love star lokaverkefni by

Aðalpersónur
Sigríður og Indriði eru kærustapar og ástin þeirra er flókin. Hún byrjaði á þvi að vera sæt eins og hunang og þau gerðu allt fyrir hvort annað, Hún endaði á þvi að verða verri og þau fengu svolitið nóg af hvor öðru en það lagaðist í endann. Þau eru bæði handfrjálsir nútímamenn og Sigríður vinnur í ellifyrirtæki og Indriði vinnur í lóuverksmiðjunni. Í "LoveStar" eru Sigríður og Indriði að takast á við vandamálin sem skapast af tækniframförum og hvernig þær geta haft áhrif á mannlegt eðli og sambönd. Þau reyna að finna jafnvægi milli tækninnar og tilverunnar, berjast fyrir því að varðveita einkalíf og tilfinningar í heimi þar sem allt virðist vera undir stjórn stórfyrirtækja.

Örvar er stofnandi Lovestar og fær hann allar hugmyndir á bak við allt sem tengist lovestar, Ragnar er samstarfsmaður hans og er yfirmaður ÍSTAR. Hann á það til að taka hugmyndunum of langt og gera of mikið úr þeim eins og með að henda líkunum í heklu.

Ástin og vonin
Ástin er ein af fallegustu og mátta mestu tilfinningum sem við getum upplifað. Hún gerir okkur kleift að finna gleði og skapandi orku í lífinu. Vonin er einnig mjög mikilvæg, því hún hjálpar okkur að halda áfram og trúa á betri framtíð. Ástin og vonin eru mikilvæg hugtök sem tengjast sögunni "LoveStar". Í bókinni er fjallað um þau hugtök í samhengi við ástarsambönd og von um betra líf. Sigríður og Indriði, aðalpersónurnar, eru í leit að leiðum til að bæta heiminn og skapa von um framtíðina. Þau sýna ástarsamband og traust í hvor annað, sem er einnig mikilvægt þáttur í sögunni. Þau reyna að nota ástina og vonina sem kraft til að berjast fyrir breytingum og skapa jákvæð áhrif í heiminum. Þetta tengir hugtökin ástin og vonina við söguna og ræðst þau áfram í sögunni.

Lovestar reiknar pörum saman, flestir eru sáttir með útreikningana sína en sumir hlusta ekki á lovestar fylgja hjartanu sínu. Sigríður var ein af þeim sem líkaði ekki við sína útreikninga og tengdi hún mikið meira við Indriða heldur en Per möller.

Sköpun - tortíming - endurfæðing
Lovestar bjó til þenna veruleika og var með hugmyndina af handfrjáls á manninum og allt sem kom heiminum þeirra við. Tortrimingin var svo milljónstjörnuhátíðin sem gekk út á það að skjóta milljón búðum upp í geim og mynda satúrnusar baug í kring um jörðina gerðan úr lifandi búkum fólks. Algengt var að fólk sem átti kannski ekki nægan pening fyrir útferð sinn smyglaði ser með í lovedeath og afleiðingar þess ættu að vera þær að búðunum myndi vera sturtað niður í heklu eða víti. Sagan endaði svo þannig að það var heimsendir en Sigríður og Indriði voru einu sem lifðu af vegna þess að þau voru í maga úkraína, þau fundu svo fræ sem var plantað og nýr heimur varð til.

Markaðssetning og Auglýsingar
Notaðar voru tvennskonar aðferðir til þess að auglýsa og markaðssetja sú fyrsta er laumuhýsill, lovestar notaði laumuhýsla til þess að vera einskonar sölumenn og stundum störfuðu þeir sem njósnar, þeir gátu safnað grófustu upplýsingunum um fólk og sóttu upplýsingar í gegnum gagnageymslu á Svalbarða. Galalar er seinni aðferðin og herbragð þeirra var að fá menn til að kaupa fyrst og hrósa þeim síðan. Herferðir þeirra hittu alltaf í mark enda engin leið til að forðast þær. Galarakerfið var skilvirkt, einfalt og þæginlegt, auglýsingagildrur voru það helsta sem þeir gerðu. Það var ekki talið fínt að vera galari. Indriði átti að verða galari eða labbandi auglýsing eins og sumir kölluðu það en hann vildi það alls ekki.

Eftirlífið
Eftirlitið er einskonar njósna aðferð sem notuð er til þess að fylgjast með fólki og hvað þau eru að gera. Til dæmis voru fiðrildi heima hjá Indriða og Sigríði sem fylgdust með því sem þau gerðu og sögðu. Einnig var hægt að fá sýn eins og maður sé inni í augunum á öðrum manni, þannig að ef maður gerir það getur maður bókstaflega séð allt sem hinn aðilinn sér. Miðað við lífið í dag er þetta svo sem ekkert rosalega öðruvísi en í þessum heimi þar sem heimurinn okkar hefur meiri tækni en við gerum okkur grein fyrir. Fylgst er með öllu sem við gerum í tækjunum okkar og þó svo að maður geti ekki sett sig í augu annara og séð hvað aðrir eru að sjá er samt mjög mikið af gögnum frá okkur söfnuð saman út frá því sem við notum. Kostirnir geta verið margir en ókostirnir líka, kostirnir geta verið þeir að maður getur grafið upp upplýsingar þegar þess er þörf en ókostirnir geta verið þeir að vitlausar og rangar upplýsingar geta komist á framfari.

Hugmynd er harðstjóri
"Hugmynd er harðstjóri"! Í LoveStar er mikil áhersla lögð á hugmyndir og hvernig þær geta haft áhrif á samfélagið. LoveStar, sem er stórt tæknifyrirtæki í sögunni, stjórnar hugmyndum og breytir þeim í raunveruleika. Dæmi um þetta er þegar þau færa fram hugmynd um að nota fugla sem sendiboða, sem breytir algerlega samskiptum fólks. Þetta tengist okkar samfélagi í dag, þar sem tæknin hefur mikil áhrif á okkur. Hugmyndir geta haft áhrif á hvernig við hugsum, við eigum í samskiptum við hvort annað.

Maðurinn hefur ekki lengur stjórn á tækninni heldur tæknin manninum
Í LoveStar er tæknin orðin harðstjóri og stjórnar manninum. Þetta hefur mikil áhrif á samfélagið. Í sögunni er tæknin notuð til að stjórna og stýra hegðun fólks, til að skapa uppáhaldsáhugamál og til að stjórna tilfinningum. Dæmi um þetta er þegar LoveStar breytir hugsunum og tilfinningum fólks með því að stjórna þeim með tækninni, eins og að þegar Sigríður var pörun með Per Möller en málið var að hún fílaði Indriða miklu betur en Per. Þessir hlutir hafa áhrif á frelsi persónanna í sögunni.