Valgreinar í unglingadeild Grunnskólans í Þorlákshöfn skólaárið 2026-2027 by Garðar Geirfinnsson

Sköpun
Akrýlmálun

Nemendur kynnast akrýlmálningu, læra að vinna verk með mismunandi tækni og læra að blanda liti. Nemendur læra að byggja upp myndir og kynnast lögmálum myndlistar.

Leir

Í leirsmiðjunni fá unglingar að prófa sig áfram með leir og skapa eigin listaverk með höndunum. Kenndar eru einfaldar aðferðir og lögð áhersla á hugmyndir þátttakenda, sköpun og sjálfstæða vinnu. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg – hér má leika sér, læra og njóta í rólegu og hvetjandi umhverfi.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Sportið
Frisbígolf
Nemendur læra leikreglur frisbígolfs og spila með samnemendum. Frisbígolf er einföld og skemmtileg íþrótt sem hentar öllum.

Boltaíþróttir

Farið verður yfir allar helstu boltagreinar sem spilaðar eru hér á landi. Reglum og grunnatriðum greinanna verða gerð góð skil svo nemendur öðlist dýpri skilning á íþróttinni og geti beitt sér rétt í leik.

Golf
Nemendur kynnast og læra í gegnum leiki helstu grunnatriði golfíþróttarinnar. Kennslan mun fara fram ýmist á æfingasvæði golfklúbbsins, á útisvæði grunnskólans eða innandyra í skóla eða íþróttahúsi.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Styrkur
Styrktarþjálfun

Styrktarþjálfun er mikilvægur þáttur í íþróttum og annarri líkamlegri hreyfingu fyrir ungt fólk. Sýnt hefur verið fram á að ávinningur styrktarþjálfunar hjá börnum og unglingum er mikill og má þar nefna jákvæð áhrif á hjarta- og æðarkerfi, beinþéttni, andlega þætti og góð langtímaáhrif á heilsu. Valgreinin gagnast öllum nemendum, m.a. þeim sem langar að taka þátt í Skólahreysti.

Mikilvægt er að nemendur sem velja styrktarþjálfun hafi áhuga á því að læra og stunda styrktaræfingar, því námskeiðið er kennt allan veturinn.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Umönnun
Frístund

Nemendur fá tækifæri til að kynnast starfi yngri nemenda í frístund með því að dvelja þar við leik og störf. Nemendur fá hvatningu og aðstoð við að skipuleggja 1-2 klst. starf.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Leikskóli

Nemendur fá tækifæri til að kynnast starfi leikskólakennara og leikskólabarna með því að heimsækja Bergheima og/eða Hraunheima klukkustund í senn í níu vikur. Nemendur fá hvatningu og aðstoð við að skipuleggja 1-2 klst. starf.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Taktur
Dans og Zumba

Í dansi verður lögð áhersla á sköpun og freestyle dans. Nemendur læra grunnspor, semja dansa saman og koma fram á danssýningu skólans að vori. Zumba er skemmtileg hreyfing þar sem dönsuð eru einföld spor við skemmtilega tónlist. Styrking og mikil brennsla.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Hreysti
Heilsurækt

Heilsa er öllum mikilvæg, regluleg hreyfing, svefn og næringarríkt mataræði eru taldir mikilvægir þættir þegar kemur að heilsu. Reglulega hreyfingu er hægt að stunda á margskonar vegu og fá nemendur að kynnast nokkrum aðferðum í þessum áfanga.

Skólahreysti

Skólahreysti er liðakeppni á milli grunnskóla sem okkar skóli hefur tekið þátt í. Valgreinin gagnast öllum nemendum en sérstaklega þeim sem langar að taka þátt í liði skólans þegar kemur að keppninni Skólahreysti.

Námsmat: Virkni, áhug, frumkvæði og þátttaka.

Leikvangur
Dungeons and dragons
Í valinu munu nemendur setja sig í hlutverk ævintýrapersóna og spila sögu saman. Nemendur búa sjálfir til persónurnar sínar í samvinnu við kennara og fá að þróa þær í framvindu sögunnar. Sagan gerist í heiminum Eberron þar sem galdrar eru víðsvegar og búið er tæknivæða marga galdrahluti en afar sjaldgæft er að finna öfluga galdra. Í þeim heimi er til borg sem heitir Sharn sem hefur þá sérstöðu að hún flýtur að miklu leyti í loftinu. Persónur spilaranna verða frá þeirri borg og hefst sagan þar. Athugið að tímasetningar þessa hluta valsins verða ákveðnar í samráði við kennara.

