Matsaðferðir - María by Lilja Margrét Óskarsdóttir - HA

Grunnupplýsingar um Barthel
Árið 1965 var þróað matstæki sem mælir sjálfstæði einstaklings við athafnir daglegs lífs, það var þróað af Dr. Mahoney og Dr. Barthel. Matstækið fékk nafnið Barthel index og hefur notið vinsælda síðan það var þróað og hefur mest verið notað þegar kemur að endurhæfingu og þá helst þegar kemur að einstaklingum sem hafa fengið heilablóðfall (Mahoney, F. I., & Barthel, D. W., 1965).

Grunnupplýsingar um A-ONE
A-ONE  er staðlað iðjumiðað matstækið sem notað er af iðjuþjálfum til að meta einstaklinga með taugasjúkdóma sem hafa áhrif á athafnir daglegs lífs (ADL). Matstækið er byggt á hugmyndafræðilegum grunni sem sýnir fram á það að bein tengsl eru á milli ADL færni og taugaeinkenna sem draga úr framkvæmd einstaklings. Matstækið gefur upplýsingar um ADL-frammistöðu og skerðingu sem veldur takmörkunum á sjálfstæði. A-ONE er matstæki fyrir athafnir daglegs lífs sem endurspeglar starfsemi miðtaugakerfisins sem ekki er hægt að fylgjast með beint (A-one, e.d.)

Íslensk þýðing Barthel Index
Ólöf Ragna Ásmundardóttir þýddi matstækið yfir á íslensku.

A-one. (e.d.). Forsíða.

Landspítalinn. (e.d.). Matstæki.

A-ONE

Íslensk þýðing A-ONE
Matstækið er þýtt yfir á íslensku af Guðrúnu Árnadóttur sem er íslenskur iðjuþjálfi.

Hvers vegna Barthel?
Við myndum nota barthel til þess að geta metið sjálfstæði Maríu. María hefur alltaf verið sjálfstæð og það er mjög mikilvægt fyrir henni en það hefur hrakið undanfarið þar sem hún glímir við MS sjúkdóm, sjúkdómurinn hefur mikil áhrif á allar hennar athafnir daglegs lífs en María er tilbúin að takast á við ýmsar breytingar til þess að viðhalda færni og koma í veg fyrir að lífsgæði hennar skerðist ekki enn frekar. Með því að nota Barthel index myndum við geta metið sjálfstæði Maríu út frá stigafjöldanum sem hún skorar í matstækinu og unnið út frá því hvernig hægt væri að vinna að þeim athöfnum sem hún skorar lágt í og hvernig hægt er að viðhalda færni í þeim sem hún skorar hátt í. Hún hefur t.d. átt í erfiðleikum við að baðast núna þar sem hún þreytist mjög auðveldlega.

Hvers vegna A-ONE?
María glímir við erfiða taugasjúkdóminn MS og er matstækið hannað fyrir einstaklinga með taugasjúkdóma. MS hefur það mikil áhrif á allar þær athafnir sem hún sinnir í daglegu lífi og þar með hentar matstækið vel.

Fyrir hvern er Barthel Index?
Barthel hentar vel fyrir fólk sem er til dæmis í endurhæfingu og hentar því vel fyrir Maríu.

Fyrir hvern er A-ONE?
Matstækið er notað til þess að greina áhrif truflunar á taugatferli hjá fullorðnu fólki sem er með truflun á starfsemi í miðtaugakerfi heilabarkar með því að skoða athafnir þeirra (A-one, e.d.)

Barthel Index

Grunnupplýsingar um framkvæmdagreiningu
Framkvæmdagreining er matstæki sem getur verið bæði staðlað og óstaðlað.

Í staðlaðri framkvæmdagreiningu er notast við mat á hreyfingu og verkferli ásamt mati á hreyfingu og verkferli skólabarna. Óstöðluð framkvæmdagreining er svipuð og stöðluð en þá ef notað er matið hreyfing og verkferli er fylgst með skjólstæðing framkvæma verk sem skiptir honum máli.

Við framkvæmdagreiningu er beitt áhorfi sem beinist að ferli útkomu framkvæmdanna, oftast í ljósi sjálfstæðis, skilvirknis, öryggis, áreynslu og annars vegar færni í samskiptum.

Fylgst er með skjólstæðing framkvæma fyrirfram ákveðið verk og gæði framkvæmdarinnar eru metin (Sigrún Garðarsdóttir og Kristjana Fenger, 2011).

Hvers vegna framkvæmdagreining?
Það sem við myndum taka fyrir væri óstöðluð framkvæmdagreining þar sem við myndum fylgjast með Maríu framkvæma verk sem skiptir hana máli.

