Dagur by Ingibjörg Ragna Malmquist

Hugmyndafræði
Þegar farið var á stað með þetta verkefni voru hugmyndir tveggja
kenningasmiða, Freire og Dewey, hafðar að leiðarljósi. Allir eiga þeir það sameiginlegt að líta á nám óhefðbundnum augum, þeir vilja ekki sjá þessa hefðbundnu bekkjarkennslu þar sem kennarinn stendur upp á töflu og predikar yfir bekknum. Freire og Dewey eru mjög hrifnir af hópvinnu og verður það form notað í þessu verkefni. Dewey talar um að nemendur eigi að geta labbað inn og út úr kennslustofunni og að tengja eigi mismunandi námsefni saman.  Freire leggur áherslu á samræðu og mikilvægi þess að nemendur læri að bera virðingu fyrir skoðunum hvers annars og efla gagnrýna hugsun.

Tvöfaldur tími
Verkefnið verður unnið á vorönn sem spannar 18vikur. Tveir 40mín tímar á þriðjudögum 10-10:40 & 10:45-11:25 eru ætlaðir verkefninu. Nemendur vinna saman í fimm 4-5 manna hópum. Verkefnið er bútað niður í þrjú verkefni og þegar hvert verkefni er búið er það kynnt í kennslustund áður en haldið er áfram í næsta verkefni.

Kennslustofa
Nemendur geta fært til borð og stóla til að búa til þægilega hópvinnu aðstöðu. Nemendur geta líka farið fram og tillit sér í sófa eða notað matsalinn ef þeir vilja meira næði, þeir þurfa samt að tilkynna kennaranum hvar þeir ætla að vera til þess að hann geti komið og litið á þá.

Kennari&Nemendur
Kennarinn sinnir mikilvægu hlutverki í þessu verkefni sem og í öðru skólastarfi. Starf hans hér er að vera leiðbeinandi og vinna með nemendum. Hann reynir að fá nemendur til að vinna sjálfstætt og bera ábyrgð á sínu eigin starfi. Hlutverk kennarans er að búa til gott námsumhverfi svo að nemendur geti blómstrað.

Tími nr. 3
Nemendur eru komnir vel á stað með að undirbúa kynningu á heimsálfunni sinni sem að þeir eiga að kynna í tíma nr. 5.

Í upphafi tímans setjast nemendur saman í hópana sína og kennarinn byrjar á hefðbundnu nafnakalli. Síðan hafa nemendur það sem eftir er að tímanum til að vinna sjálfstætt í verkefninu, þeir ráða hvort þeir taki frímínútur eða fari fimm mínútum fyrr. Kennarinn labbar á milli og tekur stöðuna á verkefninu. Hann spyr spurninga og reynir að fá nemendur til að hugsa gagnrýnið um eigin vinnu. Kennarinn leiðbeinir nemendum eftir bestu getu en passar sig að vera ekki að stýra nemendum.