Eðlisvísindaverkefni by Gudridur Emma

1. Blásið í lófann á sér. Hvað er það sem maður finnur fyrir? Hvað segir þetta manni um loft?
Ef blásið er í lófann á manni finnur maður fyrir þrýsting í lófanum vegna loftsins sem beitt er. Jafnframt finnur maður hitann þegar blásið er í lófann. Þetta bendir til þess að loft hafi massa og það sé til jafnvel þó það sé ekki áþreifanlegt.

2. Blásið á pappahólka (t.d. úr klósettpappírrúllum) þannig að þeir rúlli. Af hverju hreyfast þeir? Hvað segir það okkur um loft?
Pappahólkurinn hreyfist því loftið sem við blásum frá okkur ýtir honum eins og sjá má á þessu myndbandi. Loft hefur massa og hefur því í kjölfar áhrif á aðra hluti sem hafa líka massa. Þessi athugun undirstrikar enn frekar að loft er til.

3. Hvernig er hægt að setja pappír ofan í vatn án þess að það blotni?
Loftið umhverfis pappírinn í glasinu hefur rúmmál. Vegna þess að loft er eðlisléttara en vatn reynir það að komast upp en er lokað inni í glasinu. Pappírinn blotnar því ekki þar sem hann er umlukinn lofti sem kemst ekkert.

4. Fallhlíf búin til úr ferköntuðum taubút með böndum í hvert horn. Tveir eins hlutir látnir detta hlið við hlið annar með fallhlíf en hinn án fallhlífar. Hver er mismunurinn á fallinu? Af hverju stafar þessi munur?
Með þessari athugun má sjá að hluturinn með fallhlífinni er lengur á leið til jarðar en sami hlutur sem er ekki með fallhlíf. Ástæðan fyrir þessu er að fallhlífin tekur á sig loft og verður loftmótstaða sem gerir það að verkum að sá hlutur með fallhlífinni helst lengur í loftinu en sá hlutur sem er án hennar.
Loftið hefur meiri áhrif á þann hlut sem hefur meira flatarmál þó að massi hlutanna sé svipaður.

5. Plastpoki yfir og ofan í glasi, teygja utan um. Plastið dregið úr glasinu. Hvers vegna er erfitt að ná plastpokanum úr glasinu?
Hér er gerð athugun með plastpoka og glasi. Sýnilegt er að ef dregið er pokann úr glasinu verður minni þrýstingur í glasinu en fyrir utan það. Loftið sem er inni í glasinu leitast við að halda sama þrýstingi og togar pokann því niður þegar reynt er að toga hann upp.

6. Glas með vatni í og spjald yfir. Glasinu snúið við (yfir vaski). Hvað heldur vatninu í glasinu?
Loftþrýstingurinn undir glasinu og þar með spjaldinu, er meiri heldur en þrýstingurinn af vatninu niður á við. Krafturinn sem heldur spjaldinu er því sterkari en sá sem ýtir því niður. Sem útskýrir afhverju vatnið helst uppi.

7. Kerti í skál með smá vatni yfir, glas sett yfir kertið.
Það sem breytist við vatnsyfirborðið þegar glasið er sett yfir kertið er að vatnssyfirborðið utan glassins minnkaði og vatnsyfirborðið innan glassins hækkaði. Þetta gerist vegna þess að súrefnisskortur varð þegar kertið slökknaði og eldur lifir á súrefni. Við þetta minnkar rúmmálið og þrýstingurinn innan í glasinu og vatnið sogast inn í glasið til að viðhalda jöfnum þrýstingi. Þess vegna slökknaði á kertinu þegar glasið fór yfir það því súrefnið kláraðist í glasinu.

8. Glas með köldu vatni og annað með heitu vatni. Lítill dropi af matarlit í hvort glas. Fylgistmeð litnum dreifast um glösin. Hver er munurinn og af hverju stafar hann?
Matarliturinn breiðist með mismunandi hætti út í báðum glösum. Munurinn er sá að það er miklu meiri hraðari hreyfing á litnum í heita vatninu en í kalda vatninu. Sameindirnar í heitu vatni hafa því mun meiri hraða en í köldu vatni og því dreifist liturinn hraðar í því heita. Grunnhugmyndin er sú að allt efni er gert úr eindum og að eindirnar séu að hreyfast og hraðinn á eindunum sé meiri því hærri sem hitastigið er. Er þetta sýnilegt þar sem liturinn í heita vatinu verður fljótt að dreifast og verður vatnið allt grænt en hins vegar er liturinn í kalda vatninu liggur liturinn ennþá í slæðum og dreifist mun hægara.

9. Flaska með blöðru yfir stútnum í heitt vatn og í kalt vatn.
Heita vatnið hitar loftið í blöðrunni og við það hreyfast sameindir loftsins hraðar. Í kjölfar þess þennst blaðran út. Ef sama er gert með kalt vatn gerist ekkert og blaðran skreppur  saman þar sem hreyfing á sameinda loftsins í flöskunni eykst ekki þar sem loftið hitnar ekki. Hægt er að gera þetta fram og tilbaka að færa flöskuna frá því heita yfir í kalda og því kalda yfir í heita og þennst blaðran út í hvert skipti sem hún fer oní heita vatnið en skreppur síðan saman um leið og hún fer yfir í kalda vatnið.

10. Blaðra í frysti. Blaðra blásin upp og ummál hennar mælt. Hún er sett í fyrsti í að minnstakosti klukkutíma. Ummál hennar mælt um leið og hún er tekin úr frystinum. Ummál hennarsíðan mælt í þriðja sinn þegar hún hefur verið við stofu hita í að minnsta kosti klukkutíma.Berið saman mælingarnar. Mikilvægt er að ummálið sé mælt með sama hætti í öllum tilfellum.
Blaðra er blásin upp og síðan er hún mæld og mældist hún 26 sm. Er hún síðan sett í frysti og látin bíða í u.þ.b. klukkutíma. Þegar blaðran er tekin út er hún mæld aftur og mældist hún þá 25,6 sm. Því má álykta að ummál blöðrunar minnkar við það að frysta hana. Aftur á móti þegar blaðran er búin að vera við stofuhita í ákveðna stund varð hún aftur sama ummáli og fyrir frystinguna. Ástæðan fyrir að þetta á sér stað er vegna þess að loftsameindirnar hreyfast hægar í kulda en hita, þar með tekur blaðran minna rúmmál í kulda en endurheimtir fyrri lögun þegar hún nær aftur sama hitastigi.

11. Skoða eftirfarandi sýndartilraun og beina athyglinni að því sem gerist þegar hitastiginu er breytt: https://phet.colorado.edu/sims/html/gases-intro/latest/gases-intro_en.html
Sameindirnar sem eru inn í kassanum fara á meiri hreyfingu eftir því sem hitastigið verður hærra, jafnframt eykst þrýstingurinn. Aftur á móti fara sameindirnar mikið hægar þegar hitastigið fer lækkandi. Þegar þrýstingurinn verður of mikill brýst efnið að lokum út og því getur þrýstingurinn ekki aukist endalaust.