Færnin hennar Maríu hefur hrakað mikið niður við athafnir sem skipta hana miklu máli eins og að baka, fara í göngutúr, innkaup og eigin umsjá. Okkur og Maríu finnst mikilvægt að hún haldi í sjálfstæðið sitt og viljum við meta hana í framkvæmd til þess. Við myndum nota framkvæmdagreiningu til þess að meta hvort að hægt væri að auðvelda henni þessar tilteknu athafnir sem skipta henni máli og kanna hvort hún gæti þurft á einhverjum hjálpartækjum að halda.

Fyrir hvern er framkvæmdagreining?
Framkvæmdargreining hentar vel fyrir alla. Þar sem notað er áhorf til að fylgjast með einstaklingi framkvæma það sem hann getur í hans stöðu og skiptir því aldur/kyn og fleira ekki máli þegar kemur að framkvæmdargreiningu þar sem hún er metin fyrir hvern og einn.

Sigrún Garðarsdóttir og Kristjana Fenger. (2011). Greining iðju og athafna. Í Guðrún Pálmadóttir og

Snæfríður Þóra Egilson (ritstjórar), Iðja, heilsa og velferð: Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi

(bls. 93- 97). Háskólinn á Akureyri.

Framkvæmdagreining

Hvað metur matstækið?
Við notkun matstækisins A-one eru notaður kvarði sem samanstendur af 20 atriðum ADL ásamt kvarða sem metur áhrif taugaeinkenna við framkvæmdaþætti.

Með matstækinu er hægt að setja fram markmið fyrir skjólstæðing sem glímir við taugasjúkdóm með þeim upplýsingum sem safnast hafa við upplýsingaöflun (A-one, e.d.)

Fyrir frekari upplýsingar um framkvæmdagreiningu
Í bókinni iðja, heilsa og velferð er greinagóður kafli um framkvæmdagreiningu sem gefur góðar og áreiðanlegar upplýsingar um hvernig framkvæmdagreining virkar. Í kaflanum er hægt að sjá dæmisögur sem eykur skilning.

Fyrir frekari upplýsingar um A-ONE
Hægt er að lesa meira um matstækið A-one á heimasíðunni a-one.is.

Hvers vegna göngupróf?
María hefur alla sína ævi verið mikið fyrir útivist og gönguferðir en geta hennar til þess hefur hrakið vegna máttleysis og þreytu af völdum sjúkdómsins MS. Þannig okkur langar til þess að leggja fyrir hana göngupróf til að meta getu hennar til að ganga og meta aðstæður út frá því, mögulegt væri að finna hjálpartæki eða eitthvað álíka.

Grunnpplýsingar um göngupróf
Göngupróf er óstöðluð matsaðferð. Markmið gönguprófs er að meta vegalengd sem einstaklingur getur gengið á 6 mínútum og bera saman við heilbrigða einstaklinga á sama aldri. Verið er að meta púls, mettun, blóðþrýsting og öndunartíðni. Metið er með borgskala fyrir áreynslu 6 - 20 og svo borgskala fyrir mæði 0-10 við álag.

Mikilvægt er að einstaklingur sem verið er að meta sé í góðum skóm og þægilegum fötum. Einnig að hann sé úthvíldur og búin að taka lyfin sín ef það á við. Einstaklingur skal ekki vera búinn að borða eða drekka koffíndrykki amk 1 klst fyrir próf.

Framkvæmd gönguprófs
Það sem skal hafa til taks fyrir göngupróf

amk 30 metra langur beinn gangur.

Súrefnismettunarmælir og blóðþrýstingsmælir

Hlustunarpípa , skeiðklukka og borgskala bæði fyrir áreynslu og mæði ásamt eyðublaði.

Einstaklingur situr rólegur í amk 10 mín áður en gönguprófið hefst. Útskýrt er fyrir framkvæmd að einstaklingur eigi að ganga fram og til baka ganginn eins margar ferðir og hann treystir sér til á 6 mínútum og að hann megi stoppa og hvíla sig ef þörf er á, en má einnig bara halda strax áfram.

Síðan eru mæld lífsmörk ásamt borg skala og annað á þremur stigum í prófinu.

1 - í hvíld fyrir próf.

2 - í lok prófs.

3 - Eftir próf.

Skráðar eru svo upplýsingar um súrefnisgjöf, lengd gangs, lyf ásamt hversu oft hann stoppaði, hvort það voru verkir/svimi til staðar og annað sem gæti haft áhrif á mælingar.

