að halla sér fram og til vinstri ýti svo á hægra hnéð. Þegar skjólstæðingurinn hallar sér fram og til hliðar nýti ég hans eigin getu. Ef ég finn að núnings- viðnámið undir skjólstæðingnum er mikið get ég smeygt undir hann rennilökum.

Padlet K.
Segðu frá því hvernig þú getur nýtt núningsviðnámið í fluttningsrækni og hvað vinnu aðferð við getum tileinkað okkur svo slíkt nýtist okkur í flutningstækni.

Alltaf að athuga hvað skjólstæðingurinn getur hjálpað sér sjálfur áður en við byrjum. Tölum við skjólstæðngin og látum hann vita hvað við erum að fara gera.

Flutningstækni snýst um að renna, snúa, velta, draga eða ýta einstaklingi í stað þess að lyfta honum.

Ef við þurfum að færa skjólstæðinginn ofar eða snúa í rumminu er gott að nota rennilak. Snúa þá skjólstæðingnum á aðra hliðina og leiðbeina honum hvernig hann ber sig að og snúahonum á aðra hliðina frá okkur frá setja rennilakið tvöfalt undir mjaðmir axlir og höfuð minkar þá núningsviðnámið.

Gott er að vera tveir að því ef einstaklingurinn getur ekki eða lítið hjálpað til. Passa alltaf uppá vinnu aðstöðuna okkar .
T.d þegar þú hækkar einstakling í rúmminu er gott að vera líka með skrið vörn og biðja einstaklingin að beygja fætunar og setja skriðvörn undir fætunar og biðja hann að spyrna í.

Padlet O
Segðu frá því hvernig þú getur nýtt náttúrulögmálin í flutningstækni. Segðu meðal annars frá því hvaða lögmál eiga við þar undir.

Ég get nýtt þau t.d. með að nota snúningslak þá get ég dreigið, snúið, velt á hliðar án þess að þurfa lyfta sjúklinginum upp sjálf. Ég passa að nýta mér það sem einstaklingurinn getur sjálfur og met reglulega hans getu og bjargráð.

Nota þyngdaraflið

minnka snúningsviðnámið

mynda skáfleti

nota vogaraflið

nota getu sjúklings

nota þau hjálpartæki sem eru til

góð samskipti við skjólstæðinginn

góð samvinna samstarfsfólks

Padlet C
Segðu frá því hvernig þú beitir flutningstækni þegar skjólstæðingur þarf hjálp við að færa sig ofar í rúmið.

Til eru nokkrar leiðir til þess að færa sjúklinga ofar í rúm. Ég get t.d notað skáa til þess að færa sjúkling ofar í rúmið. Skái er flötur sem hallar og þar af leiðandi vinnur skáinn með manni og því auðveldara verður að ná sjúklingnum ofar í rúmið.
Einnig eru undirbreiðslur mikið notaðar til þess að koma sjúklingum ofar, en þá er gott að hafa einn til að aðstoða. Það sem mikilvægt er að hafa í huga er að beygja hné, bakið beint og að sjálfsögðu er kostur ef sjúklingur getur spinnt sér í rúmið. Í sumum tilfellum hafa sjúklingar kost á að grípa í rúmgaflinn og toga sig ofar og starfsmenn taka í undirbreiðslu og færa sjúklinginn ofar, það verður auðveldara fyrir alla.
En þar sem sú aðferð krefst samvinnu, þá er gott að tileinka sér 1,2,3 og færa sjúklinginn á 3 svo að meiri líkur séu á að starfsmenn vinni í takt.

Velferð líkamans er nauðsynleg í umönnunarstörfum, sem og öllum öðrum störfum.

Padlet I
Segðu frá hjálpartæki sem eykur núningsviðnám. Segðu frá tilgangi þeirra og komdu með dæmi um slíkt hjálpartæki og segðu aðeins frá því.

Hjálpartæki sem auka núningsviðnám geta komið að gagni til að veita skjólstæðingi góða fótfestu, t.d. þegar skjólstæðingur þarf að spyrna sér ofar í rúmið.

Þessi hjálpartæki ýta undir þáttöku skjólstæðingsins.

Eykur öryggiskennd

Finnst þeir hafa meiri stjórn ef þeir taka virkan þátt.

Viðhalda getu sinni og bjargráðum.

