Barna- og unglingabækur by Elísa Sif Rannveigardóttir

Útdráttur úr bókinni.
Hún fjallar um hóp unglinga sem fær sumarvinnu úti á landi en það sem gerir þetta skuggalegt er að ekkert þeirra hafði sótt um starfið. Nokkur þeirra eru valin fyrir tilviljun til að sinna sérverkefni upp á hálendi. Þegar þangað er komið gerir eitthvað skuggalegt vart við sig. Áður en þau vita þurfa hættan tekið við og þau þurfa að berjast fyrir lífi sínu.

Um bókina.
Bókin sem við höfum valið heitir Rotturnar, eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttir.
Rotturnar er spennusaga fyrir alla unglinga.
Bókin var gefin út árið 2018 af Vöku Helgafelli og fæst í öllum helstum bókabúðum og einnig sem rafbók. Það virðist ekki vera til ítarefni eða kennsluefni um bókina.

Um höfund.
Höfundur bókar er Ragnheiður Eyjólfsdóttir. Rotturnar er þriðja bók hennar en sú fyrsta, Arftakinn, hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2015. Rotturnar var tilnefnd til íslensku barnabókaverðlaunanna árið 2018.
Ragnheiður er tveggja barna móðir og er arkitektúr að mennt. Hún býr með fjölskyldu sinni í  München, Þýskalandi.

Aldurshópur
Bókin og verkefni sem henni tengjast henta nemendum í 10. bekk.
Við teljum að það sé skemmtilegt fyrir krakka á þessum aldri að lesa sögu sem fjallar um jafnaldra þeirra. Þar með geta þau átt auðveldlega tengt við aðalpersónur bókarinnar. Börn á þessum aldri er í raun markhópur bókarinnar. Bókin er auðlesin og mun reynast nemendum skemmtileg og ævintýraleg lesning.

Við teljum að bókin henti ekki yngri nemendum þar sem meðal annars kemur allskyns ofbeldi fyrir í sögunni. Hún mun því reynast yngri nemendum fremur gróf.

Hugmynd um kennslu
Við kennslu á þessari bók notumst við við hópavinnubrögð og hver hópur er með sér viðfangsefni sem tengist bókinni.

Nemendur fá tvær vikur til að lesa bókina áður en verkefnavinnan hefst. Þegar lestarvikunum er lokið þá kynnir kennari verkefnið fyrir nemendunum.
Nemendur velja sig í þriggja til fjögurra manna hópa. Kennari býður svo nemendum að velja sér viðfangsefni sem þeir vilja helst vinna með. Viðfangsefnin eru kynntar til leiks hér fyrir neðan

Nemendur fá þrjár kennslustundir til þess að vinna verkefnið. Fyrstu tvær kennslustundirnar eru fyrir nemendur til að vinna með viðfangsefnin og síðasta kennslustundin verður nýtt í kynningar á hverju viðfangsefni fyrir sig.
Með því að kynna verkefnin þá eflast nemendur í framsögn og geta þar með nýtt fjölbreyttar aðferðir við að miðla þekkingu sinni, skoðunum og hugsunum á skipulegan og skýran hátt sem við á hverju sinni.

Nemendur hafa frjálsar hendur um hvernig þau vilja útfæra sín verkefni. Verkefnin geta verið allt frá plakatgerð til stuttmynda.

Á meðan nemendur vinna að verkefnum dregur kennari sig í hlé en labbar á milli hópa og býður fram aðstoð ef þörf er á.

Nemandi og sjálfstæði nemanda er í brennidepli.

Viðfangsefni sem nemendur geta valið úr
Persónur: Hér mega tveir hópar vinna þar sem gott úrval er af persónum. Einn hópurinn getur unnið með aðalpersónur sem og unglingahópinn. Hinn hópurinn getur fjallað um aðrar persónur sem og “vonda” fólkið í sögunni. Hér rýna nemendur í texta bókarinnar og geta greint og skilið aðalatriðin og aukaatriðin og glöggvað sig á tengslum efnisatriða. Með því styrkjast nemendur í hæfniviðmiðum í íslensku sem tengjast lestri og bókmenntum.

Höfundur: Hér má einn hópur vinna. Nemendur afla sér upplýsinga á netinu um höfund bókar. Hægt er að skoða önnur verk, verðlaun og tilnefningar og jafnvel sturlaðar staðreyndir um höfund. Í þessu verkefni öðlast nemendur hæfni í upplýsingatækni þar sem þeir geta nýtt upplýsingaverið á fjölbreyttan hátt til þekkingaröflunar og miðlunar.