Mælt er með að framkvæma að amk 2 próf og hafa þá amk 2 tíma á milli prófa til að fá meiri marktækni.

Það á ekki að hvetja einstaklinginn áfram en það má láta vita um tímann en halda skal þó samræðum í lágmarki.

Göngupróf

Hvað metur matstækið?
Matstækið er staðlað og gengur út á að meta hversu sjálfstæður einstaklingur getur verið og er það sett upp með stigakerfi og einstaklingur getur skorað í heildina 100 stig. Það er fremur auðvelt að vinna með matstækið þar sem það er auðvelt í framkvæmd og áreiðanleiki þess er góður. Til þess að fá sem skýrasta og nákvæmasta mynd af einstaklingum sem matstækið er lagt fyrir er gott að spyrja einnig aðstandendur eða það fólk sem aðstoðar einstaklinginn dagsdaglega (MDApp, e.d.).

Matur: 10 stig

Klæðnaður: 10 stig

Snyrting: 5 stig

Böðun: 5 stig

Salernisferðir: 10

Hægðir: 10

Þvag: 10

Flutningur úr rúmi/stól: 15 stig

Göngugeta: 15 stig

Göngugeta í stiga:  15 stig

(Shah, S., Vanclay, F. og Cooper, B., 1989).

Íslensk þýðing á gönguprófi.
Unnið í september 2006 af Jóhönnu Konráðsdóttur, Sólrúnu Jónsdóttur, Gígju Magnúsdóttur,

Elvu Rún Ívarsdóttur og Kristínu I Pálsdóttur sjúkraþjálfurum á LSH.

Þýðingin er þó ekki formleg né stöðluð.

Íslensk þýðing á framkvæmdargreiningu
Háskólinn á Akureyri. Upphaflega unnið af Sigrúnu Garðarsdóttur upp úr OTIPM námskeiðsgögnum frá Ann Fisher 2005. Endurbætur unnar af Guðrúnu Pálmadóttur, Kristjönu Fenger og Sigrúnu Garðarsdóttur á árunum 2006-2015. Eyðublað endurbætt í samræmi við Fisher og Marterella (2019) - Hulda Þórey Gísladóttur og Hólmdísi Methúsalemsdóttur, 2021

Fyrir hvern er göngupróf?
Gönguprófið er hugsað fyrir lungnasjúklinga og hjartasjúklinga. Taugasjúklinga, offitusjúklinga, aldraða og aðra með grun um skert þrek.

Hvað er gert í heimilisathugun?
Heimilisathugun er óstöðluð matsaðferð. Í heimilisathugun mætir fagaðili og metur bæði félagslegar og efnislegar aðstæður og hvernig aðstæður eru á heimili fólks og hvernig einstaklingnum gengur að fara um heima hjá sér. Auk þess sem veitt er ráðgjöf og fræðsla þegar kemur að líkamsbeitingu, hjálpartækjum og hvort breytingar gætu átt sér stað á heimilinu til að auðvelda umgang og færni (Landspítali, e.d.)

Landspítalinn. (e.d.). Heimilisathugun.

Hvers vegna heimilisathugun?
María býr ásamt eiginmanni sínum í raðhúsi á einni hæð.

Færni hennar og líðan getur verið mjög mismunandi eftir dögum og koma dagar þar sem hún þarf að nota hjólastól innandyra. Auk þess hefur María átt erfitt með að fara í sturtu þar sem hún á erfitt með að beygja sig ef hún missir t.d. sápuna, auk þess að hún þreytist fljótt.

Við myndum mæla með heimilisathugun fyrir Maríu til að sjá hvort það er eitthvað sem hægt væri að breyta á heimilinu til að auðvelda henni aðgengi og þá eins hvort það séu hjálpartæki sem gætu hentað Maríu að hafa heima hjá sér til að halda í færni og auðvelda henni athafnir daglegs lífs. Þá má nefna til dæmis sturtustól og sokkaífæru.

Það væri gott að geta séð umhverfið sem María er í dags daglega og reynt að aðlaga það betur að henni og hennar færni.

Barthel Index
MDApp. (e.d.). Modified Barthel Index for Activities of Daily Living Calculator. https://www.mdapp.co/modified-barthel-index-for-activities-of-daily-living-calculator-362/

Barthel
Mahoney, F. I., og Barthel, D. W. (1965). Barthel Index. Maryland State Medical Journal, 14, 61-65. PMID: 14258950.
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/14258950/

Barthel Index
Shah, S., Vanclay, F. og Cooper, B. (1989). J Clin Epidemiol. Vol. 42, No. 8. 703-9.