Mælitæki og mælitækni by Helgi Valur Harðarson

Umræðuvettvangur
Komið þið sæl. Mér finnst svona veggir hafa komið vel út í áföngum hjá mér sem vettvangur til að koma á framfæri aukaefni, skapa umræður og auka samskipti í áföngum.

Það væri því gaman ef þið og við gætum sett hér inn það efni sem okkur dettur í hug að gæti nýst í áfanganum. Ég fagna líka gagnrýni á það sem fram fer í áfanganum, allt er þetta í stöðugri endurskoðun og þróun.

Hvernig líst ykkur annars á þetta gervigreindarbrölt? Ég er að gera tilraunir með þessi hlaðvörp gervigreindar upp úr þurrum kynningum á námsefni. Er þetta að bæta einhverju við?

Podcast um byggingamál
Hæhæ

Kannski þekkið þið öll þetta podcast, en ég hlusta stundum á Gulla Byggi, hann er að taka viðtöl við allskonar fólk í byggingaiðnaðinum. Mæli með þættinum um Kleifarkór 8, þar sem kaupendur einbýlis lentu í miklum vandræðum. Kv Egill

Dæmi um laser eða mæliverkefni
Sæl, ég er að vinna í að uppfæra áfangann aðeins og í því tilliti er ég að búa til dæmi sem koma inn á efni áfangans. Gætuð þið hjálpað mér að koma með hugmyndir að bæði einföldum og flóknum hæðarsetningum og mælingum á byggingarstað?

Mætti til dæmis ímynda sér einhverjar aðstæður þar sem við þurfum að færa laserinn og nota viðmiðið áfram... eða bara eitthvað. Betur sjá augu en auga, ekki satt?

Smá spurning
Samkvæmt byggingarreglugerð (4.11.3. gr. Öryggismál ) er að tryggja að framkvæmdir fari fram með fullnægjandi öryggisráðstöfunum, eftir því sem aðstæður leyfa. Þar kemur fram að taka skuli tillit bæði til starfsmanna á vinnusvæðinu og annarra sem kunna að koma á vinnustaðinn. Einnig er byggingarstjóra skylt að sjá til þess að vinnustaður sé merktur með húsnúmeri og götuheiti, auk þess að framfylgja tilmælum leyfisveitanda um öryggisráðstafanir á lóðarmörkum, svo sem varðandi vinnupalla og öryggisbúnað.

Spurningin mín er þá.

Teljið þið að byggingarstjórar beri í raun fulla ábyrgð á því að þessum ákvæðum sé fylgt í framkvæmd, eða lendir ábyrgðin of oft á verktökum og starfsfólki á staðnum?

Villa í sýnidæmi
Ég tók eftir villu í sýnidæmum 2 í dæmi 3. Punkthæð er gefin upp 38,230 m,
en í athugasemd stendur 58,530 m. Þessar tölur eiga að vera þær sömu, þannig að þetta virðist vera innsláttar eða afritunarvilla.  Gott að hafa þetta í huga ef þið eruð að æfa ykkur.

Ef svona villa kæmi upp á verkstað hvernig myndum við greina hana? og hvaða áhrif gæti hún þá haft á framhaldsútreikninga?

Verkefni 5, dæmi 3
Hæ, ég er að puða við verkefni 5, dæmi 3. Hvernig nota ég millipunktana? Hef ekki fundið hvernig það er gert - er stopp. Er einhver búinn með þetta?

Pæling
Mig langar að benda á eitt sem ég hef séð töluvert í bransanum.

Það eru oft gerðar smávægilegar breytingar á staðnum, til dæmis á burðarbita eða opnun, án þess að það fari í gegnum breytingateikningar eða formlegt ferli. Þetta gerist sérstaklega í minni verkefnum þar sem menn vilja bara klára málið.

En samkvæmt byggingarreglugerð eiga allar breytingar sem hafa áhrif á burðarvirki eða brunavarnir að fara í samþykktarferli.

Spurningin er hvort kerfið sé orðið of þungt og flókið í framkvæmd eða hvort þetta sé einfaldlega orðið ákveðið agaleysi sem hefur smám saman normalíserast í þessu?

Verkefni 6 - myndbönd
Sælinú, það var gaman að fara yfir verkefni 6, upp úr myndböndunum. Alltaf gaman að fá smá innsýn í ykkar vinnu og aðstæður.  Ég tók hérna saman svör ykkar við spurningunni um laser speglunina:

1. Gler og speglar

Algengasta orsökin er þegar laserinn lendir á yfirborðum úr gleri eða speglum.

Dæmi:

Gluggar í húsum

Speglar

Gler í byggingum eða tækjum

Þá getur geislinn speglast og myndað fleiri laserlínur sem gera erfitt að sjá hvaða lína er sú rétta.

2. Glansandi eða speglandi yfirborð

Yfirborð sem eru mjög slétt eða glansandi geta einnig endurkastað geislanum.