Skák
Nemendur læra mannganginn og æfa sig í að tefla. Lögð er áhersla á rökhugsun, einbeitingu, þolinmæði og heilbrigða keppni í jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi. Skáksmiðjan hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa einhverja reynslu og býður upp á samveru, áskoranir og skemmtun.

Námsmat: Virkni, áhugi og þátttaka.

Smiðjur utan stundatöflu
Nemendur geta valið smiðjur sem verða ekki endilega bundnar ákveðnum dögum á stundatöflu.  Þessar smiðjur eru:

Aðstoðarþjálfun
Nemandi kynnist starfi þjálfara í íþróttagrein sem nemandinn hefur æft og þekkir vel. Nemandi starfar sem aðstoðarþjálfari reynds þjálfara. Valgreinin er því stunduð á þeim tímum sem æfingar fara fram. Reynt verður að koma til móts við alla þá nemendur sem vilja kynnast þjálfun í sinni íþróttagrein.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Félagsmiðstöðvarval
Nemendur taka þátt í félagsmiðstöðvarstarfi og sækja þá fræðslu og uppákomur sem boðið er uppá. Gert er ráð fyrir þátttöku í að minnsta kosti klukkustund í hverri viku. Opið er í Svítunni mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 19:00 - 21:30. Dagskrá má sjá á Instagram síðu Svítunnar svitan815 og á veggjum skólans.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Útilega og útivist

Farið verður í skemmtilega helgarútilegu að Úlfljótsvatni þar sem lögð verður áhersla á samveru, útiveru og jákvæða upplifun af náttúrunni. Helgin mun einkennast af fjölbreyttri útivist, meðal annars gönguferðum, þrautabrautum, hópefli og leikjum sem styrkja samvinnu og sjálfstraust. Útilegan gefur nemendum tækifæri til að njóta náttúrunnar, prófa nýja hluti og eiga notalega stund með jafningjum og kennurum í öruggu og stuðningsríku umhverfi.

Athugið að foreldrar þurfa að aðstoða við að útvega viðeigandi útilegubúnað og skipuleggja akstur. Fjölskyldur nemenda eru jafnframt velkomnar með. Gert er ráð fyrir að farið verði í ferðina eina helgi í ágúst eða byrjun september.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Hamarinn
Húsgagnasmíði

Markmið námsins er fyrst og fremst að gera nemendur sjálfstæða í verki, stuðla að vinnugleði og virðingu fyrir vinnu, þjálfa einbeitingu, iðjusemi og verkfærni. Lögð megináhersla á smíði nytsamlegra húsgagna, s.s. stóla, náttborða o.fl. Nemendur koma með hugmyndir eða finna þær á t.d. Pinterest og teikna, hanna og smíða með aðstoð kennara.

Málmsmíði og silfursmíði

Nemendur hanna og smíða einfalda skart- og nytjahluti úr málmi. Lögð er áhersla á skapandi og sjálfstæða vinnu nemenda.

Tálgun og útskurður

Kennd eru grunnatriði við útskurð og tálgun í tré, beiting útskurðarjárna, tálgunarhnífa og viðhald bits í þeim. Kynnt eru efni og áhöld, farið í mikilvægi teikninga og kennt hvernig færa á mynstur af teikningu yfir á tré. Farið verður í annarsvegar tálgun á nokkrum hlutum s.s. smjörhnífum, bátum og dýrum. Í útskurði verður farið í að skera og höggva út stafi og mynstur í tré.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Stíll
Húð og hár
Nemendur læra um umhirðu á húð og hári. Kynnt verða grundvallaratriði förðunar og einfaldar hárgreiðslur.

Peysuprjón

Nemendur læra grunnatriði peysuprjóns og helstu prjónatækni. Unnið er með einfaldar uppskriftir, litaval og mynstur og nemendur prjóna peysu eða hluta úr peysu. Áhersla er lögð á skapandi vinnu, handlagni og kynningu á íslenskum prjónamenningararfi.

Naglalist

Nemendur fá innsýn í naglalist, læra að snyrta eigin neglur, nota gervineglur og búa til skapandi naglaskreytingar. Mikil listsköpun felst í þessari vinnu þar sem áhersla er lögð á hreinlæti, form, litaval og persónulega tjáningu í naglahönnun.

