Jon Dewey by Ingibjörg Ragna Malmquist

YouTube video

Dewey í kennslustofunni
Nemendur þurfa sjálfir að bera ábyrgð á sinni vinnu með því að framkvæma, uppgötva og leita lausna. Kennarinn er aðallega leiðbeinandi og tilbúinn til að aðstoða ef nemendur þurfa. Hann getur einnig leitt nemendur inn á rétta braut ef honum finnst þeir vera á rangri leið. Dewey telur kennarann þó mikilvægan í námsferlinu en hann eigi að starfa sem leiðbeinandi frekar en agastjórnandi.

Dewey var mikill talsmaður hópvinnu og hann lagði áherslu á mikilvægi hópvinnu og að nemendur fengju með lýðræðislegum hætti að vinna að sameiginlegum viðfangsefnum í hópum.

Kenningin
Þegar Dewey kemur fram með sínar kenningar þykja þær róttækar, á þeim tíma var kennsla af gamla skólanum þar sem kennarinn stendur fyrir framan bekkinn og matar nemendur með upplýsingum. Dewey og hans hugmyndir eru að stórum hluta byggðar á reynslu einstaklingsins og áherslan er á barnið sjálft og þarfir þess. Hann talar um námskrá sem að tengir saman mismunandi námsefni og nemendur geti labbað inn og út úr stofunni. Kennarinn þarf því frelsi til að geta túlkað námskránna með þarfir nemanda sinna í huga. Dewey vill meina að lærdómur eigi að vera hluti af lífinu en ekki undirbúningur fyrir lífið og því eigi að hugsa í núinu, menn læra best í gegnum upplifanir og reynslu.

Hver er maðurinn?
John Dewey fæddist í Vermont 20. október 1859. Hann var klár krakki og fór 15 ára í háskólann í Vermont þar sem hann lærði heimsspeki. Eftir að hann útskrifaðist kenndi hann tvö ár í framhaldsskóla og eitt ár í grunnskóla. Dewey útskrifaðist með PhD frá Hopkins háskóla árið 1884 og hóf eftir það að kenna í háskóla. Hann kenndi við háskólann í Michigan, Chicago og endaði ferilinn sem prófessor við Colombia háskóla í New York.
Hann er þekktastur fyrir kenningar sínar um "progressive education" þar sem hann hélt því fram að nemendur lærðu best með því að vera virkir og taka þátt í sínu námi.

Afhverju Dewey?
Þegar farið var af stað með þetta verkefni var hugmyndin að fá nemendur til að fá nemendur til að vinna sjálfstætt og skapa sitt eigið nám sjálfir. Nemendurnir eru í 10.bekk og útskrifast bráðum úr grunnskóla. Það eru ákveðin tímamót í lífinu, þeir hafa þá val um hvort þeir fari í framhaldsskóla, vinna eða eitthvað allt annað.

Hugmyndir Dewey falla vel að verkefninu. Hann talar um reynslu og að læra í gegnum upplifun. Nemendur eiga að fara eigin leiðir við að afla sér upplýsinga í verkefninu. Þeir eru hvattir til að hafa samband við ferðaskrifstofur eða önnur fyrirtæki, hlusta á reynslusögur og fleira til að hafa verkefnið sem nálægast raunveruleikanum og hægt er.

Dewey er mikill talsmaður hópvinnu. Í þessu verkefni er unnið í hópum. Hópvinna er góður undirbúningur fyrir lífið því að í atvinnulífinu er lögð mikil áhersla á samvinnu og verkaskiptingu. Þar sem nemendur útskrifast bráðum úr grunnskóla er gott að fá reynslu úr teymisvinnu því flestir fara nú bráðlega að finna sér vinnu allavega sumarvinnu.