Dæmi:

Málmur eða málmklæðningar

Háglans plast

Bílar (sérstaklega bónaðir bílar)

Slétt málmyfirborð á byggingum

Sum byggingarefni með mikinn glans

3. Endurskins- eða ljósendurkastandi efni

Efni sem eru hönnuð til að endurkasta ljósi geta valdið truflunum.

Dæmi:

Endurskinsmerki á vinnufatnaði

Endurskinsborðar

Sum mælitæki eða vélar með endurskinsflötum

4. Umhverfisáhrif

Stundum getur umhverfið sjálft valdið speglun eða truflun.

Dæmi:

Rennandi vatn

Klaki eða ís á veggjum eða yfirborðum

Sterkt sólarljós sem veldur glampa eða endurkasti

5. Aðstæður sem geta aukið líkur á villum

Þó að þetta sé ekki beint endurkast geta ákveðnar aðstæður gert vandamálið verra:

Laserinn eða mælistikan er ekki beint stillt

Mælipunktur er rangur

Mælt er við slæm birtuskilyrði

Tæki er ekki rétt stillt

Samantekt:
Laserhæðarmælir getur gefið ranga mælingu þegar geislinn lendir á yfirborðum sem endurkasta eða spegla ljós, sérstaklega gleri, málmi, glansandi efnum, endurskinsmerkjum eða jafnvel vatni og ís. Endurkastið getur myndað aukageisla eða fleiri línur sem móttakarinn getur ruglast á.

Verkefni 6 - myndbönd - lausnin
Hér tók ég saman svör við því hvernig ætti að forðast þetta endurkast laser línunnar sem getur ruglað í öllum mælingum:

1. Velja góða staðsetningu fyrir laserinn

Mikilvægt er að staðsetja laserinn þannig að geislinn fari ekki á fleti sem geta endurkastað honum.

Dæmi:

Velja hentugan stað fyrir tækið

Passa að geislinn skíni ekki á glugga, spegla eða glansandi fleti

Hækka eða lækka laserinn ef hætta er á endurkasti

Stilla geislann aðeins í þá átt sem mælt er, ef tækið býður upp á það

Þetta getur dregið úr líkum á að auka- eða fölsk lína myndist.

2. Hylja eða afmarka speglandi fleti

Ef ekki er hægt að forðast endurkastandi yfirborð má reyna að loka á þau eða skyggja á þau.

Dæmi:

Hylja glugga eða spegla

Setja spjald, krossvið eða annað efni fyrir framan flötinn

Nota matt efni til að minnka speglun

Nota hettu eða skyggni á laserinn ef það er í boði

3. Stilla tækið rétt

Rétt uppsetning og stilling skiptir miklu máli.

Dæmi:

Passa að laserinn sé rétt stilltur og beinn

Gæta þess að geislinn lendi þar sem á að mæla

Nota aðeins þá geisla eða glugga sem þarf, ef tækið hefur þann möguleika

Passa að tækið sé ekki þannig staðsett að margar línur geti ruglað mælinguna

4. Staðfesta mælinguna

Nemendur nefna oft að besta vörnin sé að treysta ekki fyrstu aflestri einum og sér.

Gott er að:

Mæla oftar en einu sinni

Færa móttakarann aðeins upp og niður til að kanna hvort hann nemi fleiri en eina línu

Tvíathuga á öðrum punkti nálægt

Bera saman við mælingu með stiku eða annarri aðferð ef grunur vaknar

Þannig má oft greina hvort móttakarinn sé að lesa réttan geisla.

5. Vera vakandi fyrir umhverfinu

Mikilvægt er að skoða aðstæður vel áður en mæling hefst.

Dæmi:

Meta hvort gluggar, bílar, málmklæðningar eða aðrir glansandi hlutir séu nálægt

Athuga birtuskilyrði og glampa

Vera meðvitaður um að endurkast getur gerst jafnvel þótt búnaðurinn sé góður og nákvæmur

Samantekt:
Til að varast endurkast þarf að staðsetja laserinn vel, forðast speglandi fleti, hylja það sem getur endurkastað geislanum, stilla tækið rétt og tvíathuga mælingar. Mikilvægast er þó að vera vakandi fyrir aðstæðum og gera ráð fyrir að endurkast geti komið fram.

Verkefni 4 og 5, töflurnar
Sæl, ég er ögn hugsi yfir verkefnum 4 og 5, mér fannst þau koma vel út heilt yfir en er að spá með skilin, fékk athugasemdir um þetta eyðublað. Var það mikil fyrirhöfn að fylla svona út í þetta? Ég gerði alltaf ráð fyrir að þið reiknuðuð þetta á blaði og settuð svo inn svörin.

Látið mig bara hafa það ef ykkur finnst þetta rugl framsetning, ég fer ekkert ofan af því að þið þurfið að læra þetta, en er til í að íhuga hvernig þetta á að bera fyrir ykkur, eða næsta hóp það er.

