Hæfnimiðað nám og leiðsagnarnám, ráðstefna í Hraunvallakóla 14. ágúst 2024 - Uglurnar í Víkurskóla by Ingvar Sigurgeirsson

Kynning á Víkurskóla
Kynningarmyndina er einnig að finna á ensku og pólsku á heimasíðu skólans: https://vikurskolinn.is/

Fiona Elizabeth Oliver og Hildur Anna Seljan, kennarar í Víkurskóla: Uglur - samþætting námsgreina á unglingastigi með leiðsagnarnám að leiðarljósi
Víkurskóli er nýsköpunarskóli þar sem lögð er áhersla á skapandi hugsun, hönnunarhugsun, nemendalýðræði, teymiskennslu og samþættingu námsgreina. Í öllum árgöngum eru kenndar svokallaðar Uglur sem byggja á samþættingu námsgreina og eru verkefni unnin þematengt, ýmist sem hópa- eða einstaklingsverkefni.

Í þessari málstofu kynna kennarar Víkurskóla Uglurnar, sem skipulagðar eru með tvennum hætti; annars vegar í íslensku, náttúrufræði, samfélagsfræði og upplýsinga- og tæknimennt og hins vegar í ensku, íslensku, samfélagsfræði og upplýsinga- og tæknimennt. Uglurnar eru skipulagðar af ugluteymum og mikil áhersla á fjölbreytt verkefni og þau samtvinnuð og metin út frá hæfniviðmiðum allra námsgreinanna. Samvinna nemenda er mikil og er aðferðum leiðsagnarnáms beitt og lögð áhersla á skapandi skil.

Leiðsagnarnám í uglukennslu
Það er gífurlega einfalt að samtvinna leiðsagnarnám við uglukennsluna.

Hvatningarverðlaun Skóla- og frístundaráðs 2023
Víkurskóli fékk hvatningarverðlaun Skóla- og frístundaráðs fyrir verkefnið Regnboginn sem er ugla sem kennd var í fyrsta sinn í 9. bekk haustið 2022. Regnboginn er námsefni um hinseginleikann sem eykur og dýpkar skilning nemenda á hinseginleika. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni á meðan uglunni stóð en loka m.a. barnaefni þar sem hinseginleiki kemur við sögu.

Höfundar Regnbogans eru Edda, Fiona og Hildur og tóku þær við verðlaunum á Öskudagsráðstefnunni.

Kynnarnir á uglunum
Fiona Oliver er með B.A. í alþjóðlegu námi í menntunarfræði og M.Ed. í kennslufræði grunnskóla og ólst upp í Kanada. Hún hefur starfað við Barnaskóla Hjallastefnunnar, Kelduskóla og nú Víkurskóla. Frá 2019 hefur Fiona verið leiðtogi í leiðsagnarnámi í svokölluðum þekkingarskólum. Fiona skrifaði umsögn um bók Nönnu Kristínar Christiansen Leiðsagnarnám, hvers vegna, hvernig, hvað? sem birtist í Skólaþráðum. Hún tók að sér að verða leiðtogi leiðsagnarnáms og hefur haldið því starfi áfram í Víkurskóla með afar góðum árangri. Síðustu tvö ár hefur hún haldið úti námskeiði fyrir Menntafléttuna sem kallast Leiðsagnarnám – fyrstu skrefin. Fiona hlaut viðurkenningu Íslensku menntaverðlaunanna í flokknum Framúrskarandi kennari árið 2023.

Hildur Seljan er með B.A. í ensku og kennsluréttindi í framhalds- og grunnskóla. Hildur er að austan en hefur einnig búið lengi á Suðurlandi og í Reykjavík. Hún býr nú í Reykjavík ásamt eiginmanni, tveimur börnum og læðunni Lunu sem stjórnar heimilinu. Hún hefur aðallega fengist við enskukennslu, bæði í framhalds- og grunnskóla, en með tímanum hafa fleiri og fleiri námsgreinar bæst við og nú er hún búin að kenna allar skyldugreinar grunnskólans nema stærðfræði. Hildur hefur kennt víða, m.a. í Menntaskólanum á Egilsstöðum, Menntaskólanum í Kópavogi, Sæmundarskóla og Kársnesskóla. Starfsárin við kennslu eru nú að verða tólf. Hildur tók þátt í að móta nýtt skólakerfi í Menntaskólanum á Egilsstöðum sem kallast spannakerfi og bjó til, ásamt samkennara, fyrstu áfangalýsingarnar í ensku sem notaðar voru sem grunnur um land allt í framhaldsskólum. Hildur hefur einnig tekið að sér enskukennslu á áfangaheimilinu Krýsuvík í gegnum MK og fannst henni það gjöfult og skemmtilegt verkefni. Hún byrjaði sem kennari við Víkurskóla haustið 2021 og fór strax inn í uglurnar en einnig hefur hún tekið að sér að leiða kynfræðslu í Víkurskóla og er komin á fullt skrið í Erasmus+ verkefnum skólans. Hildi finnst uglur gefa sér endalaus tækifæri til sköpunar og frelsis og líður alveg eins og Fionu; í réttum teymum er allt hægt og allt skemmtilegt! Hildur er í leiðtogahlutverki í uglum.

Vefsíða í mótun
Vefsíða um Uglurnar okkar í Víkurskóla er þessa dagana að líta dagsins ljós - endilega fylgist með!

Sýnidæmi úr Uglum

Aftur á ráðstefnusíðuna

Förum á flug: Nýsköpun, samþætting og teymisvinna í skólastarfi Víkurskóla
Við Hildur erum spenntar að deila nýlegri grein okkar sem birtist í Skólaþráðum - tímariti Samtaka áhugafólks um skólaþróun í janúar síðastliðin. Greinin kafar ofan í þróun og framkvæmd samþættingar námsgreina í eitt fag, Uglu, ásamt því hvernig við nýtum leiðsagnarnám í kennslu. Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynnast efninu frekar veitir greinin nákvæma innsýn í þróunarstarf okkar. Hér er hlekkur til að lesa meira um starfið okkar í Víkurskóla.

Kennsla og nýting á þekkingu nemenda Víkurskóla
Á vorönn prufuðum við að nýta þá þekkingu sem nemendur okkar hafa og fá aðstoð þeirra við að kynna kosti samþættingar og leiðsagnarnáms.

Fyrsta verkefnið var í samstarfi við Súsönnu Margréti Gestsdóttur, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Þar tókum við átta nemendur með okkur til að kynna samþættinguna okkar Uglur fyrir kennaranemenum. Eftir að við höfðum haldið smá tölu fóru kennaranemar að útbúa sína eigin uglu með aðstoð sérfræðinganna okkar nemendanna. Reynslan og upplifunin skilaði á allan hátt góðum árangri.

Við í Víkurskóla tökum síðan oft við heimsóknum úr öðrum skólum og eftir að krakkarnir höfðu sýnt og sannað að þau höfðu svo mikið fram að færa fórum við í að þjálfa tvo hópa af nemendum í 10. bekk til útskýra og segja frá leiðsagnarnámi í gegnum Uglur. Það má með sanni segja að þessi aðferð virkar vel og ætlum við því að halda því áfram.