Padlet J
Segðu frá eðlilegum tilburðum og hvernig þú getur nýtt þá í flutningstækni.

Eðlilegir tilburðir er hvernig við berum okkur að og hreyfum okkur, t.d. hvernig við löbbum, hvernig við förum fram úr rúminu, hvernig við setjumst á stól eða stöndum upp úr honum. Þessir tilburðir eru geymdir í minninu, líkaminn sér um hreyfingarnar án þess að við þurfum að hugsa um þær.
Við vitum hvernig við mannfólkið hreyfum okkur og þess vegna getum við minnkað álagið á líkamann, t.d. þegar við hjálpum skjólstæðing aftar í stól. Fyrst hugsum við með okkur hvernig skjólstæðingurinn færi að og síðan eigum við að styðja hann til að gera það á þann hátt.
Ef við erum að aðstoða einstakling að fara aftar í stól getum við bent honum á að halla sér fram og mjaka sér sitt á hvað og ýtt sér aftur með fótunum.
Þegar við nýtum eðlilega tilburði skjólstæðings erum við að nýta bjargráð hans.

Patlet V
Segðu okkur frá því af hverju það er mikilvægt að fara vel með líkamann í vinnunni.
Hvað er mikilvægt að hugsa út í í upphafi starfsferils og hvað getur þú gert til að fyrirbyggja meiðsl.
Hverju þarftu að huga að þegar þú beitir líkamanum í vinnuni.

Það sem þarf að huga vel að og er mikilvægt að þú passir vel upp á líkaman þinn og lærir straks réttar vinnustellingar, þú getur passað það að þú sér ávalt í góðu formi þá stenst líkaminn betur álagið sem starfinu fylgir. Þú verður að passa að lifta ekki þungu með því að nota hjálpartæki, vera tveir saman við verkið ef það er betra og láta skjólstæðing vinna með ef hann getur.
Þegar við eru að vinna þurfum við að huga vel að vinnustellingum okkar og að maður sé að beita líkamanum rétt, ávalt að að minna mann á að passa sig.

Þegar við lyftum þungum hlutum.

Passa það að hreyfingar verði ekki einhæfar, reyna að breyta til.

þegar við sinnum einstaklingi sem er rúmliggjandi þarf að huga að mörgu, hæð á rúmmi svo við þurfum ekki að bogra, vera tveir saman auðveldar starfið, hafa allt sem við þurfum innan seilingar og leifa einstaklingnum að hjálpa til ef hann mögulega getur.

Padlet X
Með því að spenna maga-, hrygg-, og grindarbotnsvöðva samtímis er hægt að vernda bakið við flutninga og tilfærslur, þá helst hryggurinn í eðlilegri stöðu og hægt að komast hjá bakmeiðslum.

Hryggurinn er eins og S í laginu sem veldur því að líkamsþyngd dreifist jafnt á bakið. Passa að líkamsþyngd sé jöfn á bakið og halda S sveigju á hryggnum að störfum.

Ef snúið er uppá hrygg við störf þá eykst álag á hryggjaliði.

Hægt er að komast hjá hryggjarsnúning ef “trýnin þrjú” visa í sömu átt. Trýnin þrjú eru: þitt eigið nef og tær.

Padlet M: Segðu frá flutningsskema. Hver er tilgangur þess og ávinningur af því að nota slíkt.
- Flutningsskemi er skemi sem heilbrigðisstarfsfólk fyllir út til að veita skjólstæðingi sem bestu umönnun. Þegar flutningsskemi er fylltur út skráir heilbrigðisstarfsmaður niður t.d hvað verkefnið er, geta og bjargráð, hvaða hjálpartæki voru notuð, lýsingar og athugasemdir.  Mikilvægt er þó að skrá breytingar í skeman hvort sem skjólstæðingur verður færari í að aðstoða sig eða ef færni hans minnkar.

- Tilgangur flutningsskema er svo heilbrigðisstarfsfólk geti unnið sem best í að hjálpa skjólstæðingum og að skjólstæðingur þurfi ekki að vera að finna góða leið í hvert skipti sem einhver ætlar að aðstoða hann.

- Ávinningur sem fæst af notkun flutningsskema er betri þjónusta við skjólstæðinga og auðveldar heilbrigðisstarfsmanni að vinna.