Verkefni 8
Wassupp:)

Hvernig gengur mönnum með hnita spurningar og útreikninga í verkefni 8, einhver buin með þetta??

Hnitasetning lóðar án mælitækja.
Komið Sælir/Sæl

Ég var beðinn um að hjálpa við að sækja um stækkun lóðar í lónsbakkahverfinu. Var tekið fyrir og samþykkt á umhverfis og skiplagsfundi í gær 19 mars. Ég rissiaði í loftmynd línur og skýrði í texta staðsetningu miðað við lóðarhnit. það sem mig vantaði var aðgengi að hnitun til að geta reiknað raunverulega stækkun. gat ekki sett inn fleiri skjöl set hin tvö í svörum

Stækkun byggingareits og breytingar á aðgengi.
Hæ hæ

Ég fór líka í að vinna verkefni fyrir sjálfan mig á Hjalteyri ég setti inn mjög einfalda umsókn með það að leiðarljósi að ég fengi leiðbeiningar um næsti skref. Enn passaði mig á því að setja inn góðan rökstuðning til að fá meðbyr. Ef ég hefði verið buinn að vinna verkefni 8. Þá hefði ég unnið þetta aðeins öðruvísi. Segið mér hvernig finnst ykkur þetta til að opna samtalið.?

Fjarlægðarmælar
Sælir, ég er að velta fyrir mér með fjarlægðarmæla, hversu mikið eru þeir í notkun og hve mikið treysta menn á þá? Ég varð nýverið vitni að því að mælir var keyptur í fagmannaverslun á Akureyri og skilað samdægurs af því hann gaf sjaldan sömu niðurstöðu fyrir sömu mælinguna. Fyrir 10-15 árum voru þetta eiginlega bara leikföng, gáfu svona einhverja hugmynd en samt ekki.

Spurningin er, eruð þið að nota þetta og treystið þessu? Einhverjar týpur að skara fram úr hvað þetta varðar?

Útmælingar á nýrri byggingalóð í dreifbýli og ábyrgð byggingarfulltrúa sveitarfélagins.
Daginn.

Fyrir nokkrum árum var ég að hjálpa við að reisa byggingu í nágranna sveitafélagi Akureyrar.

Teikningar voru lagðar fyrir ásamt breytingum, til sveitarfélagsinns. Þær samþykktar, stimpaðar, staðsettningar og hnit á nýrri bygginarlóð sett út í samvinnu við mælingamans frá sveitarfélaginu og loks komu jarðvinnuverktakar til að taka holuna.

Þegar greftri var lokið og komið var að fyllingu kom melding frá sveitarfélaginu.

Nýr byggingarfulltrúi tekin við.

Eftir nokkra daga var okkur tjáð að verkið hefði verið stöðvað. Í ljós kom að fyrri fulltrúi hafði ekki tekið mið af reglugerð sem tilgreinir hversu nálægt nýbyggingar eiga að vera frá vegum.

Í þessu tilviki malarvegur sem er ekki partur af hringveginum en engu að síður í notkun árið um kring.

Í ljós kom að færa þurfti húsið um húsbreiddina.( 8.metra til vestur) og þurfti það að gerast á kostnað verkkaupa.(150fm)

Spurningin er: þegar fráfarandi byggingarfulltrúi samþykkir byggingu í einu og öllu og gerir engar athugasemdir við nokkurn hlut, kvittar og stimplar leyfi og víkur svo úr starfi, ætti þá embætti hans ekki að bera einhverja lagalega skyldu gagnvart verkkaupanum sem tekur á sig talsverða hækkun byggingarkostnaðar, vegna þess að byggingarfulltrúa yfirsést eitthvað sem arftaki hans ákveður að breyta og senda reikninginn á verkkaupa.

Staðlota bílamál
Dagskráin á föstudag gerir ráð fyrir að við förum í heimsókn á byggingarstað úr VMA, ég vil biðja þau í hópnum sem verða ekki á bíl að senda mér tölvupóst, helgi.v.hardarson@vma.is.  Þá auglýsi ég hér eftir einhverjum sem hafa pláss í bílnum svo við komumst öll í Skarðshlíðina, verður það nokkuð vandamál?

Rakst óvart á þetta myndband "Skipurlagsmistök í Gufunes" og fannst það mjög áhugavert. Ef þetta er rétt þá virðist þetta vera ansi mikið skipulagsklúður.

Ég fór aðeins að leita af upplísingum um málið  en fann lítið miðað við hvað ásakanirnar eru stórar, meðal annars um skjalafals og mistök í skipulagi. Gæti verið að menn hafi verið að mæla út frá vitlausu hæðarkerfi og vilji ekki viðurkenna það.

Hvort sem þetta er allt rétt eða ekki þá finnst mér þetta allavega vert að skoða betur.