Hekl

Nemendur læra grunnatriði í heklun og hanna eigin hluti úr garni. Áhersla er lögð á persónulegan stíl, sköpun og hönnun með einföldum aðferðum og fjölbreyttum útfærslum.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Færni
Námstækni
Nemendur kynnast fjölbreyttum aðferðum sem styrkja námsvenjur, einbeitingu og minni. Farið verður í glósutækni, skipulagningu og önnur gagnleg vinnubrögð sem nýtast í námi.

Markmiðasetning
Nemendur læra að setja sér markmið og vinna skipulega að því að ná þeim. Áhersla er lögð á sjálfsþekkingu og hvatningu og til að styðja við jákvæða þróun í námi og lífi.

Fjármálafræðsla
Nemendur fá innsýn í helstu hugtök fjármála, svo sem sparnað, neyslu og lán. Áhersla er lögð á að tengja viðfangsefnin við daglegt líf.

Framhaldsnám
Nemendur skoða námsmöguleika eftir grunnskóla og kynnast mismunandi brautum, skólum og störfum. Unnið verður með styrkleika og áhugasvið hvers og eins með framtíðina í huga.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Iðnaðarmaðurinn
Iðnaðarstörf
Í þessari valgrein fá nemendur að prófa sig áfram í ýmsum störfum sem tengjast iðngreinum eins og smíði, málningarvinnu og rafvirkjun. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni þar sem þeir læra að nota mismunandi verkfæri og vinna með ólík efni.  Lögð verður áhersla á að læra í gegnum framkvæmd, prófa sig áfram og vinna að verkefnum þar sem útsjónarsemi og samvinna skipta máli.
Nemendur fá líka að heimsækja fyrirtæki í iðnaði og kynnast störfunum beint á vinnustöðum.
Fjöldi nemenda í valinu er takmarkaður og ganga elstu nemendur fyrir.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Penninn
Lestrardýr - sögustundir
Nemendur útbúa lestrardýr á bókasafni og vinna með sögu þess. Nemendur velja sér bók sem þeir æfa upplestur og flytja fyrir yngri nemendur. Æfður “leiklestur” og framkoma.

Skólablað

Nemendur afla og vinna skemmtilegt og fjölbreytt efni í skólablað.

Yndislestur

Nemendur velja sér bækur að eigin áhuga og sinna lestri í ró og næði. Þeir fjalla um bækur sínar á fjölbreyttan hátt með hópfélögum og kennara, t.d. í umræðum, með myndrænni úrvinnslu eða munnlegri kynningu.

Árbókarskrif

Nemendur hanna skemmtilega árbók með myndum og textum um nemendur (nemendur 10. bekkjar). Árbókin verður svo gefin öllum nemendum sem útskrifast úr 10. bekk.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Metið val
Heimilt er að veita undanþágu frá valgrein með því að meta reglubundna þátttöku í félagslífi, íþróttum eða skipulögðu starfi utan skóla líkt og björgunarsveit. Einnig er heimilt að meta nám utan grunnskóla s.s. nám við tónlistarskóla, framhaldsskóla eða málaskóla. Nemendur geta fengið eina klukkustund á viku metna í vali.  Foreldrar bera ábyrgð á þátttöku nemenda í slíku starfi.

Nemendur velja fimm smiðjur nema þeir hafi óskað eftir undanþágu, þá velja þeir fjórar smiðjur.

Skjálftinn og leiklist
Skjálftinn er hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum á Suðurlandi. Nemendur búa til atriði frá grunni, þróa hugmynd, æfa, hanna búninga, sjá um förðun, hár, lýsingu og hljóðvinnslu. Atriðið endar í keppni sem fram fer að hausti. Að Skjálftaæfingum loknum tekur við leiklist en hún felur í sér þjálfun í formi æfinga og leiklesturs til að efla sjálfstraust, virkni, framkomu og leikræna tjáningu. Leikritið er svo sett á svið á vormánuðum.

Í Skjálfta/leiklist er enginn látinn gera eitthvað sem hann/hún/hán vill ekki heldur er unnið með styrkleika hvers og eins. Markmiðið með þátttöku í valinu er að bjóða nemendum upp á verkefni sem eflir sköpunargáfu, þjálfar þau í markvissu langvinnu hópastarfi sem styrkir sjálfsmynd einstaklinga og hefur jákvæð áhrif á skólamenningu.

