Stéttar- og fagfélag leikskólakennara ( áður Fóstrufélag Íslands) by Jóna Eydís Jónsdóttir - HI

#Kennarastofan
Kennarastofan er hlaðvarp um nám og kennslu í breyttum heimi. Markmið Kennarastofunnar er að auka samtal kennara um kennslu.

Félag leikskólakennara
Félag leikskólakennara (FL) er annað fjölmennasta aðildarfélag Kennarasambands Íslands, með um 2.400 félagsmenn. Sögu FL má rekja aftur til ársins 1950 en þá var fyrsta félag leikskólakennara stofnað. Fyrsti formaður var Elínborg Stefánsdóttir. Félagið starfaði sem fagfélag til ársins 1988 en á því ári fékk félagið samningsrétt. Félag leikskólakennara gerðist aðili að Kennarasambandi Íslands árið 2001.

Siðareglur KÍ
Nýjar siðareglur voru samþykktar á 8. þingi KÍ 2022.

Fagmennska kennara snýr að nemendum. Kennari:

Menntar og stuðlar að alhliða þroska

Sýnir áhuga og umhyggju

Ber virðingu fyrir fjölbreytileika og ólíkum þörfum

Virðir réttindi og lætur sig hagsmuni og velferð varða

Eflir og eykur víðsýni

Fagmennska er kjarni siðareglna. Kennari:

Er meðvitaður um valdastöðu sína og misnotar hana ekki

Eflir gagnrýna hugsun og ræðir siðferðileg álitamál

Skapar góðan starfsanda, hvetjandi námsumhverfi, eflir sjálfsrækt og starfsgleði

Stuðlar að uppbyggilegum samskiptum um málefni nemenda

Hefur jafnrétti að leiðarljósi og vinnur gegn hvers kyns fordómum, áreitni, ofbeldi og mismunun

Vinnur að jákvæðri ímynd stéttarinnar

Viðheldur faglegri hæfni sinni og þekkingu

Fagmennska kennara snýr að samfélagi. Kennari:

Gætir að heiðri og virðingu stéttar sinnar

Gætir að framkomu sinni á opinberum vettvangi

Er meðvitaður um samfélagsábyrgð sína

Gætir trúnaðar við nemendur og forráðamenn

Fagmennska kennara snýr að samstarfsfólki. Kennari:

Leitast við að eiga góð og uppbyggileg samskipti

Gætir trúnaðar

Ber virðingu fyrir fjölbreytileika

Tekur þátt í faglegu samstarfi á uppbyggilegan hátt

Lög félagsins
Lög Félags leikskólakennara voru samþykkt á aðalfundi félagsins 30. september 2022.

Nafn
Félagið heitir Félag leikskólakennara, skammstafað FL og á aðild að Kennarasambandi Íslands, skammstafað KÍ. Félagssvæðið er allt landið. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

Hlutverk
Hlutverk félagsins er að:

fara með málefni félagsmanna og vera málsvari þeirra,

gera kjarasamninga fyrir félagið og standa vörð um áunnin réttindi,

halda fundi og námskeið fyrir trúnaðarmenn,

sjá um kjör fulltrúa á þing KÍ,

efla stéttarvitund leikskólakennara og faglega umræðu,

efla og standa vörð um menntun leikskólakennara,

eiga samstarf við faghópa, félög annarra kennara og stjórnenda og stofnanir og félög sem láta sig varða málefni barna,

stuðla að alhliða framförum í uppeldis- og menntamálum barna.

Aðild

Aðild að félaginu geta átt:

kennarar

þeir sem lokið hafa þriggja ára háskólanámi með bachelor gráðu,

þeir sem lokið hafa leikskólafræðum til diplómu,

sem starfa við uppeldi, menntun eða ráðgjöf í leikskólum eða stofnunum og fyrirtækjum sem tengjast kennslu-, uppeldis- og fræðslumálum barna og eru félagsmenn í KÍ og FL semur fyrir, skv. lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna, lögum nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur eða samkomulagi við viðkomandi launagreiðanda, enda sé starfshlutfall þeirra að lágmarki 25%.

Rétt til félagsaðildar skal staðfesta við ráðningu með viðeigandi gögnum um starfsréttindi.