Padlet B: Segðu frá því hvernig samvinna við samstarfsfólk þitt getur haft áhrif á flutningstækni og góðar vinnustellingar.
Þegar góð samskipti og samstarf er auðveldara að hjálpast að við að flytja skjólstæðinga og viðhafa góðar vinnustillingar
- það er hægt að biðja um hjálp
- skoðanir þínar varðandi vinnuhollustu fá hljómgrunn.
- fólk er opið fyrir nújum hugmyndum.
- vinnuhraðinn er hæfilegur og verkaskipting jöfn með tilliti til líkamslegs og andlegs álags vegna skjólstæðinga.

Padlet U
Segðu okkur almennt frá vinnustellingum og vinnuvistfræði. Af hverju er þetta mikilvægt fyrir okkur og hver er tilgangur og markmið góðra vinnustellinga og jafnframt af hverju þekking á vinnuvistfræði er mikilvæg.

Að vinna sem sjúkraliði getur verið álag á líkamann ef maður beitir honum ekki rétt. Þegar maður er að aðstoða fólk upp úr stól eða rúmi þarf að hafa í huga að beita sér rétt svo maður skemmi ekki á sér bakið, þar að segja láta allan þungann á bakið.

Þú þarft að komast hjá því að ofreyna líkamann og gera hlutina rétt. Í haust fórum við á námskeið um líkamsbeitingu og það hjálpaði mér að nota líkamann minn rétt í vinnu sem þessari. Hinsvegar fólk sem fær ekki þessa fræðslu er mjög verkjað í líkamanum eftir að hafa unnið þessa vinnu í fjölda ára.

Vinnan má ekki valda ofreynslu.

Í dag eru hjálpartækin orðin svo flott að þau hjálpa manni að komast hjá því að slíta á sér skrokkinn.

Vinnuvistfræði felur í sér að tryggja hollustuhætti og öryggi á vinnustaðnum. Það felur líka í sér að maður noti þekkingu sína um líkamsbeitingu að tryggja öryggið sitt. Með stuttum orðum eru þetta vinnuverndarlög sem gilda í starfi.

Padlet Y
Segðu frá því af hverju það er mikilvægt að vinna þétt upp við viðfangsefnið. Hvað er mikilvægt að hafa í huga varðandi þetta mikilvæga atriði.
Það er mikilvægt útaf því að ef að við stöndum þétt upp við viðfangsefnið þá hlífum við bakinu og handleggjunum, en það getur reynt mikið á axlir og bak ef að við höllum okkur fram eða erum að teygja okkur til að ná því sem að við erum að vinna með og ef að við erum að vinna með einstakling þá finnst þeim þau öruggari að geta haldið sér í okkur.

Padlet H: Segðu frá því hvernig og af hverju samskipti auka öryggiskennd þegar flutningstækni er beitt.
Þegar flutningstækni er beitt er gott að hafa góð samskipti. Góð samskipti felst í að útskýra hvað eigi að gera þannig að allir viti hvernig ákveðnar flutningar munu ganga fyrir. Þá getur skjólstæðingurinn verið tilbúin fyrir það sem er að koma einnig samstarfsmaðurinn ef þið eru t.d. 2 að hjálpast að. Skjólstæðingurinn getur þá líka hjálpað, ef þú gefur honum fyrirmæli í einföldum orðum og segir það hægt og rólega.

Segjum svo að Anna sé að fara hjálpa Rakel, sem er í liggjandi stöðu, við að setjast upp á rúmstokkinn. Anna segir Rakeli að hún ætlar að hjálpa henni upp úr rúminu og réttir um leið hendurna sína. Þá veit Rakel að það sé verið að hjálpa henni upp og grípur í hendina og lyftir sér i leiðinni til að hjálpa til við átakið og gengur það vel. Hefði Anna ekki skýrt neitt fyrir Rakeli og ekkert góð samskipti á milli gæti þetta hafa farið mjög klaufalega.

Hér að neðan er mynd af mér og vinnufélaga mínum einn vinnudag þar sem við vorum í smá myndatöku fyrir mynd sem átti að nota í viðtal. Var að hjálpa henni í söru og sagði henni frá því hvað ég væri að fara gera og hvað hún þyrfti að gera svo (eins og að halda á svona höldum á hliðinni til að geta studd sér betur við.) Myndin er birt með leyfi.