Athugið að breytt fyrirkomulag er á þessari valgrein þar sem búið er að sameina tvær smiðjur í eina sem er þó ígildi tveggja smiðja og verða því 2 klst. á viku fastar í töflu. Þegar nær dregur sýningum er möguleiki á að bæta þurfi við æfingum utan skólatíma.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Tónmix
Nemendur fá tækifæri til að vinna með tónlist á fjölbreyttan og skapandi hátt. Unnið verður með samspil, tónlistarforrit, tónsköpun og einfaldar upptökur en viðfangsefnin geta einnig þróast út frá áhuga hópsins. Nemendur fá frelsi til að fara sínar eigin leiðir, prófa ólíkar hugmyndir og finna hlutverk sem hentar þeim. Þannig geta þau til dæmis sungið, spilað á hljóðfæri, samið tónlist, búið til takta, unnið í tónlistarforritum eða tekið þátt í upptökum og/eða myndbandsgerð.

Samspil/hljómsveit

Nemendur velja sér hljóðfæri (eða söng) og vinna saman að því að finna, æfa og flytja lög saman.

Tónlistarforrit

Nemendur fá tækifæri til að vinna með tónlistarforrit, til dæmis GarageBand eða sambærileg forrit. Þar geta þau þróað tónlistarhugmyndir áfram, búið til coverútgáfur, kvikmyndatónlist, eigin lagasmíðar, takta eða undirspil fyrir rapptexta.

Tónsköpun

Nemendur vinna með eigin tónlistarhugmyndir, einir eða í hópum eftir áhuga. Þau geta samið lag, texta, beat og rapptexta, instrumental verk eða annað. Áhersla er lögð á sköpunarferlið, tilraunir, úrvinnslu hugmynda og að nemendur fái að þróa eigin tónlist.

Upptökur og miðlun

Nemendur fá að prófa sig áfram með einfaldar upptökur á tónlist. Það getur til dæmis verið upptaka á eigin lagi, coverlagi, söng, hljóðfæraleik eða tónlist sem unnin er í tónlistarforriti. Einnig geta nemendur búið til einfalt tónlistarmyndband, lyric video eða aðra skapandi framsetningu á tónlistarverkefni sínu.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Áttavitinn
Sögusmiðja

Í sögusmiðjunni verður grúskað í sögu mannkynsins síðan í ,,gamla daga”. Hvað gerir söguna okkar áhugaverða? Hvenær gerðist hitt og þetta? Hefur sagan okkar haft mikil áhrif á það hvernig við lifum í dag? Hvað gerði fólk eiginlega áður en Netflix var fundið upp? Er saga okkar hér á Íslandi mjög frábrugðin sögu annarra landa í heiminum? Hvað veit ég eiginlega um heiminn? Hver skrifar söguna?

Landafræðismiðja

Í landafræðismiðjunni förum við út um víðan völl og sjáum hvernig heimurinn hefur landfræðilega breyst síðustu aldirnar. Hvar eru hin og þessi lönd í heiminum? Skipta landamæri eins miklu máli í dag? Eru landamæri landa að stoppa okkur í að fara þangað sem okkur langar? Getum við farið hvert sem við viljum, hvenær sem er? Hver ræður þessu eiginlega?

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.

Aðstoðarkennarinn
Nemendur aðstoða yngri nemendur á yngsta- og miðstigi við lestur og heimanám í eina klukkustund á viku. Unglingarnir vinna með nemendum í litlum hópum eða einstaklingslega undir leiðsögn kennara.

Áhersla er lögð á stuðning, hvatningu og jákvæð samskipti. Nemendur læra að axla ábyrgð, efla samskiptahæfni og styrkja sjálfstraust sitt um leið og þeir leggja sitt af mörkum til skólasamfélagsins. Þá er vel þekkt innan kennslufræðinnar að ein besta leiðin til að auka eigin skilning og þekkingu á viðfangsefni er að kenna og útskýra fyrir öðrum.

Valsmiðjan hentar nemendum sem hafa áhuga á að hjálpa öðrum og taka virkan þátt í uppbyggilegu samstarfi.

Námsmat: Virkni, áhugi, frumkvæði og þátttaka.