Vísindasjóður FL og FSL
Markmið sjóðsins:

auka tækifæri félagsmanna til faglegrar starfsþróunar, rannsókna og þróunarstarfa

að félagsmenn geti sótt um styrk til andlegrar og/eða líkamlegrar sjálfseflingar

Til hvers:

koma til móts við þarfir félagsmanna

hægt að sækja um styrki til starfsþróunar og endurmenntunar innan- og utanlands

einstaklings- og hópstyrkir í boði

Hvað er í boði:

námskeið, ráðstefnur og skólagjöld, innan- og utanlands

Hámark 350.000 kr. á 24 mánaða tímabili

andleg og/eða líkamleg sjálfsefling, innanlands

t.d. tómstundir, líkamsrækt og sjálfstyrking

60.000 kr. á 12 mánaða tímabili, skerðir ekki möguleika á styrkjum úr öðrum sjóðum

Framhaldsnám hérlendis, ef nám nýtist í starfi

greiðsla miðast við fjölda eininga – allt að 180 ECTS á 5 ára tímabili

5000 kr. á einingu, hámark 900.000 kr. á 5 ára tímabili

Skólaheimsókn/kynnisferð til útlanda – hópstyrkur

á fjögurra ára fresti

styrkur innan Evrópu er 170.000 kr. og 190.000 kr. utan Evrópu

skilyrði fyrir styrk er að helmingur starfandi kennara skólans fari í ferðina, dagskrá þarf að standa yfir í einn og hálfan dag (12klst.)

Skólaheimsókn/kynnisferð hérlendis – hópstyrkur

hægt að fá á 2ja ára fresti

80.000 kr.

dagskrá þarf að standa yfir í einn dag (7-8 klst.), má dreifast á tvo daga

Styrkur til doktorsnáms

heildarupphæð 480.000 kr., greiddur út í fjórum hlutum og verður að vera eitt ár (365 dagar) á milli greiðslna

Þróunarstyrkur

vegna þróunar- og rannsóknarstarfa

til einstaklinga eða hópa félagsmanna, faghópa og nefnda innan FL og FSL

Orlofssjóður KÍ (OKÍ)
Fyrir hverja:

félagsmenn KÍ

réttindi sem fæst í gegnum punktainneign

Hvað er í boði:

Orlofshús

hægt að finna orlofshús eða íbúð til leigu víða um land

Ferðaávísun

til að greiða fyrir gistingu innanlands, ýmsir gististaðir í boði

er niðurgreidd um 25% af OKÍ, hámark 12.000 kr. á ári

Gjafabréf Úrval-Útsýnar og Sumarferða

gilda sem 30.000 kr. innborgun í auglýstar pakkaferðir

hægt að kaupa 2 miða á ári

Gjafabréf hjá Icelandair, Play og Erni

ýmsar upphæðir í boði

Útilegukortið

veitir tveim fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára fría gistingu í allt að 28 gistinætur

gildir á tjaldsvæðum víða um land

Veiðikortið

veitir nær ótakmarkaðan aðgang að 3 veiðivötnum víða um land

gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára veiða frítt

kostar 5.500 kr.

Styrkur vegna göngu- og bátsferða

hægt að sækja um niðurgreiðslu vegna göngu- og bátsferða og (gildir ekki í Baldur/Herjólf) á vegum viðurkennds ferðaskipuleggjanda

endurgreiðslan er 15% af andvirði ferðar að hámarki 7.500 kr.

Afslættir

afslættir hjá ýmsum fyrirtækjum víða um land

Fóstrufélag Íslands
Barnavinafélagið Sumargjöf var stofnað árið 1924 sem lagði grunnin að stofnun Fóstrufélags Íslands sem varð svo Félag Íslenskra leikskólakennara árið 1991.

6.Febrúar 1950 var Stéttafélagið Fóstra stofnað. tilgangur félagsins var að annast kjarasamninga og gæta hagsmuna félagsmanna.

þegar starfandi fóstrur gerðust fastir borgarstarfsmenn í Desember 1964 gekk Stéttarfélagið Fóstra úr ASÍ og

og fóstrur gerðust í framhaldinu félagsmenn starfsmannafélaga í viðkomandi sveitarfélögum.

Nafni félagsins var breytt í Fóstrufélag Íslands árið 1965. í lögum félagsins segir m.a að tilgangur félagsins sé að efla fóstrustéttina, glæða áhuga á öllu, er varðar fóstrustarfið, efla framhaldsmenntun og gæta fjárhagslegra hagsmuna félaganna.

Félagið starfaði sem fagfélag til 1988 en þá öðlaðist það samningsrétt. Félagið skipti síðan um nafn 1991 og tók upp núverandi nafn, Félag íslenskra leikskólakennara.

Félag stjórnenda í leikskóla
Félag stjórnenda leikskóla var stofnað þann 30. apríl 2010 og er í dag eitt af sjö aðildarfélögum Kennarasambands Íslands. Félagsmenn eru um 450.