Bókmenntafræðileg hugtök: Hér má einn hópur vinna. Nemendur fjalla form bókarinnar. Í hvaða persónu er bókin? Frá hvaða sjónarhorni gerist bókin? Hver er sögumaður? Hver talar? Er sögumaður alvitur? Hvert er sögusvið? Hver er innri og ytri tími bókar?  Í þessu verkefni æfast nemendur í því að geta beitt nokkrum grunnhugtökum í bókmenntafræði samkvæmt hæfniviðmiðum í íslensku.

Framhaldsögur: Hér mega vera nokkrir hópar þar sem skemmtilegt er að fá mismunandi sjónarhorn og spádóm nemenda. Nemendur ákveða hvað gerist næst í sögunni. Þau eiga að semja framhald á bókina og leysa úr þeim spurningum sem sitja eftir lestur hennar. Nemendur hafa frjálsar hendur um hvernig þau vilja hafa framhaldið sitt og eiga að leyfa ímyndunaraflinu leika lausum hala. Í þessu verkefni átta nemendur sig á sköpunarmætti tungumálsins og geta nýtt sér hann til skáldskapar í ritun. Þessi hæfni tilheyrir hæfniviðmiðum í málfræði.

Svartidauði: Hér má einn hópur vinna. Nemendur geta fjallað um svartadauða og afleiðingar hans. Það er hægt að skoða hvernig hann byrjaði, hvernig hann smitaðist á milli manna, hvaða áhrif hann hafði á íslenskt samfélag, hvernig hann dó út og hvort að það sé hægt að finna hann í dag. Hérna eiga nemendur að geta nýtt fjölbreytta miðla og hjálpartæki á ábyrgan hátt við að leita upplýsinga og til stuðnings í námi sínu, og styrkjast þar með í hæfniviðmiðum sem eiga við nýtingu miðla og upplýsingar.

Afhverju völdum við Rotturnar?
Við teljum þessa bók henta virkilega vel fyrir þennan tiltekinn aldurshóp. Bókin er vel skrifuð og auðlesin, spennandi og skemmtileg. Eins nefnt var hér áður þá teljum við að nemendur geti tengt við persónur bókarinnar þar sem þær eru jafnaldrar þeirra. Bókin er skrifuð með það í huga að henta þessum aldurshópi.

Við skipulögðum hópverkefni með nokkur viðfangsefni sem öll stuðla að mismunandi hæfniviðmiðum.  Með því að kynna verkefnin fyrir bekknum þá eflast nemendur í framsögn og geta þar með nýtt fjölbreyttar aðferðir við að miðla þekkingu sinni, skoðunum og hugsunum á skipulegan og skýran hátt sem við á hverju sinni.
Hópvinna stuðlar að samvinnu nemenda og lýðræði innan hópsins þegar þau þurfa að ákveða hlutverkaskipti.
Við ákvöðum að nemendur myndu hafa frjálsar hendur um hvernig þau útfæra verkefnin sín. Þau mega gera plakat, leikþátt, stuttmynd, lag og svo lengi má telja. Með því að leyfa þeim að hafa frjálsar hendur, þá taka þau ábyrgð á verkefninu sínu sjálf og geta unnið að listrænum hæfniviðmiðum.

Bókin er í sjálfu sér listaverk. Hún er þannig skrifuð að lesendur hreinlega sökkva í hana og gleyma sér algerlega. Sögusvið og persónur eru mjög framandi og maður heillast í fyrstu köflum bókar. Uppbygging bókar er mjög þægileg og svo má ekki gleyma spennandi fléttu sem gerir góða bók ennþá betri.

Lokaorð
Bókin Rotturnar er tilvalin lesning fyrir ungmenni. Út frá henni er hægt að skapa skemmtilegt og fjölbreytt verkefni þar sem nemendur geta átt kost á því að spreyta sig og unnið út frá sínum styrkleikum. Eftir að þessu verkefni líkur þá hafa nemendur þjálfast í margvíslegum hæfniviðmiðum sem og samvinnu, að taka ábyrgð á eigin námi og getað miðlað upplýsingum og niðurstöðum sínum til annara.

Heimildir
Mennta- og menningarmálaráðuneyti. (2013). Aðalnámskrá grunnskóla: Almennur hluti 2011: Greinasvið 2013. Reykjavík: Höfundur.

Ragnheiður Eyjólfsdóttir. (2018). Rotturnar. Reykjavík: Vaka-Helgafell.

Skald.is. (E.d). Ragnheiður Eyjólfsdóttir. Sótt af https://www.skald.is/product-page/ragnheiður-eyjólfsdóttir