Hlutverk þess er að vinna að bættum kjörum félagsmanna sinna, efla og standa vörð um menntun leikskólakennara og stjórnenda í leikskólum. Ennfremur að stuðla að alhliða framförum í uppeldis- og menntamálum barna, láta sig öll málefni barna varða, gæta hagsmuna leikskóla í hvívetna og að kynna sem best starf leikskóla meðal þjóðarinnar.

Formaður félagsins starfar á skrifstofu KÍ, Sigurður Sigurjónsson

Félag leiksólakennara skiptist í 9 svæðadeildir sem hér segir:
1. deild - Reykjavík.

2. deild - Kópavogur, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnes, Hafnarfjörður, Álftanes og Kjós.

3. deild - Vesturland og A-Barðastrandarsýsla.

4. deild - Vestfirðir, utan A-Barðastrandarsýslu og Strandabyggðar.

5. deild - Norðurland vestra að Fjallabyggð ásamt Strandabyggð.

6. deild - Norðurland eystra, frá Fjallabyggð að Bakkafirði.

7. deild - Austurland frá Bakkafirði til Skaftárshrepps.

8. deild - Suðurland og Vestmannaeyjar.

9. deild - Suðurnes.

Stjórn FL getur heimilað félagsmönnum í þeim leikskólum sem starfa á mörkum svæðadeilda að velja aðild að svæðadeild. Slíkar breytingar skulu eiga sér stað um áramót og stjórnum viðkomandi deilda tilkynnt um þær.

Hlutverk svæðadeilda er að vera málsvari félagsmanna á sínu svæði og sjá til þess að haldin séu trúnaðarmannanámskeið, deildarfundir og annað í samráði við stjórn FL. Ennfremur að annast kjör fulltrúa á þing KÍ í samráði við stjórn FL.

Stefna KÍ um þátttöku í erlendu samstarfi
Markmiðið með þátttöku í erlendu samstarfi er að fylgjast með því helsta sem er að gerast í kjara-, skóla og menntamálum og málefnum kennara og skólastjórnenda annars staðar í heiminum og til að miðla til annarra því sem markvert er á Íslandi.

KÍ er aðili að alþjóðasamtökum kennara, Education International (EI) og greiðir þátttökugjald til EI.

KÍ á aðild að samtökum kennara og skólastjórnenda á Norðurlöndum, Nordiske Lærerorganisationers Samråd (NLS). NLS eru samtök kennara og skólastjóra á öllum skólastigum og hafa um 600.000 félagsmenn. Í stjórn samtakanna á KÍ þrjú sæti, eitt þeirra skal skipað formanni KÍ.
Í framkvæmd samkvæmt heimild frá NLS: Einn fulltrúi KÍ frá leikskólastigi, einn frá grunnskólastigi og einn frá framhaldsskólastigi.

Mikilvægt er að tengja starfið bæði við kjaramála- og skólamálavettvang félaganna. Þátttaka félaganna er bundin fjárheimildum í fjárhagsáætlun hvers aðildarfélags KÍ.

Formaður Félags leikskólakennara
Haraldur Freyr Gíslason var kjörinn formaður félags leikskólakennara fyrir kjörtímabilið 2011-2014, hann hefur verið formaður félagsins síðan þá.
Haraldur er fæddur í Hafnarfirði árið 1974 og hefur búið þar nánast alla ævi. Hann var vel virkur sem drengur, hann var til dæmis í körfubolta,borðtennis, snóker, hestaíþróttum leiklist, tónlist og mikill fótboltastrákur.
Þegar hann fór að vinna á leikskóla fann hann að það hentaði honum mjög vel, fékk að vera hann sjálfur. Hann náði alltaf vel til ákveðins hóps barna, sérstaklega stráka sem létu hafa mikið fyrir sér, því hann þekkti það af eigin raun að vera fjörugur drengur. Hann starfaði sem deildarstjóri á leikskólanum Hörðuvöllum í Hafnarfirði.
Haraldur komst inn í kennaraháskólann á undanþágu vegna aldurs og starfsreynslu og er útskrifaður leikskólakennari. Lokaverkefni hans í kennaraháskólanum vann hann með Heiðari Erni Kristjánssyni sem lengi hefur verið samferðamaður hans í tónlist og svo í leikskólakennaranáminu. Þeir skrifuðu um barnamenningu og tengdu lögin sín við ýmislegt fræðilegt úr náminu, úr því varð til hljómsveitin Pollapönk sem síðar keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision með góðum árangri.